Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012
Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir við Laug-
ardalslaug undanfarið og ekki farið framhjá
sundlaugargestum, enda verið að endurbyggja
brúna og gufan lokuð ásamt flestum pottunum.
Gestir laugarinnar geta þó áfram unað sér í
steinapottinum svokallaða – og það gjaldfrjálst
en aftur verður tekið að rukka fyrir aðgang í
laugina 19. apríl nk. þegar framkvæmdunum á
að verða lokið að mestu.
Laugin standsett fyrir sumarið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framkvæmdum við Laugardalslaug fer senn að ljúka
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Það er þarna brimvarnargarður
sem hefur látið á sjá og nú þarf að
bæta við grjóti og lagfæra það sem
fyrir er. Endurraða einhverju og
koma með nýja steina,“ segir Hörð-
ur Blöndal, hafnarstjóri hjá Hafn-
arsamlagi Norðurlands, aðspurður
hvað standi til í Grímsey, en nýverið
var verkefni við grjótvörn í eynni
sett í útboð, alls 650 m³.
„Það er verið að vinna grjót í
Ólafsfirði og svo á að flytja þetta í
stykkjatali út í eyju. Það er talað um
300 steina. Þeir verða fluttir með
ferjunni eftir því sem plássið leyfir,“
segir Hörður og vísar þar í ferjuna
Sæfara sem siglir frá Dalvík.
Hörður segist telja að flutningur á
öllu grjótinu geti tekið nokkurn
tíma, jafnvel stóran hluta sumarsins.
„Þetta er á samgönguáætlun og er
restin sem á að gera samkvæmt
henni úti í Grímsey og verður unnið í
sumar.“ Grjótinu verður skipað á
land í Grímsey og „sett í haug og svo
verður þetta lagt út þegar allt er
komið og menn eru tilbúnir að fara
af stað. Þetta á að klárast fyrir
haustið,“ segir Hörður.
Garðar Ólason, útgerðarmaður í
Grímsey, segir að auk þess sem til
standi að setja grjót utan á garðinn
eigi að þrengja gatið á innsigling-
unni inn í höfnina. „Það er tunna á
grjótgarðinum öðrum megin og
stendur til að setja hinum megin
líka,“ segir Garðar. Hann segir að
sjóvarnargarðurinn hafi ekki bein-
línis skemmst, en það sé eðlilegt að
hann láti eitthvað á sjá þegar sjórinn
gangi yfir hann allt árið. „Já, hann
hefur nú sigið svona svolítið, en
þetta hefur bara alltaf vantað, bara
verið of lítið. Í miklum brimum
gengur yfir þetta,“ segir Garðar.
300 hnullungar út í Grímsey
Lagfæringar á sjóvarnargarði eru á samgönguáætlun Þurfa 300 stórgrýt-
issteina sem verða unnir í Ólafsfirði og ferjaðir yfir Verklok fyrir haustið
Morgunblaðið/ÞÖK
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Ungum og upprennandi leikurum
gefst kostur á að sækja um hlutverk í
nýrri uppfærslu Þjóðleikhússins á
Dýrunum í Hálsaskógi. Óskað er eftir
strákum og stelpum á aldrinum 8-12
ára. Að sögn Þórunnar Geirsdóttur
sýningarstjóra sem sér um prufurnar
er von á hundruðum umsækjenda
„Þegar við sýndum Oliver Twist ósk-
uðum við eftir strákum og það komu
300 strákar í inntökupróf. Nú auglýs-
um við eftir bæði strákum og stelpum
og því eigum við von á töluverðum
fjölda umsækjenda. Erfitt er að áætla
fjöldann en við búumst við að um-
sækjendur munu skipta hundruðum.“
Skráning fer fram í Þjóðleikhúsinu á
laugardaginn og leikprufur fara fram
í næstu viku.
Í boði er hlutverk Bangsadrengs,
auk þess er leitað eftir leikurum til að
túlka hin ýmsu dýr í Hálsaskógi.
Vanalega þegar ungir krakkar eru
fengnir til að leika í álíka sýningum
eru tveir um hvert hlutverk til að
dreifa álaginu og því má áætla að um
20 hlutverk séu í boði. Þórunn segir
að allir séu velkomnir að reyna sig.
„Við erum svolítið að leita eftir krökk-
um með reynslu af því að koma fram,
reynsla af söng, dansi og kórstarfi
nýtist vel. En auðvitað tökum við öll-
um fagnandi,“ segir Þórunn.
Dýrin í Hálsaskógi verða nú sett
upp í fimmta skipti í Þjóðleikhúsinu,
með leikstjórn fer Ágústa Skúladótt-
ir og með aðalhlutverk fara þeir Jó-
hannes Haukur Jóhannesson og Æv-
ar Þór Benediktsson. Verkið er eftir
Íslandsvininn Thorbjörn Egner sem
á sínum tíma gaf Þjóðleikhúsinu sýn-
ingarréttinn á leikritum sínum.
Margir af ástælustu leikurum
þjóðarinnar hafa tekið þátt í upp-
færslum Þjóðleikhússins á verkinu,
má þar nefna Árna Tryggvason og-
Bessa Bjarnason, sem léku í fyrstu
tveimur uppfærslunum í leikstjórn
Klemenz Jónssonar. Síðast var verk-
ið sett upp árið 2003 í leikstjórn Sig-
urðar Sigurjónssonar en þá fóru með
aðalhlutverk þeir Atli Rafn Sigurð-
arson og Þröstur Leó Gunnarson.
Þess má geta að leikritið Dýrin í
Hálsaskógi var fyrst frumsýnt í Þjóð-
leikhúsinu árið 1962 en þá urðu sýn-
ingarnar alls 50 og sýningargestir
27.655.
Hundruð barna í prufur fyrir leikrit
Morgunblaðið/Ásdís
Mikki refur Þröstur Leó Gunnarsson hræðir börnin í sýningunni 2003.
Umhverfisráðu-
neytið hefur nú
til skoðunar
hvort stytta eigi
veiðitíma svart-
fugla í vor. Sam-
kvæmt gildandi
reglugerð má
veiða álku, lang-
víu, stuttnefju,
teistu og lunda til
10. maí en veiði-
tímabilið hófst 1. september. Veiði-
tímabilið miðast nú við þau mörk
sem lög leyfa að friðun sé aflétt á
þessum tegundum. Ráðherra getur
ákveðið að stytta veiðitímabilið með
því að breyta reglugerð.
Ákvörðun um styttingu veiðitíma
svartfugls hafði ekki verið tekin í
gær, að sögn Sigurðar Á. Þráins-
sonar, líffræðings í umhverfisráðu-
neytinu. Hann sagði að málið hefði
verið rætt við undirstofnanir ráðu-
neytisins og farið yfir málið með
fleirum. „Við erum að reyna að
leggja mat á hvort það sé ástæða og
efni til að gera það [stytta veiðitím-
ann], eða hvort það eigi að hafa þetta
óbreytt,“ sagði Sigurður. Hann
sagði að ákvörðunar væri að vænta
„mjög fljótlega“.
Náttúrufræðistofnun lagði til 24.
mars 2011 „að veiðitími fyrir svart-
fugl verði styttur verulega eða um
20-40 daga og/eða að fjarlægð þar
sem heimilt er að hleypa af skoti við
fuglabjörg verði lengd“.
gudni@mbl.is
Stytting
veiðitíma
í skoðun
Svartfuglar Eiga í
vök að verjast.
Veiðitími svart-
fugls kann að styttast
Togveiðiskipið Sóley Sigurjóns GK
frá Garði fékk tundurdufl í veiðar-
færin djúpt út af Sandgerði í gær.
Áhöfnin var send frá borði þegar
skipið kom að landi enda taldi Land-
helgisgæslan mikla hættu stafa af
sprengjunni.
Sprengjan er talin vera þýsk frá
seinni heimsstyrjöldinni. Í henni eru
talin vera um 300 kíló af sprengiefni.
Hún var flutt með lóðsbát frá Kefla-
vík til Njarðvíkur. Sprengjan fékk
síðan lögreglufylgd að afviknum stað
við Stapafell þar sem sprengju-
sérfræðingar Landhelgisgæslunnar
eyddu henni. Lögreglan varaði bæj-
arbúa í Reykjanesbæ við að mikill
hvellur gæti heyrst og gekk það eftir.
Fundu þýska
sprengju
» 1962. 50 sýningar. 27.655
sýningargestir.
» 1977. 60 sýningar. 33.405
sýningargestir.
» 1992. 58 sýningar. 25.263
sýningargestir.
» 2003. 91 sýning. 39.323 sýn-
ingargestir.
» Alls hafa 125.646 séð Dýrin í
Hálsaskógi í Þjóðleikhúsinu og
sýningar eru 259 frá upphafi.
Sett upp í
fimmta skipti
GRÍÐARLEGAR VINSÆLDIR