Morgunblaðið - 12.04.2012, Side 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012
Stóriðja, og afleiðingar henn-ar, hefur verið talsvert ídeiglunni síðustu ár. Ýmsirhópar og einstaklingar hafa
barist fyrir því að ósnert náttúran
verði ekki spjölluð með virkjunum
og lónum. Hér er á ferð heimild-
armynd sem leggur þeim málstað lið
og kynntar eru fyrir áhorfendum
nokkrar af þeim persónum sem
áformin hafa hvað mest áhrif á.
Myndin er alls ekki hlutlæg og
ljóst strax í upphafi hvaða afstaða er
tekin í málinu. Myndin er blanda við-
tala, textabrota með upplýsingum og
fallegra myndbrota af þeirri náttúru
sem fjallað er um. Hún verður þó
fremur ósannfærandi sökum þess
hversu einhliða umfjöllunin er. Það
hefði verið gaman að sjá viðtöl við
einhvern sem aðhylltist stóriðju til
að fá mótrök í umfjöllunina. Einnig
hefði verið áhugavert að sjá viðtöl
við einhverja „fræðimenn“ sem
hefðu t.d. einhverjar rannsókna-
niðurstöður fram að færa.
Að vísu var m.a. vitnað í Evu Joly í
textabrotunum en sannfæringar-
krafturinn hefði orðið meiri ef um
lifandi flutning hefði verið að ræða.
Þetta tvennt hefði léð myndinni
aukna dýpt og gefið áhorfandanum
meira frelsi til að mynda sér sína
eigin skoðun á málinu.
Viðtölin við bændurna voru mörg
hver góð og hreyfðu við manni. Ein-
læg depurð þeirra yfir eyðingar-
mætti mannsins og vilja hans til að
beita honum komst vel til skila auk
þess sem alltaf er gaman að kynnast
áhugaverðum persónum. Mjög fal-
lega náttúru er að finna í myndinni
og þau myndskeið sem sýna það fal-
lega landslag sem nú liggur í votri
gröf eru vel útfærð. Það má heyra
ágætis tónlist í myndinni eftir Ster-
eo Hypnosis og lágstemmdir tón-
arnir fara vel saman við náttúruna.
Myndin er ágætt innlegg í um-
ræðuna um umhverfismál en það
dregur þó úr gildi hennar hversu
einhliða hún er.
Hlíðin hverfur …
Leikstjórn: Helena Stefánsdóttir. Hand-
rit: Helena Stefánsdóttir. 61 mín.
Ísland, 2012.
DAVÍÐ MÁR
STEFÁNSSON
KVIKMYNDIR
Barátta Örn Þorleifsson, bóndi í
Húsey, Fljótsdalshéraði.
Bíó Paradís
Baráttan um landið bbbnn
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Eins og Morgunblaðið greindi frá á
dögunum ætlar Benni Hemm Hemm
að halda tónleika nú á laugardaginn
á KEX. Tilefnið er ný sveit, ný lög -
og í raun réttu ný hugmyndafræði.
Benni, eða Benedikt Hermann
Hermannsson, flutti aftur til Íslands
fyrir nokkru eftir að hafa búið í
Skotlandi um þriggja ára skeið. Sú
vist og heimkoman hafði eðlilega
mótandi áhrif að einhverju leyti eins
og Benni útskýrir.
„Þegar ég var nýkominn aftur frá
Skotlandi spilaði ég með hljómsveit-
inni eins og hún var áður en ég fór
út. Það var rosa gaman en …samt.
Ég gat ekki látið eins og það hefði
ekkert gerst í millitíðinni. Ég fann
að ég þurfti að endurhugsa ým-
islegt.“
Í þeim tilgangi hefur Benni hóað
saman fjölda tónlistarmanna úr
ýmsum áttum.
„Ég fékk nokkurs konar lík-
amlega tilfinningu fyrir því að vilja
hljómborðsrokka dálítið. Búa til
svona vélrænt hljómborðagrúv í
anda Stereolab. Nýju lögin eru sam-
in m.a. með það í huga. Það kom mér
þá gleðilega á óvart hversu margir
voru til í tuskið, að láta reyna á þetta
með mér.“
Benni segir að hann og nýja
hljómsveitin sé hægt og bítandi að
vinna sig inn í þetta nýja form.
„Venjulega hef ég mætt með allt
tilbúið og útskrifað og samstarfsfólk
mitt hefur vanist því að vinna þann-
ig. Nú er þetta miklu opnara, það er
rými fyrir spuna og þetta er mun
meira samstarf allra, eitthvað sem
er nýtt fyrir mér. Einu sinni fannst
mér kjánalegt að gera hluti út frá til-
finningu, í einhverju sem hægt væri
að kalla hljómsveitafíling en ég hef
komist að raun um að þannig er það
alls ekki. Mér finnst þetta þvert á
móti ótrúlega skemmtilegt og
spennandi og hlakka til að vinna
áfram með þetta.“
„Nú er þetta miklu opnara“
Benni Hemm Hemm á Kex Ný
lög, nýtt band - ný hugmyndafræði
Morgunblaðið/Kristinn
Nýtt Benni Hemm Hemm er búinn að núllstilla sig.
LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarDV
HHHH
FBL
HHHH
FT
HHHH
MBL
HHHH
PRESSAN.IS
HHHH
KVIKMYNDIR.IS
HHHH
AMERICAN PIE: REUNION Sýnd kl. 5:45 - 8 - 10:30
LORAX 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 6
HUNGER GAMES Sýnd kl. 7 - 10
SVARTUR Á LEIK Sýnd kl. 10:20
STERK BYRJUN, MANN
ÞYRSTIR Í MEIRA!
T.V. - Vikan/Séð og Heyrt
HHHH
HEIMURINN FYLGIST AGNDOFA MEÐFór beint á toppinn í USA
„ÁKAFLEGA VEL HEPPNUÐ
ÆVINTÝRAMYND“
A.L.Þ - MBL
HHHH
Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN
HHHH
BRÁÐSKEMMTILEG OG LITRÍK MYND
FRÁ HÖFUNDUM AULINN ÉG
Sýnd með íslensku
og ensku tali
DREPFYNDIN MYND SEM GEFUR
FYRSTU MYNDUNUM EKKERT EFTIR!
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
MBL DVPRESSAN.IS
KVIKMYNDIR.IS
T.V. - VIKAN/SÉÐ OG HEYRTA.L.Þ - MBL Þ.Þ. FRÉTTATÍMINN
SÉÐ OG HEYRT/KVIKMYNDIR.IS
DREPFYNDIN MYND SEM GEFUR
FYRSTU MYNDUNUM EKKERT EFTIR!
57.000 MANNS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
AMERICAN PIE: REUNION KL. 5.50 - 8 - 10.10 12
HUNGER GAMES KL. 5.30 - 8 12
SVARTUR Á LEIK KL. 10.30 16
TITANIC 3D ÓTEXTUÐ KL. 5 - 9 10
AMERICAN REUNION KL. 8 - 10.30 12
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 6 L
HUNGER GAMES KL. 6 - 9 12
SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
TITANIC 3D ÓTEXTUÐ KL. 4 - 8 10
TITANIC 3D ÓTEXTUÐ LÚXUS KL. 4 10
AMERICAN PIE: REUNION KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
AMERICAN PIE: REUNION LÚXUS KL. 8 - 10.30 12
LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 L
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.30 - 6 L
HUNGER GAMES KL. 5 - 8 12
SVARTUR Á LEIK KL. 8 - 10.30 16
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is
Spilliefni
spilla
Við fjarlægjum allan úrgang, bæði
spilliefni og annan úrgang sem til
fellur hjá bílaverkstæðum og öðrum
fyrirtækjum sem vinna með spilliefni.
Hringdu - við sækjum!
559 2200