Morgunblaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012
✝ Jónas Þor-steinsson
fæddist á Ytri-
Kóngsbakka í
Helgafellssveit 18.
nóvember 1920.
Hann lést á St.
Fransiskusspít-
alanum í Stykk-
ishólmi 27. mars
2012.
Foreldrar hans
voru Þorsteinn
Bergmann Jóhannsson, f. 6.
mars 1890, d. 20. maí 1921, og
Guðrún Kristjana Jónasdóttir f.
20. júní 1887, d. 10. apríl 1974.
Fósturforeldrar Jónasar voru
Þorsteinn Jónasson, f. 13. apríl
1885, d. 16. janúar 1976, og
Þórleif Kristín Sigurðardóttir f.
13. janúar 1875, d. 6. janúar
1945. Systkini hans voru Jó-
hanna Þórunn, f. 11. maí 1913,
d. 24. apríl 1998, Ingibjörg, f.
17. janúar 1916, d. 22. janúar
1974, og Bergsteinn, f. 19. nóv-
ember 1917, d. 2. júlí 1998.
Fóstursystkini Jónasar voru
Sigurður Þorsteinsson, Þórleif
Kristín Hauksdóttir og Fjóla
Jónsdóttir.
Jónas kvæntist 11. júní 1955
Aðalheiði Bjarnadóttur, f. 26.
september 1932. Foreldrar
hennar voru Bjarni Jónsson, f.
2. september 1908, d. 10. janúar
1962, kvæntur Svölu Jóns-
dóttur, f. 22. febrúar 1962; börn
þeirra eru a) Jón Beck, f. 17.
desember 1981, sambýliskona
hans er Dóra Björk Sigurð-
ardóttir, f. 11. mars 1978; börn
þeirra eru Óðinn Ernir, f. 20.
ágúst 2008, og Ylfa Elísabet, f.
31. ágúst 2011, dætur Dóru eru
Hekla Fönn, f. 28. maí 1996, og
Vaka, f. 30. júlí 2003, b) Rut f. 3.
ágúst 1984, synir hennar eru
Jón Agnar, f. 12. apríl 2006, og
Kristinn Máni, f. 9. okt 2009, c)
Sif, f. 3. ágúst 1984, sonur henn-
ar er drengur, f. 5. apríl 2012,
og d) Guðrún Bergmann, f. 27.
apríl 1999. Fósturdóttir Jón-
asar og Aðalheiðar er 4) Guð-
björg Sigríður Guðbjartsdóttir,
f. 2. febrúar 1968, sambýlis-
maður hennar er Kristinn Ein-
arsson, f. 9. okt. 1957. Sonur
Guðbjargar og Hermanns Her-
mannssonar er Dagur Freyr f.
5. maí 1993.
Jónas ólst upp á Ytri-
Kóngsbakka í Helgafellssveit.
Hann tók við búi fósturforeldra
sinna og var bóndi á Ytri-
Kóngsbakka til ársins 1987 þeg-
ar hann flutti í Stykkishólm þar
sem hann bjó til dánardags.
Jónas var mikill hestamaður og
reið hann út til 87 ára aldurs en
áfram voru hestar hans helsta
umræðuefni.
Útför Jónasar fer fram frá
Stykkishólmskirkju í dag, 14.
apríl 2012, og hefst athöfnin kl.
13.
1990, og Laufey
Valgeirsdóttir, f.
19. ágúst 1917, d. 6.
febrúar 2007. Börn
Jónasar og Að-
alheiðar eru: 1)
Þorsteinn, f. 18.
mars 1956, kvænt-
ur Kristínu Rut
Helgadóttur, f. 30.
nóvember 1957;
synir þeirra eru: a)
Jónas Bergsteinn,
f. 25. sept 1988, b) Aðalgeir
Bjarki, f. 17. maí 1990, sonur
Kristínar er Guðmundur Helgi,
f. 4. janúar 1983. 2) Bjarni, f. 11.
júní 1958, kvæntur Ólafíu Dröfn
Hjálmarsdóttur, f. 11. janúar
1960; börn þeirra eru: a) Heiðar
Þór, f. 20. feb 1979, kvæntur
Ernu Sigurðardóttur, f. 19. júní
1982; börn þeirra eru Brynja
Gná, f. 8. júlí 2002, Íris Birta, f.
18. sept 2004, Harpa Dögg, f.
13. ágúst 2006, og Haukur Orri,
f. 7. júlí 2010, b) Helga Hjálm-
rós, f. 24. maí 1981, sambýlis-
maður hennar er Guðmundur
Tómas Friðriksson, f. 25. sept
1981, dóttir þeirra er Alda
Dröfn, f. 20. ágúst 2011, dóttir
Guðmundar er Tinna Mjöll, f.
13. okt. 2004, c) Jóna Lind, f. 10.
jan. 1988, sambýlismaður henn-
ar er Einar Franz Ragnars, f. 1.
nóv. 1985. 3) Agnar, f. 27. júní
Á þessum tímamótum lítur
maður til baka, rifjar upp gamlar
og góðar stundir frá uppvaxtarár-
unum á Kóngsbakka. Þegar við
vorum á Blíðfaranum á gráslepp-
unni og selveiðunum á vorin út í
eyjar að tína egg, allt voru þetta
ævintýri þegar maður lítur til
baka. Að mörgu leyti var líf þitt
stórt ævintýri líka, þótt vinna
væri oft erfið og mikil þá var það
þitt líf og yndi að hafa nóg að gera
og þegar þú varst þreyttur eða
fékkst í bakið fórstu bara á hest-
bak og komst alheill og hvíldur til
baka. Eða þegar þið Bæring fóruð
með stiga út í klettana í Bjarn-
arhafnarfjalli til að ná í kind sem
var í sjálfheldu, margar svipaðar
sögur eru til af þér og mágum þín-
um í Bjarnarhöfn þegar þið voruð
að hjálpa hverjir öðrum, margar
ótrúlegar svaðilfarir sem urðu að
ævintýrum og skemmtisögum. Á
aðeins átta árum byggðuð þið upp
jörðina, hlöðu, fjós og fjárhús og
stuttu seinna var húsið stækkað
og tekið í gegn. Hestarnir voru
þér alltaf þér ofarlega í huga og
þegar þið ákveðið að flytja í Hólm-
inn var það þitt fyrsta verk að
kaupa hesthús og síðan íbúðar-
hús. Árin þín hér í Hólminum
urðu 25 og þú nýttir þau vel með-
an heilsan leyfði við að ríða út og
stússa í hestunum og hafa hesta-
kaup öðru hvoru, það var toppur-
inn. Ekki vantaði hjálpsemina, ef
maður nefndi við þig að maður
væri að fara að gera eitthvað þá
kom ekki til greina annað en að þú
kæmir og hjálpaðir, sama hvað
það var, þó þú værir kominn langt
á níræðisaldur.
Það var mikil breyting hjá þér
þegar þú misstir bílinn og þurftir
að fara á dvalarheimilið, hestur-
inn, bíllinn og heimilið, allt hvarf
sama daginn og ekki skrítið að því
þér mislíkaði það, en tíminn lækn-
aði þau sár þín og þú sættir þig við
orðinn hlut. Samt léstu nú heyra í
þér öðru hvoru á dvaló en var það
ekki bara nauðsynlegt að siða
stelpurnar aðeins til.
Hafðu þökk fyrir alla hjálpina
og gangi þér vel á nýjum slóðum,
ég sé þig fyrir mér, búinn að finna
klárana þína og farinn að þeysa
um grundirnar á þeim.
Þinn sonur,
Agnar.
Elsku Jónas tengdapabbi er
fallinn frá á 92. aldursári, saddur
lífdaga. Mér er það ljúft og skylt
að láta hugann reika um fyrstu
kynni mín af þeim heiðurshjónum
Heiðu og Jónasi á Kóngsbakka.
Það var einn góðviðrissunnudag í
mars 1974, fyrir 38 árum. Ég og
fjölskylda mín vorum að borða
sunnudagssteikina heima í
Hamrahlíðinni þegar pabbi spyr
mig hvort ekki væri tilvalið að
nota svona góðan dag til að keyra
inn í sveit og vita hvort við fengj-
um að fara á hestbak. Þennan
sunnudag hófst nýtt tímabil í
mínu lífi.
Eins og venja var svignuðu
borðin hjá húsfreyjunni, Heiðu á
Kóngsbakka, sem okkur var boðið
til. Eftir kræsingarnar var farið
niður í fjós þar sem Jónas var að
leggja á hrossin og lék á als oddi
eins og hans var von og vísa. Ég
var sett á brúnstjörnótta hryssu
sem ég heillaðist af. Svo leið að
vori. Hinn 2. júní rann ferming-
ardagurinn upp. Heiða og Jónas
komu brunandi með Stjörnu
mína, minn fyrsta hest, sem var
fermingargjöfin frá mömmu og
pabba. Ég heillaðist af Jónasi
strax í byrjun, alltaf kátur og
glaður með blik í augum og hann
varð mín fyrirmynd í hesta-
mennskunni. Það sem Jónas sagði
voru lög í mínum eyrum. Svo liðu
árin við leik og hestamennsku en
það var ekki mitt eina happ frá
Jónasi að fá fyrsta hestinn minn
frá honum heldur fékk ég líka
strákinn hans, hann Bjarna minn.
Ég á því Jónasi mikið að þakka.
Margar hestaferðirnar fórum við
svo saman við hjónin, börnin okk-
ar, Jónas og pabbi auk margra vel
valinna og góðra ferðafélaga í
gegnum árin. Það kom í hlut
mömmu og Heiðu að trússa og
passa börnin. Ég veit það fyrir
víst að ferðirnar á Landsmót
hestamanna, norður á Vindheima-
mela 1990 og suður á Hellu 1994
ásamt ótal mörgum ferðum á
Kaldármela voru bestu ferðalögin
þeirra Heiðu og Jónasar. Það var
ómetanlegt fyrir börnin okkar að
njóta þess alla sína æsku og fram
á fullorðinsár að vera með þeim í
slíkum ferðum sem mótaði þau til
framtíðar.
Jónas var söngelskur og mikill
selskapsmaður og var það hans
yndi að sitja undir berum himni á
fallegu sumarkvöldi og syngja
með góðu fólki. Þá var ávallt sung-
ið Undir bláhimni og Þú komst í
hlaðið á hvítum hesti. Jónas var
mikill barnakarl og gladdi það
hann mjög síðustu árin þegar
langafabörnin komu í heimsókn,
sungu fyrir hann eða gáfu honum
listaverk eftir sig. Það gladdi
hann jafnframt mjög að heyra
hversu dugleg þau væru að fara á
hestbak, því þá vissi hann að
ræktunin, bæði á mönnum og
hestum, gengi vel og væri á réttri
braut. Elsku Jónas minn, ég gæti
skrifað endalaust um góðar og
ánægjulegar minningar um þig
vegna þess að við vorum einstak-
lega náin tengdafeðgin alla tíð og
aldrei bar skugga á okkar vináttu
á okkar 38 ára samferð. Ég veit
það verður tekið vel á móti þér á
nýjum stað þar sem þú verður
laus úr þreyttum og lúnum lík-
ama. Ég sé þig fyrir mér þeysa
um á horfnum gæðingum. Þannig
ætla ég að muna þig kæri tengda-
pabbi. Að lokum vil ég þakka kær-
lega fyrir mig og mína. Ég tek of-
an fyrir þér Jónas á Kóngsbakka.
Blessuð sé minning um kæran
tengdapabba.
Þín
Ólafía Dröfn.
Elsku afi minn. Það er mjög
skrítið að koma upp á dvalarheim-
ili og heimsækja ömmu og þú ert
hvergi. Þú varst og verður alltaf
svo skemmtilegur, stríðinn og
fyndinn. Ég man vel eftir því þeg-
ar þú varst að gretta þig og ég tók
fullt af myndum af þér. Þú varst
alltaf að fíflast í mér og þú varst
rosalega skemmtilegur og góður
við mig.
Afi, það er mjög erfitt að þú
sért farinn. Þegar ég kom upp á
spítala til þín daginn áður en þú
lést þá brosti ég til þín og fékk ég
þá bros frá þér sem var þitt síð-
asta bros og gladdi mig mikið. Ég
á alltaf eftir að elska þig og mér á
alltaf eftir að þykja vænt um þig
afi minn.
Hvíldu í friði elsku afi.
Þitt barnabarn,
Guðrún Bergmann.
Elsku Jónas afi, þá er komið að
leiðarlokum.
Þegar ég sit hér með pennann
og minnist þess sem við gerðum
saman eftir að ég flutti í Hólminn
með foreldrum mínum og systr-
um 1991 rifjast margt upp.
Við fórum í marga reiðtúra frá
hesthúsunum í Stykkishólmi upp
á Ögur og alltaf kenndir þú mér
eitthvað nýtt um hestana í hvert
skipti sem við fórum saman þang-
að uppeftir, á Vindu og Leira eða
Hnokka og Smára. Ferðirnar á
Kaldármela og út í hvamm í
Bjarnarhöfn eru mjög minnis-
stæðar og ég man alltaf hversu
ánægður þú varst þegar ég gat
sett hnakkinn á sjálfur og farið á
bak án þess að einhver héldi í
tauminn.
Takk fyrir allt elsku Jónas afi.
Ef þú ferð á undan mér
yfirí sælli veröld,
taktu þá á móti mér
með þín sálarkeröld
(Þórbergur Þórðarson)
Takk fyrir allt, elsku Jónas afi.
Jón Beck Agnarsson.
Í dag kveðjum við hann Jónas
afa. Við ólumst upp með þér á
næsta sveitabæ fyrstu árin, svo
enduðum við á því að búa í sömu
götu og þið amma. Við systkinin
vorum stundum í pössun hjá ykk-
ur og fannst okkur það alltaf gam-
an. Oft fengum við að fara með
þér á hestbak og þú lést okkur
alltaf fara á hestinn hennar
ömmu, hann Leira, rosalega góð-
ur hestur sem rétt hreyfði sig, en
þá urðum við ekki hræddar. Það
var alltaf gaman á jólunum þegar
þið amma komuð til okkar og það
verður skrítið að hafa þig ekki á
jólunum eins og hefur verið síðan
við systur fæddumst. Það er
þungbært að þú hafir ekki fengið
að hitta litla prinsinn hennar
Sifjar sem fæddist 5. apríl en við
systur munum segja honum frá
þér þegar hann eldist. Jón Agnar
talar mikið um þig og minnist þín
í öllum bænum sínum á kvöldin og
mun ég halda uppi minningunni
um þig, við bæði Jón Agnar og
Kristin Mána.
Elsku afi, hvíldu í friði og við
vitum það að þú ert á betri stað
núna, en við munum sakna þín.
Við kveðjum þig með þessu
flotta ljóði.
Þér kær var þessi bændabyggð,
þú battst við hana ævitryggð.
Til árs og friðar – ekki í stríð –
á undan gekkstu í háa tíð.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
(Jóhannes úr Kötlum)
Þín barnabörn og barnabarna-
börn,
Rut, Sif, Jón Agnar, Kristinn
Máni og litli Sifjarson.
Kvöldið er fagurt, sól er sest
og sefur fugl á grein
Sólin er sest í jarðnesku lífi
góðs mágs og vinar.
Vorið 1951 varpaði Skjaldbreið
akkerum á Kumbarvogi, hinni
fornu höfn Bjarnarhafnar, með
stórfjölskylduna frá Asparvík á
Ströndum um borð. Þeir höfðu
safnast þar saman ungu piltarnir
úr Helgafellssveitinni til þess að
rétta hjálparhönd við uppskip-
unina. Jónas kom inn í líf fjöl-
skyldunnar frá fyrstu stundu í
nýjum heimkynnum. Elsta systir
okkar Aðalheiður var þá 18 ára,
rösk og glæsileg stúlka og vön að
taka til hendi á stóru heimili. Sú
góða saga er sögð að Heiða hafi
rétt eldavélina þeirra afa og
ömmu upp á borðstokkinn og sagt
„taki nú einhver við“.
Jónas var þá næstur og tók á
móti. Víst er um það, að saman
héldu þau undir eldavélina þegar
henni var skipað á land. Hvort
ástin hafi kviknað á milli þeirra
við Skjaldbreið með eldavélina á
milli sín skal ósagt látið.
Jónas var afburða knapi og átti
góða reiðhesta. Í þann tíma var
það eitt helsta gaman ungs fólks
að fara í útreiðartúra á sunnudög-
um. Reiðtúrarnir með Jónasi eru
ógleymanlegir; upp í Botna, að
Írafelli eða í kringum Bjarnar-
hafnarfjall. Ávallt var Jónas í far-
arbroddi, ríðandi á Jarp sínum,
sem bar af öðrum hestum. Og
þegar áð var tóku allir lagið eða
hlupu í skarðið. Á heimleiðinni
þegar dró að kveldi voru Jónas og
Heiða allt í einu orðin þau síðustu
í hópnum. Heiða var þá komin á
Jarp. Hópurinn hélt áfram.
Jónas og Heiða tóku saman og
hún flutti að Kóngsbakka til Jón-
asar. Áfram var Jónas sami ær-
inginn, hinn góði félagi, ávallt
reiðubúinn. Við minnumst varla
hjálpfúsari eða glaðlyndari
manns. Við krakkarnir dáðum
Jónas. Hann tók öllum sem jafn-
ingjum og hvatti okkur.
Minningarnar eru margar og
góðar: Þegar Jónas kom með
dráttarhestana sína og sláttuvél-
ina og sló túnið. Við áttum þá eng-
an vélakost. Þegar hrossin, hálf-
villt stóð, voru rekin saman niður
í fjöru, sett út í bát og flutt til
vetrarvistar í eyjar. Biluð ljósavél
sem þurfti að skrúfa í sundur,
þótt það tæki daginn og nóttina.
Sækja hross í stóðið upp á fjall
eða út á Botna, reka féð til slátr-
unar, smala til rúnings. Alltaf var
Jónas kominn og með bros á vör.
Eftir að við Ingibjörg hófum
búskap í Bjarnarhöfn nutum við
góðrar sambúðar við Jónas,
Heiðu og fjölskylduna. Jónas
bauð Bjarna elsta syni okkar að
velja sér fyrstu kindina, hana
Móru sem varð ættmóðir fjár-
stofnsins hans í Bjarnarhöfn.
Jónas lifði og hrærðist í hross-
um, átti góða gæðinga og vann
glæsta sigra á vettvangi hesta-
mennskunnar. Til síðasta dags
hélt Jónas glampa í augum og
bauð upp á hestakaup. Á níræð-
isafmælinu kom fjölskyldan og
vinir Jónasar saman og glöddust.
Og Jónas brást ekki sínum, held-
ur hreif alla með sinni tæru og
hljómmiklu söngröddu.
Nú kveðjum við góðan mág og
vin og þökkum honum samferð-
ina. Jónas auðgaði lífið, hann bar
með sér gleði, kærleika og reisn.
Þar var það hann sem gaf.
„Hvað er svo glatt sem góðra vina
fundur,
er gleðin skín á vonar hýrri brá“
Við sjáum í anda Jónas á
Kóngsbakka, stoltan og glaðbeitt-
an taka töltsprettinn á honum
Jarp og hleypa út í hið eilífa,
græna vor.
Blessuð sé minning Jónasar
Þorsteinssonar á Kóngsbakka.
Ingibjörg Kolka
og Jón Bjarnason.
Elsku afi okkar, Jónas á
Kóngsbakka, hefur kvatt þennan
heim. Ótalmargar minningar
koma upp í hugann, flestar tengd-
ar hestamennsku, leik og starfi í
sveitinni á Kóngsbakka. Við átt-
um svo margar frábærar sam-
verustundir með honum í gegnum
árin. Fórum með honum í hesta-
ferðir á hverju einasta sumri allt
frá því við vorum smábörn og
fram á fullorðinsár, ýmist á Snæ-
fellsnesinu eða landshluta á milli.
Þessar ferðir eru okkur ógleym-
anlegar og teljum við það vera al-
gjör forréttindi að hafa fengið að
kynnast honum með þessum
hætti, hann var í senn vinur okkar
og afi. Alltaf reiðubúinn að hjálpa
okkur og aðstoða. Við vorum oft á
hestum frá afa, hann var alltaf til í
að lána okkur þá hesta sem við
vildum og hentuðu hvort sem
okkur vantaði hest í ferð eða á
keppnisvöllinn. Afi var alltaf
fyrstur manna á öll hestamót og
fylgdist hann með okkur meðan
við vorum að keppa.
Við komum mikið til ömmu og
afa út á Kóngsbakka. Í sveitinni
var ætíð í nógu að snúast, báts-
ferðir með hross út í eyjar, eggja-
tínsla, lundaveiðar, heyskapur,
sauðburður og smalamennskur.
Ekki má gleyma hestakaupaferð-
unum. Afi var ekki búinn að vera
lengi á mannamótum þegar
heyrðist kallað hestakaup! Við
komum líka mikið til ömmu og afa
eftir að þau fluttu í Hólminn. Það
var alltaf notalegt að vera hjá
þeim og var dekrað við okkur.
Okkur var skutlað þangað sem
við þurftum að fara, afi tók ekki
annað í mál, þá var sest inn í Löd-
una og þeyst af stað og máttu aðr-
ir í umferðinni passa sig! Þetta
voru allt ánægjulegar stundir
sem gleymast seint. Það stendur
upp úr minningunni hvað hann
var alltaf hress, glettinn og tilbú-
inn til þess að bregða á leik með
viðstöddum. Hestar, hestakaup
og hrossastúss voru hans líf og
yndi allt fram á síðasta dag. Hann
spurði oft glettinn á svip þegar
við heimsóttum hann á dvalar-
heimilið hvort við hefðum nokkuð
rekist á klárana hans á leiðinni.
Afi hafði mjög gaman af börn-
um. Það glaðnaði alltaf yfir hon-
um þegar langafabörnin komu í
heimsókn. Hann gantaðist í þeim
og stríddi. Minningin um hann
verður haldin í heiðri og eiga
börnin okkar eftir að fá að heyra
margar sögur um afa á Kóngs-
bakka.
Elsku afi okkar. Það er alltaf
erfitt að kveðja en við vitum að þú
varst tilbúinn að kveðja og feginn
hvíldinni. Góðir vinir og fallnir
gæðingar munu taka á móti þér
og þú munt ríða í hlaðið á hvítum
hesti! Blessuð sé minning þín.
Undir bláhimni blíðsumars nætur
barstu’ í arma mér rósfagra mey.
Þar sem döggin í grasinu grætur,
gárast tjörnin í suðrænum þey.
Ég var snortinn af yndisleik þínum,
ástarþráin er vonunum felld.
Þú ert ljósblik á lífshimni mínum,
þú ert ljóð mitt og stjarna í kveld.
Ég vil dansa við þig meðan dunar
þetta draumblíða lag sem ég ann.
Meðan fjörið í æðunum funar,
og af fögnuði hjartans sem brann.
Og svo dönsum við dátt, þá er gaman
meðan dagur í austrinu rís.
Og svo leiðumst við syngjandi saman
út í sumarsins paradís.
(Magnús K. Gíslason)
Þín barnabörn,
Heiðar Þór, Helga Hjálmrós
og Jóna Lind.
Jónas á Kóngsbakka var kátur
kall, kankvís, spaugsamur og sá
yfirleitt björtu hliðarnar á hlut-
unum. Það er gott að vera í návist
slíkra manna. Ég var svo heppinn
að eiga hann fyrir nágranna í ein
átta sumur þegar ég var í sveit á
Innri-Kóngsbakka og síðar meir
hittumst við reglulega. Það var
ekki leiðinlegt að fara með Jónasi
í göngur og hann hélt þeim sið
allt þar til hann var um 85 ára
gamall. Þegar við hittumst síðast
í göngum var hann akandi,
treysti sér ekki til að sitja hest,
en hann var staðráðinn í því að
næsta haust skyldi hann koma
vel ríðandi. Það gekk nú reyndar
ekki eftir, en hugurinn var sterk-
ur þótt líkamlegt þrek væri farið
að þverra.
Jónas bjó um árabil á Ytri-
Kóngsbakka og tún Kóngsbakka-
bæjanna liggja saman, það var
mikill samgangur á milli bæj-
anna. Heimilisfólkið hittist reglu-
lega og fyrir yngri kynslóðina var
ekki ónýtt að geta hlaupið á milli
bæja. Þannig háttaði til að enginn
var bíllinn á Innri-Kóngsbakka,
en Jónas átti alltaf góða bíla og
hann var ólatur að skutla fólki inn
í Hólm, á héraðsmót eða aðrar
samkomur. Þegar staðið var í
byggingaframkvæmdum komu
menn í vinnu hvor hjá öðrum,
aldrei mátti minnast á borgun,
þetta var vinargreiði sem ein-
hvern tíma yrði gerður upp með
annarri vinnu. Margar hendur
unnu létt verk. Áburðardreifara
áttu bæirnir sameiginlega og það
var alveg í föstum skorðum á
hvaða tíma hvor ætti að nota
hann, það þurfti ekki að ræða.
Tvær eyjar áttu bæirnir saman,
Björn á Innri-Kóngsbakka sá um
selveiðina og þeim hlut var skipt
á milli bæjanna, það var í þann
tíma að hátt verð var á selskinn-
um. Verkaskiptingin var skýr.
Jónas tók við búi á Ytri-
Kóngsbakka af föður sínum og
byggði þar upp myndarleg hús.
Auðséð var að það voru hestarnir
sem Jónas hafði mest yndi af í bú-
skapnum. Hann átti alltaf góða
hesta, byrjaði snemma að höndla
með hross og var séður kaupmað-
ur á því sviði. Hann var þrekmik-
ill og sprettharður ef til þurfti að
taka. Áhlaupamaður til allra
verka. Ólatur að segja frá gamla
tímanum og hvað hlutirnir höfðu
breyst hratt á hans ævi. Ólafur
faðir minn og Jónas voru jafn-
aldrar og fermingarbræður frá
Helgafelli 1934, og þeir höfðu
gaman af því að rifja upp þá tíma.
Jónas Þorsteinsson