Morgunblaðið - 12.04.2012, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína,
er væntalegur til Íslands í síðari
hluta þessa mánaðar. Forsætisráðu-
neytið tilkynnti þetta í gær.
Auk þess að funda með Jóhönnu
Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og
fleiri ráðherrum mun kínverski for-
sætisráðherrann eiga fund með Ólafi
Ragnari Grímssyni, forseta Íslands.
Þá mun hann kynna sér jarðhitanýt-
ingu á Íslandi en hann er jarðfræð-
ingur að mennt.
Í tilkynningunni segir að boð til
forsætisráðherra Kína hafi legið fyrir
frá árinu 2006 þegar Halldór Ás-
grímsson, þáverandi utanríkis-
ráðherra, sendi boðsbréf.
Í fyrra var svo fjörutíu ára afmæli
stjórmálasambands Íslendinga og
Kínverja og var þá hafist handa við
að finna tíma fyrir mögulega heim-
sókn forsætisráðherrans. Hefur
heimsóknin verið undirbúin í sam-
starfi við kínverska sendiráðið hér á
landi og með atbeina sendiráðs Ís-
lands í Kína.
Gekk ekki í fyrra
Ein af hugsanlegum tímasetn-
ingum fyrir heimsókn Wens var 14.
júlí í fyrra. Í frétt Morgunblaðsins
frá 2. júlí 2011 er haft eftir Zhu Wei-
dong, starfsmanni kínverska sendi-
ráðsins í Reykjavík, að rætt hafi ver-
ið um það á milli ríkisstjórna
landanna tveggja að forsætisráð-
herrann kæmi í heimsókn til landsins
þann dag.
„Það kom til greina að herra Wen
kæmi hingað í júlí, en þá vill
þannig til að forsætisráðherra
ykkar er upptekinn á þeim tíma og
því var ekki hægt að samræma tíma
ráðherranna að þessu sinni,“ var haft
eftir Zhu þá. Sagði hann þá dagsetn-
ingu þó aðeins hafa verið uppástungu
af hálfu Kínverja og að ekkert hefði
verið ákveðið í þeim efnum.
Í sömu frétt var vitnað í tölvubréf
Önnu Jóhannsdóttur, sendiherra og
ráðgjafa Jóhönnu í utanríkismálum.
Þar segir hún að þessi dagsetning
hafi ekki verið endanlega ákveðin en
hafi verið til alvarlegrar skoðunar.
Ekki hafi verið horfið frá henni að
ósk Jóhönnu.
Morgunblaðið náði ekki tali af for-
sætisráðherra eða aðstoðarmanni
hennar vegna málsins til að spyrja
hana hvers vegna sú dagsetning
hefði ekki hentað.
Þann 6. júlí sagði blaðið hins vegar
frá því að hundrað manna viðskipta-
sendinefnd hefði verið á leiðinni til
landsins vegna heimsóknar Wen
Jiabao í mánuðinum en hætt hefði
verið við komu nefndarinnar. Þetta
var haft eftir Jóni Ásbergssyni, fram-
kvæmdastjóra Íslandsstofu, sem út-
flutningsráð Kína í Peking hafði haft
samband við um að skipuleggja dag-
skrá fyrir nefndina hérlendis. Í frétt-
inni var ennfremur haft eftir Jóni
Agli Egilssyni, sendiherra, að ekki
væri rétt að forsætisráðherra hefði
hafnað því að heimsókn hins kín-
verska starfsbróður síns yrði í júlí.
Í Fréttablaðinu 12. júlí í fyrra tjáði
forsætisráðherra sig svo í fyrsta
skipti um hvers vegna ekkert hefði
orðið af heimsókn Wen þá. Hún sagði
ekkert hæft í því að hún hefði ekki
séð sér fært að taka á móti Wen.
„Það var búið að festa niður heim-
sókn 14. júlí og ég búin að samþykkja
hana. Við vorum farin að undirbúa
hana sem og viðskiptalífið en síðan
komu þau skilaboð frá Kínverjum að
þeir gætu ekki þegið hana á þessum
tíma,“ sagði Jóhanna.
Forsætisráðherra Kína væntanlegur
Ræðir við ráðherra og forseta og kynnir sér jarðhitanýtingu Heimboð legið fyrir frá árinu 2006
Fundur Ólafur Ragnar Grímsson með Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Orkuveita Reykjavíkur getur ekki
selt heitt vatn til nýrra stórnot-
enda á Akranesi, íbúðar- eða sum-
arhúsa við aðveituæðina frá Deild-
artunguhver eða til uppbyggingar
baðaðstöðu við hverinn. Vatns-
mesti hver landsins og Evrópu er
fullnýttur en þó er það úr sér
gengin aðveituæð sem takmarkar
flutningsgetuna. Ekki eru gefnar
vonir um að úr rætist í nánustu
framtíð.
Hitaveita Akraness og Borg-
arfjarðar virkjaði Deildartungu-
hver á sínum tíma og lagði hita-
veitu á Akranesi, í Borgarnesi, á
Hvanneyri og í sveitum á leiðinni.
Þetta var mikið þjóðþrifafyrirtæki
sem bætti aðstöðu til búsetu í
Borgarfirði og á Akranesi.
Hitaveitulögnin frá Deildar-
tungu og út á Akranes er 64 kíló-
metra löng og með tengingum í
Borgarnes og aðra staði á leiðinni
er veitan 74 km. Þær eru úr
asbestefni og hafa verið að gefa
sig, sérstaklega í mýrlendi. Þá er
ekki hægt að auka þrýsting á
lögninni til að flytja meira vatn.
Hefur þetta valdið bilunum og
einstöku sinnum hefur þurft að
skammta vatn, í mestu frosthörk-
um. Eiríkur Hjálmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Orkuveitu Reykjavík-
ur, segir að reksturinn hafi gengið
vel í vetur. Telur hann að þrýst-
ingurinn hafi aðeins fallið einu
sinni og það hafi verið vegna raf-
magnsleysis.
Hægt á endurnýjun
Orkuveitan hefur unnið að
endurbótum á lögninni frá árinu
2004. Eiríkur segir að teknir séu
fyrir þeir staðir þar sem lögnin er
veikust fyrir og hefur oftast bilað.
Búið er að leggja stálpípur á 18
kílómetrum af þeim 74 sem þarf
að endurnýja. Lagðir verða þrír
kílómetrar í Hestflóanum í ár. Ei-
ríkur segir að áætlaður heildar-
kostnaður við endurnýjun aðveitu-
æðarinnar sé áætlaður 2
milljarðar króna. Orkuveitan hafi
orðið að hægja á þessum fram-
kvæmdum, eins og öðrum, vegna
fjárhagsstöðu sinnar og Eiríkur
segir ekki hægt að tímasetja það
hvenær endurnýjun lýkur.
Deildartunguhver gefur um
170 sekúndulítra af 100 gráða
heitu vatni og hægt er að ná í 50
sekúndulítra til viðbótar úr bor-
holum í Laugarholti og Bæ í Bæj-
arsveit. Vatnsöflunin er ekki að-
alvandamálið því á meðan asbest
er einhvers staðar í lögninni er
ekki hægt að flytja meira en 200
sekúndulítra.
„Staðan er sú að við höfum
ekki viljað taka nýja stóra not-
endur inn á veituna af ótta við að
það kunni að skerða afhending-
aröryggi þeirra sem fyrir eru,“
segir Eiríkur. Það þýðir að ekki
hefur verið hægt að lofa tengingu
nýrra sumarhúsa- og íbúðahverfa í
Hvalfjarðarsveit við heita vatnið
eða sölu til fiskimjölsverksmiðju á
Akranesi. Þá treystir Orkuveitan
sér ekki til að útvega vatn sem
þarf til reksturs Miðaldabaða sem
hugmyndir voru uppi um að reisa
í Deildartungu.
Eiríkur segir að Orkuveitan
hafi verið að leita fyrir sér með
aukna vatnsöflun, meðal annars á
jarðhitasvæðinu sem kennt er við
Kleppjárnsreyki. Þar hefur OR
takmarkað leyfi til jarðhitanýt-
ingar. Ekki hafa verið gerðar
áætlanir um hvernig að henni
verður staðið.
Deildartunguhver í Borgarfirði er fullnýttur og aðveituæð Orkuveitu Reykjavíkur út á Akranes ber ekki meira
Ekki hægt að bæta við
nýjum stórnotendum
Ljósmynd/Mats Wibe Lund - www.mats.is
Deildartunga Gufan stígur upp af Deildartunguhver og heita vatnið fossar
eftir leiðslunni yfir ána og til notenda á Akranesi og í Borgarnesi.
Síðumúla 11,
108 Reykjavík,
sími 568 6899,
vfs@vfs.is
www.vfs.is
Nýjar vélar frá TTMC
komnar í hús
Borvél gírdrifin
Borgeta í stál 30 mm
Snittun í stál 16mm.
Kón MT4 - Súluþvermál 135 mm
Snúningshraðasvið 105 – 2348
sn/mín
Tilboðsverð kr. 398.900.
Borvél gírdrifin
Borgeta í stál 40 mm
Snittun í stál 33 mm.
Kón Súluþvermál 190 mm
Snúningshraðasvið 90–1500
sn/mín
Tilboðsverð kr. 518.000.
Bandsög
vökvastýrð niðurfærsla
og skrúfstykki.
Sagar rúnnstál
- 230 mm í 90°
- 210 mm vinstri og hægri.
Öflug iðnaðarsög blaðstærð
2825x27x0,9
Tilboðsverð kr. 858.000.
Bandsög vökvastýrð niðurfærsla
Sagar rúnnstál
- 220 mm í 90°
- 160 mm í 45° vinstri.
Blaðstærð 2450x27x0,9
Tilboðsverð Kr. 339.770.
Bandslípivélar 3 Kw
75x2000 og
150x2000
Verð frá kr. 135.135.
Bandsög
vökvastýrð niðurfærsla
Sagar rúnnstál
- 178 mm í 90°
- 127 mm í 45° vinstri
Blaðstærð 2360x27x0,9
Tilboðsverð kr. 171.600.
Röravals sem hægt er að vinna
með bæði lárétt og lóðrétt.
Valsar mest 70 mm rör. Færanlegt
fótstatíf með neyðarstoppi.
Tilboðsverð kr. 523.500.