Morgunblaðið - 14.03.2012, Side 31

Morgunblaðið - 14.03.2012, Side 31
mín, þið hafið misst mikla hetju sem var mikil perla. Þið sýnduð mikinn styrk og æðruleysi í veik- indum hennar megi algóður Guð styrkja ykkur um ókomna tíð. Fjóla frænka. Elsku Sólveig mín. Þá er kom- ið að kveðjustund. Ég veit að nú ertu komin á góðan og fallegan stað, umvafin friði og ljósi. Þó það sé sárt að kveðja svona snemma, vitum við að dýrmætar minning- ar lifa áfram og við geymum þær vel. Við fjölskyldan áttum marg- ar góðar stundir með þér. Mikið vildi ég óska að þær hefðu getað verið fleiri. Þú varst engin venjuleg mann- eskja. Hreinskilni, ákveðni, rétt- sýni, heiðarleiki og glaðværð eru aðeins brot af þeim orðum sem koma í hugann. Þú varst mikil baráttukona og hetja með hjarta úr gulli. Alveg með eindæmum forvitin, kraftmikil, og dugleg. Alltaf varstu á miklum hraða. Þú komst til dyranna eins og þú varst klædd og kallaðir ekki allt ömmu þína. Þú varst alveg ofsa- lega hjálpsöm og hugulsöm – allt- af hugsandi um aðra og hvernig þú gætir hjálpað til. Þú hugsaðir um allar hliðar málanna og varst yfirleitt með lausnirnar á reiðum höndum. Þú varst opin og hlý og mér fannst ég geta talað við þig um allt milli himins og jarðar og treyst þér fyrir hverju sem var. Þú varst svo góð. Stundum er sagt að maður uppskeri eins og maður sái. Komi maður vel fram við fólk, þá fái maður það sama á móti. Það var ekki alveg tilfellið með þig. Ef maður kom vel fram við þig, þá gafstu ekki bara það sama til baka, heldur margfalt meira. En hjálpi manni hins veg- ar ef maður gerði það ekki. Þú varst alveg einstaklega barngóð og ég verð ávallt þakklát fyrir það að börnin okkar fengu að kynnast þér. Anton Breki, Guðný Lilja og Elvar Orri voru sko heppin að eiga þig sem frænku, enda varstu sú allra besta. Elvar Orri man hvað það var gott að vera hjá Sollu frænku. Það kom stundum fyrir að þú máttir ekki fara ef þú komst í heimsókn og áttir helst að taka hann með þér. Þú varst svo mikið góð við hann. Þú varst okkur öll- um svo kær, elsku Sólveig. Ég mun aldrei gleyma því þeg- ar þú kenndir Guðnýju Lilju að prjóna. Þú sast með henni langan tíma inni í herbergi, á pínulitlum barnastól, svo þolinmóð og svo blíð. Leiðbeindir henni en hrós- aðir líka. Þið voruð bara tvær og áttuð fallega stund. Þú vildir passa að hún fengi líka athygli. Þannig varstu. Nanna Lára er svo heppin að hafa átt þig. Þú varst líka heppin að eiga hana, enda sáuð þið ekki sólina hvor fyrir annarri. Á milli ykkar ríkti alveg einstakt samband og það er til marks um hversu ótrúleg per- sóna þú varst. Ég veit að þú munt alltaf passa hana og fylgjast með henni og Birgi, sem eiga um svo sárt að binda núna. Þú varst þeim allt. Hvíldu í friði, elsku hjartans Sólveig mín. Ég kveð þig með miklum söknuði. Það eru forrétt- indi að hafa fengið að kynnast þér. Birgi, Nönnu Láru, Guðlaugu tengdamóður minni og öðrum ástvinum vil ég senda mínar dýpstu samúðarkveðjur. Megi allt það góða í heiminum gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tím- um. Bjartar minningar um ein- staka konu lifa í hjörtum okkar allra. Guðdómlegur geisli blíður greiðir skuggamyrkan geim; á undra vængjum andinn líður inn í bjartan friðarheim. (Hugrún) Hafdís Una. Gullnir fjallatoppar skýjanna boða vorkomu eftir snöggan en harðan vetur logagyllt opna þau faðminn bjóða þjáðum himneskan frið Sólveig hans Bigga frænda heillaði okkur öll þegar hún kom í fjölskylduna með Nönnu Láru sér við hlið. Sólveig var hrókur alls fagn- aðar, það gustaði um hana og hún hafði ákveðnar skoðanir og lá ekki á þeim. Hún hafði þann eig- inleika að hrífa fólk með sér og það leið því ekki á löngu þar til hún hóaði kvenfólkinu í fjölskyld- unni saman og stofnaði prjóna- klúbb. Þar var hún í essinu sínu, þvílíkar prjónagersemar sem hún skapaði. Sólveig var afar hjálp- söm við okkur prjónaklaufana og hvatti þær betri til dáða með flóknum uppskriftum. Í veikindum sínum sýndi hún dugnað og æðruleysi. Við biðjum algóðan Guð, enn og aftur, að umvefja og styrkja Birgi frænda og Nönnu Láru í þeirra miklu sorg. Þú varst sú hetja svo hlý og góð það hugljúfa vildir þú sýna. Ég tíni í huganum brosandi blóm og breiði á kistuna þína. SG Sigurlaug Jóna, Birna, Sverrir Davíð, Sigríður, Heimir Þór, Jón Orri, Júlía, Benedikt Þór, Guðrún og fjölskyldur. Elsku Nanna Lára og Birgir. Nú ertu horfinn í himnanna borg og hlýðir á englanna tal. Burtu er kvíði, sjúkdómur, sorg í sólbjörtum himnanna sal. Þeim öllum sem trúa og treysta á Krist þar tilbúið föðurland er. Þar ástvinir mætast í unaðarvist um eilífð, ó, Jesú, hjá þér. (Ingibjörg Jónsdóttir) Okkar dýpstu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Anna Jóna, Lára og Guðmundur. Það er afar erfitt og óraun- verulegt að skrifa minningarorð um elsku Sólveigu okkar. Hún var konan hans Sigurjóns okkar og höfum við þekkt hana í áratugi sem tengdadóttur og mömmu elsku Nönnu Láru. Á þessum ár- um áttum við mikið saman að sælda. Við gleymum aldrei sam- verustundunum með þeim í sum- arbústöðum í Svignaskarði, Skorradal, Ölfusborgum og víð- ar, þær eru dýrmætar í minning- unni. Eftir skilnað hélt hún góðu sambandi við okkur og var það okkur ómetanlegt. Við fengum áfram að njóta þess að vera sam- vistum við þær mæðgur, fá dótt- urina lánaða, fara með hana í sund og göngutúra. Minningarn- ar eru margar og góðar. Þær mæðgur bjuggu um tíma á Höfn í Hornafirði og áttum við þar dásamlegar stundir með þeim, alltaf var svo gott að koma á heimili hennar, njóta góðra veit- inga og samverustunda. Sólveig var mjög mikil húsmóðir og hugs- aði vel um fjölskyldu sína, hún átti alltaf fallegt og hlýlegt heim- ili þar sem allir voru velkomnir. Sólveig vann alltaf utan heim- ilis. Hún afkastaði miklu á allt of stuttri ævi, enda var keppnis- skapið mikið, ekkert var ómögu- legt í hennar augum. Hún var af- ar hög í höndum, saumaði föt á sig og dóttur sína og prjónaði mikið. Erum við mörg sem eigum fallegar lopapeysur sem hún prjónaði af mikilli smekkvísi. Sólveig giftist aftur og átti mörg góð ár með Birgi sínum. Hann hefur einnig reynst Nönnu Láru einstaklega vel. Síðustu árin stunduðu þau hjónin golf af miklum krafti. Kom nú enn betur í ljós keppnisskap- ið, en hún vann iðulega til verð- launa. Fjölskyldan fór margar ferðir til útlanda, t.d. í golfferðir. Gaman var að heyra um það sem þau upplifðu í þessum ferðum. Það voru ekki gleðitíðindi sem hún færði okkur fyrir ári, að hún væri komin með illvígan sjúk- dóm, en hún var æðrulaus og byrjaði baráttuna við sjúkdóm- inn af sama dugnaði og allt annað sem hún tók sér fyrir hendur. Baráttan var erfið og urðu aft- urkippirnir margir en aldrei gafst Sólveig upp, hún ætlaði sér að sigrast á sjúkdómnum. Að lokum brást öll von um bata og kvaddi Sólveig okkur aðeins viku síðar. Þetta hefur verið erfitt ár fyrir fjölskylduna, en hún stóð þétt saman. Birgir og Nanna gerðu allt sem þau gátu til að styðja Sólveigu sína. Þau eiga líka góða að, það er okkur öllum mikils virði. Við biðjum góðan Guð að varð- veita Nönnu okkar og Birgi og gefa þeim styrk til að jafna sig á þeim sára missi sem fráfall henn- ar er. Við munum aldrei gleyma Sólveigu og öllu því sem hún hef- ur gert fyrir okkur fyrr og síðar, blessuð sé minning hennar. „krjúptu’ að fótum friðarboðans og fljúgðu’ á vængjum morgunroðans meira’ að starfa guðs um geim.“ (Jónas Hallgrímsson) Ásta Breiðdal og Jón R. Sigurjónsson. Að setjast niður og skrifa minningargrein um sína bestu vinkonu er þyngra en nokkrum tárum taki. Við kynntumst 15 ára gamlar þegar Sólveig flutti í Hveragerði og kom í okkar fjör- uga bekk 1959-árgangsins. Ég man það eins og gerst hafi í gær þegar þessi nýja stelpa labbaði eftir Breiðumörkinni í gallabux- um og fallegri peysu sem hún að sjálfsögðu prjónaði sér sjálf enda alltaf verið mikil handavinnu- kona. Þarna eignaðist ég mína bestu og traustustu vinkonu. Ég veit ekki hver á nú að hringja í mig á haustin þegar fyrstu lægð- irnar ganga yfir landið og minna mig á að taka inn garðhúsgögnin eða hvort ég sé búin að fara í krabbameinsskoðun, fara í blóð- prufu og þar fram eftir götunum. Já, í öll þessi ár hefur hún borið endalausa umhyggju fyrir mér og mínum og reyndar öllum þeim sem auðnaðist að eiga hennar vinskap. Að eiga þannig vini er dýrmætara en allt. Mér er alltaf minnisstætt þegar við hjónin réðumst í framkvæmdir heima hjá okkur og það var eins og við manninn mælt Sólveig og Birgir mættu um leið og stóðu í þvílíkri vinnu með okkur í marga daga og kom ekkert annað til mála en að klára verkið. Sólveig bjó í Dan- mörku með Guðlaugu vinkonu sinni um skeið og ég man hvað ég öfundaði þær og saknaði hennar, en frá þeim tíma á ég fullan skó- kassa af bréfum sem eiga eftir að ylja mér í framtíðinni. Síðustu ár höfum við spilað golf saman með mönnunum okkar og þar á ég eft- ir að sakna hennar sárlega, það verður skrítið að fara út á golfvöll þegar hana vantar í hollið, það skarð verður vandfyllt. Síðasta sumar var Sólveig mikið veik en þrátt fyrir það var hún alltaf til í að koma út í golf, bað mig bara um að hafa samband tímanlega svo hún gæti verkjastillt sig og þá gæti hún alveg spilað. Fimmtu- daginn 1. mars heimsótti ég hana þar sem hún lá á 11 E og sagði henni að ég væri að fara til út- landa en ég myndi flýta ferðinni heim þyrfti hún á mér að halda, hún sagði: „Nei nei, þú breytir engu, þetta verður allt í lagi,“ en aðeins örfáum klukkutímum eftir að ég fór kvaddi hún þetta líf hægt og hljótt. Hún var ekki þekkt fyrir það að hanga neitt yf- ir hlutum eða verkefnum sem ekki þóttu vænleg til árangurs. Í þeirri heimsókn gerði ég mér grein fyrir í hvað stefndi og hét því þar sem ég sat hjá henni að ég skyldi alltaf vera til staðar fyrir Nönnu Láru sem er ekki bara að missa yndislega mömmu sína heldur bestu vinkonu, þar var einstakt samband sem ég dáðist allaf að. Elsku Nanna mín, skarð- ið er stórt sem höggvið hefur ver- ið í ykkar litlu fjölskyldu og ég bið Guð að styrkja ykkur Birgi og aðra aðstandendur. Ég þakka vinkonu minni samferðina og vona að einhvers staðar einhvern tíma aftur munum við hittast. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Ólöf Ásgeirsdóttir. Elsku Sólveig. Við þökkum all- ar góðu stundirnar sem við höf- um átt saman. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Við verðum alltaf til staðar fyr- ir Nönnu Láru. Hennar vinkonur, Agnes, Arna, Elín, Eva, Katrín, Laufey, Sigríður og Una. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2012 ✝ Gerður KristínKarlsdóttir fæddist í Neskaup- stað 16. október 1950. Gerður lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Boða- þingi 5. mars 2012. Foreldrar Gerð- ar voru Dagmar Óskarsdóttir, f. í Firði í Mjóafirði, 2. nóvember 1911, d. 1. október 1993 og Karl Björg- vin Marteinsson, f. á Hólum í Norðfjarðarhreppi 9. nóvember 1911, d. 25. nóvember 1976. Systkini Gerðar eru: Óskar Þórarinn Karlsson, f. 12. nóv- ember 1942, d. 17. júlí 2003, Marteinn Karlsson, f. 13. febr- úar 1945, Björg Ingigerður Karlsdóttir, f. 14. júní 1948 og Baldur Karlsson, f. 21. maí 1953, d. 13. janúar 1990, fóst- ursystir Gerðar er Þórarna Hansdóttir, f. 11. janúar 1936. Eftirlifandi eig- inmaður Gerðar er Sveinn Guðmundur Guðmundsson, f. 22. desember 1946. Gerður og Sveinn gengu í hjónaband 31. desember 1970. Börn þeirra eru: Karl Björgvin Sveinsson, f. 10. júlí 1972, Elsa Rannveig Sveins- dóttir, f. 14. október 1975, maki Alfreð Ragnar Ragnarsson, f. 27. janúar 1973 og Guðrún Þór- arna Sveinsdóttir, f. 24. janúar 1981, sambýlismaður Kristján Sigurður Þórðarson, f. 11. júlí 1980, dóttir þeirra er Kristrún Lilja Kristjánsdóttir, f. 26. nóv- ember 2007. Útför Gerðar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 14. mars 2012, kl. 13. Gerður systir mín lést hinn 5. mars á hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing í Kópa- vogi, eftir erfiða baráttu við alzheimer-sjúkdóminn, aðeins sextíu og eins árs. Hún bjó þar allt frá því að þetta góða heimili var opnað. Tengdaforeldrar hennar þau Elsa og Guðmund- ur bjuggu þar einnig, þau hafa nú öll kvatt þetta jarðlíf á síð- ustu ellefu mánuðum. Sveinn mágur minn annaðist hana Gerði sína af einstakri ástúð og natni, og eftir að hún flutti í Boðaþing var hann þar öllum stundum, kvölds og morgna, til að létta henni lífið og gera henni það bærilegra. Á hann allar mína þakkir skildar Gerðu var fjórða í aldursröð okkar systkina og þriðja til að kveðja, undan eru gengnir þeir Baldur er lést 36 ára og Óskar er lést sextugur. Á svona stundum streyma fram minningar frá æskuárunum í sveitinni heima á Norðfirði. Vorum við mjög heppinn að fá að alast upp á góðu heimili þar sem allir fengu að starfa saman og njóta sín, enda var Gerði mjög hlýtt til foreldra okkar og æskuheim- ilisins. Gerður var mikill dýra- vinur og síðustu árin átti hún bæði kisu og hund sem veittu henni mikla gleði, ekki síst í veikindum hennar. Kæra systir, þakka þér fyrir samfylgdina. Á æskunnar dýru dögum er drukkið af lífsins brunni, vonirnar björtu brosa, borgirnar rísa af grunni. Fyrirheit fögur bíða á framtíðar nægtaborðum. En skuggi sem lá í leyni líf okkar færði úr skorðum. Vont er sinn vanmátt að finna, vonbrigði sár að líða, dapur í hug og hjarta hamingjunnar að bíða. En lifir þú dökka daga, dimmi á lífsins vegi getur þú brosandi beðið. Birtan á næsta degi. (HA.) Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til Sveins, Karls, Elsu, Guðrúnar og fjölskyldna þeirra. Blessuð sé minning þín. Björg, Helgi og fjölskylda. Gerður Kristín Karlsdóttir Lengd | Hámarkslengd minn- ingargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Minningargreinar Fallegar útfararskreytingar • Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Hverafold 1-3 og Húsgagnahöllinni • Sími 567 0760 ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR frá Ísafirði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ laugardaginn 3. mars, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 16. mars kl. 13.00. Bjarni Garðarsson, Ásdís Símonardóttir, Einar Oddur Garðarsson, Guðbjörg Helgadóttir, Hjördís Garðarsdóttir, Héðinn Stefánsson, Hrefna Garðarsdóttir, Þórður Pálmi Þórðarson, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR ÓSKARSSON húsgagnasmíðameistari og kennari, Hvannalundi 13, Garðabæ, andaðist á heimili sínu mánudaginn 5. mars. Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 16. mars kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Karitas, hjúkrunar- þjónustu. Vilhelmína Þórarinsdóttir, Laufey Sigurðardóttir, Birgir Sigurjónsson, Hanna Sigurðardóttir, Guðlaugur Kristjánsson, Óskar Sigurðsson, Elsa Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir og vinur, BÁRÐUR HALLDÓRSSON bólstrari og fyrrv. húsvörður, sem lést miðvikudaginn 7. mars, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju föstudaginn 16. mars kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð líknardeildarinnar í Kópavogi. Kristján Viðar Bárðarson, Kristín Kristjánsdóttir, Halldór Bárðarson, Sigríður Kristinsdóttir, Stefán Þór Bárðarson, Elín Björg Ásbjörnsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og systkini, Hulda Finnlaugsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.