Morgunblaðið - 12.04.2012, Side 39

Morgunblaðið - 12.04.2012, Side 39
Spilar á píanó og lærir söng Lilja var sjö ára er hún hóf nám við Tónlistarskóla Rangæinga og stundaði þar nám, fyrst á blokk- flautu en síðan á píanó, á árunum 1989-98 en þaðan lauk hún fjórða stigs prófi á píanó. Þá hefur hún stundað söngnám með hléum frá 2003 hjá Laufeyju Geirlaugsdóttur söngkonu, en Lilja er nokkuð hörð á því að hestamenn séu yfirleitt með lag- vissari mönnum og auk þess áhugasamir söngmenn, einkum eftir því sem þeir koma fleiri sam- an, eins og dæmin sanna. Úr skattinum í sláturhúsið Lilja starfaði hjá Skattstjóran- um í Reykjavík 2006-2007, starfaði hjá Sláturfélagi Suðurlands sumr- in 2005 og 2006 og var fulltrúi hjá Sláturfélagi Suðurlands á Hvols- velli og síðar á Selfossi 2008-2009. Auk þess að sinna hrossunum sinnir hún afgreiðslustörfum og reikningshaldi við kjúlingaslát- urhúsið Reykjagarð á Hellu. Hestar hennar líf og yndi Lilja hefur stundað hesta- mennsku frá því hún man eftir sér en í Stóra-Dal hafa alltaf verið um tuttugu hross og nokkur hrossa- ræktun. Hún hefur unnið þar við ræktun og tamningar og vann auk þess við tamningar hjá Hólmari á Minni-Borg og í Þýskalandi í sjö mánuði 2010-2011. Lilja hefur verið knapi frá fjór- tán ára aldri, hefur keppt á fjölda hestamóta og oft vermt verð- launasæti, einkum á hrossum frá Stóra-Dal. Hún varð í 1. sæti á Vetrarleikum Andvara árið 2010. Hún hefur starfað í hestamanna- félaginu Sindra frá 1996 og hefur keppt fyrir það félag síðan. Lilja stundar nú hestamennsku í Stóra-Dal af kappi, á sjálf sjö hross og setur stefnuna ótrauð á Landsmót hestamanna í Reykja- vík nú í sumar. Hún er staðráðin í því að halda hross áfram, rækta hross, temja þau og keppa en sjálf segir hún að hestamennskan hafi alla tíð átt hug hennar allan. Frjálsíþróttakona Lilja æfði frjálsar íþróttir með ungmennafélaginu Trausta á ung- lingsárunum, keppti á fjölda hér- aðsmóta fyrir félagið og lenti oft í fyrsta sæti og setti met í kast- greinum á héraðsmótum HSK, s.s. í sleggjukasti, kringlukasti og kúluvarpi. Fjölskylda Maður Lilju er Friðbjörn Gunn- arsson, f. 4.6. 1982, bifreiðarstjóri. Foreldrar hans eru Gunnar Sig- urðsson og Sveinbjörg Frið- björnsdóttir sem eru búsett á Ak- ureyri. Dóttir Friðbjörns er Ólöf Guð- rún, f. 7.4. 2009. Bræður Lilju eru Ragnar Bjarki Ragnarsson, f. 11.3. 1986, búsettur í Hveragerði; Valur Gauti Ragnarsson, f. 6.4. 1991, en hann starfar við búið í Stóra-Dal. Foreldrar Lilju eru Ragnar Matthías Lárusson, f. 14.10. 1957, bóndi í Stóra-Dal, og Fríða Björk Hjartardóttir, f. 8.9. 1960, bóndi í Stóra-Dal. Kjartan Þorkelsson sýslum. á Hvolsvelli Úr frændgarði Sigurlaugar Lilju Ragnarsdóttur Jón S. Þorkelsson b. á Brjánsst. Guðrún Á. M. Jóhannesdóttir húsfr. á Brjánsst. Jón Nikulásson sjóm. í Eyjum Marta Ólöf Stefánsdóttir Margrét Þorkelsdóttir húsfr. Hans Hofmann Jónsson b. á Búðum Sigurrós KristjánsdóttirSigurlaug Lilja Ragnarsdóttir Ragnar M. Lárusson b. í Stóra-Dal Fríða Björk Hjartardóttir bóndi í Stóra-Dal Sonja Guðríður Jónsd. húsfr. Brjánsst. Hjörtur Jónsson b. á Brjánsst. í Grímsn. Hermannía S. Hansdóttir húsfr. í Austurey Lárus Kjartansson b. í Austurey í Laugardal Kjartan Bjarnason b. í Austurey Þorkell Kjartansson b. á Eyjabóli, Laugardal Þorbjörg Kjartansd. húsfr. Óskar Pálsson Páll Rósinkrans söngvari Afmælisbarnið Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir. ÍSLENDINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 HVER ER STAÐAN Á ÞINNI HEILSU? HEILSUMAT HENTAR ÞEIM SEM VILJA PERSÓNULEGA RÁÐGJÖF VARÐANDI BETRI LÍFSSTÍL Markmiðið með Heilsumati er að veita vandaða ráðgjöf hjúkrunarfræðings um heilsufar, hreyfingu og næringu sem og áhættuþætti helstu sjúkdóma. Betri heilsa borgar sig! Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is Innifalin er mæling í líkamsgreiningartæki þar sem grunnorkuþörf þín er reiknuð út Verð kr. 6.900. Pantaðu tíma í Heilsumat í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is 85 ára Börg Ólafsdóttir 80 ára María Anna Óladóttir Rafn Jónsson Róbert Sigurjónsson 75 ára Erla Þorgerður Ólafsdóttir Guðbjartur Kristinsson Guðmundur Jónsson Guðný Guðnadóttir Stella Björk Baldvinsdóttir Þorbjörn Sigurðsson 70 ára Alda Vilhjálmsdóttir Finnbogi Björnsson Helga Halblaub Hrafnhildur Ingólfsdóttir Sigríður Svava Gunnarsdóttir Sigurrós Arthúrsdóttir Þóra Magnúsdóttir Þórunn B. Jónsdóttir 60 ára Aðalbjörg Steindórsdóttir Ágúst Þórarinsson Elisabeth Lagerholm Fidelia Ásta Emmanúels Guðmundur Bjarnason Jóna Þuríður Tómasdóttir Karl Halldór Karlsson Sigrún Ögmundsdóttir Svanhildur Kristjánsdóttir Svavar Valtýr Valtýsson Þóranna Ingólfsdóttir 50 ára Agnar Þór Árnason Árni Baldvin Sigurpálsson Guðlaug Gísladóttir Jórunn Dóra Hlíðberg Oddur Friðrik Vilmundarson Paul Andrew Fawcett Sigmundur V. Garðarsson Vilija Konciute 40 ára Aðalsteinn Finnbogason Bjarni Jónasson Erla Björk Birgisdóttir Erla Hrönn Matthíasdóttir Friðrik Friðriksson Guðmundur Sigurðsson Hafþór Svanur Jónsson Hanna Margrét Kristleifsdóttir Haraldur Unason Diego Ingibjörg Hildur Eiríksdóttir Jóna Dóra Óskarsdóttir Kolbrún Kristín Birgisdóttir Lakkana Langkarat Smári Björn Guðmundsson 30 ára Anton Örn Sigurðsson Auður Elísabet Jóhannsdóttir Bogi Helgason Hernan Gabriel Silva Sarmiento Hólmfríður Gísladóttir Hrafnhildur Hlín Karlsdóttir Ívar Örn Árnason Jelena Raschke Karen Ýr Lárusdóttir Kolbrún Stella Karlsdóttir Michal Mikolaj Tosik-Warszawiak Mylene Arteche Lumawag Signý Hrund Svanhildardóttir Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir Þorleifur Árni Björnsson Til hamingju með daginn 40 ára Kolbrún fæddist á Selfossi, lauk prófi í líf- fræði frá HÍ og starfar við Rannsóknarstofu Sjúkra- hússins á Selfossi. Maður Bjarni Másson, f. 1983, bóndi í Háholti. Börn Kolbrúnar: Veronika Ómarsdóttir, f. 1991 og Bríet Mörk Ómarsdóttir, f. 1994. Foreldrar Birgir Hart- mannsson, f. 1937, bóndi, og Lára Bjarnadóttir, f. 1940, sjúkraliði. Kolbrún Kristín Birgisdóttir 40 ára Smári fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk BSc-prófi í við- skiptafræði frá HR og starfar nú við innflutn- ingsfyrirtæki í Reykjavík. Eiginkona Laufey Stef- ánsdóttir, f. 1976, sér- kennari. Börn þeirra: Sara, f. 2000; Stefán Kári, f. 2003; Kristinn Snær, f. 2008 og Jökull Páll, f. 2010. Móðir: Sara Sigurð- ardóttir, f. 1945, d. 1989. Smári Björn Guðmundsson Björn Steffensen, löggilturendurskoðandi, fæddist íKaupmannahöfn 12. apríl 1902 en ólst upp í Hafnarfirði og í Reykjavík. Foreldrar hans voru Valdimar Steffensen, læknir á Akureyri, og Theódóra Sveinsdóttir, er rak veit- ingasölu víða um land. Valdimar var sonur Jóns Steffen- sen Stefánssonar, kaupmanns í Reykjavík, og Sigþrúðar, systur Helga Guðmundssonar, læknis á Siglufirði. Foreldrar Theódóru voru Sveinn Magnússon, bátasmiður í Hafn- arfirði, og Eyvör Snorradóttir, systir Lárusar, föður Inga T. tónskálds. Systir Eyvarar var Ágústa, móðir Lovísu, móður Arndísar Björns- dóttur leikkonu, og Ólafar, er átti Pétur Halldórsson borgarstjóra. Björn var kvæntur Sigríði Árna- dóttur Steffensen húsmóður sem lést 1985 og eignuðust þau fjögur börn. Albróðir Björns var Valdimar sem lést ungur, en hálfsystkini hans, sammæðra, voru Sveinn Ólafsson brunavörður og Sólveig og Áslaug húsmæður. Hálfbróðir Björns, samfeðra, var hins vegar Jón Steffensen læknapró- fessor, helsti hvatamaður að lækna- safninu í Nesstofu. Björn brautskráðist frá Versl- unarskóla Íslands 1919 og var við nám í Pitmans School og Polytechnic School í London 1924-27. Með nám- inu í London starfaði hann við endur- skoðunarskrifstofu Davies Dunn og Co í London. Hann var löggiltur end- urskoðandi frá 1934. Björn starfrækti endurskoð- unarskrifstofu í Reykjavík frá 1927. Hann var formaður Félags endur- skoðenda 1941-44 og 1949-55 og var heiðursfélagi þess. Björn var mikill áhugamaður um skógrækt og landvernd eins og enn má sjá á trjáreitum hans við Elliða- vatn. Þá skrifaði hann fjölda greina um hin ýmsu málefni í Lesbók Morg- unblaðsins um árabil. Björn lést 15. júlí 1993. Merkir Íslendingar Björn Steffensen 40 ára Haraldur fæddist í Reykjavík, lauk BSc-prófi í viðskiptafræði frá HR og starfar hjá Fagráði - við- skiptaráðgjöf. Kona Gunnur Árnadóttir, f. 1976, leikskólakennari. Börn Elísabet Rut, f. 1995; Alex Uni, f. 2000 og Óli- ver Nói, f. 2007. Foreldrar Uni Guð- mundur Hjálmarsson, f. 1926, d. 2004, banka- maður, og Selma Ágústs- dóttir, f. 1928, húsmóðir. Haraldur Unason Diego

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.