Morgunblaðið - 02.03.2012, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2012
● Eimskip hefur gengið frá kaupum á
þremur frysti- og kæliskipum sem
smíðuð voru í Árósum í Danmörku.
Eimskip hefur verið með skipin á leigu
síðan árið 2005. Skipin þrjú hafa verið
mikilvægur hlekkur í frysti- og kæli-
flutningum Eimskips, en þau henta
mjög vel fyrir flutninga á frystum
sjávarafurðum á Norður-Atlantshafi,
segir í tilkynningu. Eimskip er með 18
skip í rekstri og eru nú 12 þeirra í eigu
félagsins, eftir þessa fjárfestingu.
Eimskip fjárfestir
í þremur skipum
Flutningar Skipið Ice Bird er nú í eigu
Eimskips eftir að hafa verið leigt frá 2005.
BAKSVIÐ
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Íslenska hagkerfið þarf ekki að tengjast öðru
myntsvæði til að vera fullgildur þátttakandi á al-
þjóðlegum fjármálamörkuðum og koma böndum
á verðbólguna. Ekkert mælir gegn því að Íslend-
ingar geti náð þeim markmiðum með íslensku
krónuna sem gjaldmiðil – en þá þarf líka góða
stjórn peninga- og efnahagsmála.
Þetta kom fram í máli Martins Feldsteins,
hagfræðiprófessors við Harvard-háskóla, á efna-
hagsráðstefnu Landsbankans í gær um stöðu og
þróun innlendra og erlendra markaða. Hann tel-
ur margt mæla gegn því að Ísland gerist aðili að
evrópska myntbandalaginu og segist ekki geta
ímyndað sér hvernig Íslendingum hefði tekist að
glíma við þá erfiðleika sem efnahagslífið stóð
frammi fyrir í kjölfar hruns bankakerfisins ef
ekki hefði verið mögulegt að fella gengi gjaldmið-
ilsins.
Feldstein segir að leiðtogum Evrópusam-
bandsins hafi verið mislagðar hendur í björgun-
araðgerðum sínum á evrusvæðinu. Hann hefur
litla trú á áformum aðildarríkja ESB að innleiða
stöðugleikasáttmála sem miðar að því að stemma
stigu við halla á ríkisrekstri. Slíkt ríkisfjármála-
bandalag sé bitlaust tól sem taki ekki á grundvall-
arvanda myntbandalagsins – ójafnvægi á við-
skiptajöfnuði evruríkjanna.
Að sögn Feldsteins má rekja orsakir þeirra
efnahagshremminga sem evruríkin glíma við um
þessar mundir til upptöku evrunnar. Hann bætti
því við að öllum væri ljóst að Grikkir væru í von-
lausri stöðu og sú staðreynd að þeir væru með
evru gerði illt verra. Hann segist vonast eftir því
að grískir ráðamenn sjái að sér og Grikkland segi
skilið við evrusamstarfið og taki upp drökmuna á
ný. Þörf væri á snarpri gengisfellingu eigi Grikkj-
um að takast að endurreisa samkeppnishæfni
hagkerfisins.
Fram kom í erindi Más Guðmundssonar,
seðlabankastjóra, að þrátt fyrir að Ísland hafi enn
sem komið er ekki orðið fyrir miklum búsifjum
vegna kreppunnar á evrusvæðinu þá væri auðvit-
að ljóst að slíkt ástand myndi ekki vara til lengdar
ef allt færi á versta veg í heimshagkerfinu. Már
sagði það vera erfiðleikum bundið fyrir lítið land
eins og Ísland að reka sína eigin peningastefnu og
á sama tíma sækjast eftir fjármálalegri samþætt-
ingu við umheiminn. Hins vegar sé erfitt að segja
á þessari stundu að hvaða marki upptaka evr-
unnar væri lausnin fyrir íslenskt hagkerfi þar
sem evrusvæðið glími í augnablikinu við sams-
konar erfiðleika og Ísland í aðdraganda hrunsins.
Eggert Guðmundsson, forstjóri HB Granda,
gagnrýndi harðlega þau áform ríkisstjórnarinnar
að ráðast í breytingar á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu. „Kynntar hafa verið ýmsar misheimsku-
legar tillögur. En það hefur nánast ekkert verið
fjallað um hvernig megi breyta kerfinu þannig að
hægt sé að auka verðmæti sjávarafurða,“ segir
Eggert. Hann telur ljóst að núverandi hugmynd-
ir um breytingar á kerfinu séu til þess fallnar að
auka á skammsýni í ákvörðunartöku sjávarút-
vegsfyrirtækja og þannig draga úr verðmæta-
sköpun.
Ísland þarf ekki að kasta krónunni
Hagfræðiprófessor Martin Feldstein segir margt mæla gegn því að Ísland taki upp evru.
Hagfræðiprófessor við Harvard segir Ísland ekki þurfa að tengjast öðru myntsvæði Seðlabanka-
stjóri telur evrusvæðið glíma við samskonar erfiðleika og Ísland fyrir hrun bankakerfisins
● Heildarviðskipti í Kauphöllinni með
hlutabréf í febrúar námu 3.844 millj-
ónum eða 183 milljónum á dag og juk-
ust um liðlega hálfan milljarð frá því í
janúar. Veltan með hlutabréf í janúar
nam 3.294 milljónum eða 150 millj-
ónum á dag.
Mest voru viðskipti með bréf Ice-
landair 1.594 milljónir, með bréf Marel
1.337 milljónir og með bréf Haga 585
milljónir. Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækk-
aði um 2,6% milli mánaða og stendur
nú í 981 stigi, samkvæmt yfirliti frá
NASDAQ OMX Iceland. Kauphöll Viðskiptin jukust í febrúar.
Viðskipti jukust um hálfan milljarð í febrúar
● Eignabjarg, dótturfélag Arion banka, seldi í fyrradag 13,33% hlut í Högum
til fjárfesta í lokuðu útboði. Heildarsöluandvirði útboðsins nam tæpum 2,8
milljörðum króna. Hæsta gengi á tilboðum fjárfesta sem samþykkt voru án
skerðingar nam 17,20 kr. á hlut en lægsta gengi á tilboðum fjárfesta sem sam-
þykkt voru án skerðingar nam 17,05 kr. á hlut.
Eftir söluna er hlutur Eignabjargs kominn niður í 5,98%, en ákvörðun selj-
anda um endanlega stærð útboðs tók mið af þeim tilboðum sem bárust. Fjár-
málaeftirlitið hafði staðfest að það gerði ekki athugasemd við að Eignabjarg
héldi eftir allt að 10% eignarhlut eftir söluna.
13,33% í Högum seld á 2,8 milljarða
● Í febrúar varð heildarveltuaukning á
Visa kreditkortaviðskiptum um 8,6% ef
miðað er við sama tímabil í fyrra. Notk-
un innanlands jókst um 8,3% en er-
lendis var aukningin tæp 10,6%.
Tímabilið sem miðað er við er frá 22.
janúar til 21. febrúar, annars vegar 2011
og hins vegar 2012.
Veltan jókst um 8,6%
Gengi norsku
krónunnar held-
ur áfram að
styrkjast gagn-
vart öðrum
helstu gjald-
miðlum og er hún
nú á pari við
dönsku krónuna
en það hefur ekki
gerst síðan árið
2003, samkvæmt samantekt á mbl.is
Ástæðan fyrir styrkingu norsku
krónunnar er sögð vera flótti fjár-
festa úr evrunni í gjaldmiðla sem
taldir eru standa styrkari fótum
vegna efnahagskrísunnar á evru-
svæðinu. Fram kemur í frétt norska
viðskiptafréttavefsins E24 að á sama
tíma og mörg evruríki glími við mik-
inn skuldavanda búi Norðmenn að
stækkandi olíusjóði.
Haft er eftir Arne Lohmann
Rasmussen hjá danska greining-
arfyrirtækinu Danske Markets að
fjárfestar telji fyrir vikið litla
áhættu felast í því nú um stundir að
fjárfesta í norsku krónunni. „Láns-
hæfismatið er mjög mikið. Olíu-
sjóðurinn sér til þess að norska ríkið
nýtur mesta lánstrausts í heim-
inum,“ segir Rasmussen.
Sjá nánar á mbl.is
Norska
krónan
styrkist
Gengi Norska
krónan styrkist.
Atvinnuleysi á evrusvæðinu í janúar
mældist vera 10,7% og hafði aukist
frá því í desember. Hagstofa Evr-
ópusambandsins greindi frá nýjum
tölum í gær og þar kom fram að 16,9
milljónir manna eru án atvinnu í
evrulöndunum 17 en 24,3 milljónir
alls í Evrópusambandinu.
Á Spáni er ástandið áfram lang-
verst, þar sem atvinnuleysi mælist
23,3%. Á Ítalíu jókst atvinnuleysi í
janúar og mælist nú 9,2% sem Hag-
stofa Ítalíu segir vera það mesta frá
því að mælingar hófust.
Atvinnuleysi mælist á hinn bóginn
aðeins 4% í Austurríki.
Atvinnuleysistölurnar voru birtar
í gær, aðeins degi eftir að tilkynnt
var sú ákvörðun Evrópska seðla-
bankans að lána 800 bönkum á evru-
svæðinu 530 milljarða evra, 90 þús-
und milljarða króna, til þriggja ára, á
1% vöxtum.
Steen Jakobsen, aðalhagfræðing-
ur Saxo bank, sagði í samtali við
BBC í gær, að þótt markaðir hafi
heldur tekið við sér í fyrradag og
hlutabréf í bönkum hafi hækkað í
verði, þegar tilkynnt var um banka-
lánið, óttaðist hann að nýju atvinnu-
leysistölurnar sýndu að efnahagslíf í
Evrópu væri síður en svo að rétta úr
kútnum. Atvinnuleysið væri fé-
lagslegt böl sem kæmi í veg fyrir
nauðsynlegan vöxt.
Atvinnuleysi á
evrusvæðinu vex
Ástandið sýnu
verst á Spáni og
best í Austurríki
AP
Spánn Atvinnuleysið mælist 23,3%.
Borgun hf. hefur gert samning við
kínverska kreditkortafyrirtækið
Union Pay og býður nú við-
skiptavinum sínum upp á færslu-
hirðingu á kínverskum kortum.
Union Pay eru mest notuðu kort-
in í Kína en með vaxandi hagvexti
og farsæld í Kína fjölgar stöðugt
þeim Kínverjum sem ferðast er-
lendis, samkvæmt tilkynningu frá
Borgun.
Samkvæmt upplýsingum frá Al-
þjóðaferðamálastofnuninni
(UNWTO) er gert ráð fyrir því að
árið 2020 muni 100 milljónir Kín-
verja ferðast erlendis.
Gert er ráð fyrir að fjöldi Kín-
verja sem ferðast til Evrópu fjór-
faldist á milli áranna 2011 og 2020
og verði um 20 milljónir.
Árið 2010 komu rúmlega 5000
kínverskir ferðamenn til Íslands.
Í dag eru 2,2 milljarðar Union
Pay-greiðslukorta í notkun en kort-
in eru gefin út í 16 löndum víðs-
vegar í Asíu.
Ætla að þjónusta
kínversk kreditkort
Lántökukostnaður Portúgals held-
ur áfram að aukast þrátt fyrir að
áætlun um lækkun skulda á síðasta
ári hafi gengið eftir. Fram kom í
FT í gær að greiningaraðilar spái
því að skuldir portúgalska ríkisins
eigi eftir að hækka á árinu 2012
samhliða samdrætti í bygging-
ariðnaði landsins.
Stofnanir ESB gera ráð fyrir að
skuldir landsins verði 118% af
landsframleiðslu árið 2013.
Lánin verða
bara dýrari
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.//
+//.0,
+,1.-,
,,.0/2
,,.-++
+3.340
+03.+1
+.2-++
+/0.10
+11.2,
+,2.,/
+//.3
+,1.4/
,,.-1+
,,.-44
+3./,3
+03.22
+.2-21
+/-.,+
+11.//
,,/.5504
+,2.2/
,55.,3
+,4.+1
,,.2,4
,,.2-0
+3./30
+03./-
+.225+
+/-.4/
+14.-1
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Forstjóri Marel, Theo Hoen, sagði í erindi
sínu að það væri ekkert launungarmál að
gjaldeyrishöft og takmarkanir á fjárfest-
ingum erlendra aðila hér á landi gerðu al-
þjóðlegu fyrirtæki á borð við Marel erfitt
um vik. Viðræður við mögulega erlenda
fjárfesta hefðu iðulega runnið út í sandinn
vegna þess að fjárfestar hefðu ekki verið
reiðubúnir að taka á sig þá áhættu sem
höftin og íslenska krónan fælu í sér. „Í
vissum skilningi er Marel því komið að
endimörkum. Við þurfum erlenda fjár-
festa.“
Að endimörkum
FORSTJÓRI MARELS