Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 6

Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 SVIÐSLJÓS Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Síðasta vetrardag í fyrra var skrifað undir samning um rekstur hótels í gamla Slipphúsinu við Mýrargötu í Reykjavík og ári síðar tekur Ice- landair Hótel Reykjavík Marina á móti fyrstu næturgestunum í hús- inu. Bjartsýni, gætu einhverjir hafa sagt, en raunsætt mat, sögðu eig- endur hússins, smiðirnir og bygg- ingastjórarnir Einar Ágústsson og Jens Sandholt, og segja enn. Félagarnir hafa unnið saman í rúman aldarfjórðung. Þeir stofnuðu verktakafyrirtækið JE Skjanna byggingaverktaka 1996 og hafa meðal annars stjórnað fram- kvæmdum við Árbæjarlaug, Sjóvár- húsið við Kringluna, Sóltúnsbygg- ingarnar, nýju Lýsisverksmiðjuna og vöruhótel Eimskips. Þeir segja að til að byrja með hafi þeir leigt út Slipphúsið enda ekki almennilega séð drauminn rætast. Slippurinn mikilvægur „Okkur fannst Slippurinn eyði- leggja allt í sambandi við hótel, en svo fórum við að horfa jákvætt á um- hverfið,“ segir Einar. „Þetta er eina hótelið í heiminum þar sem gestir eru í svona nánu sambandi við skip í slipp.“ Aðalinngangurinn snýr einmitt út að slippnum þar sem nú eru Þerney RE og Sighvatur Bjarnason VE. Portúgalinn Tetro og Ómar Jón- asson eru að koma gömlum myndum frá svæðinu fyrir í herbergjum og Ómar bendir á eina þeirra. „Hérna er Bjarni Ólafsson AK og því fer vel á því að afkvæmið Sighvatur sé í slipp,“ segir hann gegnsýrður af um- hverfinu. Þó búið sé að gera húsið upp er ýmislegt látið halda sér, eins og til dæmis lofthæð, styrktarbitar í lofti, grófir veggir og viðarklæðning. Til að minna enn frekar á umhverfið eru fjögur myndræn þemu til skiptis í herbergjunum. Eitt minnir á síld- veiðar, annað á þara, það þriðja á gerð hnúta og það fjórða sýnir götu- mynd af Reykjavík og nágrenni. Félagarnir segja að vinnan hafi gengið snurðulaust fyrir sig. Helsta vandamálið hafi verið að þurfa að kljást við skipulag Faxaflóahafna annars vegar og skipulag Reykjavík- urborgar hins vegar, að fá forsvars- menn beggja til að vera sammála um framkvæmdina. Norðurhlið hótelsins snýr að slippnum og þó hann hafi verið þyrn- ir í augum til að byrja með eru eig- endurnir ánægðir með nágrannana. Þeir segja að sjávarútvegstengingin sé mikilvæg og starfsemin við höfn- ina komi öllum til góða. Hótelið tengi næsta umhverfi enn betur við Sjó- minjasafnið á Grandanum enda sé gert ráð fyrir gönguleið á milli þess og slippsins. Ekki hefur verið mikið um fram- kvæmdir í borginni undanfarin miss- eri og því er ánægjulegt að sjá draum verktaka verða að veruleika. „Það voru ekki margir sem hvöttu okkur til dáða,“ segir Jens og Einar tekur í sama streng. Hins vegar taka þeir fram að þeir hafi verið mjög heppnir með starfsmenn og sam- starfsfyrirtæki. Fyrir vikið sjá þeir til sólar og horfa bjartsýnir fram á veg. „Við stefnum að því að lækka í forgjöf,“ segja þeir en vilja samt tala sem minnst um golfið og segja nóg að gera í öðrum verkefnum. Næst á að lækka forgjöfina  Eigendur gamla Slipphússins í Reykjavík hafa breytt því í hótel og skila því fullbúnu í næstu viku  Icelandair Hótel Reykjavík Marina býður nánast upp á snertingu við skip í slipp í miðbænum Morgunblaðið/RAX Inngangur Gengið er inn á Icelandair Hótel Reykjavík Marina gegnt skipum í slippnum og er það örugglega einsdæmi í heiminum. Þema Fjögur myndræn þemu eru í herbergjunum. Eitt minnir á síldveiðar. Veitingastaður Á jarðhæð nýja hótelsins verður hægt að snæða eftir helgi. Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Töluverðrar óánægju hefur gætt í þjóðfélaginu í kjölfar þess að leikir íslenska landsliðsins í handknattleik í undankeppni fyrir Ólympíu- leikana voru sýndir í lokaðri dagskrá. 365 miðl- ar keyptu sýningarréttinn á leikjunum sem fóru fram um síðustu helgi. 365 miðlar hafa í auknum mæli beint spjótum sínum að stórmót- um sem „strákarnir okkar“ hafa tekið þátt í á undanförnum árum. Stöð 2 sport var til að mynda með réttinn á HM í Svíþjóð 2011, auk þess sem stöðin hefur þegar tryggt sér réttinn á HM karla á Spáni sem fram fer í janúar á næsta ári. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, segir málið ekki snúa beint að samband- inu. „Vinnulagið er þannig að IHF eða EHF selja sjónvarpsréttinn yfirleitt til markaðsfyr- irtækja sem áfram selja réttinn til sjónvarpsstöðva sem hafa áhuga í viðkom- andi landi. Við höfum aldrei verið spurðir um eitt eða neitt af alþjóðasamböndun- um varðandi þessa sjón- varpssamninga. Maður hef- ur heyrt út undan sér að peningar séu það sem ráði för við sölu á sjónvarpsrétt- inum.“ HSÍ hefur orðið vart við töluverða óánægju landsmanna með fyrirkomulagið eins og það var t.a.m. um síðustu helgi. Einar ítrekar að HSÍ hafi ekkert um málið að segja. „Það virðist algengur misskilningur meðal fólks að við höf- um eitthvað með málið að gera. Margir hafa komið að máli við okkur og spurt hvernig standi á því að leikirnir séu sýndir í læstri dag- skrá.“ Handknattleiks- landslið karla hefur í gegn- um tíðina notið mikilla vinsælda og hafa margir áhyggjur af þeirri þróun að leikir liðsins séu í auknum mæli í læstri dagskrá. Ekki erindi sem erfiði RÚV gerði tilraunir til að kaupa réttinn á leikjunum í undankeppni Ólympíuleik- anna en hafði ekki erindi sem erfiði. „Við gerð- um eins og venjulega og buðum það sem okkur þótti réttlætanlegt að bjóða en annar aðili hef- ur væntanlega boðið hærra og því fór sem fór. Hins vegar eigum við réttinn á Ólympíuleik- unum sjálfum og munum þar fylgja íslenska liðinu eftir,“ segir Páll Magnússon útvarps- stjóri. Á síðasta ári keypti 365 sýningarréttinn á HM 2011 sem og fyrir HM 2013 í einum pakka og því liggur fyrir að keppnin á næsta ári verð- ur sýnd í lokaðri dagskrá. „Auðvitað reyndum við allt sem í okkar valdi stóð til að tryggja okkur réttinn á þessum keppnum. Meira að segja gerðum við 365 tilboð fyrir HM 2011. Það getur vel verið að við reynum að bjóða þeim einhverskonar samstarf fyrir HM 2013,“ segir Páll. Hann bætir við að grundvallarstefna RÚV sé að reyna að fylgja eftir íslenskum landsliðum í alþjóðlegri keppni og boðið sé í sýningarréttindi í samræmi við þá stefnu, hins vegar geti brugðið til beggja vona þegar slík réttindi séu á opnum markaði. Páll segir að eitthvað hafi borið á kvörtunum í aðdraganda leikjanna nú um helgina. „Fólk er auðvitað óánægt og það erum við líka. Við höfum marg- lýst því yfir að íslensk landslið í alþjóðlegri keppni eigi ekki heima í læstri dagskrá.“ Strákarnir okkar í læstri dagskrá  Íslensk landslið í alþjóðlegri keppni eiga ekki heima í læstri dagskrá að mati útvarpsstjóra  HSÍ hefur ekkert með málið að gera  365 með sýningarréttinn á HM karla á Spáni í janúar á næsta ári Einar Þorvarðarson Páll Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.