Morgunblaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012 Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 & Strandgata 25 • Akureyri • sími 456 1185 • www.tonastodin.is Tónastöðin býður upp á mikið úrval hljóðfæra og nótnabóka fyrir allar tegundir tónlistar og leggur áherslu á góða og persónulega þjónustu. Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu. Við tökum á móti netum Efnamóttakan tekur við veiðafæraúrgangi úr næloni, þ.e: • netaafskurði • hlutum úr flottrolli • nótaefni Fáðu hjá okkur sérsniðna poka undir netaafskurðinn. Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar! Sími 559 2200 www.efnamottakan.is Fjölskylduhjálp Íslands ENGINN ÁN MATAR Á ÍSLANDI HJÁLP Á HEIMASLÓÐUM, Söfnunarreikningur Fjölskylduhjálpar Íslands 546-26-6609, kt 660903-2590. Laugavegi 63 • S: 551 4422 GLEÐILEGT SUMAR SUMARYFIRHAFNIR Í ÚRVALI Sjá sýnisho rn á www.la xdal.is Ný sendin g Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is Full búð af flottum fötum fyrir flottar konur Stærðir 40-60 Gleðilegt sumar! Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Ragnar Önundarson til að greiða Friðriki Hallbirni Karlssyni og Árna Haukssyni hvorum fyrir sig 300 þúsund krónur í miskabætur vegna ummæla sem hann lét falla í blaðagreinum sem birtust í Morgun- blaðinu í ágúst og september á síð- asta ári. Í greinunum fjallaði Ragnar um kaup Árna og Hallbjörns á stórum hluta í Húsasmiðjunni á árinu 2002, sem síðan var seldur í byrjun árs 2005. Fyrri greinin birtist undir aðal- fyrirsögninni: „Banki skilur neyt- endur eftir í höndum „féfletta““ og hin síðari: „Borg- arfulltrúi heldur á vit ævintýra“. Héraðsdómur segir í niðurstöðu sinni, að Ragnar hafi í greinunum notað orð á borð við stórfelldan þjófnað og sjálf- töku í tengslum við viðskipti stefnenda og kaup á Húsasmiðjunni. Hafi Ragnar í vörnum sínum í mál- inu freistað þess að færa sönnur á ummælin og draga úr tengingu þeirra við stefnendur en að mati dómsins hafi það ekki tekist og séu allar tilvitnaðar fullyrðingar Ragn- ars rangar og ósannaðar. Þá hafi hann ekki sýnt fram á, að blaðagreinar hans væru fræðandi og upplýsandi og ykju skilning almenn- ings á fjölmörgum þáttum viðskipta- lífsins og hvað þá að skrifin væru lið- ur í almennri umræðu og umfjöllun um skuldsettar yfirtökur og efna- hagshrun. Í tilkynningu, sem Ragnar sendi frá sér í kjölfar dómsins, segist hann ekki ætla að tjá sig efnislega um dóminn, en hafi hann falið lögmanni sínum að kanna hvort ástæða sé til áfrýjunar. Dæmdur fyrir meiðyrði Ragnar Önundarson Katrín Jakobs- dóttir mennta- málaráðherra og varaformaður Vinstri-grænna sagði á opnum fundi Samfylk- ingarinnar í Ár- borg að hún kysi einhvers konar samfylkingu Vinstri-grænna og Samfylkingarinnar í næstu kosn- ingum. Frá þessu segir í forsíðufrétt blaðsins Selfoss – Suðurland sem kom út í gær. Aðspurð um samvinnu og jafnvel sameiningu jafnaðarmanna sagði Katrín mikinn samhljóm með flokk- unum. Það væri ágreiningur milli flokkanna um aðild að Evrópusam- bandinu – sem væri ekkert launung- armál – en að miklu meira sameinaði en sundraði. Hún sjálf hefði alltaf lagt áherslu á friðarmálin. Katrín sagði ennfremur að það hefði tekið tíma að draga upp nýjar línur í málaflokkum sem heyra undir menntamálaráðuneytið eftir 18 ára samfellda setu ráðherra úr Sjálf- stæðisflokknum í því ráðuneyti. Spennandi tímar væru framundan og hún hefði brennandi áhuga og mikinn metnað fyrir sitt ráðuneyti. Vill kosninga- bandalag Katrín Jakobsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.