Morgunblaðið - 12.04.2012, Síða 28

Morgunblaðið - 12.04.2012, Síða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 Tökum að okkur trjáklippingar, trjáfellingar og stubbatætingu. Vandvirk og snögg þjónusta. Sími 571 2000 www.hreinirgardar.is Í næstu forsetakosn- ingum mun hlutverk forsetans koma til um- ræðu sem aldrei fyrr. Það er kristaltært eftir að forsetinn hefur beitt neitunarvaldi sínu í þrí- gang að eðli þessa emb- ættis er gjörbreytt. Forsetaembættið er orðið valdastofnun, sem alþingismenn verða að taka tillit til hvort sem þeim líkar það betur eða verr. Emb- ætti forseta er ekki lengur áhrifalaust sameiningartákn, sem má engar skoðanir hafa en þegja ella. Næstu forsetakosningar verða ekki lengur farsi með grínistum og 0- flokkum, kærulausum til tilbreyt- ingar og skemmtunar. Næstu for- setakosningar verða að vera alvara þar sem hæfileikamaður á að veljast til embættis. Í framtíðinni verður forsetinn ekki tákn sameiningar heldur afl samein- ingar. Hvernig getur lifandi embætt- ismaður verið tákn? Hvað er tákn? Tákn er ímynd. Orð eru tákn. Tákn er undur og stórmerki. Þarf þjóðaratkvæðagreiðslu um slíkt? Dugar íslenski fáninn ekki? Fyrsta þróun lýðveldistímans einkendist af ofurvaldi ráðherranna. Þingræð- isreglan snerist við og ráðherrar réðu meira og meira yfir Alþingi. Dóms- málaráðherrann fór með opinbert ákæruvald allt til ársins 1961. Fulltrúar framkvæmdavaldsins, sýslumenn, fóru með dómsvald í und- irrétti allt til aldamótanna 2000 er því var breytt að áeggjan Evrópuráðsins. Ráðherrar komu sér hjá landsdómi í yfir 100 ár með órjúfandi sam- komulagi og áhrifum yf- ir Alþingi. Þegar þetta óskráða samkomulag alþingismanna var end- anlega rofið var það kallað níðingsverk. Ráðherrar túlkuðu stjórnarskrána eftir sínum valdahags- munum. Ráðamenn töldu að neitunarvald forseta væri hjá ráð- herra og landsdómur var ómark. Þegar stjórnmálamenn sömdu núgildandi stjórnarskrá 1944 átti forsetaembættið engan málsvara. Valdamenn misnotuðu stöðu sína og gerðu embætti forseta valda- og áhrifalaust eins og um erfðakóng væri að ræða þrátt fyrir þá staðreynd að þjóðhöfðingi vor er þjóðkjörinn. Afleiðingin var sú að bæði Alþingi og forseti lutu valdi ríkisstjórnar á hverjum tíma. Eini hemill á rík- isstjórnina var málþóf á Alþingi þar til synjunarvald foreta bættist við. Embættið var ekki lengur tákn held- ur vald. Vel fer á því að forsetinn sé fulltrúi þjóðarinnar sem kýs hann. Hann gæti beitt áhrifum sínum í þágu heild- arhagsmuna ofar stjórnmálaflokk- unum. Gagnrýni forseti Alþingi er það ekki alltaf slæmt heldur oft æski- legt. Almenningur þarf rödd þess sem talar fyrir heildarmyndina og sameiginlega hagsmuni framtíð- arinnar. Málflutningur stjórnmála- manna hefur tilhneigingu til að drukkna í innbyrðis valdabaráttu. Af- staða þeirra litast um of af eigin valdahagsmunum svo að lang- tímamarkmið brotna í spón. Kjós- endur eru orðnir dauðleiðir á því að í hvert skipti sem þeir krefja ráða- menn reikningsskapar benda þeir alltaf á gjörðir eða athafnaleysi manna úr öðrum stjórnmálaflokki og kosningar. Enginn ber ábyrgð. Of- urvald ráðherranna er smám saman að minnka og þrískipting ríkisvalds- ins að koma betur í ljós. Núverandi forseti gerir þjóðinni mikið gagn með því að gefa kost á sér áfram. Það er áskorun til kjósenda um að velja öflugan frambjóðanda, vilji þeir skipta um mann. Á þann hátt er líklegra að hæfur maður verði valinn. Það ætti að vera regla að menn bjóði sig fram á meðan forseti gegnir embætti. Þetta er ekkert persónulegt. Kjör- tímabil hans er ákveðið fjögur ár í senn og ekkert eðlilegra en að skipt sé um þegar það tímabil er á enda og kjósendum finnst þeir hafa fundið hæfan mann til að breyta til af ýms- um ástæðum. Það er óþarfi að forseti víki úr embætti og gefi ekki kost á sér þegar kosningar fara í hönd til að hreinsa sviðið og hleypa grínistunum að og lækka með því þröskuldinn fyr- ir nýjan embættismann. Þvert á móti eiga aðeins mjög hæfir menn að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Forseti Íslands Eftir Jóhann J. Ólafsson » Það er áskorun til kjósenda um að velja öflugan frambjóð- anda, vilji þeir skipta um mann. Á þann hátt er líklegra að hæfur maður verði valinn. Jóhann J. Ólafsson . Höfundur er stórkaupmaður. Í aðdraganda bisk- upskjörs fór fram mjög heiðarleg, hrein- skiptin og þörf um- ræða um starf, hlut- verk og áherslur þjóðkirkjunnar, sem ber að þakka. Einkum þó í netmiðlum og á þar til gerðum kynn- ingarfundum. Í tilefni af kjörinu og þeim tímamótum sem kirkjan er á leyfi ég mér að viðra eftirfarandi. Hverjir eru kirkjan? Kirkjan er ekki bara fagrar bygg- ingar, dauð steinsteypa, tóm hús eða skuldsettar orgelgeymslur. Og hún er heldur ekki einungis annars nauð- synlegir vígðir þjónar hennar. Kirkj- an er félag fólks, sem skírt er í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda. Félag fólks sem játar Jesú Krist sem lifandi frelsara, leiðtoga lífs síns og eilífan lífgjafa. Félag þeirra sem þrá umhyggju og kærleika, ást og líf. Kirkjan er félag fólks með ólík viðhorf, fólks sem sameinast í von á hinn upprisna frelsara. Kirkjan sam- anstendur af steinum, lifandi hrip- lekum steinum, sem setja traust sitt á Jesú í lífi og dauða. Hún á ekki að vera steinrunnir embættismenn eða stöðnuð stofnun og ekki sjálfskipaðir spekingar eða fræðimenn sem kunna svör við öllum gátum lífsins. Kirkjan á að vera mannlífstorg sem iðar af lífi. Þar sem fólk með ólíkar skoðanir kemur saman og tekst á við spurningar og gátur lífs- ins. Hinn almenni prestsdómur Það er því skoðun mín að efla þurfi hinn almenna prestsdóm, þar sem fólk fær tækifæri til að tjá sig og til eðlilegs vaxtar í trúnni á sínum hraða og forsendum. Stuðla þarf að og styðja við mik- ilvægi eðlilegrar og meðvitaðrar heimilisguðrækni, þar sem rætt er um kjarna kristinnar trúar inni á heimilunum, svo eðlilegt sé að fjöl- skyldan biðji saman þannig að trúin og traustið á Guði vaxi og verði fjöl- skyldunni eðlilegt og þar með börn- unum, hinni uppvaxandi kynslóð og kirkju. Jafningjafræðsla Farvegur kristninnar snýst um fyrirmyndir, persónulegan vitn- isburð og jafningjafræðslu. Hún snýst ekki um klæðin ein eða það að gæta þess að verða ekki á í messunni. Kirkjan þarf því ekki á ritúal- vörðum að halda heldur einlægni, þjónustulund og lifandi vitnisburði um mikilvægi sam- félagsins við Jesú Krist. Það er því mín skoð- un að kirkjan þurfi meðvitað og í auknum mæli að stuðla að auk- inni þátttöku leikmanna í helgihaldinu sem og í safnaðarstarfinu almennt. Þar sem fólki er gefinn kostur á að vera bein- ir áhrifavaldar og þátttakendur en ekki aðeins áhorfendur og þiggj- endur. Veiti rými til að rækta sig Þjóðkirkjan þarf að veita með- limum sínum rými til að rækta trú sína. Hún þarf því að vera uppörv- andi og hvetjandi þar sem bænalíf og boðun kærleika Guðs, fagnaðar- erindisins um lífið sjálft, er í for- grunni og meðvitað mikilvægasti þátturinn í starfi hennar. Kirkjan þarf að vera góður hlust- andi og iðka samtal, þar sem enginn á síðasta orðið nema Jesús Kristur. Hún á ekki og má ekki tala niður til fólks né snúast um völd eða embætti heldur auðmýkt og fúsleika þar sem máttur kærleika Guðs fær að full- komnast í okkar veikleika, vera far- vegur umhyggju og þakklætis. Þannig kirkja mun lifa af. Vegna þess að hún snýst ekki um sjálfa sig heldur leiðist í auðmýkt af heilögum anda Guðs en ekki sérhagsmunum eða þörfum sjálfs sín eða embættis- manna. Þú ert kirkjan Yfirgefðu því ekki sjálfan þig heldur láttu muna um þig í starfi kirkjunnar. Því að kirkjan þarf á þér að halda og þú þarft á kirkjunni að halda. Því að þú ert kirkjan. Þjóðkirkjan og biskupskjör Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson »Kirkjan er félag fólks með ólík við- horf, sem sameinast í von á hinn upprisna frelsara, Jesú Krist. Hún samanstendur af lifandi hriplekum stein- um. Höfundur er rithöfundur og fv. fram- kvæmdastjóri og meðhjálpari Laug- arneskirkju. Orð geta ekki breytt raunveruleikanum, en þau breyta því hvernig við skynjum hann. Þau skapa síur sem við not- um til að skoða heiminn í kringum okkur. Eitt orð getur gert útslagið um það hvort okkur lík- ar eða mislíkar eitthvað. Tökum dæmi. Ef góður vinur sem við tökum mark á lýsir þeim sem við erum að fara að hitta í fyrsta skipti sem lötum höfum við tilhneigingu til að sjá við- komandi þannig, burtséð frá því hvort hann er latur eða ekki. Orðið „latur“ skapar síu eða fyrirfram mót- aða skoðun sem hefur áhrif á hvernig við túlkum það sem við- komandi segir eða ger- ir. Ef aftur á móti góður vinur okkar segir að sá sem við erum að fara að hitta sé vingjarnlegur munum við sjá hann þannig, burtséð frá því hversu vingjarnlegur hann er í reynd. Ef við hittum þennan „vin- gjarnlega“ einstakling nokkrum sinnum og upplifum ekki vingjarn- leika af hans hálfu munum við líklega réttlæta óvingjarnlega hegðun hans með því að segja t.d.: „Þetta hefur verið slæmur dagur hjá honum“ eða „Ég hitti líklega ekki vel á hann í dag.“ Óvingjarnlegur einstaklingur sem er lýst sem vingjarnlegum græð- ir á því þar sem fólk hefur tilhneig- ingu til að gefa óvingjarnlegri mann- eskju margföld tækifæri til að sýna vingjarnleika. Í amstri dagsins leitum við oft ekki margra heimilda til að mynda okkur skoðun á atburðum. Við sjáum hlut- ina í gegnum þá síu sem dagblaðið, sjónvarpsstöðin eða útvarpsrásin skapar. Fjölmiðlar geta því haft mikil áhrif á skynjun okkar á heimsins at- burði. Ef dagblað er sem dæmi með hlutlæga frásögn munu lesendur sjá atburðinn í gegnum þá síu. Hún verð- ur á sínum stað þangað til lesendur fá yfirvegaðri fréttir eða annað sjón- arhorn. Fjölmiðlamaður sem tekur viðtal við mann grunaðan um hvítflibba- glæp og er þegar búinn að ákveða í huganum að hann sé sekur mun túlka allt sem hann segir eða gerir sem vís- bendingu um sekt, jafnvel þó að sönn- unargögnin sýni hið gagnstæða. Því meira sem hann þrýstir á viðmæland- ann þeim mun stressaðri verður sá, ekki vegna þess að hann er sekur heldur vegna þess að fjölmiðlamað- urinn trúir honum ekki og hann held- ur að hann muni verða fundinn sekur fyrir eitthvað sem hann er saklaus um. Næst þegar þú ræðir við einhvern, hittir nýjan samstarfsmann eða kaup- ir vöru hugsaðu þá um hvernig þú myndaðir þína skoðun á þeim ein- staklingi eða þeirri vöru. Það eru miklar líkur á því að þú hafir verið með fyrirfram mótaða skoðun sem hugsanlega var byggð á fyrstu áhrif- um eða viðhorfi annarra. Orð hafa mátt – vandaðu því valið. Orð hafa mátt Eftir Ingrid Kuhlman » Orð skapa síur sem við notum til að skoða heiminn í kring- um okkur. Þau geta gert útslagið um það hvort okkur líkar eða mislíkar eitthvað. Ingrid Kuhlman Höfundur er framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.