Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012
Miðamerískir kvikmynda-
dagar verða haldnir í dag
og næstu tvo daga í Há-
skóla Íslands. Á þeim tíma
verða sýndar tvær myndir
á dag í Lögbergi, st. 101.
Kvikmyndadagarnir eru
skipulagðir af nemendum
við HÍ sem setið hafa
námskeið um kvikmyndir
spænskumælandi landa í vetur hjá Hólmfríði
Garðarsdóttur, prófessor í spænsku við HÍ.
„Smáríki Miðameríku, þ.e. Gvatemala, El
Salvador, Hondúras, Níkaragva, Kosta Ríka
og Panama, hafa ekki verið mjög áberandi í
umræðunni um alþjóðamál undanfarin ár,
enda friður kominn á í löndunum flestum
eftir öldurót og átök 20. aldar. Á Miðamer-
ískum kvikmyndadögum gefst tækifæri til
að fræðast um menningu og þjóðlíf þessara
lítt þekktu landa og fólkið sem þar býr,“
segir m.a. í tilkynningu frá skipuleggj-
endum.
Í dag verða sýndar myndirnar Meðganga
(Gestación, Kosta Ríka, 2010) kl. 17 og Kar-
íbahafsströndin (El Caribe, Kosta Ríka,
2006) kl. 19. Á morgun verða sýndar mynd-
irnar Júma (La Yuma, Níkaragva, 2009) kl.
17 og Stígurinn (El Camino, Kosta Ríka/
Níkaragva, 2010) kl. 19. Á laugardag verða
sýndar myndirnar Dóttir hlébarðans (La
hija del puma, Mexíkó/ Svíþjóð, 1994) kl. 17
og Nafnlaus (Sin nombre, Mexíkó 2009) kl.
19. Myndirnar eru allar á spænsku með
enskum texta. Aðgangur er ókeypis og öll-
um opinn.
Miðamerískir
kvikmyndadagar
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég held mér sé óhætt að segja að þetta verði
óvenjuleg sýning, en við hyggjumst breyta
Þjóðleikhúskjallaranum í rafmagnaðan dans-
tónleikastað og skoða poppkúltúrinn,“ segir
Sigríður Soffía Níelsdóttir dansari og danshöf-
undur um sýninguna Glymskrattann sem hún
vinnur nú að í samvinnu við Melkorku Sigríði
Magnúsdóttur dansara og danshöfund og
Valdimar Jóhannsson tónlistarmann. Sýningin
verður frumsýnd í Þjóðleikhúskjallaranum
föstudaginn 25. maí nk. og er hluti af Listahá-
tíð í Reykjavík, unnin í samvinnu við Þjóðleik-
húsið og styrkt af EUF.
Þremenningarnir, sem bæði eru höfundar
verksins og flytjendur, dvöldu nýverið við æf-
ingar og undirbúning í gömlu klaustri í bænum
St. Erme í Norðaustur-Frakklandi þar sem
hollenski leikstjórinn Jan Ritsema rekur
vinnustofur fyrir sviðslistafólk sem nefnast
P-af og stendur fyrir Performing Arts Forum.
„Við höfum verið hér síðustu vikuna, en nú
liggur leið okkar til Parísar í einn dag í leit að
búningum og hárkollum fyrir sýninguna enda
gott úrval af slíku þar í borg. Í næstu viku hefj-
ast svo æfingar í Þjóðleikhúskjallaranum,“
segir Sigríður og tekur fram að það hafi verið
sérlega gefandi að dvelja í klaustrinu við æf-
ingar og hugmyndavinnu.
„Það ríkir sterkur sköpunarandi í þessu
klaustri. Listafólkið sem dvelur þar hverju
sinni er duglegt að bjóða öðrum listamönnum
staðarins að koma og skoða hjá sér æfingar og
í framhaldinu af því spinnast oft líflegar um-
ræður þar sem fá má góðar ábendingar og ráð
um framhaldið. Þetta er því mjög gott and-
rúmsloft til að skapa í,“ segir Sigríður og tekur
fram að sérlega margir hafi verið í klaustrinu
síðustu vikuna þar sem haldinn var vorfundur
danshöfunda og dansfræðinga. „Þarna voru
því mörg af stærstu nöfnunum í dansheim-
inum samankomin til að ræða listina.“
Girnilegir dansfrasar fyrir áhorfendur
Aðspurð segir Sigríður að þær Melkorka
hafi ekki unnið saman áður en þær þekkist vel
Það var býsna framandi fyrir okkur Melkorku
þar sem við erum aðallega dansarar og dans-
höfundar, en að sama skapi ótrúlega skemmti-
legt og spennandi að prófa eitthvað nýtt,“ seg-
ir Sigríður og heldur áfram:
„Við erum að skoða poppkúlturinn. Við tök-
um þannig poppklisjur og hreyfingar úr sam-
hengi, skoðum vinsælar hreyfingar og fræga
dansa eins og t.d. Pulp fiction-dansinn og
Single ladies-dansinn hennar Beyoncé sem
fólk dansar á sama hátt og það syngur með
textum laga. Við erum að reyna að búa til tón-
leika þar sem hreyfingarnar eru svo sterkar að
viðstaddir njóti þeirra jafnmikið og lagsins
sjálfs,“ segir Sigríður. Spurð hvort hópurinn
hafi að markmiði að virkja áhorfendur til þátt-
töku á sýningunni viðurkennir Sigríður að þau
vonist til að hægt verði að skapa blússandi
stemningu á staðnum. „Við erum búin að búa
til ólík lög og byggja upp dansfrasa sem væru
girnilegir fyrir áhorfendur að skella sér í. Það
verður spennandi að sjá hvernig þetta leggst í
viðstadda,“ segir Sigríður að lokum.
þar sem þær bjuggu saman í Belgíu á náms-
árum sínum. Báðar hafa þær getið sér gott orð
hérlendis og erlendis sem kraftmiklir og
áræðnir dansarar og danshöfundar. Valdimar
leikur í hljómsveitunum Reykjavík!, Lazy-
blood og 9/11. Hann og Sigríður hafa bæði
unnið með Shalala, flokki Ernu Ómarsdóttur,
m.a. að sýningunni Við erum skrímsli. Sigríður
hefur auk þess samið verk fyrir Silesian Dance
Theater og Íslenska dansflokkinn. Þeim til
fulltingis í Glymskrattanum eru Brynja
Björnsdóttir leikmyndahönnuður og Ellen
Loftsdóttir stílisti sem sjá munu um útlitshlið
sýningarinnar.
Aðspurð nánar um Glymskrattann segist
Sigríður lýsa verkinu sem danstónleikum þar
sem báðir miðlar verði í forgrunni. „Okkur
langaði að búa til sýningu þar sem söngurinn
og hreyfingar væru jafnvíg. Við vildum því búa
til lög þar sem danshreyfingarnar eru textinn í
einhverjum tilvikum. Við nýttum tímann í
klaustrinu m.a. til að semja tónlist og tókum
við Melkorka virkan þátt í því ferli með Valda.
Íslenskur glymskratti
í frönsku klaustri
Glymskrattinn frum-
sýndur í Þjóðleikhúskjall-
aranum á Listahátíð
Sköpunargleði Melkorka og Sigríður skoða poppkúltúrinn í nýjasta danstónverki sínu.
Fyrsta úthlutun úr Minningarsjóði
Vilhjálms Vilhjálmssonar fór fram í
gær í Söngskólanum í Reykjavík.
Í heild var veitt 1,1 milljón króna
til þriggja söngnema sem eru þau
Björg Birgisdóttir, Jóhann Krist-
insson og Unnsteinn Árnason. Þau
stunda öll nám við háskóladeild
Söngskólans í Reykjavík og mun
styrkurinn standa straum af skóla-
gjöldum þeirra veturinn 2012-2013.
Minningarsjóður Vilhjálms Vil-
hjálmssonar var stofnaður í kjölfar
minningartónleika sem haldnir voru
í október 2008. Í stjórn sjóðsins sitja
Jón Ólafsson (formaður stjórnar, at-
hafnamaður), Magnús Kjartansson
(hljómlistarmaður), Þóra Guð-
mundsdóttir (ekkja Vilhjálms heit-
ins) og Björn Sigurðsson (fram-
kvæmdastjóri Senu). Styrki á að
veita árlega og þá alltaf hinn 11. apr-
íl, en það er fæðingardagur Vil-
hjálms. Markmið sjóðsins er að
styrkja til náms söngvara, sem
þykja skara fram úr á sínu sviði.
Styrkhafar Unnsteinn Árnason, Jóhann Kristinsson og Björg Birgisdóttir.
Veitt úr Minningar-
sjóði Vilhjálms
Ljósmynd/MummiLú
Ljóða-
dagskráin
Kryddlegin
skáld hóf ný-
verið göngu
sína á Krydd-
legnum hjört-
um á Skúla-
götu 17.
Annað kvöld
kl. 19.30 munu skáldin Sigurður A. Magnússon
og Elísabet Kristín Jökulsdóttir koma fram og
veita ljóðaunnendum lystauka í formi ljóða
sinna. Sigurður er þjóðþekktur fyrir bæði rit-
störf sín og þýðingar. Eftir hann liggur fjöldi
verka, ljóð, skáldsögur, leikrit, ferðabækur,
greinasöfn og ævisögur svo fátt eitt sé nefnt.
Elísabet hefur gefið út ljóðabækur, skáld-
sögur og leikrit, sem vakið hafa óskipta at-
hygli fyrir frumleik og skarpa sýn.
Kryddlegin skáld
Sigurður og Elísabet Kristín.
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is
Veggfóður
í úrvali
Úrval - gæði - þjónusta