Morgunblaðið - 14.04.2012, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Skákþing Íslands 2012 hófst í gær í stúkunni við
Kópavogsvöll. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri
Kópavogs, lék fyrsta leiknum í skák stórmeist-
aranna Henriks Danielsen og Stefáns Kristjáns-
sonar. Þeir Hannes Hlífar Stefánsson, ell-
efufaldur Íslandsmeistari í skák, og Henrik
Danielsen, Íslandsmeistari 2009, eru einu kepp-
endurnir nú sem áður hafa orðið Íslandsmeist-
arar. Sigurbjörn Björnsson og Björn Þorfinns-
son byrjuðu best allra á mótinu. Björn vann
Guðmund Gíslason en Sigurbjörn vann Guðmund
Kjartansson. Öðrum skákum lauk með jafntefli.
Skákþing Íslands 2012 hófst í gær í Kópavogi
Morgunblaðið/Ómar
Sigurbjörn og Björn byrjuðu best
Glæfraakstur með tilheyrandi véla-
gný, dekkjaýlfri og gúmmíbrælu
veldur íbúum Vestur- og Miðbæjar
Reykjavíkur bæði óþægindum og
áhyggjum, einkum um nætur.
Aðalfundur Félags sjálfstæðis-
manna í Vesturbæ og Miðbæ, sem
haldinn var í vikunni, skoraði á lög-
reglu og borgaryfirvöld „að grípa
þegar í stað til aðgerða gegn hinum
mikla glæfraakstri, sem viðgengst í
hverfinu að kvöld- og næturlagi.
Ástandið er hvað verst við Ána-
naust og á Granda en kvartanir hafa
einnig borist frá íbúum við Hring-
braut og Mýrargötu. Umræddur
glæfraakstur raskar næturró íbúa í
stórum hluta Vesturbæjar og stofn-
ar lífi vegfarenda í hættu. Ekki er
mælt með því að umræddar umferð-
argötur verði þrengdar eða hraða-
hindranir settar á þær, heldur lög-
gæsla hert og þannig komið í veg
fyrir ofsaakstur,“ segir í ályktun sem
var einróma samþykkt.
„Okkur var full alvara með þessari
ályktun,“ sagði Ásmundur Sveins-
son, formaður Félags sjálfstæðis-
manna í Vesturbæ og Miðbæ. Hann
sagði að glæfraaksturinn hefði verið
það mál sem fékk mesta umræðu á
fundinum og málið brynni töluvert
heitt á íbúum hverfanna. Ásmundur
vissi til þess að dekkjaýlfrið og véla-
gnýrinn vestan úr Ánanaustum hefði
heyrst í íbúðum uppi við Landakots-
tún eða í um 2-3 km fjarlægð.
Ásmundur sagði að þessi hættu-
lega aksturshegðun hefði verið látin
viðgangast lengi og vandamálið væri
ekki nýtilkomið, en fólk væri löngu
búið að fá nóg. gudni@mbl.is
Þegar í stað verði gripið til
aðgerða gegn glæfraakstri
Vélagnýr,
dekkjaýlfur og
gúmmíbræla
Morgunblaðið/ÞÖK
Spyrna Beinar götur vestur á
Granda hafa freistað spyrnukappa.
Ljóst er að mikill
ágreiningur er á
milli Reykjavík-
urborgar og
hagsmunaaðila
um kosti þess að
sameina ung-
lingadeildir
Hamraskóla og
Húsaskóla við
unglingadeild
Foldaskóla í
Grafarvogi, að mati mennta-
málaráðuneytisins. Þetta kemur
m.a. fram í bréfi ráðuneytisins til
Foreldrafélags Hamraskóla og
Húsaskóla í Grafarvogi.
Ráðuneytinu barst erindi frá for-
eldrum nemenda í Hamraskóla og
Húsaskóla þar sem óskað var eftir
því að ráðherra léti gera formlegt
mat á því hvort sameining ung-
lingadeilda skólanna væri í sam-
ræmi við lög. Ráðuneytið segir það
vera á valdsviði innanríkisráðu-
neytisins að úrskurða um lögmæti
ákvarðana sem lúta að rekstri
grunnskóla. Hins vegar geti
menntamálaráðuneytið látið í ljós
álit sitt á túlkun og framkvæmd
einstakra ákvæða grunnskólalaga.
Ráðuneytið telur, í ljósi niðurstöðu
undirskriftasafnana meðal foreldra
nemenda í Hamraskóla og Húsa-
skóla, að undirbúningi sameining-
arinnar sé áfátt og „að vinna þurfi
frekar að sáttum í máli þessu.“.
Undirbúningi sam-
einingar unglinga-
deilda er áfátt
Hamraskóli í
Grafarvogi
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Í fyrsta lagi þá geri ég engar at-
hugasemdir við að við svörum þessu
erindi eins og okkar málsvarnar-
teymi leggur til og er sammála um,“
segir Steingrímur J. Sigfússon, ráð-
herra og formaður VG, um aðkomu
ESB að Icesave-málinu. Að sögn
Steingríms kemur afstaða ESB í mál-
inu honum ekki á óvart enda hafi hún
legið fyrir. „Það kemur heldur ekki á
óvart að þeir blandi sér inn í málið,
það var bara spurning um á hvaða
formi það yrði,“ segir Steingrímur og
bætir við: „Þar með er orðin stað-
reynd að við mætum framkvæmda-
stjórn ESB sem andstæðingi í þessu
máli og það er auðvitað pólitískur
veruleiki sem þá liggur fyrir og er
engin leið að útiloka að hafi sín áhrif.“
Spurður hvaða pólitísku afleiðingar
þetta mál muni hafa og hvort það gefi
tilefni til þess að endurskoða aðild-
arviðræðurnar segir Steingrímur:
„Þetta mál er pólitískur raunveru-
leiki sem við stöndum núna frammi
fyrir og tökumst á við, ég ætla á
þessu stigi mála ekki að vera með
nein stór orð um það hvað þetta eigi
að þýða.“ Að sögn Steingríms hefur
þetta óhjákvæmilega áhrif á and-
rúmsloftið í þessum samskiptum.
Ekki ásetningur um leynd
„Menn hafa vandað sig alveg sér-
staklega við að skapa sem mesta
samstöðu um það hvernig við héld-
um á okkar málsvörn og málsvarn-
arteymið var þannig samansett að
höfðu mjög víðtæku samráði við
stjórnarandstöðu, hreyfingar og
hópa sem hafa látið sig þetta varða
og þeir eiga sína aðild að því,“ segir
Steingrímur, aðspurður hvort ekki
sé alvarlegt mál að utanríkisráð-
herra hafi láðst að láta þingheim vita
af málinu, og bætir við: „Þannig að
ég er algjörlega sannfærður um að
það var ekki ásetningur eins eða
neins að halda einhverjum upplýsing-
um frá mönnum, enda hafa þær í
sjálfu sér legið fyrir gagnvart þeim
sem hafa fylgst með málinu.“ Að sögn
Steingríms má segja að það sé
óheppilegt ef menn upplifa það sem
svo að þeir fái stuttan tíma til að und-
irbúa sig undir að svara erindinu en
það liggi algjörlega í því hvernig
þetta mál hefur verið undirbúið að
menn hafa verið að reyna að hafa sem
breiðasta samstöðu um það. „Ég
vek nú athygli á því, sem skiptir
ekki litlu máli í þessu, að mál-
svarnarhópurinn er sammála,
kemst að sameiginlegri niður-
stöðu, sameiginlegum við-
brögðum og sameiginleg-
um svörum.“
Áhrifin óhjákvæmileg
Steingrímur segir það pólitískan veruleika sem liggi fyrir að Ísland mætir ESB
sem andstæðingi í Icesave-málinu Segir enga leið að útiloka að það hafi sín áhrif „Við vorum mjög á einu máli um
að þetta væri fáheyrð ósvífni,“
segir Ögmundur Jónasson, inn-
anríkisráðherra, spurður út í
þingflokksfund VG sem fram fór
í hádeginu í gær en þar var Ice-
save-málið m.a. til umræðu.
Hann segir að halda verði því
aðskildu sem er lagatæknilegs
eðlis og því sem er pólitísks eðl-
is. „Mér finnst full ástæða til
þess að setjast yfir endur-
skoðun á þessu viðræðuferli
öllu,“ segir Ögmundur og bætir
við: „Þetta er enn einn steinn-
inn í þann vegg og ástæða til
þess að taka málið upp.“
Spurður út í pólitískar afleið-
ingar málsins segir Ögmundur
þetta munu án efa hafa áhrif á
afstöðu Íslendinga al-
mennt til ESB.
„Fáheyrð
ósvífni“
ÁSTÆÐA TIL AÐ ENDUR-
SKOÐA AÐILDARFERLIÐ
Ögmundur
Jónasson
Morgunblaðið/Ómar
Formaður Steingrímur J. Sigfússon
Fyrir heimili og vinnustaði
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is