Morgunblaðið - 14.04.2012, Side 51

Morgunblaðið - 14.04.2012, Side 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012 Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Hljómsveitin 10cc var ein af merk- ari sveitum áttunda áratugarins, skipuð smellasmiðum sem höfðu allir starfað á bak við tjöld tónlist- arbransans í þónokkur ár, sem lagasmiðir og leiguspilarar. Sveit- in átti blómaskeið sitt þá en hefur starfað fram á þennan dag í ýms- um myndum … og hefur reyndar aldrei haft meira að gera, segir Gouldman Gamlir og ungir -Hvernig komu þessir tónleikar eiginlega til? „Hmmm … ég eiginlega veit það ekki ef ég á að vera hreinskilinn. Það var bara haft samband við umboðsskrifstofuna. Þeir segja okkur hvert við eigum að fara og við förum. Við bara hlýðum (hlær).“ -Það er rífandi gangur í bandinu um þessar mundir, ekki rétt? „Jú, það er alltaf meira og meira að gera. Við höfum gaman af þessu og svo lengi sem það er eftirspurn þá sinnum við henni.“ -Hver er skýringin? Endurnýj- aður áhugi á tónlist frá áttunda áratugnum eða … „Já, ætli það ekki. Hún er svo- lítið forvitnileg, samsetningin á áhorfendahópnum. Við fáum þetta fólk sem fylgdist með okkur í upp- hafi en líka slatta af ungu fólki. Ég spyr sjálfan mig, af hverju? Ólst það upp við þessa tónlist, finnur það þetta á netinu? Ég veit það ekki. En ég fagna því að það komi líka.“ -Hljómsveitin virðist vera í miklum metum hjá „tónlist- arnördum“ sem spá mikið og spekúlera í bandinu. Menn sem lesa blöð eins og Record Collector líkt og það væri biblían sjálf … „(Hlær) … já, og þeir eiga von á góðu í ár þar sem við fögnum 40 ára afmælinu. Það kemur út veg- legur safnkassi, fyrsti safnkassinn sem er helgaður bandinu.“ Hinn hugsandi maður -Það er oft talað um 10cc sem hljómsveit hins hugsandi manns. Textar oft glúrnir og sniðuglegar vísanir í poppsöguna í lagasmíð- unum. Hvað segir þú um þá mynd? Var þetta meðvitað? „Nei. Við vorum bara að hugsa um að búa til góð lög og góðar plötur. Þetta var ekkert planað eða neitt. Farsældin var ómeð- vituð ef svo mætti segja.“ -Það er merkilegt að í upp- runalega bandinu voru allir með- limir lagasmiðir. Þú og Eric Stew- art voruð teymi og síðan Kevin Godley og Lol Creme … „Við komum allir úr mjög ólík- um áttum og vorum undir áhrifum frá mismunandi hlutum þó að við ættum um leið ýmislegt sameig- inlegt. Dýrkuðum eðlilega allir Bítlana, Beach Boys og slíkar snilldarsveitir. En tónlistin sem við gerðum var bara fyrir okkur. Við vorum ekki að elta neina tískustrauma eða slíkt.“ -Hvernig varð bandið eiginlega til upprunalega? Þið voruð allið leiguspilarar, upptökustjórar, út- setjarar og lagasmiðir en það snerist allt um aðra listamenn. „Við vorum alltaf að vinna í hljóðverinu okkar, Strawberry Studios í Stockport, og þegar það var frír tími þar settumst við nið- ur, sömdum lög og hljóðrituðum þau. Og einn daginn föttuðum við allt í einu að þetta væri bara nokkuð gott. Og byrjuðum að gefa út sem 10cc. Og restin er í sögu- bókunum.“ Hræðileg föt og hár -Hvernig upplifðir þú eiginlega þennan áratug tónlistarlega, þ.e. áttunda áratuginn? „Þetta var mjög fjölbreytilegt. Það var proggrokk og þessi há- timbraða tónlist öll. En svo var líka glyspoppið, hljómsveitir eins og Sweet sem bjuggu til frábær popplög. Þetta var mjög áhuga- verður áratugur … hann var reyndar alveg hræðilegur þegar kom að fötum og hári. Því miður eru til ljósmyndir og myndbönd sem sanna þetta. Það eru álögin sem fylgja því að vera í hljómsveit sem starfaði á áttunda áratugn- um.“ „Farsældin var ómeðvituð“  10cc heldur tónleika í Háskólabíói 21. apríl  Morgun- blaðið ræddi við Graham Gouldman sem leiðir sveitina í dag Leiðtogi Graham Gouldman er eini upprunalegi meðlimurinn í dag. Í árdaga Gouldman segir að föt og hár hafi ekki verið til prýði í þá daga. NÝTT Í BÍÓ MÖGNUÐ ÆVINTÝRAMYND Í SAM WORTHINGTON ROSAMUND PIKE RALPH FIENNES LIAM NEESON ÁLFABAKKA 12 14 14 12 12 12 12 12 12 12 12 VIP L L L L L L 7 7 AKUREYRI BATTLESHIPKL. 1 - 3 - 5:20 - 8 - 10:40 2D BATTLESHIP VIPKL. 3 - 5:20 - 8 - 10:40 2D COLDLIGHTOFDAYKL. 5:50 - 8 - 10:40 2D AMERICANPIE KL. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 2D WRATHOF TITANSKL. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 3D FRIENDSWITHKIDS KL. 5:50 2D GONE KL. 8 2D JOHNCARTER KL. 10:40 2D FJÖRFISKARNIRM/ÍSL.TALI KL. 1:30 - 3:40 2D JOURNEY2 KL. 1:30 - 3:40 2D DÝRAFJÖR3D M/ ÍSL. TALI KL. 1 3D THEMUPPETSMOVIE KL. 1 2D L L L 14 12 12 KRINGLUNNI LA TRAVIATAÓPERAÍBEINIÚTSENDINGU KL. 5 COLDLIGHTOFDAYKL. 5:50 - 8:30 - 10:40 (SÝNDSUNNUD.KL. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10) WRATHOF THE TITANSKL. 8 - 10:10 (SÝNDSUNNUD.KL. 5:50 - 8 - 10:10) GONEKL. 5:50 - 8 - 10:10 2D FJÖRFISKARNIRM/ÍSL.TALI KL. 3:40 2D DÝRAFJÖR3DM/ÍSL.TALI KL. 3:40 3D 3D 3D 2D FRÍÐAOGDÝRIÐ ÍSL TAL KL. 2 3D TITANIC3D KL. 4 3D THECOLDLIGHTOFDAY KL. 8 - 10:10 2D FJÖRFISKARNIR KL. 2 2D FRIENDSWITHKIDS KL. 4 2D JOHNCARTER KL. 17:40 2D GONE KL. 8 2D WRATHOF THE TITANS KL. 10:10 2D 16 14 12 12 12 L L L KEFLAVÍK BATTLESHIP KL. 8 2D COLDLIGHTOFDAY KL. 10:40 2D GONE KL. 8 2D AMERICANPIE : REUNION KL. 5:30 2D SVARTURÁLEIK KL. 10 2D LORAXM/ÍSL.TALI KL. 1:30 - 3:30 3D FRIENDSWITHKIDS KL. 5:50 2D SKRÍMSLI Í PARÍSM/ÍSL.TALI KL. 2 - 4 2D EGILSHÖLL 16 7 12 12 12 L L L 12 BATTLESHIP 2 - 2:50 - 5:10 - 8 - 10:10 - 10:502D THECOLDLIGHTOFDAYKL. 5:50 - 8 - 10:20 2D TITANIC KL. 8 3D WRATHOF THE TITANS KL. 5:40 - 8 2D PROJECT X KL. 5:50 2D JOHNCARTER KL. 3 2D JOURNEY2 KL. 1 - 3. 2D FJÖRFISKARNIR KL. 1 2D FRÍÐAOGDÝRIÐ KL. 1 3D 12 L L SELFOSS 16SVARTURÁLEIK KL. 6 - 8 - 10:10 GONE KL. 6 - 8 - 10:10 PUSS INBOOTSM/ÍSL.TALI KL. 2 - 4 FJÖRFISKARNIRM/ÍSL.TALI KL. 2 - 4 Hörku Spennutryllir frá framleiðendum“Girl with the DragonTattoo” og “Safe House”.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.