Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 Eftir þrjá mánuði ætlum við að kjósa okkur nýjan forseta. Ég skrifa þessa grein til að skora á Katrínu Jakobsdóttur mennta- málaráðherra til að gefa kost á sér til emb- ættisins. Katrín Jakobsdóttir hefur sýnt allt frá því hún var á framhalds- skólaaldri að hún er vel til forystu fall- in. Skjótur frami hennar í pólitík er merki um mikla hæfileika. Mennta- málaráðuneytið er eitt þyngsta og erf- iðasta ráðuneyti ríkisstjórnarinnar. Hún hefur leyst forystuhlutverk sitt þar af hendi með mikilli lagni, þannig að friður er um embættið – sem er langt frá því að vera sjálfgefið – og hún hefur mælst vinsælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar frá upphafi eins og fram kom í hádegisfréttum ríkis- útvarpsins á sunnudag. Katrín Jakobsdóttir hefur einlægan áhuga á fólki. Hún leggur sig fram um að hlusta á fólk og skilja viðhorf þess. Hún sýnir samborgurum virðingu og er auðmjúk í framgöngu. Hún setur sig vel inn í mál og hefur víðtæka þekkingu og skilning á þeim mál- efnum sem undir hana heyra, kynnir sér sjónarmið aðila, ræðir hlutina og hefur hæfileika til að lenda málum þannig að sátt ríki. Mikilvægt einkenni á leiðtogafærni Katrínar Jakobsdóttur eru heilindi hennar. Menn geta treyst orðum hennar. Og ég er sann- færð um að hún mun aldrei setja eigin hags- muni fram fyrir þá hags- muni sem hún hefur skuldbundið sig til að sinna í þágu þjóðarinnar. Leiðtoga er þörf víða um heim og mikið liggur við að sannir leiðtogar stígi fram og taki að sér forystu í þágu fólksins. Jafnframt þurfa þeir sem sjá sanna leiðtoga að ákveða að fylgja þeim. Von okkar liggur í því að sannir leið- togar taki forystuna og gott fólk veiti þeim stuðning. Þess vegna hvet ég Ís- lendinga til að flykkjast um Katrínu Jakobsdóttur og fara þess á leit við hana að hún gefi kost á sér til forseta- framboðs. Forsetakosningarnar eru tækifæri til nýs upphafs á Íslandi. Forsetinn fær það táknræna hlutverk að sameina íslenska þjóð. Katrín Jakobsdóttir, ég bið þig að íhuga af alvöru að gefa kost á þér til embættis forseta Íslands. Katrín Jakobsdóttir verði forseti Íslands Eftir Guðrúnu Hrefnu Guðmunds- dóttur Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir »Mikilvægt er að sannir leiðtogar taki forystu og gott fólk styðji þá. Þess vegna hvet ég Íslendinga til að flykkjast um Katrínu Jakobsdóttur. Höfundur er skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Fjölnota vinnuþjarkur sem höndlar hátt í 100 verkfæri ▪ Lágur rekstrarkostnaður ▪ Einstaklega lipur í notkun ▪ Örugg og þægileg í umgengni ▪ Vökvaknúinn í aldrifi Komið og skoðið nýjustu Avant fjölnotatækin VERIÐ VELKOMIN Í NÝJA SÝNINGARSALINN OKKAR AÐ KRÓKHÁLSI 5F Bensín Hæð: 186 sm Breidd: 96 sm Þyngd: 620 kg Lyftihæð: 1,40 m Lyftigeta: 350 kg Hestöfl: 20 220 Kubota díselmótor með 44 lítra vökvadælu, 200 bar Hæð: 209 sm Breidd: 99-129 sm Þyngd: 1350 kg Lyftihæð: 282 m Lyftigeta: 1200 kg Hestöfl: 28 630 Kubota díselmótor með 66 lítra vökvadælu, 200 bar Hæð: 209 sm Breidd: 99-129 sm Þyngd: 1380 kg Lyftihæð: 282 m Lyftigeta: 1400 kg Hestöfl: 37,5 635 til vinnu og frístunda Fatnaður og skór 25180 Litir: Svartur/hvítur Kr. 7.990 25170 Litir: Ljósblátt/dökkblátt Kr. 6.990 25130 Litir: Svart/hvítt Kr. 7.690 25220 Litir: Rautt/sand/blátt Kr. 7.990 25090 Litir: Svart/hvítt/blátt Kr. 10.900 00314 Litir: Svart/hvítt/ rautt/blátt Kr. 11.900 Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími 568 2878, praxis.is 25200 Litir: Svart/hvítt Kr. 8.600 Erum á sama stað og Friendtex Opið mán – fös kl. 11.00 – 17.00 Laugardaga kl. 11.00 – 14.00 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.