Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 18

Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er alveg skelfilegt að horfa upp á allan þennan fisk sem er ekki veiddur. Maður er gráti nær,“ sagði Jón Kristjánsson fiskifræðingur. Hann fór í róður með Sindra RE í vetur þegar veiddist sem mest af þorski í Kollafirði, stein- snar frá Reykja- vík. Það var ekki fyrsta sjóferð Jóns með Sindra RE. Hann fór m.a. í róður vet- urinn 2009 og setti myndskeið úr honum inn á YouTube/fiskimyndir. Jón er að klippa myndskeið úr róðrinum í vet- ur og mun einnig birta það á vefnum. Hann segir að mikil þorskgengnd á Kollafirði sé ekki einsdæmi. „Það er árviss hrygningarganga af þorski þarna,“ sagði Jón. „Hann hefur fiskað þarna lengi hann nafni minn [Jón Sigurðsson á Sindra RE]. Það var mjög mikill þorskur í fyrra en þetta var í fyrsta skiptið sem hann lét netin ekki liggja yfir nótt. Hann fékk sér ekki einu sinni kaffi á milli þess sem hann lagði og dró.“ Jón segir að þessi stóri þorskur hrygni yfirleitt ekki nema einu sinni um ævina, eins og komi fram í bók Jóns Jónssonar fiskifræðings, Haf- rannsóknir við Ísland, II. bindi. „Litli þorskurinn hrygnir oftar en einu sinni en þessi stóri þorskur eyðir svo mikilli orku í hrygninguna að hann getur ekki náð sér eftir hana. Við erum að tapa þessum fiski,“ sagði Jón. Hann skrifaði bloggfærslu um hrygningu stór- þorsksins (fiski.blog.is) og segir að með því að veiða svona lítið af þess- um fiski séum við að kasta frá okkur 100-200 þúsund tonnum af fiski sem vertíðir skiluðu á árum áður. „Mest af þessum risaþorski er að ganga til hrygningar í fyrsta sinn og hrygningarafföllin eru um 80%. Það er því ekki verið að spara neitt með því að veiða svona lítið. Það sem ekki er veitt, tapast,“ skrifar Jón. „Erum að tapa þessum fiski“  Jón Kristjánsson fiskifræðingur segir að stóri þorskurinn hrygni yfirleitt bara einu sinni á ævinni  Hann telur að við séum að kasta frá okkur 100-200 þúsund tonnum af þorski á hverri vertíð Ljósmyndir/Jón Kristjánsson Skipstjórinn Kristján Páll Ström Jónsson greiddi spriklandi stórþorskana úr netunum og blóðgaði. Fiskarnir voru á bilinu 10-30 kíló að þyngd stykkið. Jón Kristjánsson Skannaðu kóðann til að sjá mynd- skeið úr róðri. 20% afsláttur dagana 12. apríl - 12. maí Jón Sigurðsson, fiskverkandi og útgerð- armaður, og Kristján Páll Ström Jóns- son skipstjóri hafa verið saman til sjós á Sindra RE 46 í um tuttugu ár. Þeir róa frá Reykjavík og vinna sjálfir aflann í fiskverkuninni Sindrafiski, sem er í gömlu verbúðunum við Reykjavíkur- höfn. Jón miðar veiðina við það sem þeir ráða við að vinna á einum til tveimur dögum eftir hvern róður. Þeir flaka, fletja, salta og frysta aflann, hirða lifur og hrogn og skera gellur og kinnar. Stundum er eitthvað af aflanum sett á markað ef þannig stendur á. Saltfisk- urinn sem þeir verka er bæði fluttur út og eins seldur hér innanlands, m.a. til veitingastaða. En hvernig er afkoman? „Við höfum svona þokkalegt iðnaðar- mannakaup út úr þessu. Að vísu er ég hættur á launum því ég er orðinn svo gamall, 75 ára,“ sagði Jón. Sindri RE 46 er 8,3 brúttórúmlesta yfirbyggður plastbátur, smíðaður á Skagaströnd árið 1977. Jón lét smíða bátinn og hefur gert hann út alla tíð eða í tæp 35 ár. Fram að því hafði hann verið hjá Hafrannsóknastofnuninni í um tíu ár sem rannsóknamaður og vann mikið með fiskifræðingunum Jakobi Jak- obssyni og Hjálmari Vilhjálmssyni og fór oft með í leiðangra á hafrannsóknaskip- unum. Áður en Jón gerðist rannsókna- maður var hann til sjós á stærri bátum frá Akranesi, oft sem stýrimaður. Saman til sjós í 20 ár SINDRI RE 46 Sindri RE Báturinn var smíðaður 1977 og hefur verið gerður út frá Reykjavík síðan. Bæjarráð Bolungarvíkur bókaði ný- verið hörð mótmæli gegn fyrirhug- uðu frumvarpi sjávarútvegsráðherra um veiðigjald. Í bókuninni segir að hefði frum- varpið orðið að lögum árið 2010 hefðu átta stærstu útgerðirnar í bænum samtals greitt 438 milljónir í veiðigjald. Það sé hærri upphæð en sem nemur öllum skatttekjum sveit- arfélagsins það ár. Ekki sé gert ráð fyrir að gjaldið renni til sveitarfé- lagsins og því sé um að ræða beinan tilflutning á fjármunum frá bænum til ríkisins. Upphæðin nemi hálfri milljón króna á hvern íbúa sveitarfé- lagsins. Segir í bókuninni að Bolvíkingar hafi á undanförnum tveimur áratug- um gengið í gegnum algjöra endur- skipulagningu á sjávarútvegi sínum og megi segja að nánast allar afla- heimildir í sveitarfélaginu hafi verið keyptar eftir að sveitarfélagið var nánast orðið kvótalaust. Stærstur hluti aflaheimilda hafi verið keyptur á síðustu 10 árum. Forsendur frumvarpsins geri ráð fyrir „sýndarveröld“ þar sem m.a. sé gert ráð fyrir að skuldbindingar sjáv- arútvegsfyrirtækja liggi eingöngu í fastafjármunum, þ.e. vélum, skipum og húsakosti. Þetta sé alrangt. Í mörgum tilfellum séu einungis 1-20% skuldbindinganna vegna fasta- fjármuna en 80-90% vegna kaupa á aflaheimildum. Kjör sjómanna munu versna Þá hefur fundur í stjórn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og Félagi skipstjórnarmanna mótmælt harðlega framkomnum frumvörpum um stjórn fiskveiða og um veiðigjöld. „Verði þessi frumvörp, sem eru unnin án alls samráðs við atvinnu- greinina, að lögum, munu þau við- halda og jafnvel auka ósætti innan greinarinnar með ófyrirsjáan- legum afleiðingum. Með skerð- ingum aflaheimilda munu kjör sjó- manna versna verulega og leigubrask sem stjórnvöld ætla nú að takast á hendur mun aukast. Til viðbótar við þá skerðingu sem stjórnvöld stóðu fyrir með afnámi sjómannaafsláttar er þetta fráleitt framferði gagnvart einni starfs- stétt og sýnir í hnotskurn hvaða hug ríkjandi stjórnvöld bera til þeirrar starfsgreinar sem mestu hefur skilað við að draga vagn þjóðarbúskaparins, við að skapa útflutningsverðmæti á erfiðum tímum undanfarin misseri,“ segir í ályktun félaganna. Veiðigjald hálf milljón á mann  Bolvíkingar mótmæla harðlega frumvarpi um veiðigjald

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.