Morgunblaðið - 12.04.2012, Síða 2

Morgunblaðið - 12.04.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Í tillögu iðnaðarráðherra til þings- ályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða er lagt til að allar fyrirhugaðar virkjanir í neðri hluta Þjórsár verði settar í biðflokk. Sú ákvörðun myndi standa þangað til áhrif virkjana á laxgengd í ánni yrðu rannsökuð að fullu. Í rökstuðningi með tillögunni er talað um að mat á umhverfisáhrif- um vegna Urriðafossvirkjunar falli úr gildi í ágúst 2013, ef fram- kvæmdir verði ekki hafnar innan þess tíma. Þessi staðhæfing í tillögu ráð- herra vekur athygli þegar lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/ 2000 eru skoðuð. Þar segir: „Ef framkvæmdir hefjast ekki innan tíu ára … skal viðkomandi leyfis- veitandi óska ákvörðunar Skipu- lagsstofnunar um hvort endur- skoða þurfi að hluta eða í heild matsskýrslu framkvæmdaraðila áð- ur en leyfi til framkvæmda er veitt.“ Nýtt heildarmat á áhrifunum Ráðherra virðist því gefa sér að Skipulagsstofnun muni á næsta ári ógilda úrskurð sinn vegna um- hverfismatsins. Ráðherra segir einnig í þings- ályktunartillögu sinni: „Þar sem ekki stendur til að sækja um eða gefa út virkjunarleyfi fyrir ágúst 2013 er ljóst að nýtt mat á um- hverfisáhrifum mun verða unnið vegna virkjunarkostarins. Við það mat munu allar nýjar upplýsingar um áhrif á laxfiska verða teknar með í reikninginn, þ.e. nýtt heild- armat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar.“ Ábyrgðin er leyfisveitandans „Nei, ég myndi ekki orða það þannig. Ég myndi segja sem svo að ef 10 ár líða frá því að úrskurður liggur fyrir þá þurfi að skoða mál- ið,“ segir Stefán Thors, forstjóri Skipulagsstofnunar, um hvort rétt sé að tala um að umhverfismatið falli úr gildi. Þá segir hann það leyfisveitand- ans að óska eftir ákvörðun um hvort og þá hverskonar endurmat þurfi að fara fram. „Nei, það hefur engin ákvörðun verið tekin,“ segir Stefán, aðspurð- ur hvort stofnunin hafi þegar tekið ákvörðun líkt og skilja má af texta þingsályktunartillögunnar. Hann sagði að ef til þess kæmi að ákveðið yrði að hefja að hluta eða í heild nýtt umhverfismat væri óvíst hversu langan tíma það tæki og færi í raun eftir því hversu hratt framkvæmdaaðilinn myndi vinna gögn vegna matsins og hversu víðtækt slíkt endurmat yrði. Engin ákvörð- un verið tekin  Ósamræmi er í lögum um mat á umhverfisáhrifum og þingsályktun „Nei, það hefur engin ákvörðun verið tekin.“ Stefán Thors Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Lögmaður PricewaterhouseCoopers ehf. hef- ur lagt fram kröfu á hendur slitastjórn Glitn- is vegna málareksturs slitastjórnarinnar á hendur félaginu fyrir dómstólum í New York árin 2010 og 2011. Málið endaði á því að dómari vísaði málinu frá þar sem það ætti ekki heima hjá dómstólnum. Krafan hljóðar upp á 82 milljónir króna með vöxtum og innheimtukostnaði. Ferill málsins er sá að í maí 2010 var PwC stefnt fyrir dómstól í New York ásamt sjö aðilum úr hópi fyrrverandi stjórnenda og eigenda Glitnis, þar á með- al Jóni Ásgeiri Jóhann- essyni, Pálma Haraldssyni og Lárusi Welding. Var fyrirtækið sakað um að hafa aðstoðað sjömenn- ingana við að hafa með sviksamlegum og ólögmæt- um hætti haft út úr Glitni banka hf. meira en tvo milljarða bandaríkjadala. Dómstóllinn í New York vísaði málinu á hendur PwC frá í des- ember 2010. Slitastjórn Glitnis tók ákvörðun um að áfrýja niðurstöðunni til áfrýjunar- deildar dómstólsins og hafði frest til 3. jan- úar 2012 til að leggja fram tilskilin gögn. „Hinn 3. janúar 2012, á lokastigi frestsins, var kunngerð ákvörðun slitastjórnarinnar um að falla frá áfrýjuninni,“ segir í kröfugerð PwC og einnig: „Með öðrum orðum þýðir þetta að slitastjórnin hélt málinu í New York opnu í u.þ.b. eitt ár eftir að frávísunardóm- urinn var kveðinn upp.“ Slíkt hafi haft um- talsvert tjón í för með sér fyrir PwC, annars vegar kostnað vegna málsvarnarinnar og hins vegar tap á tekjum/hagnaði vegna skaða á orðspori félagsins. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, segir kröfuna hafa bor- ist slitastjórninni og að afstaða verði tekin til hennar á fundi strax eftir helgi. Hún vildi ekki gefa upp sína afstöðu til málsins og sagði rétt að afstaðan yrði tilkynnt þeim sem lýstu kröfunni á undan öðrum. Slitastjórn Glitnis hefur höfðað mál á hendur PwC á Íslandi og verður málið þing- fest í dag. „Eins og kemur fram í þeirri stefnu teljum við að það sé fyrir hendi bóta- skylda vegna þeirra aðkomu að endurskoðun hjá bankanum og undirritun ársreikninga. Ég held að sú stefna og það sem hefur verið sagt um þeirra vinnubrögð lýsi alveg okkar skoðun á því hvernig þeir unnu sína vinnu,“ segir Steinunn. Krefjast bóta frá slitastjórn Glitnis  PwC krefur slitastjórn Glitnis um tugi milljóna í bætur vegna málshöfðunar gegn félaginu í New York  Formaður slitastjórnar segir PwC bótaskylt vegna aðkomu þess að endurskoðun Glitnis banka Steinunn Guðbjartsdóttir Álftin Svandís hefur lagst á eina ferðina enn á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Eftir því sem best er vitað er þetta 18. árið í röð sem Svandís liggur á hreiðri í hólmanum í tjörninni. Flest árin hafa ungarnir orðið 4 til 5. Ís- lenskar álftir dvelja flestar á Bretlandseyjum yfir vetrarmánuðina en um tíundi hluti hefur vetursetu á Íslandi. Samkvæmt talningum hefur álfta- stofninn verið frá 15.000 til 19.000 fuglar hin síðari ár. Morgunblaðið/Ómar Svandís á sínum stað Liggur á hreiðri á Bakkatjörn 18. árið í röð Skúli Hansen skulih@mbl.is „Í fyrsta lagi vil ég tengja þetta beint við að- ildarviðræðurnar. Mér finnst algjörlega ómögulegt að við séum að standa í þeim við- ræðum á sama tíma og þetta er að gerast,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þing- flokksformaður Sjálfstæðisflokksins, spurð út í kröfu framkvæmdastjórnar ESB þess efnis að hún fái aðild að málshöfðun ESA gegn ís- lenskum stjórnvöldum vegna Icesave- málsins. Spurð hvort hún telji að íslenskum stjórnvöldum beri að andmæla kröfu fram- kvæmdastjórnarinnar segir Ragnheiður Elín: „Algjörlega,“ og bætir við: „Ég er hrædd um að einhverjir hagsmunir gagnvart umsókninni gætu farið gegn hagsmunagæslu okkar í þessu máli.“ Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist telja að þetta undirstriki veikleika hjá ESA og að það gefi um leið Íslend- ingum færi á að koma að skriflegum athugasemdum við varnir ESB áður en munnlegur málflutningur hefst. Hann bendir á að þetta tækifæri hefðum við ella ekki fengið. „Á því byggist væntanlega ekki síst sú afstaða okkar aðalmálflutningsmanns, Tim Ward, að það sé ekki í okkar þágu að leggj- ast gegn því að framkvæmdastjórnin hafi þennan hátt á sinni aðkomu,“ segir Össur sem telur jafnframt að þessi ósk ESB undir- striki styrk þeirrar greinargerðar sem ís- lensk stjórnvöld sendu frá sér fyrr á árinu. Spurður hvort hann telji að slíta beri aðild- arviðræðunum vegna kröfu framkvæmda- stjórnarinnar segir Össur: „Nei, ég tel að það væri til marks um vantrú Íslendinga á sínum eigin röksemdum ef við óttumst svo rök og aðkomu framkvæmdastjórnarinnar að við myndum rjúka til og hætta samninga- viðræðum um óskyldan þátt, þ.e. aðild að ESB.“ Árni Þór Sigurðsson, formaður utanrík- ismálanefndar, segir að þegar Tim Ward kom á fund nefndarinnar fyrir nokkru og gerði grein fyrir undirbúningi málsins hefði verið ljóst að óskað yrði eftir meðalgöngu af hálfu ESB. „Þannig að það er ekkert sem kemur okkur á óvart í því,“ segir Árni. Óheppilegt að vera í viðræðum „Að vera í viðræðum við ESB á meðan það gengur fram með þessum hætti gagnvart Ís- landi er mjög óheppilegt og enn ein áminn- ing um að eðlilegast væri að gera hlé á þess- um viðræðum á meðan öll þessi óvissa ríkir um ESB og samskipti við það,“ segir Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. ESB vill fá aðild að Icesave-málinu Össur Skarphéðinsson  Utanríkisráðherra telur tækifæri vera fólgið í þessu og að ekki sé rétt að slíta aðildarviðræðunum Brot sautján öku- manna voru mynduð á Ása- braut í Garðabæ í gær. Í tilkynn- ingu frá lögregl- unni á höfuð- borgarsvæðinu segir að fylgst hafi verið með ökutækjum sem var ekið eftir Ásabraut í norðurátt, við Birkiás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 31 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 55%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst. en þarna er 30 km há- markshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51 km/klst. Þessi vakt lögreglunnar á Ása- braut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu. Við fyrri hraðamælingar lögreglunnar á þessum stað hefur brotahlutfallið verið 50-65%. 55% ökumanna óku of hratt á Ásabraut í Garðabæ í gær Brot Lögreglan að störfum. Rithöfundurinn Einar Már Guð- mundsson tók í gærkvöldi við Norrænu bók- mennta- verðlaunum Sænsku aka- demíunnar. Verðlaunin, sem eru stundum kölluð Litli Nób- elinn, hafa verið veitt árlega frá 1986. Einar Már er þriðji Íslending- urinn sem hlýtur verðlaunin, Thor Vilhjálmsson fékk þau árið 1992 og Guðbergur Bergsson árið 2004. Einar Már tók við „Litla Nóbelnum“ Einar Már Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.