Morgunblaðið - 12.04.2012, Side 24

Morgunblaðið - 12.04.2012, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eftir langaeyðimerk-urgöngu hafði valdaþorsti Steingríms J. Sig- fússonar heltekið hann. Hann taldi Geir H. Haarde, formann Sjálfstæðisflokksins, hafa hryggbrotið sig í tvígang í viðræðum um samstarf. Þeg- ar ístöðuleysi og ótti eftir bankahrun leiddi til flótta Samfylkingar úr ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki opn- aðist loks leið fyrir Steingrím og flokk hans inn í ríkisstjórn. Svo sannarlega er ekkert að því að flokksformaður vilji tryggja sér og flokki sínum aðstöðu við ríkisstjórnarborð. Þar með fást langþráð tæki- færi til að koma stefnumálum flokks áleiðis, lögbinda mik- ilvæga þætti og beita fjár- málastjórn ríkisins í átt að eigin stefnu og væntingum sinna kjósenda. En valda- þorstinn og hin langa útivist frá kontórunum, þar sem síð- asta orð stjórnmálanna er vistað, ruglaði dómgreind for- manns Vinstri grænna alvar- lega. Hann áttaði sig ekki á því að Samfylkingin vildi allt til vinna að fá að vera áfram í ríkisstjórn. Samstarf við hana fékkst ekki aðeins á niður- greiddu verði. Það fékkst á brunaútsölu í orðsins fyllstu merkingu. Henni datt aldrei í hug að formaður VG myndi sam- þykkja allt í senn, að Samfylk- ingin, illa löskuð eftir hrun og alræmt dekur við útrásarvík- inga, yrði stórlega yfirborguð fyrir stjórnarsamstarf. Það var ekki nóg með að hún skyldi fá ákjósanlegt tækifæri í nýrri ríkisstjórn til að kenna Sjálfstæðisflokknum um allt sem miður hafði farið hjá síð- ustu stjórn og draga formann þess flokks einan fyrir Lands- dóm. Hún skyldi að auki fá forystu í ríkisstjórninni, for- setaembætti þingsins og utan- ríkisráðuneytið. Þess utan skyldi hún einnig fá það sem óhugsandi var. Hún skyldi fá samþykkt Alþingis fyrir því að Ísland leitaði þegar eftir inngöngu í ESB þótt öllum væri ljóst að fyrir slíku væri ekki raunverulegur meirihluti á Alþingi. Og slíkt samþykki skyldi annar stjórnarflokk- urinn tryggja, þótt augljóst væri að hann yrði við það æru- laus á einu augabragði. Svipting æru VG var auðvit- að bónus allra bónusa fyrir Samfylkinguna, „hið sérstaka sameiningarafl vinstri- manna,“ sem hafði horft sem þrumulostin á næsta ótrúlegt gengi VG frá stofnun þess flokks. Samfylkingar- forystan hafði marglýst því yfir í tengslum við stofnun VG, að það væri í raun- inni best að til yrði örflokkur vinstrimanna þeim megin við Samfylkinguna. Það gerði hana sjálfa „stjórntæk- ari“ fyrir vikið og minni hætta yrði á klofningi í þessum stór- flokki vinstrimanna, annars af „turnunum tveimur“. En þetta fór allt á annan veg. Þróunin varð VG sífellt hag- felldari. Þar kom til hin kunna einsmálstilvera Samfylkingar um ESB og að forysta Fram- sóknar tók um skeið óvænt að halla sér að sama málstað. VG stóð því eitt varðstöðuna gegn ESB á vinstri kantinum. Þetta, ásamt mikilli fast- heldni VG við afgerandi kröf- ur flokksins í umhverfis- málum, dró að flokknum fylgi fólks, sem lagði þyngri áherslu á þessi tvö mál en flest önnur. Það hjálpaði flokknum enn að honum tókst, með réttu eða röngu, að gefa þá mynd af sér að þar færi flokkur sem væri fjær spill- ingu en aðrir og að auki væri hann einkar trúr sínum stefnumálum og alls ekki auð- keyptur fyrir völd. Hin einstæðu svik forystu VG í Evrópumálunum löskuðu flokkinn strax verulega. Trú- verðugleiki hans beið hnekki og staða hans versnar enn eft- ir því sem lengra líður og skýringarnar á þessari fram- göngu verða innantómari. Drjúgur hluti fylgisins er þegar horfinn á braut. En vonsviknir velunnarar flokks- ins og stuðningsmenn, sem hafa þó ekki enn viljað yfir- gefa fleytuna, virðast sumir trúa því að ekki sé enn of seint að iðrast. Þannig skrifar Hjörleifur Guttormsson, fyrr- verandi ráðherra, í Morg- unblaðið í gær: „Forysta VG hlýtur að svara því alveg á næstunni hvort flokkurinn ætlar að ganga til kosninga bundinn á klafa Samfylkingar um ESB-aðildarviðræður.“ Og grein sinni lýkur Hjörleif- ur með þessum orðum: „Það varð fjölda félags- og stuðn- ingsmanna VG áfall þegar for- ysta flokksins beygði sig fyrir kröfu Samfylkingar um aðild- arumsókn. Ekkert hefur orðið flokknum jafn afdrifaríkt og dregið úr gengi hans og virkni félagsmanna. Nú eru síðustu forvöð að endurheimta sjálfs- virðingu og traust og læra jafnt af ávinningum sem og mistökum við landstjórnina á kjörtímabilinu.“ Sumir af reyndustu forystumönnunum innan VG telja að enn sé ekki of seint að iðrast} Síðustu forvöð F yrir einhverjum vikum var Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, gestur í Silfri Egils ásamt fleiri stjórnmálamönnum, þar á meðal Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðis- flokksins. Það lá gríðarlega vel á Sigmundi Davíð. Sjálfur gaf hann þá skýringu á kæti sinni að með hverjum degi styttist í kosningar og endalok vinstri ríkisstjórnarinnar. Eftir þessa skýringu Sigmundar Davíðs glaðnaði verulega yfir Bjarna Benediktssyni, það var eins og hann sæi ýmislegt skemmtilegt fyrir sér. Alveg eins og Sigmundur Davíð. Sigmundur Davíð og Bjarni eru formenn flokka sem kenna sig ekki við vinstristefnu. Þetta eru því einu flokkar landsins sem hóf- samt miðjufólk getur kosið. Í huga þessa hóps eru vinstriflokkarnir nær óhugsandi kostur, sérstaklega eft- ir hraklega frammistöðu núverandi ríkisstjórnar við stjórn landsins. Vinstri-grænir eru rammur afturhaldsflokkur, sem sérhæfir sig í því að tefja flest það sem gæti stuðlað að atvinnuuppbyggingu í landinu. Allir framfarasinnaðir menn hljóta að sjá að það er ólán þessarar þjóðar að sá flokkur hafi komist í ríkisstjórn. Á tiltölulega skömmum tíma hefur honum tekist að valda miklum skaða. Þessi ósköp skal varast að endurtaka. Annar vinstriflokkur er Samfylkingin. Hún varð í þessu stjórnarsamstarfi heltekin af sérkennilegri hermi- þörf og át vinstrivilluna upp eftir samstarfs- flokknum. Nú er Samfylkingin orðin að hug- myndasnauðri hjörð sem á ekkert brýnt erindi við þjóðina heldur vælir langtímum saman um hinar ógurlegu ógnir sem stafa muni af því ef íhaldið (Sjálfstæðisflokkurinn) komist til valda. En er ekki kominn tími til að Samfylkingin átti sig á því að mesta íhald og afturhald í þessu landi er samstarfsflokkur- inn, Vinstri-grænir? En sennilega er óþægi- legt fyrir Samfylkinguna, sem einhvern tím- ann kenndi sig við frjálslynda jafnaðarstefnu, að viðurkenna að hún hefur gjörsamlega villst af leið. Við næstu kosningar, þegar flokkurinn bíður afhroð, mun hann sennilega enn berja höfðinu við steininn og saka „íhald- ið“ um að hafa táldregið þjóðina. Auk Samfylkingarinnar og Vinstri-grænna eru á vinstri vængnum smáflokkar sem þrá að verða stórir, eins og til dæmis Björt framtíð sem er útibú frá Sam- fylkingunni og Samstaða sem er angi af Vinstri-græn- um. Hreyfingin er svo þarna líka einhvers staðar á sveimi. Vinstrimenn hljóta að fyllast valkvíða þegar þeir í næstu þingkosningum standa frammi fyrir svo mörgum kostum. Þeir hafa um nóg að velja í næstu kosningum meðan þeir sem aðhyllast miðjustefnu og frjálslynda jafnaðarstefnu hafa um afar fáa kosti að velja, eiginlega bara tvo. Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð hafa ástæðu til að gleðjast. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Valkvíði á vinstri væng STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Ekki er útlit fyrir að skóla-yfirvöld í borginni náisáttum við foreldra íHamra- og Húsahverfi í Grafarvogi um að Foldaskóli verði heildstæður safnskóli á unglingastigi fyrir nemendur úr Hamraskóla og Húsaskóla. Miðað við tillögur stýri- hóps átti sú sameining að taka gildi næsta haust en niðurstöður undir- skriftasafnana í hverfunum benda til afgerandi andstöðu við áformin. Þannig vilja yfir 90% foreldra barna í Hamraskóla að fallið verði frá sam- einingunni og fyrstu niðurstöður sambærilegrar söfnunar hjá for- eldrum í Húsahverfi benda til and- stöðu hjá 85-90% svarenda. Óskað hefur verið eftir fundi með Jóni Gnarr borgarstjóra og Oddnýju Sturludóttur, formanni skóla- og frí- stundaráðs, til að afhenda undir- skriftirnar og fer sú afhending fram nk. mánudag. „Við viljum að það verði hlustað á raddir okkar foreldranna og íbúa- lýðræði verði virt,“ segir Árni Guð- mundsson, einn talsmanna foreldra í Hamraskóla, og undir það tóku fleiri foreldrar sem rætt var við í gær. Foreldarnir hafa einnig biðlað til menntamálaráðherra um aðkomu að málinu og von er á svari þaðan í lok þessarar viku. Sendu foreldrarnir bréf til ráðherra 16. febrúar sl. þar sem farið var fram á formlegt mat á því hvort fyrirhuguð sameining stæð- ist grunnskólalög, meginreglur stjórnsýsluréttar og leiðbeiningar ráðuneytisins til borgarinnar vegna sameininga, en þar var m.a. varað við miklu róti á grunnskólakerfinu. Mikil reiði Óánægja með þessi áform borg- arinnar í Foldaskóla hefur verið til staðar frá upphafi, bæði í Hamra- og Húsahverfi. Ónægjan hefur verið meira áberandi í Hamrahverfi en þar stendur einnig til að flytja sérdeild einhverfra barna, Hamrasetur, í Foldaskóla. Haldnir hafa verið kynn- ingarfundir með foreldrum, þar sem fram hefur komið mikil reiði meðal fólks, og foreldrar hafa sagt sig frá starfi í stýrihópi með borginni. Hefur óánægjan einnig verið með samstarf við borgina og skort á upplýsingagjöf og samráði, ekkert hafi t.d. verið tek- ið tillit til álita skólaráða Hamra- og Húsaskóla, sem höfnuðu tillögum um sameiningu við Foldaskóla og töldu gallana vera mun fleiri en kostina. Foreldrar í báðum þessum hverfum telja mörgum spurningum ósvarað um sameininguna. Mikið skorti á fagleg og fjárhagsleg rök og markmið sameiningar óljós og illa skilgreind. „Í stuttu máli sjáum við ekki nokkurn þann ávinning sem réttlætt gæti það rask og upplausn sem ákvörðunin hefur valdið meðal nemenda skólanna, foreldra, kennara og ekki síst nemenda í Hamrasetri,“ segir m.a. í bréfi foreldranna til menntamálaráðherra. Starf félagsmiðstöðva á að flytj- ast yfir í Foldaskóla og foreldrar ótt- ast áhrif þess á unglinga í Hamra- og Húsahverfi. Einnig hafa foreldrar áhyggjur af námslegri stöðu nem- enda. Einnig er bent á samgöngumál; að örðugara verði að koma nemend- unum milli hverfa. Enginn strætó gangi t.d. úr Hamrahverfi að Folda- skóla en þar á milli er vegalengdin um tveir kílómetrar. Samkvæmt útreikningum borg- arinnar er fjárhagslegur ávinningur af samruna unglingadeildanna áætl- aður 14 milljónir króna á þessu ári og 28,5 milljónir á því næsta. Mestum sparnaði á að ná með sameiningu fé- lagsmiðstöðvanna. Foreldrarnir hafa gagnrýnt þessa útreikninga og telja að ávinningurinn sé ekki það mikill að hann réttlæti þá röskun sem verður við flutninginn. Á móti hafa borgar- yfirvöld bent á að unglingadeildir skólanna séu fámennar. Aukið fram- boð valgreina muni nást fyrir nem- endur á unglingastigi og sérhæfing kennara muni aukast. Flutningur unglingastigs í Foldaskóla áform um flutning 8.-10 bekkjar í Hamra- og Húsaskóla í Foldaskóla haustið 2012 Loftmyndir ehf. Foldaskóli 365 nemendur í dag þar af 114 á unglingastigi Hamraskóli 210 nemendur í dag þar af 60 á unglingastigi Húsaskóli 263 nemendur í dag þar af 86 á unglingastigi G ul lin br ú Hallsvegur Fjallkonuvegur Foreldrar vilja að íbúalýðræði verði virt Umdeildur samruni » Auk sameiningar ung- lingadeilda Hamra-, Húsa- og Foldaskóla var einnig lagt til að rekstur Húsaskóla og Hamra- skóla yrði skoðaður með tilliti til betri nýtingar á húsnæði og mögulegrar sameiningar í stjórnun eða sameiningar við leikskóla í nágrenninu. » Gagnrýni á áformin í þessum hverfum hefur ekki að- eins komið frá foreldrum, held- ur einnig minnihlutanum í borgarstjórn, SAMFOK, skóla- stjórnendum og samtökunum Heimili og skóli. » Þátttaka í undir- skriftasöfnun í Hamra- og Húsahverfi var mikil. Í Hamra- hverfi náðist til um 97% allra foreldra, af þeim vildi um 91% hætta við sameininguna. » Í Húsahverfi var gengið í öll hús. Það náðist að safna 750 undirskriftum frá íbúum, þar af áttu um 80% börn í Húsaskóla og yfirgnæfandi meirihluti var á móti samein- ingunni. Er þetta þvert á mat skólayfirvalda sem hafa sagt stuðning vera við áformin. » Dæmi voru um að starfs- fólk hjá borginni vildi ekki skrifa undir, af ótta við að fá á sig ákúru eða missa starfið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.