Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 Fjarðargata 13-15 ~ 220 Hafnarfjörður ~ Sími 565 5666 fjordur.is Vinaleg verslunarmiðstöð ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Vorið sem ég nefndi í síðustu viku staldraði ekki lengi við. Nema það hafi farið í óvenju langt páskafrí og komi brátt aftur.    Ekki einu sinni innfæddum Akur- eyringi dytti í hug að ljúga því að veðrið hafi verið gott í gær. Í einu orði sagt var skítakuldi.    Börnin í Brekkuskóla fylgdust spennt með þegar flutningagámum var staflað upp efst í Gilinu, vegna snjóbrettahátíðar sem verður í bæn- um um helgina, en þau reyndu að vera í góðu skjóli, fyrir norðan- rokinu.    Haldið er upp á 150 ára kaup- staðarafmæli Akureyrar í ár, eins og áður hefur komið fram. Margt er á döfinni af bæjarins hálfu, en gaman er að sjá það sem verður til hjá bæj- arbúanum sjálfum, eins og dæmi eru nú um á Facebook.    Sprottið hafa upp hópar fólks úr nokkrum bæjarhlutum á sam- skiptavefnum og þar hrúgast nú inn gamlar myndir og fólk keppist um að rifja upp sögur úr æsku eða fróð- leik um hús, menn og málefni.    Það sem ég hef rekist á má finna undir Brekkan fyrr og nú; Gler- árþorp (áður en það varð Akureyri); Innbærinn – Akureyri; og Oddeyrin – hverfisnefnd. Bráðskemmtilegt allt saman og ljóst að fortíðarþráin blossar upp víða.    Talandi um Akureyri og gamla tímann er vert að vekja athygli á fróðlegum og skemmtilegum pistl- um Jóns Inga Cæsarssonar á vefn- um www.akureyri.net, þar sem Jón Ingi fjallar um „hina síbreytilegu Akureyri,“ eins og hann nefnir pistl- ana.    Sæunni Þorsteinsdóttur var vel og innilega fagnað eftir að hún lék sellókonsert Elgars með Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands í Hofi á skírdag. Sæunn, sem býr og starfar í New York, stal sannarlega senunni. Gamlir fjölskylduvinir úr Goða- byggðinni felldu tár.    Snjóbretta- og tónlistarhátíðin AK-EXTREME verður á Akureyri um helgina. Brettamenn verða í Hlíðarfjalli eftir hádegi á morgun og annað kvöld verður keppni í göngu- götunni. Dagskrá verður aftur í fjall- inu á laugardag og hápunkturinn, stökkkeppni, efst í Gilinu kl. 20 til 23 á laugardagskvöldið. Opnunarpartí hátíðarinnar verður á Græna hattinum í kvöld og á föstudags- og laugardagskvöld verða tónleikar, hluti hátíðarinnar, á Græna hattinum, Pósthúsbarnum og á Kaffi Akureyri.    Íslandsbanki opnaði útibú sitt í Skipagötu á ný á dögunum eftir end- urbætur. Stórt málverk, Álfkonan, sem Eiríkur Smith málaði 1984 að ósk Iðnaðarbankans, hefur prýtt útibúið lengi en eftir breytingar á húsnæðinu var ekki lengur pláss fyr- ir það. Bankinn hefur því gefið Ak- ureyrarbæ málverkið.    Á verki Eiríks er sú glæsilega fjallasýn sem blasir við þegar horft er yfir Eyjafjörðinn til Akureyrar frá Vaðlaheiði og álfkonan auðvitað líka í töluverðu hlutverki. Ekki hefur verið ákveðið hvar verkið mun hanga. Skemmtilegt Eflaust verður mikið fjör efst í Gilinu á laugardagskvöldið þegar fram fer stökkkeppni á snjóbrett- um. Atli, Ágúst og Örn voru á leið í skólasund í gær en stöldruðu við stutta stund til að fylgjast með framkvæmdum. Gömlu hverfin myndarleg á netinu Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hátíðlegt Passíusálmarnir voru lesnir í Hlöðunni á Litla-Garði á föstudag- inn langa. Margir komu að því verki, m.a. séra Hannes Örn Blandon. Fallegt Sæunn Þorsteinsdóttir er lokatónninn ómaði í konsert Elgars. Keppni í landsliðsflokki Skákþings Íslands hefst á morgun, föstudag. Að þessu sinni verður teflt í Stúk- unni við Kópavogsvöll. Þátt taka 12 skákmenn og eru meðalstig 2.398 skákstig. Fjórir stórmeistarar eru í hópnum og þarf að leita aftur til síðustu aldar til að finna jafnsterkt Íslandsmót og nú segir á heimasíðu Skáksambandsins. Umferðirnar hefjast kl. 16 á daginn. Meðal þátttakenda er Hannes Hlífar Stefánsson stórmeistari, sem oftast hefur orðið skákmeistari Ís- lands, 10 sinnum alls. Hannes tók ekki þátt í mótinu í fyrra. Héðinn Steingrímsson, Íslandsmeistarinn frá í fyrra, er ekki meðal þátttak- enda að þessu sinni. Til að ná stórmeistaraáfanga þarf 8½ vinning í 11 skákum en til að ná áfanga að alþjóðlegum meist- aratitli þarf 6½ vinning. Þar að auki er möguleiki fyrir skákmenn- ina að ná áföngum eftir níu eða tíu umferðir. Keppendalisti mótsins: Elo-stig Hannes Hlífar Stefánsson 2.531 Henrik Danielsen 2.504 Stefán Kristjánsson 2.500 Bragi Þorfinnsson 2.421 Björn Þorfinnsson 2.416 Þröstur Þórhallsson 2.398 Sigurbjörn Björnsson 2.393 Dagur Arngrímsson 2.361 Guðmundur Kjartansson 2.357 Guðmundur Gíslason 2.346 Davíð Kjartansson 2.305 Einar Hjalti Jensson 2.245 Verður Hannes Hlíf- ar meistari í 11. sinn? Morgunblaðið/Ómar Hannes Hlífar Teflir að nýju.  Skákþing Ís- lands hefst í Kópa- vogi á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.