Morgunblaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 36
36 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2012
Sudoku
Frumstig
4 2
1 6 9
2 5 1 3 4
3 9 6 1
8 2 9 6
4 5
3 2 4
1 3 8 2 6
6 7 9 5
4 9 6 2
8
8 4 3
3
6 4 7 2
5
5 3 7 6
2
6 4
1 8
1 9
2 3 6
8 3 9
7 1 8
2 4 5
9 2 7
6 3
7 9 1 2 5 6 3 4 8
4 2 8 7 3 9 1 6 5
5 6 3 1 4 8 2 9 7
3 4 2 5 9 7 8 1 6
8 5 7 4 6 1 9 3 2
9 1 6 3 8 2 7 5 4
6 8 4 9 2 3 5 7 1
2 7 9 6 1 5 4 8 3
1 3 5 8 7 4 6 2 9
4 8 7 5 9 3 6 1 2
2 1 5 6 8 7 9 4 3
3 6 9 4 2 1 5 8 7
5 4 8 7 6 9 3 2 1
9 2 3 1 5 8 4 7 6
1 7 6 3 4 2 8 9 5
7 9 1 8 3 6 2 5 4
6 5 2 9 7 4 1 3 8
8 3 4 2 1 5 7 6 9
9 3 2 7 1 6 8 5 4
6 7 8 5 4 3 2 9 1
5 1 4 8 2 9 3 6 7
1 5 6 4 8 7 9 2 3
2 4 3 9 5 1 7 8 6
8 9 7 3 6 2 1 4 5
7 6 1 2 9 5 4 3 8
3 8 9 6 7 4 5 1 2
4 2 5 1 3 8 6 7 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 2. mars, 62. dagur
ársins 2012
Orð dagsins: En Jesús hrópaði: „Sá
sem trúir á mig, trúir ekki á mig, held-
ur þann sem sendi mig.“ (Jh. 12, 44.)
Það er fátt nýtt undir sólinni ogþegar kemur að heilsu og heil-
brigði skipta tveir þættir öllu máli –
mataræði og hreyfing. Síðan er það
undir hverjum og einum komið
hvernig hann tekur á málum.
x x x
Víkverji hefur góða reynslu afhvorutveggja, mat og hreyf-
ingu. Sérstaklega af góðum mat.
Hann fær vatn í munninn í hvert
sinn sem minnst er á matarhátíðina
Food&Fun og þykir fátt betra með
góðu vatni en góð og þykk ribeye-
steik, 500 til 1.000 g. Humarinn
snöggsteikti svíkur heldur aldrei.
x x x
Eins og oft vill verða ræða vinnu-félagarnir stundum um mat á
matmálstíma. Þegar einn kom með
heimagert, girnilegt sushi með
krabbafiski í nesti var rætt um fram-
kvæmdina. Þá kom fram að í Japan
tæki átta ár að læra að gera sushi og
þar af tvö ár að læra að sjóða hrís-
grjónin. Það kom Víkverja ekki á
óvart enda þakkaði hann fyrir að
hafa haldið sig við stórsteikurnar og
humarinn.
x x x
Til þess að njóta góðrar máltíðar íbotn er nauðsynlegt að hafa
unnið til hennar með því að hafa
hreyft sig nóg áður. Eða á eftir. Hins
vegar er hófið best í þessu sem öðru.
Löngum hefur verið sagt að bið
eftir jarðskjálfta sé hámark letinnar
með hreyfingu í huga. Vissulega er
jarðskjálfti af ákveðnum styrkleika
ekkert gamanmál, en þegar jarð-
skjálftinn reið yfir á höfuðborgar-
svæðinu upp úr klukkan eitt í fyrri-
nótt varð Víkverja hugsað til þeirra
sem höfðu beðið eftir skjálfta. Vík-
verji var saddur og fínn eftir síðbúna
kvöldmáltíð að lokinni vinnu og rétt
skriðinn undir sæng, þegar hristing-
urinn skall á. Hann er ekki frá því að
bakverkurinn hafi lagast við skjálft-
ann en vinnufélaginn með hálsríginn
hafði aðra sögu að segja.
Þar sannaðist hið fornkveðna að
menn skulu fara varlega og gæta
hófs þegar hreyfing og matur eru
annars vegar. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 meina, 8 verkfæri,
9 belti, 10 reyfi, 11 ýfir, 13
glæsilegur árangur,15
hvelfing, 18 bál, 21 hrós, 22
drukkna, 23 ilmur, 24 eft-
irtekja.
Lóðrétt | 2 semur, 3 reiður,
4 hitasvækja, 5 nákomnar, 6
sjúkdómskast, 7 starfsöm,12
ktaftur, 14 fauti, 15 eiga við,
16 leyfi, 17 fletja fisk, 18 vaf-
ans, 19 skútu, 20 skökk.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 burst, 4 kamar, 7 ausur, 8 sonur, 9 fit, 11 tómt, 13 árin,
14 ísinn,15 borð, 17 auga, 20 gný, 22 asnar, 23 staga, 24 létta, 25
renna.
Lóðrétt: 1 brast, 2 rósum, 3 torf, 4 kost, 5 mánar, 6 rýran, 10 ið-
inn, 12 tíð, 13 ána,15 brall, 16 rangt, 18 uxann, 19 afana, 20
gróa, 21 ýsur.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Góð fórn. N-Allir.
Norður
♠DG10
♥Á92
♦73
♣109842
Vestur Austur
♠Á5 ♠K
♥KG76 ♥D10854
♦ÁKD ♦10852
♣DG65 ♣K73
Suður
♠9876432
♥3
♦G964
♣Á
Suður spilar 4♠ doblaða.
Það leynir sér ekki að 4♠ er af-
bragðs fórn yfir 4♥ – svo góð, raunar,
að það er varla hægt að tala um fórn-
arsögn, því tíu slagir rúlla heim.
„Bíddu við – á ekki vörnin tvo slagi á
tígul og aðra tvo á tromp?“
Svo virðist vera, en í reynd er tromp-
slagur varnarinnar aðeins einn. Spilið
er frá Íslandsmótinu í tvímenningi og
þeir sagnhafar sem spiluðu 4♠ fengu
allir tíu slagi. Ástæðan er augljós:
Vestur taldi þörf á því að fækka stung-
um í borði og skipti því yfir í ♠Á í öðr-
um slag eftir hátígul út í upphafi.
Trompkóngurinn fór þannig fyrir lítið,
og þegar til kom reyndist ein tíg-
ultrompun duga til að fría gosann.
2. mars 1956
Bandarísk herflutningaflugvél
með sautján mönnum hrapaði
í sjóinn djúpt út af Reykjanesi.
Enginn komst lífs af.
2. mars 1957
Heilsuverndarstöðin í Reykja-
vík var vígð. „Stofnun hennar
var sögulegur viðburður í
heilbrigðismálum þjóð-
arinnar,“ sagði Morgunblaðið.
Byggingarframkvæmdir
stóðu í sjö ár og fyrsta deildin
tók til starfa 1953.
2. mars 1999
Áburðarverksmiðja ríkisins
var seld fyrir 1.257 milljónir
króna. Kaupverðið var stað-
greitt daginn eftir.
2. mars 2006
Forma, samtök átröskunar-
sjúklinga, hlaut Samfélags-
verðlaun Fréttablaðsins þegar
þau voru veitt í fyrsta sinn.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Það er engin stórveisla í pípunum því dagurinn
og helgin fer í upptökur á Hellisheiði með Hjalta-
lín,“ segir Guðmundur Óskar Guðmundsson,
bassaleikari í hljómsveitinni Hjaltalín, sem fagnar
25 ára afmæli sínu í dag. Hann segist ekki getað
lofað félögum sínum í sveitinni köku í tilefni dags-
ins, þeir geti alveg eins komið honum á óvart.
Spurður hvort ný plata sé á döfinni segir Guð-
mundur að hljómsveitin noti öll tækifæri sem gef-
ist til að taka upp nýtt efni, þegar allir meðlimir
Hjaltalíns eru staddir á landinu. Engin tímasetn-
ing sé komin á útgáfuna, það geti orðið fyrir
næstu jól eða bara á næsta ári. Hyggst sveitin einbeita sér að upp-
tökum á næstunni og ekkert sérstakt tónleikahald fyrirhugað. Upp-
tökustaðurinn á Hellisheiði er ekki gefinn upp en Guðmundur Óskar
segir það bara spennandi ef jarðskjálftar náist í upptöku, þeir geti
jafnvel nýst við tónlistarsköpunina og slegið taktinn!
Tónlistin er í blóðinu hjá Guðmundi Óskari. Bróðir hans er Sig-
urður í hljómsveitinni Hjálmum en foreldrar þeirra bræðra eru Gróa
Hreinsdóttir, kórstjóri og píanókennari til margra ára, og Guð-
mundur Kr. Sigurðsson, tenórsöngvari. bjb@mbl.is
Guðmundur Óskar í Hjaltalín 25 ára
Upptökur á Hellisheiðinni
Flóðogfjara
2. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.38 2,8 7.01 1,7 13.17 2,6 19.31 1,6 8.30 18.50
Ísafjörður 2.45 1,4 9.14 0,8 15.29 1,3 21.50 0,7 8.40 18.51
Siglufjörður 5.13 1,0 11.55 0,5 18.31 0,9 8.23 18.33
Djúpivogur 3.57 0,8 9.55 1,2 16.20 0,7 23.02 1,4 8.01 18.19
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Fólk dáist að þér og ber virðingu fyrir
þér. Þú ert fullur vellíðunarkenndar og nýtur
þess að umgangast vini og vandamenn.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Stundum eignast maður sérkennilega
bandamenn sem reynast manni eins og
bestu vinir. Gakktu hægt um gleðinnar dyr og
reyndu að vinna heima ef þú getur.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er létt yfir þér í dag og þú átt
því auðvelt með að laða að þér fólk. Láttu það
bíða að kanna ókunn lönd.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Stundum breytast hugsanir manns
og svo breytist maður sjálfur. Með breyttu
viðhorfi sérðu hvernig hlutirnir gætu orðið.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Samræður við vin eða maka ganga ekki
jafnvel og þú hefðir kosið. Leggðu þitt að
mörkum til stofnana eða fólks sem er hjálpar
þurfi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú verður að geta staðið við þau lof-
orð, sem þú gefur. Varastu að festast í göml-
um gildum sem eiga ekki lengur við og eru
bara til trafala.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú hefur nokkurt forskot á náungann í
dag. Haltu þínu striki á þennan rólega og
magnaða hátt og þú átt eftir að verða allsráð-
andi í ríki þínu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það skiptir sköpum að þú getir
séð menn og málefni í réttu ljósi en ekki eins
og þú vildir að þau væru. Fátt pirrar þig meira
en fólk sem er betra við þig en þú við það.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú virðist vera rétta tækifærið
fyrir þig að koma málum þínum áfram. Gættu
þess að ofmetnast ekki og taktu gagnrýni vel.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Eitthvað það kann að gerast sem
kemur þér verulega á óvart. Samræður við
systkini og ættingja verða gleðilegar.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Óvæntir atburðir kalla á snöf-
urmannleg viðbrögð, en gerðu samt ekkert
að óathuguðu máli því það borgar sig ekki.
Að öðrum kosti mun einhver sem þú þekkir
koma þér verulega á óvart.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þetta er góður dagur til að gera breyt-
ingar á nánasta umhverfi þínu. Bíddu í einn
dag eða svo og athugaðu hvort þú ert
reiðubúin(n) til að breyta afstöðu þinni.
Stjörnuspá
Hjónin Guðrún B. Emilsdóttir og
Sigurjón Friðriksson frá Ytri-Hlíð,
nú til heimilis að Hamrahlíð 24,
Vopnafirði, eiga sextíu ára brúð-
kaupsafmæli í dag, 2. mars. Þau
munu eyða deginum með fjölskyld-
unni.
Demantsbrúðkaup
1. c4 c6 2. Rf3 d5 3. g3 Rf6 4. Bg2 dxc4
5. O-O Rbd7 6. Dc2 Rb6 7. Ra3 Dd5 8.
b3 cxb3 9. axb3 Be6 10. b4 Db3 11.
Dxb3 Bxb3 12. b5 c5 13. d3 Rfd7 14.
Rd2 Bd5 15. e4 Be6 16. f4 f6 17. e5 Bd5
18. e6 Bxe6 19. Bxb7 Hb8 20. Bc6 g6
21. Rac4 Rc8 22. Re4 Kf7
Staðan kom upp í B-flokki Corus-
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Hollenski stórmeistarinn Jan Timman
(2571) hafði hvítt gegn landa sínum og
kollega Sipke Ernst (2606). 23. Re5+!
Rxe5 24. fxe5 Bf5 25. Rxc5 Bg7 26. d4
Hd8 27. Hxf5 gxf5 28. e6+ Kg6 29.
Rd7 Rd6 30. Rxb8 Hxb8 31. Hxa7
Rxb5 32. Hxe7 Bh6 33. Be8+ og svart-
ur gafst upp. Síðari hluti Íslandsmóts
skákfélaga hefst í kvöld á Selfossi en
nánari upplýsingar um keppnina er að
finna á www.skak.is.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is