Morgunblaðið - 12.04.2012, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 12.04.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 Evrópuvaktin segir svo frá:„Hinn 17. apríl 2009 birtist samtal við Árna Pál Árnason á vef- síðu Samfylkingarinnar. Þar lýsti hann því hvernig flokkurinn mundi vinna að framgangi ESB-mála að lokn- um þingkosningum 25. apríl 2009. Sviðsmynd Árna Páls var þessi:    Aðildarumsóknsend strax í maí 2009. Viðræður við ESB hefjist í byrjun júní 2009. Samningar takist á innan við 12 mánuðum. Samningur liggi fyrir snemma sumars 2010. Alþingi samþykki tillögu um að- ild í árslok 2010. Þjóðaratkvæðagreiðsla í mars 2011. Tillaga um breytingu á stjórn- arskrá vegna aðildar fyrir alþingi í apríl 2011. Þing rofið sumar eða haust 2011, nýjar kosningar. Nýtt þing samþykkir breytingu á stjórnarskrá. Öllum hindrunum fyrir ESB- aðild rutt úr vegi. Árni Páll segir að aðildar- umsóknarferlið strax að loknum kosningum 25. apríl 2009 muni „styðja mjög við atvinnulífið í land- inu, greiða fyrir hraðri vaxtalækk- un, styrkja gengi krónunnar og auðvelda fjármögnun fyrirtækja“.“    Nú er komið á daginn að brott-rekni efnahagsráðherrann kunni ekki á klukku, hafði týnt almanakinu og vissi ekkert um hvað hefði áhrif á vexti eða gengi.    En hann hefur samt skrifað nýjagrein um sama efni og áður, en með splunkunýjum formerkjum. Hann hefur snúist í hring. Í tilfelli Árna í sólarhring. Árni Páll telur að umskiptin styrki sig í baráttunni um formannsstólinn. Er það? Árni Páll Árnason Leiðarvísir sölumanns brást STAKSTEINAR Veður víða um heim 11.4., kl. 18.00 Reykjavík 1 snjókoma Bolungarvík 1 alskýjað Akureyri 1 alskýjað Kirkjubæjarkl. 4 alskýjað Vestmannaeyjar 3 alskýjað Nuuk -5 snjóél Þórshöfn 5 skýjað Ósló 5 skýjað Kaupmannahöfn 7 skýjað Stokkhólmur 6 heiðskírt Helsinki 5 heiðskírt Lúxemborg 10 léttskýjað Brussel 8 léttskýjað Dublin 10 léttskýjað Glasgow 12 léttskýjað London 12 léttskýjað París 12 skúrir Amsterdam 10 léttskýjað Hamborg 12 skýjað Berlín 7 skúrir Vín 18 skýjað Moskva 2 alskýjað Algarve 17 heiðskírt Madríd 15 léttskýjað Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 18 léttskýjað Róm 15 léttskýjað Aþena 13 léttskýjað Winnipeg 2 heiðskírt Montreal 7 alskýjað New York 10 skýjað Chicago 7 léttskýjað Orlando 27 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 12. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:05 20:53 ÍSAFJÖRÐUR 6:01 21:06 SIGLUFJÖRÐUR 5:44 20:49 DJÚPIVOGUR 5:32 20:25 Herjólfur siglir til Landeyjahafnar laugardag og sunnudag 14. og 15. apríl, þrjár ferðir báða dagana. Þeir farþegar sem áttu bókað frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar kl. 8 færast í ferðina til Land- eyjahafnar kl. 8. Þeir farþegar sem áttu bókað í ferð kl. 11:45 frá Þor- lákshöfn færast í ferðina frá Land- eyjahöfn kl. 10. Þeir farþegar sem áttu bókað frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar kl. 15:30 færast í 20:30-ferðina til Landeyjahafnar. Þeir farþegar sem áttu bókað í ferð kl. 19:15 frá Þorlákshöfn færast í 21:30-ferðina frá Landeyjahöfn. Í fréttatilkynningu frá Herjólfi segir að óskað sé eftir skilningi far- þega á þessum aðstæðum. Morgunblaðið/Ómar Á ferðinni Herjólfur siglir í höfn. Siglir til Landeyja- hafnar  Herjólfur fer sex ferðir um helgina Karlmaður á miðjum aldri á Suður- landi fékk 5 milljónir á trompmiðann sinn í Happdrætti Háskólans og fimmfaldaði því vinninginn. Hann fékk því 25 milljónir króna. Aðalútdráttur aprílmánaðar var óvenju happadrjúgur, að minnsta kosti fyrir miðaeigendur Happ- drættisins. Heilar 87 milljónir gengu út til ríflega þrjú þúsund lukkulegra vinningshafa vítt og breitt um land- ið. Auk Sunnlendingsins heppna fengu kona og karl í Reykjavík enn- fremur 5 milljónir hvort og þrír vinningshafar fengu milljón. Vann 25 millj- ónir í HHÍ AÐALFUNDUR N1 HF. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl.14:30 á fundardegi. Tillögur fundarins liggja fyrir á skifstofu félagsins hluthöfum til kynningar tveimur vikum fyrir fundinn. Kópavogi 23. mars 2012 Stjórn N1 hf. Aðalfundur N1 hf. 2012 verður haldinn á 20. hæð í turninum, Smáratorgi, Kópavogi, fimmtudaginn 12. apríl nk. og hefst kl. 15:00. DAGSKRÁ: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á hinu liðna starfsári. 2. Ársreikningur félagins lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar félagins á reikningsárinu. 4. Ákvörðun stjórnarlauna, undirnefnda stjórnar og þóknun til endurskoðenda. 5. Starfskjarastefna félagsins. 6. Stjórnarkjör. 7. Kjör endurskoðenda. 8. Tillögur um kaup á eigin hlutum. 9. Önnur mál löglega fram borin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.