Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 15

Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 Þrettán milljónir króna höfðu í gær safnast hér á landi í neyð- arsöfnun UNICEF vegna hung- ursneyðar á svonefndu Sahel- svæði í Afríku. „Við erum afar þakklát fyrir stuðninginn og traustið,“ segir Sigríður Víðis Jónsdóttir, upplýs- ingafulltrúi UNICEF á Íslandi. Að sögn samtakanna er um ein millj- ón barna í lífshættu vegna bráða- vannæringar. Sigríður segir að með þessum peningum sé hægt að kaupa víta- mínbætt jarðhnetumauk, sem sé fullt af próteinum og snefilefnum. Með framlögum frá Íslandi geti UNICEF útvegað um 214.000 skammta af þessari fæðu. Söfnunarsímanúmer UNICEF eru: 908-1000 (1.000 krónur), 908-3000 (3.000 krónur) og 908-5000 (5.000 krónur). Einnig má styrkja neyðarstarfið í gegnum heimasíðu UNICEF á Ís- landi eða með því að leggja inn á neyðarreikning samtakanna: 701- 26-102040 (kt. 481203-2950). Íslendingar hafa gefið 13 milljónir í söfnun AFP Á þurrkasvæðinu Börn í Níger, einu landanna á Sahel-svæðinu, aðstoða móður sína í jurtagarði. Ari Trausti Guð- mundsson jarð- vísindamaður segir í frétta- tilkynningu sem barst frá honum í gær að ákvörðun hans um framboð til embættis for- seta Íslands verði kynnt á blaða- mannafundi á sumardaginn fyrsta, 19. apríl næst- komandi. „Við hjónin höfum unnið að því að taka endanlega ákvörðun um framboð til embættis forseta Ís- lands. Ákvörðunin verður tilkynnt á blaðamannafundi á sumardaginn fyrsta, 19. apríl. Stað og stund til- kynnum við undir miðja næstu viku,“ segir í tilkynningu Ara Trausta. Tilkynnir ákvörðun um framboð til for- seta í næstu viku Ari Trausti Guðmundsson Íslenska menningarhátíðin Air d’Islande er hafin í Frakklandi og stendur til 15. apríl. Er þetta fjórða árið í röð sem hátíðin er haldin. Auk hefðbundinnar dagskrár í París er boðið upp á íslenska menn- ingarviðburði í bænum Chessy-Sur- Marne, meðal annars tónleika með For a Minor Reflection og sýningu á kvikmyndinni Ikingut eftir Gísla Snæ Erlingsson. Frumkvæðið að þessari nýjung kom frá bæjarstjórn Chessy. Í París mun Rúrí meðal annars sýna verk sín og haldnir verða tón- leikar á Point Ephémère helgina 14.-15. apríl. Þar koma fram For a Minor Reflection, Reykjavík!, ki- mono, Kría Brekkan, Lazyblood og Snorri Helgason. Heimildarmyndir um tónlist Íslenskar kvikmyndir verða sýndar á hátíðinni í París, þar á meðal bíómyndirnar Brim og Mamma Gógó auk fjölda stutt- mynda eftir íslenska leikstjóra. Einnig verða sýndar margar heim- ildarmyndir sem fjalla um tónlist, meðal annars Amma Lo-Fi, Reykja- vík rafmögnuð og Sigur Rósar- myndirnar Inni og HeimaAir d’Isl- ande er haldin í samstarfi við ís- lenska sendiráðið í París, Icelandair, Inspired by Iceland og Höfuðborgarstofu. Íslensk menning- arhátíð í fjórða sinn í Frakklandi Hjaltalín Hljómsveitin kom fram á hátíð- inni Air d’Islande í Frakklandi í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.