Morgunblaðið - 12.04.2012, Síða 1

Morgunblaðið - 12.04.2012, Síða 1
SÝNA MYNDIR FRÁ KOLLY- OG BOLLYWOOD HOPPEDÍ- SKOPP OG HARÐSPERRUR GAMAN AÐ HITTA METNAÐARFULLT SKÍÐAFÓLK VIÐSKIPTABLAÐ OG FINNUR.IS IVICA KOSTELIC ÍÞRÓTTIRINDVERSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ 45  Stofnað 1913  85. tölublað  100. árgangur  F I M M T U D A G U R 1 2. A P R Í L 2 0 1 2 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Niðurstöður bandarískrar rann- sóknar, sem birtar voru í tímaritinu Cancer, benda til þess að árlegar tannröntgenrannsóknir auki líkurn- ar á heilahimnuæxlum allt að þrefalt. Heilahimnuæxli myndast í himn- unum sem þekja heilann og mæn- una. Þau eru oftar en ekki góðkynja og hægvaxandi en geta leitt til fötl- unar og lífshættulegra fylgikvilla. Tannlæknafélag Íslands hefur ekki gefið út viðmiðunarreglur um tíðni tannröntgenmyndatöku en for- maður félagsins, Sigurður Bene- diktsson, segir að ákvörðun um myndatöku sé venjulega tekin á grundvelli áhættumats, þ.e. eftir að tannlæknir hefur metið hvort líkur séu á að viðkomandi sjúklingur þjá- ist af tannsjúkdómi. Sigurður M. Magnússon, forstjóri Geislavarna ríkisins, segir stofn- unina leggja áherslu á að röntgen- rannsóknir séu aldrei framkvæmdar nema nauðsynlegar teljist. Tann- röntgenrannsóknir vegi þó afar lítið í heildargeislaálagi þjóðarinnar en um helmingur þess stafi af náttúrulegri geislun og helmingur af notkun geislunar í læknisfræðilegum til- gangi. Þá segir Sigurður það grundvall- aratriði í geislavörnum að geisla- notkunin sé réttlætanleg. MEngar óþarfar myndatökur »16 Tennurnar geislaðar  Sýnt fram á fylgni milli tannröntgenrannsókna og heilahimnuæxla  Geislun á tannlæknastofum þó afar lítil  Helmingur geislunarálags náttúruleg geislun Röntgen » Árið 2008 voru a.m.k. 302 röntgentæki í notkun á 207 tannlæknastofum. » Sama ár voru framkvæmdar alls 704 þúsund röntgen- rannsóknir á Íslandi, þar af var áætlað að tannröntgenrann- sóknir hefðu verið um 64%. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ég hef aldrei upplifað það fyrr að leggja netin og draga þau aftur eftir tíu mínútur full af fiski,“ sagði Jón Sigurðsson, útgerðarmaður og sjó- maður á Sindra RE 46. Hann hefur gert út frá Reykjavík í rúm þrjátíu ár og sjómennskuferill Jóns er ekki langt frá því að spanna hálfa öld. Hann sagði að fiskiríið í vetur hefði verið með eindæmum gott. „Á árum áður þegar ég var á báti frá Akranesi þá fengum við þetta 1.000 til 1.100 tonn á einni vertíð af miklu smærri fiski, enda var verið með smærra rið í netunum. Þetta var aldrei svona þá. Það var ótrúlegt fiskmagn á ferðinni í vetur,“ sagði Jón. Hann sagði að óvenjugóð þorskveiði hefði verið á Kollafirði, rétt utan við Reykjavík- urhöfn. „Ég lagði 10-12 net og byrjaði að draga um tíu mínútum, korteri, eftir að ég var búinn að leggja og fékk um tonn af boltaþorski,“ sagði Jón. Skjannahvítur eins og línufiskur „Fiskurinn sem ég veiddi var eingöngu lifandi blóðgaður þorskur. Hann var skjannahvítur – al- veg eins og línufiskur. Þeir voru þetta frá tíu og upp í þrjátíu kílóa fiskar. Maður tók helst ekki þessa stærstu heldur leyfði þeim bara að fara. Þeir voru svo þungir og erfitt fyrir okkur að eiga við þá.“ Skipsfélagi Jóns og skipstjóri á Sindra RE er Kristján Páll Ström Jónsson. Þeir hafa verið saman til sjós í um tuttugu ár. Netin voru lögð innarlega á sundunum í Kollafirði eftir rétt um hálftíma stím úr gömlu höfninni í Reykjavík. „Það lóðaði þarna um allt, óhemjumikið af þorski að hrygna þarna í vetur,“ sagði Jón. Hann sagði sömu sögu að segja víðar að eins og frá Suðurnesjum. Þeir sem hafi átt einhvern kvóta hafi ekki verið í neinum vandræðum með að veiða þorsk. „Við erum með um átján tonna þorskkvóta og veiðum hann á þessum árstíma þegar er styst og hagkvæmast að sækja hann,“ sagði Jón. Hann sagðist hafa tekið olíu einu sinni á bátinn á haustvertíðinni og einu sinni á vetrarvertíðinni. „Það var svo stutt að fara að ná í fiskinn.“ »18 Ljósmynd/Jón Kristjánsson Mokafli Jón Sigurðsson var við netarúlluna á Sindra RE og tók á móti aflanum. Netin lágu örstutta stund í sjónum áður en þau voru dregin bunkuð af fiski. „Tók helst ekki þessa stærstu“  Mjög góð þorskveiði var í net á Kollafirði í vetur  Netin voru bunkuð af stórum þorski eftir stutta stund í sjónum  Þorskarnir 10-30 kíló stykkið  Hefði síðasti Icesave-samningur verið samþykktur í þjóðaratkvæða- greiðslu fyrir ári, hinn 9. apríl 2011, væri kostnaður Íslands í dag orðinn ríflega 50 milljarðar króna. Þetta kemur fram í útreikningum sem fjármálafyrirtækið GAMMA gerði fyrir Morgunblaðið. Við þá upphæð myndu síðan bætast 28 milljarðar í vaxtagreiðslur til árs- ins 2015. Heildarkostnaður vegna Icesave hefði því numið hátt í 80 milljörðum. Það er umtalsvert hærri upphæð en áætlanir stjórn- valda gerðu ráð fyrir í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. »Viðskipti Morgunblaðið/Golli Icesave Uppsafnaðar vaxtagreiðslur vegna síðustu samninga væru í dag 50 milljarðar. Kostnaðurinn hefði orðið 80 milljarðar  Lögmaður Pricewaterhouse- Coopers ehf. hefur lagt fram kröfu á hendur slitastjórn Glitnis vegna málareksturs slitastjórnarinnar á hendur félaginu fyrir dómstólum í New York árin 2010 og 2011. Málið endaði á því að dómari vísaði mál- inu frá þar sem það ætti ekki heima hjá dómstólnum. Krafan hljóðar upp á 82 milljónir króna með vöxt- um og innheimtukostnaði. Steinunn Guðbjartsdóttir, for- maður slitastjórnar Glitnis, segir kröfuna hafa borist slitastjórninni og að afstaða verði tekin til hennar eftir helgi. Slitastjórnin hefur höfð- að mál á hendur PwC á Íslandi og verður málið þingfest í dag. »2 Krefur slitastjórn Glitnis um bætur –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.