Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012
www.gilbert.is
Islandus
Skeiðklukka
Rauðagerði 25 108 Reykjavík Sími 440 1800 kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þéri i
Verð kr. 99.900
Vita Mix kanna fylgir með
meðan birgðir endast
Blandarinn sem
allir vilja!
SVIÐSLJÓS
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Handtaka eiginkonu eins af for-
ystumönnum kínverska komm-
únistaflokksins vegna dauða bresks
kaupsýslumanns virðist vera þáttur í
harðri valdabaráttu fyrir væntan-
lega uppstokkun í forystusveit
flokksins í haust. Hermt er að þetta
sé harðasta valdabarátta innan
kommúnistaflokksins frá pólitísku
hreinsuninni í Kína skömmu fyrir
blóðsúthellingarnar í Tiananmen-
torgi í Peking árið 1989.
Áður hafði Bo Xilai, leiðtoga
flokksins í stórborginni Chongqing,
verið vikið úr embætti. Bo átti sæti í
25 manna stjórnmálaráði flokksins,
æðstu valdastofnun landsins, og bú-
ist hafði verið við að hann yrði skip-
aður í fastanefnd ráðsins sem tekur
allar lykilákvarðanir í kínverskum
stjórnmálum. Níu menn eiga sæti í
fastanefndinni og gert er ráð fyrir að
sjö þeirra víki úr henni í haust. Slík
uppstokkun er aðeins gerð einu sinni
á áratug.
Á meðal þeirra sem eiga að víkja
úr fastanefndinni eru Hu Jintao for-
seti og Wen Jiabao forsætisráð-
herra. Gert ráð fyrir að þeir víki síð-
an úr embætti í mars á næsta ári. Xi
Jinping, varaforseti Kína, verður
Morðmál varpar ljósi
Eiginkona eins
leiðtoga Kína sögð
viðriðin morð
AFP
Á varðbergi Kínverskur herlögreglumaður á verði fyrir framan mynd af
Maó Tse Tung á torginu við Hlið hins himneska friðar í Peking í gær.
Lucas Papademos, forsætisráðherra
Grikklands, fór í gær á fund forseta
landsins til að biðjast lausnar fyrir
sig og ráðuneyti sitt. Hann sagði að
þingkosningar þyrftu að fara fram 6.
maí til að hægt yrði að mynda nýja
ríkisstjórn með umboð til að koma á
efnahagslegum umbótum.
Papademos sagði að nýtt þing ætti
að koma saman 17. maí og megin-
verkefni næstu ríkisstjórnar væri að
semja nýja efnahagsáætlun fyrir ár-
in 2103-2016.
Skoðanakannanir benda til þess
að jaðarflokkar til hægri og vinstri
auki mjög fylgi sitt í kosningunum.
Flokkarnir eiga það sameiginlegt að
vera andvígir sparnaðaraðgerðum
sem ráðamenn á evrusvæðinu settu
sem skilyrði fyrir neyðarláni til að
afstýra greiðsluþroti gríska ríkisins.
Nýjustu skoðanakannanir benda
til þess að tveir stærstu flokkarnir,
íhaldsflokkurinn Nýtt lýðræði og
sósíalistaflokkurinn PASOK, geti
ekki myndað meirihlutastjórn eftir
kosningarnar. Frá því að lýðræði var
komið á að nýju í Grikklandi árið
1974 hafa forsætisráðherrar lands-
ins komið úr þessum tveimur flokk-
um, að undanskildum forsætisráð-
herrum þriggja skammlífra
bráðabirgðastjórna.
Grískum jaðar-
flokkum spáð sigri
Reuters
Vill þingrof Lucas Papademos (t.v.)
með Carolos Papoulias forseta.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið
ætlar að höfða mál gegn Apple og
fleiri útgefendum rafbóka fyrir
brot á samkeppnislögum í tengslum
við verðlagningu á rafbókum.
Áður en iPad-tölva Apple var sett
á markaðinn í apríl 2010 seldi vef-
verslunin Amazon marga met-
sölutitla á rafrænu formi á 9,99
dali, u.þ.b. 1.274 krónur. En með
komu Apple á markaðinn varð
breyting á og bókaútgefendur fóru
að setja fast verð á rafbækur og
Apple tók svo 30% hlut af þeim bók-
um sem seldar voru í gegnum sölu-
kerfi fyrirtækisins.
Samtök rithöfunda hafa stutt
Apple og segja að fyrirtækið hafi
aukið samkeppni við Amazon sem
var áður eitt á markaði rafbóka.
Hafin var rannsókn á ásökunum
um að Apple og fimm útgefendur
hefðu haft verðsamráð, þeirra á
meðal Simon & Schuster, Hachette
Book Group, Penguin Group og
Macmillan.
Fréttavefur bandaríska blaðsins
Wall Street Journal sagði í gær að
talið væri að bandaríska dóms-
málaráðuneytið hefði náð sam-
komulagi við einhver af fyrirtækj-
unum um greiðslu stjórnvaldssekta.
Málshöfðun vegna verð-
lagningar á rafbókum
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is