Morgunblaðið - 19.04.2012, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.04.2012, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 9. A P R Í L 2 0 1 2  Stofnað 1913  91. tölublað  100. árgangur  ó Ú í ó –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG ei nt Ómissandi á pizzuna, í ofn- og pastaréttina, á tortillurnar og salatið. Heimilis RIFINN OSTUR NÝJUNG ÍSLENSKUR OSTUR 100% FJÖLBREYTT OG FRAMSÆKIN FATAHÖNNUN FUGLARNIR KOMA ÚT ÚR SKÁPNUM SPUNI UM ÓRA OG SJÓNARSPIL SAMTÍMANS FINNUR.IS OG VIÐSKIPTI NEMENDALEIKHÚSIÐ 34ÚTSKRIFTARSÝNING 10 Hörður Ægisson Kjartan Kjartansson Líkur á að kjarasamningum verði sagt upp í byrjun næsta árs hafa aukist verulega enda bendir fátt til annars en að forsendur þeirra verði þá brostnar. Þetta sagði Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka at- vinnulífsins, á aðalfundi samtakanna í gær. Allt stefnir í að gengi krónunnar verði mun lægra en forsendur samninganna gerðu ráð fyrir og óvissa ríkir um þróun kaupmáttar þar sem verðbólga hefur verið meiri en gert var ráð fyrir. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, tekur undir þessar áhyggjur að hluta til en bendir á að enn séu átta mánuðir til áramóta. Það sé áhyggjuefni að verðbólga sé áfram há og markmið um kaupmátt gangi eftir. Ef ekki verði brugðist við verði það krafa félagsmanna hans að brugðist verði við því. „Ég hef spurt ríkisstjórn og Seðlabankann þeirrar spurningar hvort þetta veki ekki áhyggjur og hvort þetta sé ekki tilefni til umfjöll- unar um efnahagsstefnuna og að- gerðir stjórnvalda til að koma í veg fyrir að það verði uppnám á vinnu- markaði. Ég hef ekki fengið nein svör við því,“ segir Gylfi. Kaupmáttur dragist saman Ólafur Darri Andrason, aðalhag- fræðingur ASÍ, segir að kaupmáttur hafi verið að styrkjast sé tekið mið af launavísitölu en það sé hins vegar meðaltal launa stórs hóps. Hætta sé á að kaupmáttur þeirra sem fái að- eins lágmarkskauphækkanir sam- kvæmt kjarasamningum standi í stað eða dragist saman ef staða efnahagsmála breytist ekki til batn- aðar. „Það er hins vegar of snemmt að fullyrða nokkuð um það. Það sem mestu máli skiptir er hvort krónan styrkist en hún hefur verið að veikj- ast undanfarið. Við höfum ákveðnar væntingar um að hún styrkist meðal annars með auknum tekjum af ferðaþjónustu í sumar. En það er full ástæða til að hafa áhyggjur af þróuninni,“ segir Ólafur Darri. MRíkisstjórnin er í … »Viðskipti Samningarnir í hættu  Hætta á að kaupmáttur þeirra sem fá minnstar launahækkanir veikist á þessu ári  Forseti ASÍ fær engin svör frá ríkisstjórninni um endurskoðun efnahagsstefnu Forsendur samninga » Í kjarasamningum er gert ráð fyrir að ársverðbólga verði innan við 2,5% í desem- ber 2012, gengisvísitalan verði komin niður í 190 og að kaupmáttur eflist miðað við launavísitölu. » Samkvæmt spá Seðla- banka Íslands verður verð- bólga yfir 3% í desember 2012 miðað við tímabilið frá desember 2011. » Gengi krónunnar stóð í 227,84 eftir gærdaginn. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Landsbankinn spáir fjöldagjald- þrotum í sjávarútvegi nái veiði- gjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar fram að ganga og segir í umsögn sérfræðinga bankans „að tjón bankans af sam- þykkt frumvarps- ins yrði um 31 milljarður króna“. En bank- inn er sem kunn- ugt er að lang- mestu leyti í ríkiseigu og myndi tjónið – afskriftir af bókfærðu virði lána – því falla á skattgreiðendur á beinan eða óbein- an hátt. Uppskrift að fjöldagjaldþrotum Í umsögninni segir að „álagning sérstaks veiðigjalds verði mjög um- fangsmikil og … fari upp í 70% af samtölu reiknaðrar rentu á þremur árum. Slík gjaldtaka myndi leiða til fjöldagjaldþrota“. Síðan er vikið að rannsókn sérfræðinga bankans á áhrifum frumvarpsins á 124 fyr- irtæki. Niðurstaðan er afgerandi: Af fyrirtækjunum 124 eru 74 ekki talin munu geta staðið við núverandi greiðsluskuldbindingar sínar verði veiðigjaldafrumvarpið samþykkt óbreytt. Fjöldi beinna starfa hjá þessum 74 fyrirtækjum sé um 4.000. Sjávarútvegsráðherra og fulltrúar útgerðar tókust á um málið í gær. 4 Tjónið 31.000 milljónir 74 fyrirtæki réðu ekki við afborganir lána Landsbankinn Morgunblaðið/RAX Gleðilegt sumar Greenstone ehf. hefur hætt við áform sín um byggingu gagnavers á Íslandi. Eftir að hafa skoðað nokkra álitlega staði víða um land frá árinu 2008 varð Blönduós fyrir valinu, þar sem gerð var samstarfsyfirlýsing með heimamönnum um uppbygg- inguna, en hún er nú runnin út. Við- skiptavinur Greenstone, sem áform- aði byggingu gagnaversins með félaginu, vinnur nú að því að láta reisa gagnaver í Bandaríkjunum. Sveinn Óskar Sigurðsson, fv. tals- maður Greenstone á Íslandi, stað- festi þessa ákvörðun í samtali við Morgunblaðið. Margt hefði komið þar til, einna helst óviljug ríkis- stjórn við að vinna með fé- laginu að þess- um áformum. „Ísland hef- ur verið að heltast úr lestinni þar sem hið opinbera hefur ekki staðið eðlilega að því að bæta umhverfi fyr- ir þessa fjárfestingu,“ segir Sveinn Óskar. bjb@mbl.is »6 Greenstone hættir við gagnaver á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.