Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 11
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Sýning Þokuslæðingur í sýningarrýmunum býr til seiðmagnaða stemningu á Örlögum guðanna.
stuðningur fékkst hins vegar ekki við
verkið og eigendur hússins voru
harðir í allri kröfugerð, að sögn Ing-
unnar, og sýningin fékk því ekki svig-
rúm til að festa sig í sessi. Bæjaryf-
irvöld í Reykjanesbæ lýstu í
framhaldi yfir áhuga á að fá sýn-
inguna til sín og hún var fyrst um
sinn sett upp í Rammahúsinu, sem
m.a. hýsir Byggðasafn Reykjanes-
bæjar og markaðstorgið Skansinn.
Þar náði sýningin sér hins vegar ekki
á strik, auk þess sem fjárhagslegt
bolmagn til að auglýsa hana var held-
ur ekki mikið eftir brotlendinguna í
Hveragerði. Þá kom upp sú hugmynd
hjá bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ
að flytja sýninguna yfir í Víkinga-
heima, sem hýsir m.a. víkingaskipið
Íslending.
Sex sýningarrými með þrí-
víðum myndum, texta og tónlist
„Ég skal játa að ég sá ekki strax
fyrir mér hvernig ætti að vera hægt
að koma sýningunni fyrir í Víkinga-
heimum en með Kristínu Rögnu og
hennar fínu tilfinningu fyrir rými
komumst við að þeirri niðurstöðu að
þessir flutningar yrðu gerlegir án
þess að sýningin skaðaðist eða yrði
einhvers konar bastarður af sjálfri
sér. Ég tók því til óspilltra málanna
að aðlaga hana því rými sem um var
að ræða á loftinu í Víkingaheimum og
það tókst eiginlega ótrúlega vel,“
sagði Ingunn.
Uppbygging sýningarinnar eru
sex rými sem sýningargestir ganga í
gegnum, leiddir áfram með leiðsögn í
gegnum heyrnartól, eins og áður var
nefnt. Ingunn er hugmyndasmiður,
hönnuður og textahöfundur sýning-
arinnar og það var hennar ákvörðun
hvaða þema og hvaða goðsögur yrðu í
hverju rými. Ingunn hannaði einnig
form rýmanna og samdi textann sem
gestir hlusta á. Kristín Ragna tók svo
til við myndahönnun inn í hvert rými
fyrir sig, þegar þær höfðu farið yfir
skipulag hvers rýmis og Ingunn sam-
ið texta inn í hvert þeirra. Myndir
Kristínar Rögnu eru litríkar og áber-
andi á svörtum bakgrunni.
Sýningin er opin kl. 12:00-17:00
alla daga eða á afgreiðslutíma Vík-
ingaheima.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
11
-1
71
3
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
www.kia.isÞú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum
Aðeins 4,4 lítrar á hundraðið
Kia cee'd EX, 1,6 l, dísil, beinskiptur
16" álfelgur, loftkæling, hraðastillir (Cruise Control),
leðurklætt stýri og gírstangarhnúður, bluetooth o.fl.
Einnig fáanlegur sjálfskiptur.
Verð 3.620.777 kr.
Sértilboð 3.390.777 kr.
Allt að 75% fjármögnun
Tryggðu þér Kia cee'd á frábæru verði – aðeins örfáir bílar í boði!
Askja er stoltur þátttakandi í umhverfisverkefninu
Grænn apríl – nánar á www.graennapril.is.
www.vikingaheimar.is
Arna Valsdóttir sýnir myndbands-
og hljóðinnsetningu í Gerðubergi en
opnun sýningar hennar verður laug-
ardaginn 14. apríl, kl. 14. Arna nam
myndlist við MHÍ og Jan van Eyck
academie í Hollandi þaðan sem hún
lauk námi 1989. Arna hefur síðan
unnið verk þar sem hún nýtir eigin
rödd í margvísleg rýmisverk og
gjörninga, bæði sem vídeóverk og
innsetningar og um tíma vann hún
raddteikningar fyrir útvarp.
Á árunum 2004-2009 ferðaðist
hún um með gagnvirkt verk sem
hún nefndi „Ég er ögn í lífrænni
kviksjá“ og setti það upp í marg-
víslegum rýmum, m.a. í Garð-
skagavita, á Nýlistasafninu og í
Hafnarfjarðarleikhúsinu, en einnig í
skólum og á ráðstefnum. Tók verkið
lit og lögun af hverjum stað og
þeim gestum sem hann sóttu. Kvik-
sjána setti Arna upp í Gerðubergi á
Vetrarhátíð 2009. Verkið sem Arna
sýnir að þessu sinni er hluti af sýn-
ingaröðinni Staðreynd og er þetta
fimmta verkið í þeirri röð.
Endilega …
Listakona Arna Valsdóttir.
… sækið opnun sýningar
Ef handrit leynist í skúffunni sem þig
hefur lengi langað að gera eitthvað
við þá er nú rétti tíminn til að láta
drauminn rætast, en af sérstökum
ástæðum auglýsir stjórn Íslensku
barnabókaverðlaunanna að nýju eftir
handritum að sögum fyrir börn og
unglinga í samkeppni ársins.
Handritið skal vera að lágmarki 50
ritvinnslusíður að lengd og geta stað-
ið án mynda. Skilafrestur er til og
með 27. apríl 2012. Handritum skal
skilað í fjórriti, merkt með dulnefni
en rétt nafn höfundar fylgi með í lok-
uðu umslagi, til: Forlagið / Íslensku
barnabókaverðlaunin, Bræðraborg-
arstíg 7, 101 Reykjavík.
Íslensku barnabókaverðlaunin
Morgunblaðið/Kristinn
Bækur Handrit er fyrsta skrefið.
Er handrit í skúffunni?