Morgunblaðið - 12.04.2012, Side 48
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Í næstu viku, nánar tiltekið síðasta
vetrardag, verður nýtt hótel, Ice-
landair Hótel Reykjavík Marina,
formlega opnað í gamla Slipphúsinu
við Mýrargötu 2-8. Verið er að
leggja lokahönd á fráganginn og þar
sem framkvæmdir eru á áætlun má
gera því skóna að allt verði tilbúið á
miðvikudag.
Einar Ágústsson og Jens Sand-
holt eru mennirnir á bak við fyr-
irtækið JE Skjanna bygginga-
verktaka, sem keypti gamla
Slipphúsið 2003. Þeir segja að frá
byrjun hafi blundað í þeim að
breyta því í hótel en hugmyndin hafi
ekki orðið að veruleika fyrr en eftir
bankahrun. „Síðan við keyptum
húsið höfum við alltaf gengið með
hótel í maganum hérna,“ segir Ein-
ar.
Bankahrunið ýtti þeim úr vör og
sumarið 2009 sóttu þeir um að fá að
breyta húsinu í hótel. „Þegar allt
hrundi bitnaði það á leigutökum og
þar með á okkur,“ segir Jens. „Við
vorum við það að missa húsið frá
okkur og það var annaðhvort að gef-
ast upp og stökkva til útlanda eða
snúa vörn í sókn,“ heldur hann
áfram. Þeir bæta við að forsvars-
menn Flugleiðahótela hafi strax
sýnt áhuga á að reka þarna hótel og
eftir að skrifað hafi verið undir
samninga síðasta vetrardag í fyrra
hafi framkvæmdir hafist og síðasti
leigutaki farið út í júlí. „Undanfarna
daga og vikur hafa verið um 50
manns í vinnu í húsinu og um 30
manns í verkum úti í bæ,“ segir
Einar. Þeir leggja áherslu á að nán-
ast öll efniskaup séu íslensk, aðeins
hert gler komi frá útlöndum.
Húsið var byggt 1940 en því hefur
nú verið gjörbreytt. Hæð hefur ver-
ið bætt við og jarðskjálftaveggjum
komið fyrir. Í því eru 108 hótelher-
bergi og þar af tvær svítur. Fimm
fjölskylduherbergi með kojum eru á
jarðhæð. „Við vildum nýta lofthæð-
ina,“ segir Einar en á jarðhæðinni
eru líka gestamóttaka, líkamsrækt,
Slippbarinn, veitingastaður og kvik-
myndasalur. Í salnum er ráðgert að
frumsýna bíómyndir og hann má
einnig nota fyrir fundi og ráð-
stefnur. Húsið er fjórar hæðir og er
fjórða hæðin, sem er ný, inndregin
og herbergin með stórum svölum.
MNæst á að lækka forgjöfina »6
Gamla Slipphúsið fær nýtt líf
Icelandair Hótel Reykjavík Marina
formlega opnað þar í næstu viku
Morgunblaðið/RAX
Útsýni Jens Sandholt og Einar Ágústsson virða fyrir sér útsýnið úr hótelinu, en úr svítunum má meðal annars sjá mannlíf við höfnina, Esjuna og Hörpu.
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 103. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Missti son sinn og eignaðist annan
2. 15 ára týndur í níu daga
3. Sjö ráð til að verða flottasti …
4. Gleymdi barnabarninu í skottinu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Lára Rúnars heldur í tónleikaferð
um landið ásamt Myrru Rós. Fyrstu
tónleikarnir eru í kvöld í Grindavík og
svo verður spilað á Eyrarbakka, í
Garðinum, Bifröst, Búðardal, Borg-
arnesi, Hvammstanga og Siglufirði.
Lára og Myrra spila
saman úti á landi
Empire greinir frá því að Paula Pat-
ton hafi verið ráðin til að leika í 2
Guns, næstu Hollywoodmynd Baltas-
ars Kormáks. Slæst hún þar með í
hópinn með þeim Mark Wahlberg og
Denzel Washington. Á
meðal mynda sem hún
hefur leikið í ný-
lega er
stórmynd-
in Miss-
ion: Im-
possible
– Ghost
Protocol.
Paula Patton leikur í
2 Guns Baltasars
Miðamerískir
kvikmyndadagar
fara fram í Háskóla
Íslands, Lögbergi,
dagana 12.-14. apr-
íl. Kvikmyndadag-
arnir eru skipu-
lagðir af
nemendum við Há-
skóla Íslands sem
setið hafa námskeið um kvikmyndir
spænskumælandi landa í vetur.
Miðamerískir kvik-
myndadagar
Á föstudag og laugardag Hæg austlæg eða breytileg átt og yfir-
leitt bjartviðri, en stöku él við suðurströndina. Hiti 0 til 4 stig við
suður- og suðvesturströndina en annars 0 til 8 stiga frost.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan- og norðaustanátt, yfirleitt 3-10 m/s
og bjart með köflum en stöku skúrir eða él sunnan- og austan-
lands. Vægt frost norðaustantil en allt að 7 stiga hiti suðvestantil.
VEÐUR
Haukar unnu ævintýralegan
sigur á Njarðvík í þriðja úr-
slitaleiknum um Íslands-
meistaratitil kvenna í körfu-
bolta í gærkvöld og komu í
veg fyrir að heimastúlk-
urnar í Njarðvík fögnuðu
sínum fyrsta titli, sem
blasti við þeim lengi vel.
Staðan í einvíginu er nú 2:1
fyrir Njarðvík og fjórða við-
ureign liðanna verður í
Hafnarfirði á laugardaginn.
»2
Ævintýralegur
Haukasigur
Íslenska karlalandsliðið í íshokkí leik-
ur á heimavelli í fyrsta skipti í sex ár
þegar það mætir Nýja-Sjálandi í
Skautahöllinni í Laugardal klukkan
20 í kvöld. Það er fyrsti leikurinn í A-
riðli 2. deildar heimsmeistaramótsins
sem leikinn
er hér á
landi
næstu
vikuna.
Íslenska
liðið
hefur
aldrei
komist
eins ofar-
lega á HM og
spilar í sterk-
ari deild en
nokkru sinni fyrr.
Leikurinn í kvöld
getur ráðið miklu um
hvort Ísland nær að halda
sæti sínu í þessum styrk-
leikaflokki. »4
Ísland á heimavelli í
Skautahöllinni í kvöld
Spennan í baráttu Manchester-
liðanna um enska meistaratitilinn í
knattspyrnu jókst á ný í gærkvöldi.
City vann þá WBA örugglega, 4:0, á
meðan Wigan vann óvæntan sigur á
Manchester United, 1:0. Fimm stig
skilja liðin að þegar fimm umferðum
er enn ólokið og þau eiga eftir að
mætast á lokasprettinum. »3
Manchester City saxaði
á forskot United
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Icelandair Hótel Reykjavík Mar-
ina verður formlega opnað
miðvikudaginn 18. apríl næst-
komandi og er fullbókað um
aðra helgi, að sögn Hildar Óm-
arsdóttur, forstöðumanns sölu-
og markaðssviðs Flugleiðahót-
ela. „Þetta lítur mjög vel út og
það er vel bókað hjá okkur
fram eftir sumri,“ segir hún.
Hildur bætir við að allt að 80%
nýting hafi verið á herbergjum
Flugleiðahótela í janúar til
mars.
Bókanir lofa
góðu sumri
IÐANDI MANNLÍF