Morgunblaðið - 14.04.2012, Page 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012
Söngfjelagið stendur fyrir söngskemmtun og
dansiballi í Iðnó síðasta vetrardag, miðviku-
daginn 18. apríl, kl. 20:30, þar sem tekið verð-
ur fagnandi á móti sumri. Auk Söngfjelagsins
koma fram Barmahlíðarkórinn, Ljótikór og
Karlakór Kjalnesinga, auk þess sem hljóm-
sveitin Belleville tekur lagið. Þegar kórarnir
fjórir hafa sungið nokkur lög, verður sal-
urinn ruddur og gert klárt fyrir dansleik. Inn
á milli atriða verður fjöldasöngur í sal, leidd-
ur af kórunum og harmónikkuleikurum úr
þeirra röðum. Í seinni hálfleik verður dansað
inn í sumarnóttina. Þá leika fyrir dansi
hljómsveitirnar Staðaruppbótin, HR-bandið
og Blek og byttur. Miðasala fer fram í Iðnó.
Fögnuður Frá aðventutónleikum Söngfjelagsins.
Söngur og dans í Iðnó
Unndór Egill Jónsson opn-
ar sýninguna Gandhi vs.
Manson í Galleríi Klósetti í
kvöld kl. 19. „Á klósettinu
skarast þráhyggja vest-
ræns samfélags við að
deila heiminum upp í hið
góða og illa að hætti krist-
innar menningar við vís-
indalegan skilning á virkni
náttúrunnar. Getur sið-
fræði nútímans sætt sig við
miskunnarleysi lífkeðjunnar? Hér mætast
holdgervingar hins góða og hins illa í barátt-
unni um hvor sé betri grænmetisbóndi,“ segir
m.a. í tilkynningu frá sýningarhöldurum.
Gandhi vs. Manson
Unndór Egill
Jónsson
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Öll sköpun og allar breytingar
skapa ákveðinn hita. Það eru alltaf
árekstrar, en þeir geta líka verið
mjög skapandi. Út úr þeim getur
alltaf komið
eitthvað sem
við vitum ekki
hvað er, en get-
ur skipt miklu
máli,“ segir
Kristinn E.
Hrafnsson,
einn þriggja
sýningarstjóra
sýningar sem
nefnist Nún-
ingur og opnuð
verður í Listasafni ASÍ í dag kl. 15.
Sýningarstjórar með Kristni eru
Einar Garibaldi Eiríksson og Ólaf-
ur S. Gíslason. Aðrir sýnendur eru
Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ásmund-
ur Ásmundsson, Berglind Jóna
Hlynsdóttir, Brynjar Helgason,
Christian Hasucha, Elin Wikstr-
öm, Gunnar J. Árnason, Hjálmar
Sveinsson, Hlynur Hallsson, Indr-
iði Arnar Ingólfsson, Ingirafn
Steinarsson, Ívar Glói Gunn-
arsson, Karl Torsten Stallborn,
Katrín Eyjólfsdóttir, Katrína Mo-
gensen, Margrét H. Blöndal í sam-
starfi við Harald Jónsson og
Hörpu Árnadóttur, Nikulás Stefán
Nikulásson, Nína Óskarsdóttir,
Páll Haukur Björnsson, Ósk Vil-
hjálmsdóttir, Ragna Sigurð-
ardóttir, Stefán Óli Baldursson,
Una Ösp Steingrímsdóttir, Unnar
Örn J. Auðarson, Þorvaldur Þor-
steinsson, Þröstur Valgarðsson og
Æsa Sigurjónsdóttir.
Að sögn Kristins er meginþema
sýningarinnar núningur borgar og
menningar og birtingarmyndir
listarinnar í samfélaginu. Sýningin
hverfist þannig um hugmyndir
listamanna sem nýta sér þær sér-
stæðu aðstæður sem borgin býður
uppá, allt frá einfaldri framsetn-
ingu borgarinnar í myndlist til
hverskonar vinnu með staðhætti,
inngrip í opinber rými, jafnt sem
flóknari samfélagslegar tengingar.
Líta á sýninguna
sem vinnustofu
„Við sýningarstjórarnir fórum
að stinga saman nefjum sl. haust
og ræða um ástandið í myndlist-
arheiminum og myndlistina sem
tengist samfélaginu með beinum
hætti. Við höfðum af því áhyggjur
að listamenn væru að lokast inni
með sínar hugmyndir. Út af
ástandinu hefur verið samdráttur
á öllum sviðum og ekki mikið leitað
til listamanna þegar kemur að um-
ræðu um borgina og borgarmál-
efni. Við vildum varpa ljósi á
þetta,“ segir Kristinn þegar hann
er spurður um tildrög sýning-
arinnar.
„Við lítum á sýninguna sem
vinnustofu, þannig að við vissum
ekki og vitum í raun ekki full-
komlega ennþá hvernig sýningin
verður, en okkur sýnist á öllu að
flestir listamennirnir leggi fram
margskonar hugmyndir um það
hvað mætti skoða í borginni og
birta nýja sýn, enda snýst þetta
bara um að nota frjótt fólk til að
hafa áhrif á umhverfið,“ segir
Kristinn og tekur fram að nokkur
verkanna verði aðeins kynnt á sýn-
ingunni en sett upp á ólíkum tím-
um og í margvíslegum birting-
armyndum á víð og dreif um
borgina síðar á þessu ári.
Þeirra er borgin
Athygli vekur að í sýningunni
taka ekki aðeins þátt listamenn
heldur líka fræðimenn. „Snertiflet-
irnir eru mjög margir þegar farið
er að velta fyrir sér eðli borg-
arinnar sem og hvar og hvernig
listin getur birst. Okkur þótti
áhugavert að fá inn á sýninguna
faglegar bollaleggingar fræði-
manna sem skrifa um myndlist,
skipulagsmál og heimspeki. Við
vorum því ekki að biðja fræði-
mennina að skrifa um sýninguna
heldur um hugmyndina að baki
sýningunni,“ segir Kristinn.
Sem lið í því að skapa umræðu
verður vikulega á sýningartím-
anum boðið til umræðna og mál-
þinga um hugmyndir og verkefni
listamannanna og málefni þeim
tengd. „Við lítum svo á að lista-
menn séu hluti af samfélaginu og
að þetta sé ákveðin tegund af sam-
félagsumræðu sem getur farið
fram milli listamanna og borg-
arinnar eða meðal fólks almennt og
út úr því geti komið áhugaverðir
fletir. Það er hægt að ræða fræði-
legu ritgerðirnar sem birtast í sýn-
ingarskránni, sjónarmið annarra
hópa og verkin sjálf. Það eru því
mjög margir fletir á þessu sem
geta komið fram. Okkur langar til
að halda því til streitu út sýning-
artímann að listamenn verði þarna
á ákveðnum tímum og á staðnum
sé umræðuborð,“ segir Kristinn og
tekur fram að ekki sé útilokað að
sýningin breytist á sýningartím-
anum.
Nokkrir þeirra listamanna sem
þátt taka í sýningunni hafa komið
að kennslu í vinnustofu á vormiss-
eri við Listaháskóla Íslands, þar
sem nemendur hafa tekist á við
tengdar listhugmyndir og þróað út
frá þeim verk á sínum forsendum
fyrir sýninguna. „Okkur fannst
þetta mikilvæg tenging enda mikill
suðupottur í Listaháskólanum og
aðkoma nemendanna er ekki síst
mikilvæg, því þeirra er borgin.“
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 13 til 17. Aðgang-
ur er ókeypis.
Skapandi árekstrar
Sýningin
Núningur verður
opnuð í Lista-
safni ASÍ í dag
kl. 15
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Suðupottur „Við lítum á sýninguna sem vinnustofu,“ segir Kristinn og útilokar ekki að sýningin geti tekið
breytingum á sýningartímanum. Nokkur verkanna verða aðeins kynnt á sýningunni en sett upp síðar á árinu.
Kristinn E.
Hrafnsson
Kammerkór Norðurlands heldur tónleika í
Siglufjarðarkirkju á morgun, sunnudag, kl.
17. Á efnisskrá tónleikanna eru eingöngu lög
við texta Halldórs Laxness í tilefni af 110 ára
afmæli skáldsins. Á tónleikunum verða flutt
verk eftir fjölda íslenskra tónskálda.
Tónleikarnir á Siglufirði eru eins konar
inngangur kórsins að tónleikum sem kórinn
heldur í Hörpu sunnudaginn 22. apríl í
tengslum við sérstaka hátíðardagskrá sem
safnið á Gljúfrasteini stendur fyrir dagana
frá 19. apríl til 9. maí. Stjórnandi kórsins er
Guðmundur Óli Gunnarsson.
Úr ljóðum Laxness
Listahátíð Seltjarnarneskirkju 2012 verður
sett í kirkjunni í dag kl. 15 og stendur fram
til 28. apríl nk. Að sögn skipuleggjenda hefur
sérstaklega verið vandað til hátíðarinnar í ár
í tilefni þess að 20 ár eru frá því að hún var
fyrst haldin.
Í setningarathöfninni í dag mun formaður
listahátíðarnefndar, dr. Gunnlaugur A. Jóns-
son prófessor, fjalla um þema hátíðarinnar
sem að þessu sinni er Biblían og menningin.
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur mun flytja
erindi um Karólínu Lárusdóttur, en hún er
myndlistarmaður hátíðarinnar og verður í
kjölfar erindisins opnuð sýning í kirkjunni og
safnaðarheimilinu á nýjum vatnslitamyndum
eftir Karólínu. Þá munu Guðrún Helga Stef-
ánsdóttir sópran, Friðrik Vignir Stefánsson
organleikari og Fanný K. Tryggvadóttir þver-
flautuleikari flytja aríur úr Mattheusar- og
Jóhannesarpassíum J.S. Bachs. Dagskrá
Listahátíðar Seltjarnarneskirkju er birt í
heild sinni á www. seltjarnarneskirkja.is og
www.kirkjan.is.
Listahátíð Seltjarnarneskirkju
haldin fyrst fyrir tuttugu árum
Hátíð Boðið verður upp á m.a. tónleika, fyrirlestra og ljóðalestur
í kirkjunni á næstu tveimur vikum meðan hátíðin stendur.
Morgunblaðið/Ómar
Um helgina lýkur í Hafnarborg sýn-
ingu á íslenskri skartgripahönnun
sem ber yfirskriftina Rætur. Í dag
kl. 15 mun Tinna Gunnarsdóttir
hönnuður taka þátt í leiðsögn um
sýninguna. Línan sem Tinna sýnir á
Rótum ber heitið Ómur (2012) og
samanstendur af hálsmenum, eyrna-
lokkum og hring úr ródíumhúðuðu
silfri. Tinna hannar skartgripalín-
una í samstarfi við Asa, íslenskt fyr-
irtæki sem sérhæfir sig í hönnun
skartgripa. Á sýningunni eru 26 höf-
undar og flestir gripanna eru sér-
staklega unnir fyrir hana. Höfund-
arnir nota fjölbreytt efni, allt frá
dýrum málmum og gimsteinum til
timburs og mosa. „Þannig endur-
speglar sýningin mikla grósku á
þessu sviði hér á landi og vísar jafnt
til náttúrunnar sem og menning-
arlegra eða persónulegra róta höf-
unda,“ segir m.a. í tilkynningu frá
sýningarhöldurum.
Leiðsögn og sýningarlokPÖNTUNARTÍMIAUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 12,
föstudaginn 27. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
Morgunblaðið gefur út
glæsilegt sérblað um
Íslandsmótið
Pepsí-deild karla í
knattspyrnu
4. maí. Farið
verður um víðan
völl og fróðlegar
upplýsingar um
liðin sem leika
sumarið 2012.
ÍSLANDSMÓTIÐ
PEPSÍ-DEILD KARLA Í KNATTSPYRNU 2012
–– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ