Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Í gær hófst indversk kvikmyndahá- tíð í Bíó Paradís, sú fyrsta sem hald- in er hér á landi. Hátíðin stendur til 20. apríl og er samstarfsverkefni samtakanna Vina Indlands og kvik- myndahússins. Allur ágóði sýninga rennur til verkefna Vina Indlands í Suður-Indlandi en samtökin sinna þar margvíslegu góðgerðarstarfi, reka m.a. drengjaheimili og styrkja önnur verkefni. Fjórar myndir verða sýndar á hátíðinni, frá helstu fram- leiðslusvæðum indverska kvik- myndageirans en þau bera gælu- nöfnin Bollywood, Kollywood, Mollywood og Tollywood, eftir því á hvaða tungumáli er leikið í kvik- myndunum, þ.e. hindi, tamil, mala- ylam eða telugu. Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir, stjórnarformaður Vina Indlands, segir kvikmyndirnar hafa verið vandlega valdar, m.a. skoðað hvaða myndir hafi verið sýndar á indversk- um kvikmyndahátíðum hin síðustu ár og umsagnir um þær lesnar. Markmiðið hafi verið að fá kvik- myndir á fyrrnefndum tungumálum og frá stærstu kvikmyndafram- leiðslusvæðum Indlands. Myndirnar fjórar eru Dhoom 2, Robot, Madrasapattinam og Band Baaja Barat. Dhoom 2 er gaman- og spennumynd í anda James Bond; Robot er blanda vísindaskáldskapar, gamanmyndar og spennumyndar (sjá gagnrýni til hliðar), Madrasa- pattinam segir af ástum breskrar yf- irstéttarstúlku og Indverja af lægri stigum og Band Baaja Barat er fjörug Bollywood-mynd sem segir af ungu pari sem starfar við að skipu- leggja og halda brúðkaup. Robot er söluhæsta kvikmynd Asíu frá upp- hafi en hún var frumsýnd í 3.000 kvikmyndahúsum árið 2010. Til stóð að sýna pakistanska verð- launakvikmynd, Bol, á hátíðinni en Sveinbjörg segir að af óviðráð- anlegum orsökum verði ekki hægt að sýna hana. Umfjöllunarefni þeirr- ar kvikmyndar er í stuttu máli bágt hlutskipti kvenna í Pakistan. Dans Aishwarya Rai, ein skærasta kvikmyndastjarna Indlands, í kvikmynd- inni Dhoom 2. Stillan ber þess merki að um dansatriði sé að ræða. Frá Bolly-, Kolly-, Molly- og Tollywood  Fyrsta indverska kvikmyndahátíðin Endhiran, eða Vélmenni, erdýrasta kvikmynd Ind-lands frá upphafi vega ogjafnframt sú sem mest- um tekjum hefur skilað í miðasölu. Hún er kostuleg blanda gaman- myndar, vísindaskáldskapar, spennumyndar og dans- og söngva- myndar en dans og söngur virðist vera ómissandi hluti þegar kemur að indverskum kvikmyndum. Indland er m.a. þekkt fyrir magnaðar krydd- blöndur og Vélmenni er bragðmikil blanda, öllu ægir saman og vestræn- ar kvikmyndir á borð við Term- inator og The Matrix koma á köflum upp í hugann. Um hinn tölvuteikn- aða heim myndarinnar sá sama fyr- irtæki og vann að Avatar, Legacy Effects, og útkoman er stórfengleg í mestu hasaratriðunum. Dráps- vélmenni í hundraðavís taka hönd- um saman í almennri tortímingu og bregða sér m.a. í líki risavaxinnar eiturslöngu. Sjón er sögu ríkari. Myndin segir af vísindamanni, Vaseegaran, sem leikinn er af einni skærustu kvikmyndastjörnu Ind- lands, Rajinikanth. Vaseegaran hef- ur tekist að búa til hið fullkomna vél- menni, Chitti, sem hann mótaði eftir eigin líkama þannig að það lítur út og talar eins og skaparinn. Chitti getur lesið heilu doðrantana á ör- skotsstundu, er því frótt um alla mögulega hluti og kann einnig bar- dagalistir, dans og matseld, svo fátt eitt sé nefnt. Vélmennið er hins veg- ar ekki vel að sér um mannleg sam- skipti og tilfinningar og gerir mörg og kostuleg mistök í þeim efnum. Vaseegaran bætir úr þessu og vél- mennið öðlast tilfinningar. Þá kemur babb í bátinn því vélmennið verður ástfangið af unnustu hans, Sönu, og neyðist vísindamaðurinn til þess að búta það í sundur. Illa innrættur lærifaðir Vaseegaran, Bohra, kemst yfir vélmennið á ruslahaugum, lag- færir það og forritar sem drápsvél. Vélmennið rænir Sönu og fer að fjöldaframleiða drápsvélmenni í eig- in mynd og þá verður fjandinn laus. Vélmennaherinn virðist með öllu ósigrandi en Vaseegaran er ekki á því að gefast upp. Vélmenni er hrein og klár af- þreying og oft á tíðum spreng- hlægileg. Það er töluverður munur á kvikmyndum okkar Vesturlandabúa og indverskum og grunar undirrit- aðan að hann hafi oft hlegið að atrið- um sem indverskum áhorfendum þykja ekki eins fyndin. Einhverra hluta vegna eru einstaka setningar fluttar á ensku í myndinni sem gerir samtölin býsna skondin og auk þess er notkun á „slow motion“ spaugileg. Leikstjóri sér t.d. ástæðu til að hægja á hreyfingum hinnar miklu fegurðardísar Aishwarya Rai, lík- lega til að sýna þokkafullar mjaðma- sveiflur hennar og hversu fallega hárið á henni flaksast. Mest mæðir á stjörnunni Rajinikanth (persónur sem hann leikur í kvikmyndum mega víst ekki deyja, svo vinsæll er hann) en hann fer með hlutverk vís- indamannsins og vélmennisins sem sveiflast milli góðs og ills og marg- faldast svo undir lokin. Hvort vel er leikið er erfitt að meta en leikgleðin var í það minnsta mikil. Dans- og söngatriði eru nokkur og óskaplega löng. Þau reyndu heldur betur á þolinmæði rýnis og gera það að verkum að myndin endar í 155 mínútum. Þeir sem kunna að meta slík atriði munu hins vegar ekki finna eins mikið fyrir lengdinni. Vélmenni er engu að síður góð skemmtun, masala sem bragð er að. Skrautlegt Stórstjarnan Rajinikanth í hlutverki vélmennisins í einu af mörgum og gríðarlöngum dans- og söng- atriðum kvikmyndarinnar Endhiran. Kvikmyndin er sú dýrasta í sögu indverskrar kvikmyndagerðar. Indversk kvikmyndahátíð í Bíó Paradís Endhiran/Vélmenni bbbmn Leikstjóri: S. Shankar. Aðalhlutverk: Rajinikanth og Aishwarya Rai. Indland, 2010. 155 mín. Helgi Snær Sigurðsson KVIKMYNDIR Kostuleg kryddblandaSAM WORTHINGTON ROSAMUND PIKE RALPH FIENNES LIAM NEESON Missið ekki af þessari stórbrotnu tímamótamynd nú í 3-D á stóra tjaldinu! - séð og heyr/kvikmyndir.is DREPFYNDIN MYND SEM GEFUR FYRSTU MYNDUNUM EKKERT EFTIR! KOMIN Í BÍÓ UM LAND ALLT BRIDESMAIDS eru æðisleg í þessari frábæru gamanmynd FRIENDS WITH KIDS EGILSHÖLL 16 7 ÁLFABAKKA 12 12 12 12 12 VIP VIP L 12 12 12 L 7 12 AKUREYRI WRATHOF THE TITANS KL. 8 - 10:10 3D JOHNCARTER KL. 8 - 10:10 2D 12 12 12 12 KEFLAVÍK AMERICANPIE : REUNION KL. 8 2D WRATHOF THE TITANS KL. 10:20 3D FRIENDSWITHKIDS KL. 8 2D SVARTURÁLEIK KL. 10 2D AMERICANPIEKL. 5:50 - 8 - 10:20 2D AMERICANPIE VIPKL. 8 - 10:20 2D WRATHOF THE TITANSKL. 5:50 - 8 - 10:10 3D WRATHOF THE TITANS KL. 10:40 2D WRATHOF THE TITANS VIP KL. 5:50 2D GONE KL. 5:50 - 8 - 10:10 2D FRIENDSWITHKIDSKL. 5:40 - 8 - 10:20 2D JOHNCARTER KL. 5:20 - 8 2D L L L 16 12 12 KRINGLUNNI WRATHOF THE TITANS KL. 5:50 - 8 - 10:10 3D GONE KL. 10:10 2D THE LORAX- 3DM/ÍSL.TALI KL. 6 3D THE LORAX- 2DM/ÍSL.TALI KL. 6 2D THE LORAXM/ENSKU.TALI KL. 8 2D PROJECT X KL. 10 2D TITANICÓTEXTUÐ KL. 5 - 8 3D WRATHOF TITANSKL. 5:40 - 8 - 10:20 3D GONE KL. 10:20 2D PROJECT X KL. 5:50 - 9 - 11 2D JOHNCARTER KL. 5:10 2D FRIENDSWITHKIDS KL. 8 2D Amanda Seyfried úr MAMMA MIA er mætt í einum besta þriller þessa árs. MÖGNUÐ SPENNUMYND Fjöldamorðingi gengur laus og hefur klófest systur hennar en það trúir henni engin! Kristen Wiig, John Hamm, Maya Rudolph og Chris O´Dwod úr TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG! VINNAN VERÐUR SVO MIK LU SKEMM TILEGRI !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.