SunnudagsMogginn - 04.03.2012, Page 35
4. mars 2012 35
Horft til norðvesturs úr fjallshlíðinni ofan við Vega de San Mateo. Eins og sjá má er gróðurfar með besta móti - ólíkt því sem gerist nokkrum kílómetrum sunnar.
Ljósmynd/Björg Sveinsdótttir
Þessi ganga sameinar fjallgöngu um
hrjóstrugt fjalllendi og spássitúr eftir
strandvegi; eiginlega það besta sem
suðurströndin hefur upp á að bjóða.
Gangan hefst í Puerto Rico, sem er
skammt vestan við Playa del Ingles, en
gengið er til vesturs frá strætóstöðinni,
krækt fyrir hæðarrætur og upp gilið að
raflínum. Þar er stefnan tekin upp að
rafmagnsstaurnum sem hæst stendur,
gengið þaðan að „Norska garðinum“,
Puerto Rico, en þar hefur félag Norð-
manna á Gran Canaria ræktað upp
gróðurvin og rétt að setjast þar niður
og blanda geði við frændur vora sem
eru þar fjölmennir á góðviðrisdögum.
Frá Norska garðinum liggur leiðin eft-
ir nokkuð greinilegum slóða til suð-
austurs þar til komið er niður að
ströndinni í Arguineguin, en þar má
segja að sé nýlenda Norðmanna á Kan-
arí, norsk kirkja og vinsælt veitingahús
með norskum hversdagmat.
Gengið er til vesturs eftir strandveg-
inum í átt að Puerto Rico í gegnum Pa-
talavaca og La Verga, en þegar ekki
verður lengra komist liggur leiðin til
norðurs upp í hæðirnar aftur og göng-
unni lýkur að segja má á sama stað og
hún hófst í hæðunum fyrir ofan Puerto
Rico eftir um fimm tíma þægilega
göngu.
Puerto Rico-hringurinn
Á slóðum Norðmanna
Þeir sem gengið hafa á suðurhluta Gran
Canaria falla í stafi yfir gróðrinum þegar
komið er norðureftir. Vega de San Ma-
teo er um 25 kílómetra vestur af Las
Palmas og gangan hefst við strætóstöð-
ina í miðjum bænum. Gengið er til norð-
urs frá stöðinni og síðan til suðvesturs
og upp í mót, alls er hækkunin um 500
metrar en gangan öll á malbiki eða
greiðförnum malarvegum. Í 1.300
metra hæð er mikill furuskógur og mikið
útsýni noður eftir eynni í átt að Las Pal-
mas til norðausturs þar sem himinn og
sjór renna saman og gámaskipin verða
að himinfleyjum.
Síðan liggur leiðin til suðausturs nið-
ur í gróðursælt gil, hálfgerðan frumskóg,
þar sem finna má ýmsan gróður sem ein-
kennandi er fyrir eyjarnar í bland við
fjallagróður sem verður stórvaxinn í
skjólinu. Leiðin liggur svo uppúr því gili
og eftir fjallshlíðum til norðausturs í átt
að San Mateo þar sem göngunni lýkur
eftir ríflega fjögurra tíma rölt.
Ólíkt því sem er á suðurströndinni
liggur leiðin í gegnum gróskumikinn
skóg og gróið land, framhjá kálgörðum,
aldingöðum og bóndabæjum. Víða er
hægt að kaupa heimagarðan geitaost og
aðrar landbúnaðarafurðir á leiðinni, en
stór hluti hennar er á Camino Real sem
er sumstaðar ekki nema grýttur slóði.
San Mateo-hringurinn
Skógur og gróið land