Morgunblaðið - 19.04.2012, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 19.04.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012 Komdu við í næstu verslun sem selur lopann og skoðaðu úrvalið Íslenska ullin er einstök Það fór fyrir brjóstið á LiljuRafneyju Magnúsdóttur, þingmanni VG, þegar Morg- unblaðið sagði frá því á þriðjudag að hún hefði á fundi á Ísafirði, þar sem rætt var um fyrirhugaðar auknar álögur á sjávarútveginn, sagt að „eðlilegt væri að Vestfirð- ingar borguðu til samfélagsins ef þeir vildu fá göng og vegi“.    Henni leið svo illa yfir að þessiskoðun hennar hefði verið kynnt almenningi að hún ítrekaði hana með athugasemd í Morg- unblaðinu í gær. Hún telur að vilji Vestfirðingar bættar samgöngur og óski þeir eftir jarðgöngum til að komast leiðar sinnar að vetr- arlagi, þá skuli þeir sætta sig við að ríkið sjúgi öll verðmæti út úr útgerðinni.    En það er víðar þörf á jarð-göngum og samgöngubótum en á Vestfjörðum, því að annars hefði ríkisstjórn VG og Samfylk- ingar aðeins lagt ofurskattana á vestfirska útgerð.    Norðlendingar vilja komast ígegnum Vaðlaheiði og verða þess vegna að sætta sig við ígildi þjóðnýtingar útgerðarinnar. Aust- firðingar vilja ekki þurfa að fara um Oddsskarð og þess vegna er sjálfsagt að ráðast á útgerðina þar um slóðir. Og Sunnlendingar vilja að hægt sé að sigla á milli lands og Eyja og þess vegna hyggst ríkisstjórnin leggja undir sig útgerðina í þeim fjórðungi.    Allt er þetta í senn eðlilegt,sjálfsagt og sanngjarnt. Um leið er þakkarvert að Lilja Rafney skyldi benda landsmönnum á þessar óhrekjandi röksemdir. Lilja Rafney Magnúsdóttir Ekkert veiðigjald, engir vegir STAKSTEINAR Veður víða um heim 18.4., kl. 18.00 Reykjavík 6 léttskýjað Bolungarvík 1 skúrir Akureyri 3 skýjað Kirkjubæjarkl. 5 skýjað Vestmannaeyjar 4 léttskýjað Nuuk -6 léttskýjað Þórshöfn 5 skýjað Ósló 2 skúrir Kaupmannahöfn 7 skúrir Stokkhólmur 7 heiðskírt Helsinki 5 skýjað Lúxemborg 7 skúrir Brussel 7 skúrir Dublin 8 léttskýjað Glasgow 10 skýjað London 11 skúrir París 10 skýjað Amsterdam 10 skúrir Hamborg 12 léttskýjað Berlín 12 heiðskírt Vín 15 skýjað Moskva 8 skýjað Algarve 17 léttskýjað Madríd 12 léttskýjað Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 15 léttskýjað Aþena 17 skýjað Winnipeg 5 skýjað Montreal 7 léttskýjað New York 14 heiðskírt Chicago 16 skýjað Orlando 28 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 19. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:40 21:15 ÍSAFJÖRÐUR 5:34 21:30 SIGLUFJÖRÐUR 5:17 21:14 DJÚPIVOGUR 5:07 20:47 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Helle Thorning Schmidt, forsætis- ráðherra Danmerkur, hefur til- kynnt Kaj Leo Holm Johannesen, lögmanni Færeyja, að dönsk stjórnvöld hyggist sitja hjá þegar atkvæði verða greidd um það í ráðherraráði ESB hvort refsa beri ríkjum sem stunda ósjálfbærar veiðar. Þetta kemur fram á vefsíðu lög- manns Færeyja en þann titil ber forsætisráðherrann þar í landi. Á vefsíðu lögmannsins segir að af- staða hans sé sú að danska stjórn- in eigi að greiða atkvæði gegn hugsanlegum refsiaðgerðum. Ekki góð fyrir samskiptin Slíkt sendi sterkari skilaboð en að sitja hjá þegar ESB verður hugsanlega veitt heimild til að refsa Færeyingum vegna makríl- veiða. Sú ákvörðun að sitja hjá sé því ekki góð fyrir samskipti Dana og Færeyinga. Hins vegar lýsir stjórn Schmidt sig reiðubúna að láta reyna á lög- mæti hugsanlegra refsiaðgerða á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofn- unarinnar (WTO) og Evrópudóm- stólsins, fari svo að Færeyingum verði refsað vegna veiðanna. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er litið á makríldeiluna sem stórmál í færeyska stjórn- kerfinu en Færeyingar reiða sig sem kunnugt er mikið á sjósókn. Um verulega hagsmuni sé því að tefla. Danir ætla að sitja hjá í makríldeilu Færeyjar Höfnin í Þórshöfn. Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að sakborningar í líkamsárásarmáli víki úr þinghaldi á meðan fórnarlamb- ið gefur skýrslu í málinu. Um er að ræða Vítisengla, fyrrver- andi Vítisengla og fólk tengt samtök- unum. Ákæruvaldið fór fram á að sak- borningar í málinu vikju úr þinghald- inu þar sem það myndi verða fórnar- lambinu, konu, þungbært að gefa skýrslu að þeim viðstöddum og að nærvera þeirra gæti haft áhrif á vitn- isburð hennar. Meðal gagna málsins er vottorð sál- fræðings, sem hefur haft konuna til meðferðar frá 23. desember sl. Í vott- orðinu segir að atvik málsins hafi haft víðtæk og alvarleg áhrif á konuna og að hún þjáist af alvarlegri áfallastreit- uröskun og þunglyndi vegna árásar- innar. Þá segir í vottorðinu að þurfi konan að gefa skýrslu í nærveru ætl- aðra gerenda séu raunverulegar líkur á því að hún muni upplifa ofsakvíða- kast, sem skerða myndi getu hennar til að greina frá reynslu sinni. Þó verður séð til þess að sakborn- ingar í málinu geti fylgst með skýrslu- töku um leið og hún fer fram, svo og að verjendur þeirra geti lagt spurn- ingar fyrir fórnarlambið. Sakborningar í málinu eru fimm og eru fjórir þeirra í gæsluvarðhaldi. Vítisenglum gert að víkja úr réttarsal

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.