Morgunblaðið - 12.04.2012, Síða 30

Morgunblaðið - 12.04.2012, Síða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 Sendum frítt hvert á land sem er Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.is ✝ Anna BjörgÓsk Jónsdóttir fæddist í Hafn- arnesi, Fáskrúðs- firði, 3. desember 1928. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 27. mars 2012. Foreldrar henn- ar voru Jón Níels- son, bóndi í Hafn- arnesi, f. 21. ágúst 1883, d. 24. apríl 1953, og Guð- laug Halldórsdóttir, húsmóðir, f. 22. september 1892, d. 2. júní 1984. Systkini Önnu: Kristín, f. 1911, d. 1992, Elísabet, f. 1914, d. 2011, Steinunn Jakobína, f. 1915, d. 1999, Halldór, f. 1919, d. 1982, Jóhann, f. 1921, d. 1985, Bára, f. 1931, og Hörður Sig- urður, f. 1933, d. 1991. Tveir bræður Önnu, Guðjón og Níels, létust í bernsku. Anna giftist Baldri Guð- mundssyni 13. ágúst 1952. Börn þeirra eru: 1) Jenný Anna, f. 20. janúar 1952, eiginmaður henn- ar er Einar Vilberg Hjartarson, f. 26. apríl 1950. Dætur Jennýj- ar eru: a) Helga Björk Laxdal, Petra. Sonur Ingibjargar og Hannesar er Helgi Pétur, eigin- kona hans er Andrea Marel. Sonur þeirra er Flóki. 4) Guð- laug Björk Baldursdóttir, f. 16. mars 1957. Börn hennar og Kristins Guðlaugssonar eru Kristinn Örn og Anna Björg. Sambýlismaður Önnu Bjargar er Dario Barbaro. 5) Ingunn Baldursdóttir, f. 10. ágúst 1958, sambýlismaður hennar er Ómar Ström, f. 29. júlí 1952. Synir þeirra eru Ómar og Anton. Sambýliskona Antons er Jannie Hotbjerg Hansen. 6) Hilma Ösp Baldursdóttir, f. 4. október 1960, eiginmaður hennar er Al- freð Karl Alfreðsson, f. 21. október 1964. Synir þeirra eru Alfreð Andri og Emil. 7) Guð- mundur Baldursson, f. 4. októ- ber 1968. 8) Steinunn Bald- ursdóttir, f. 22. desember 1970, sambýlismaður hennar er Jón Alvar Sævarsson, f. 4. sept- ember 1969. Dóttir þeirra er Katla Björg. Fyrir átti Anna soninn Gunnar Elías, f. 6. nóv- ember 1948, d. 1965. Hann ólst upp hjá Elísabetu systur Önnu og Gunnari Bjarnasyni eig- inmanni hennar. Anna var húsmóðir en starf- aði jafnframt um árabil á Borg- arspítalanum. Útför Önnu fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 12. apríl 2012, og hefst athöfnin kl. 13. faðir hennar er Bjarki Laxdal, sambýlismaður hennar er Björn Axelsson. Sonur Helgu Bjarkar er Jökull Bjarki Lax- dal Jónsson. b) María Greta, faðir hennar er Einar Ragnarsson. Sonur Maríu er Oliver Einar Nordquist. c) Sara Hrund Einarsdóttir, faðir hennar er Einar Ragnarsson, eiginmaður hennar er Erik Qvick. Börn þeirra eru Jenný Una og Hrafn Óli. 2) Greta, f. 30. mars 1954, eiginmaður hennar er Halldór Þór Grön- vold, f. 8. mars 1954. Börn þeirra eru a) Eva, eiginmaður hennar er Björgvin Ingi Ólafs- son. Synir þeirra eru Benedikt og Baldur. b) Arnar. 3) Ingi- björg Jóna Baldursdóttir, f. 14. maí 1955, eiginmaður hennar er Hannes B. Andrésson, f. 8. júní 1958. Sonur Ingibjargar og Martins Regal er Baldur Andri, sambýliskona Elínborg Sigurð- ardóttir. Dóttir Baldurs er Elsku fallega góða mamma okkar er dáin. Það er svo skrítið að segja þessi orð, mamma með útbreidda faðminn sinn, alltaf til fyrir okkur systkinin og fylgdist með öllu, hringdi í okkur daglega til að fylgjast með hvað við vær- um að bardúsa og hvað væri að gerast í okkar lífi. Með fallegu mildu brúnu aug- unum sínum fylgdist hún með öllu sem varðaði barnabörnin og barnabarnabörnin sín öll 20 að tölu. Ekkert var svo smávægilegt að henni væri það óviðkomandi. Mamma var kannski hæglát og róleg, en einn sá mesti töffari sem hugsast getur og kallaði hún ekki allt ömmu sína, enda hafði hún upplifað eitt og annað og var ekkert að væla yfir smámunum. Ekkert var svo erfitt að ekki mætti yfirstíga það. Mamma kunni svo sannarlega að meta allt þetta litla góða í lífinu, hún elsk- aði að fara í búðir, alltaf að leita að einhverju handa barnabörn- unum sínum og einnig elskaði hún að fara í berjamó og skond- rast upp um fjöll og ófærðir í leit að berjum, sem hún svo gerði sultur úr handa okkur og saft. Hún var mjög mannblendin og fannst fátt skemmtilegra en vera í hópi fjölskyldunnar í veislum og á mannamótum. Við systkinin vorum svo viss um að töffarinn mamma myndi eins og alltaf áður koma heim eftir þetta síðasta áfall, en hún hafði fengið ein- hverja slæmsku eins og hún kall- aði það, en svo var því miður ekki. Hennar tími var bara kom- inn. Við kveðjum nú þá hlýjustu og bestu mömmu sem hugsast getur og þökkum henni allar góðu minningarnar sem eftir sitja. Hjartans þakkir, elsku mæta móðir, þér miskunn veiti Guð svo hvílist rótt. Þig verndi og gæti allir englar góðir, ástarþakkir, mamma, góða nótt. (H.J.) Jenný, Greta, Jóna, Guð- laug, Ingunn, Hilma, Guð- mundur og Steinunn. Í dag er ég að kveðja fallegu ömmu mína í Snælandi eins og ég kallaði hana. Ég trúi því ekki að ég sjái hana ekki við eldhúsborð- ið þegar ég kem í heimsókn og faí ekki að segja henni frá því sem er að gerast á Ítalíu hjá mér. Ég er svo glöð að síðast þegar ég hitti þau afa sátum við og hlógum að sögunum hennar frá því hún var á mínum aldri og var að vinna á Hótel Borg. Elsku amma mín það er svo erfitt að vera svona langt í burtu en ég á svo margar fallegar minn- ingar um þig og þú verður alltaf í hjarta mínu. Að elska sína ömmu og segja henni það að gera það í hljóði eða koma því á blað sem ég hér með geri í kveðjuskyni til þín (Sæunn Ragnarsdóttir) Þín Anna Björg. Ég hitti Önnu fyrst fyrir meira en 30 árum þegar við Greta dóttir hennar og Baldurs kynntumst. Strax við fyrstu kynni skynja ég væntumþykju Önnu og trausta vináttu. Með sinn stóran barna- hóp og miklar annir á heimilinu var Anna létt í skapi og alltaf til í að rétta öðrum hjálparhönd ef á þurfti að halda. Hún hafði ein- lægan áhuga á fólki og velferð þess. Ekki bara sínum nánustu heldur öllum sem á vegi hennar urðu og hún kynntist. Hvort heldur var í gegnum fjölskylduna eða vinnuna á Borgarspítalanum, þar sem Anna vann um árabil sér til mikillar ánægju. Eiginleikar Önnu, áhugi á vel- ferð samferðafólksins, fé- lagslyndi og glaðværð nýttust vel þegar börnin stofnuðu fjölskyldu eitt af öðru, fluttu að heiman og eignuðust afkomendur. Hún vakti yfir velferð þeirra og var alltaf tilbúin að aðstoða ef á þurfti að halda. Anna lét sig barnabörn- in, og síðar barnabarnabörnin, einkum miklu skipta. Hún fylgd- ist vel með uppvexti þeirra og var til staðar þegar á reyndi. Þannig leið varla sá dagur að hún hringdi ekki eða kæmi í heimsókn til að kanna hvort ekki væri allt í lagi. Það var því mikið reiðarslag fyrir okkur öll sem þekktum hana þeg- ar Anna hvarf frá okkur með svo skyndilegum hætti sem raun var á, án þess að við fengjum al- mennilegt tækifæri til að kveðja hana og þakka fyrir okkur. Við sem þekktum Önnu og fengum að njóta samvista við hana erum öllu ríkari á eftir. Við höfum vonandi lært að meta bet- ur það góða sem gert er, hversu mikilvægt það er að bera hag samferðafólks okkar fyrir brjósti og hvernig hægt er að vera örlát- ur án þess að búa yfir miklum veraldlegum auði. Missir okkar allra sem þekkt- um Önnur er mikill, ekki síst barna hennar og barnabarna. Það á þó sérstaklega við um Baldur, eiginmann og lífsföru- naut Önnu, en þau hafa um langt árabil verið nánast óaðskiljanleg í huga okkar sem til þeirra þekktu. Ég færi Baldri og afkom- endum þeirra Önnu mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Halldór Grönvold. Mig langar að minnast elsku systur minnar Önnu þótt ég sé ekki farin að trúa því enn að hún sé farin. Við töluðum saman í síma þennan sama dag og hún dó og hún virtist þá hress að vanda. Við gátum alltaf talað um heima og geima og er ég glöð að hafa heyrt í henni þennan dag. Þó að við höfum ekki alist upp saman þá hittumst við daglega þar sem ég bjó á næsta bæ. Seinni árin urðum við nánari og hittumst oft, töluðum saman næstum daglega í síma. Alltaf var minnst á Glasgow-ferðirnar sem alltaf voru meiri háttar skemmti- legar. Svo var alltaf gaman þegar þau Baldur komu til okkar, en þau voru dugleg að heimsækja okkur og mæta í allar veislur sem fjölskylda okkar hélt. Við vorum báðar komnar í félag austfirskra kvenna og mættum á alla fundi og hlökkuðum alltaf til. En nú verður hennar sæti autt og henn- ar sárt saknað. Ég bið guð að passa Baldur vel og börnin og fjölskyldur þeirra. Það mælir þín systir, Bára Jónsdóttir og Sigurður Hjartarson. Elskuleg Anna móðursystir mín er látin. Ég kynntist Önnu og Baldri á barnsaldri, en á þeim árum fóru foreldrar mínir oft með okkur systkinin í sunnudagsökuferðir sem stundum enduðu í kaffi hjá Önnu og Baldri. Í gegnum árin höfum við alltaf verið í góðu sam- bandi, og þegar við komum sam- an í fjölskylduboðum var undan- tekningalaust mikið gaman og mikið hlegið. Anna var ákaflega létt í lund og þær systur Anna og Bára voru einstaklega hláturmildar og smituðu marga með hlátri sínum. Ég minnist með mikilli gleði allra þeirra ótal Glasgow-ferða sem við fórum saman hér á árum áð- ur. Glasgow-hópurinn var ákaf- lega skemmtilegur, en í honum voru Anna og dætur hennar og Bára móðir mín með okkur systr- unum. Þetta voru sannkallaðar skemmtiferðir, með verslunar- legu ívafi. Í þessum ferðum voru þær systur Anna og Bára hrókar alls fagnaðar. Ég minnist þess einnig hve ein gata í Glasgow var þeim systrum hjartfólgin, en það var Sauchiehall Street, þar kunnu þær ákaflega vel við sig. Þegar þær komu á hótelið að loknum skemmtilegum verslun- ardegi var fyrst gengið á milli herbergja og afrakstur dagsins skoðaður hvor hjá annarri, því næst fórum við allar og fengum okkur að borða og alltaf var jafn- gaman að rifja upp atvik dagsins og þá var mikið hlegið. Nokkrum sinnum komu þau Anna og Baldur ásamt foreldrum mínum til okkar Einars í bústað- inn okkar í Hraunborgum í Grímsnesi, þar sem við áttum ákaflega ánægjulegar stundir með þeim. Nú er Bára móðir mín ein eftir af sínum systkinahóp, og er frá- fall Önnu mikill missir fyrir hana því þær voru mjög nánar og ræddust við nánast daglega. Elsku Anna við kveðjum þig með söknuði og þökkum þér allar ánægjulegu stundirnar sem við áttum saman. Við biðjum góðan Guð að styrkja þig Baldur minn og börn- in ykkar og þeirra fjölskyldur á þessum tímamótum. Kveðja. Þóra frænka og Einar. Anna Björg Ósk Jónsdóttir Það er sárt að sjá á eftir frænda sínum og fjöl- skylduvini yfirgefa þetta jarðríki frá fjölskyldu, vinum, félagsstarf- semi, áhugamálum og öðru því sem Eyjólfur var svo virkur þátt- takandi í. Eyjólfur var áhugamað- ur um mannlífið og pólitík, enda stjórnmálafræðingur, og á þeim árum sem ég var formaður sjálf- stæðisfélagsins Fram gekk hann í félagið og starfaði þar með mér um árabil. Eyjólfur var einstak- lega hógvær, kurteis, sanngjarn, Eyjólfur Rúnar Sigurðsson ✝ Eyjólfur RúnarSigurðsson fæddist í Reykjavík 14. maí 1961. Hann lést á deild 11G LSH 27. mars 2012. Útför Eyjólfs fór fram frá Víðistaða- kirkju í Hafnarfirði 4. apríl 2012. mikill lýðræðissinni og ekki alltaf sam- mála hinum pólitíska vettvangi. Það var ávallt hægt að leita til Eyjólfs með við- vik og ráðgjöf og sérstakur ráðgjafi fjölskydunnar var hann í skattamálum. Ekki svo sjaldan var leitað eftir liðsinni Eyjólfs við búslóðar- flutninga, enda hann sterkur mjög og tók létt á því að bera heilu svefnsófana og þvottavélarnar upp og niður stiga og hafði gaman af. Ég og fjölskylda mín höfum fylgst með veikindaferli Eyjólfs og hvernig hann barðist við allar flækjur, hindranir og veggi en hann gafst aldrei upp, alltaf jafn jákvæður og endalaust bjartsýnn. Við hlið Eyjólfs stóðu sem kletta- veggir Rannveig, Inga María og Vigfús og bar aldrei á vonleysi í þeirra fasi heldur voru veikindi pabba verkefni sem þau stóðu frammi fyrir sem þau ætluðu að leysa. Þessi samheldna fjölskylda er afreksmenn og sagði ég oft við Eyjólf: Þú ert Tarzan og hvílíkir súpermenn sem þú hefur í kring- um þig! Ekki má gleyma Ingu og Sigga og Huldari og fjölskyldu í þessari upptalningu afreksmanna og biðjum við þess innilega að ykkur öllum öðlist styrkur til að takast á við sorg ykkar. Langafi okkar, Kristinn Gríms- son, skrifaði á sinni dánarlegu að bænin sem okkur var gefin í vöggugjöf ætti einnig að vera síð- ustu kveðjuorðin, sem ég geri að mínum. Bænin má aldrei bresta þig, búin er freisting ýmisleg. Þá líf og sál er lúð og þjáð lykill er hún að drottins náð. Kristinn Arnar Jóhannesson. Lát Eyjólfs Rúnars Sigurðs- sonar hefur haft mikil áhrif á okk- ur öll. Þrátt fyrir langa og stranga baráttu héldum við alltaf í vonina um að hann myndi sigra sjúkdóm- inn að lokum. Margs er að minnast og orð eru fátækleg á þessari stundu. Á fyrstu búskaparárum okkar skipuðu Eyjólfur, Rannveig og börnin stóran sess í lífi okkar. Það var sjaldan haldin veisla í þeim hluta fjölskyldunnar nema Eyjólf- ur og Rannveig tækju þátt í henni og ekki farið í sumarbústað nema fjölskylda þeirra kæmi og dveldi með okkur. Oftar en ekki var farið í Brekkuskóg og í einni af þeim ferðum var lagt upp í stóra göngu. Börnin voru lítil og þegar Jóhann sonur okkar var orðinn þreyttur á göngunni tók Eyjólfur hann á há- hest. Við fórum út fyrir venjulega gönguleið og allt í einu stóðum við frammi fyrir því að þurfa að hoppa yfir ansi breiða á, eða fara sömu leið til baka og sú leið var löng fyr- ir litla fætur. Eyjólfur tók sig þá til og hoppaði yfir ána með Jóhann á háhesti. Þessi ákveðni var ein- kennandi fyrir Eyjólf. Hann hafði mikinn styrk sem hann sýndi með- al annars þegar á þurfti að halda í veikindum hans. Eyjólfur var mikill fjölskyldu- maður, hvatti börn sín til dáða og hjónin voru samhent í því sem þau tóku sér fyrir hendur. Hann hafði mikinn áhuga á tónlist, söng með Karlakórnum Þröstum, spilaði á gítar og æfði með hljómsveit sinni í bílskúrnum og frá honum hafa börnin tónlistaráhugann og var gaman að fylgjast með þeim öllum á tónlistarbrautinni. Leiklistar- áhugann áttu þau hjónin sameig- inlegan og tóku þau þátt í leiksýn- ingum á vegum Leikfélags Hafnarfjarðar, þannig að lista- gyðjan var sjaldan langt undan. Miklir kærleikar voru milli Eyjólfs og tengdamóður hans sem lést síðastliðið haust. Erfitt var fyrir Rannveigu að skipta sér á milli þeirra í veikindum þeirra beggja og sýndi Hanna því mikinn skilning. Henni var umhugað um að Rannveig væri hjá Eyjólfi í hans veikindum. Við þökkum Eyjólfi samfylgd- ina, minning um góðan dreng lifir. Blessuð sé minning hans. Við biðjum algóðan guð að styrkja fjölskyldu hans á þessum erfiðu tímum. Andrés Ingi og Þórdís. Gamall og góður bekkjarfélagi er fallinn frá langt um aldur fram. Við Eyjólfur vorum bekkjarbræð- ur í gegnum allan grunnskólann og einnig megnið af tíma okkar í Flensborgarskóla. Hann bar höf- uð og herðar yfir okkur bekkjar- systkinin í J-bekknum í Öldutúns- skóla, í margri merkingu þeirra orða. Hann var strax mikill og góður félagi. Á barnaskólaárunum var jafnan keppt í fótbolta milli bekkja og það var ekki sýst fyrir atgöngu Eyjólfs, sem var lykil- maður í vörninni hjá okkur, að J- bekknum gekk vel. Andstæðingar okkar reyndu oftast bara einu sinni að fara framhjá Eyjólfi. Snemma tók ég eftir þeim miklu tónlistarhæfileikum sem Eyjólfi voru í blóð bornir. Báðir foreldrar hans, Inga María og Sig- urður Hallur, mikilhæfir músik- antar, og þegar við félagarnir tróðum einu sinni upp í Sjálfstæð- ishúsinu og hann söng „Fyrir sunnan Fríkirkjuna“ nutum við leiðsagnar Ingu Maríu. Þrátt fyrir dapran undirleik undirritaðs komst Eyjólfur frábærlega í gegnum þetta og hlaut lof fyrir. Eyjólfur var duglegur íþrótta- maður og sérstaklega man ég eftir honum í frjálsum íþróttum og þá einkanlega hlaupum. Við æfðum saman hlaup og þegar æft var úti var gjarnan hlaupið upp að eða uppfyrir bæjarhliðið á Kaldársels- vegi. Það var margt skrafað og rætt á hlaupunum, ekki síst aðal- áhugamál drengja á þessum aldri, hitt kynið. Hann æfði þó fleiri íþróttir eins og körfubolta. Tíminn í Flensborgarskóla var frábær, líf og fjör í bland við nám en almennt reynt að taka hlutina ekki allt of alvarlega. Mér er minnisstætt eitt vetrarkvöld í apr- ílmánuði að við héldum skólaball í Glæsibæ í Reykjavík. Jafnfallinn snjór og fallegar vetrarstillur og lífið blasti við okkur, áhyggjulaust og ögrandi. Þá feldu saman hugi þau Eyjólfur og Rannveig Vigfús- dóttir sem síðar átti eftir að verða hans lífsförunautur. Það var mikið gæfuspor fyrir bæði. Samband þeirra ætíð verið traust og sterkt og Rannveig staðið eins og klettur við hlið manns síns í gegnum hans erfiðu veikindi. Eyjólfur var stór og sterkur strákur en í þessum mikla skrokki sló hlýtt og mjúkt hjarta með ríka réttlætiskennd, reiðubúinn til að hjálpa og aðstoða ef á þurfti að halda. Hann var traustur og heið- arlegur í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Heilsteyptur og góð fyrirmynd fyrir sína samferða- menn. Að leiðarlokum verðum við að kveðjast kæri vinur en við sem verðum hér áfram enn um sinn í þessu tilverustigi yljum okkur við góðar minningar. Rannveigu, Ingu Maríu, Vig- fúsi Almari, foreldrum og öðrum ættingjum votta ég mína innileg- ustu samúð. Þinn bekkjarbróðir, Emil L. Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.