Morgunblaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 20
Haldið í húsnæði Náttúrufræðistofnunar Íslands, Urriðaholtsstræti 6-8, Garðabæ Mánudaginn 23. apríl 2012, klukkan 15 – 17 Lífsgæði í blágrænu umhverfi - Íslenskt sýnidæmi í Urriðaholti Málþing um sjálfbært vatnafar Viðfangsefnið Við uppbyggingu byggðar verður yfirborð lands ógegndræpt og regnvatnið á ekki lengur greiða leið niður í jarðveginn. Á málþinginu verða ræddar svokallaðar blágrænar lausnir í byggð og tækifæri sem þeim tengjast, en þær eru hluti þeirra innviða sem koma skulu á næstu árum. Rætt verður um hvernig blágrænu lausnirnar geta styrkt um leið hið byggða umhverfi, en þær eru nú þegar til staðar í Urriðaholti í Garðabæ. Málþing kl. 15 – 17 Fundarstjóri - Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæ Kl. 15:00 – 15:10 Setning. Pétur Kristjánsson, formaður VAFRÍ Kl. 15:10 – 15:30 Um sjálfbært vatnafar í nútíð og framtíð. Sveinn Þórólfsson, prófessor, Norwegian University of Sience and Technology Kl. 15:30 – 15:50 Framtíðarhönnuðir blágrænna lausna. Hrund Ólöf Andradóttir, dósent, Háskóla Íslands Kl. 15:50 – 16:10 Kaffihlé - Myndband um sjálfbært vatnafar í Urriðaholti Kl. 16:10 – 16:30 Frá hugmynd að veruleika - Blágrænar lausnir í Urriðaholti. Halldóra Hreggviðsdóttir, ráðgjafi hjá Alta Kl. 16:30 – 16:55 Umræður með pallborði Aldís Ingimarsdóttir, stundakennari, Háskólanum í Reykjavík Borgþór Magnússon, forstöðumaður vistfræðideildar, Náttúrufræðistofnun Íslands Eysteinn Haraldsson, bæjarverkfræðingur Garðabæjar Sigurbjörg Sæmundsdóttir, deildarstjóri, umhverfisráðuneytinu Sigurður Ingi Skarphéðinsson, tæknistjóri fráveitu, Orkuveitu Reykjavíkur Kl. 16:55 – 17:00 Lokaorð - Slit. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Í lok málþingsins er boðið uppá vettvangsferð um Urriðaholt og Kauptún fyrir þá sem vilja VAFRI Allir velkomnir – Skráning Vinsamlegast skráið þátttöku í síðasta lagi föstudaginn 20. apríl á gardabaer@gardabaer.is borningnum augljóslega gramt í geði við réttarhöldin. Þegar Engh spurði hann um meintan fund hans við eftirlýstan, þjóðernissinnaðan Serba í Líbíu og stofnfund The Knights Templar í Lundúnum missti hann stjórn á sér. „Já, það var fundur í London. Ég er ekki að búa þetta til!“ sagði hann. Ný hefð píslarvættis Í framburði sínum hélt Breivik því fram að hann hefði verið við- staddur téðan stofnfund í Lund- únum ásamt þremur öðrum „her- skáum þjóðernissinnum“. Tilgangur fundarins hefði verið að sameina alla herskáa þjóðernissinna í Evr- ópu og koma á nýrri hefð píslar- vættis. „Kjarni KT-samtakanna er að tengja hetjulegan verknað sér- kennum herskárrar þjóðernis- hyggju,“ sagði Breivik, það skapaði grundvöll fyrir áframhaldandi mót- spyrnu gegn fjölmenningarstefn- unni. Breivik ásakaði saksóknara um að sá efasemdum um tilvist samtak- anna og útskýrði fátækleg svör sín á þann veg að hann vildi ekki gefa upplýsingar sem gætu leitt til þess að aðrir yrðu handteknir. Pirraður Breivik fannst vegið að trúverðugleika sínum í gær. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Dómshaldið á þriðja degi réttar- haldanna yfir Anders Behring Brei- vik snerist að mestu leyti um þær staðhæfingar hans að hann til- heyrði samtökum öfgahægrimanna sem kölluðu sig The Knights Templar. Augljóst var að spurn- ingar saksóknara fóru nokkuð fyrir brjóstið á Breivik, sem glataði ró sinni í fyrsta sinn í réttarhöldunum. Við yfirheyrslur sagði Breivik saksóknaranum Ingu Bejer Engh að tveir menn undirbyggju nú árás- ir í Noregi og gætu látið til skarar skríða hvenær sem væri. „Ég er aðeins einn af mörgum herskáum þjóðernissinnum. Það sem er mikilvægt að hafa í huga er að ég er ekki sá eini og ef kröfum okkar verður ekki mætt, ef Verka- mannaflokkurinn hættir ekki að rífa niður norska menningu, þá mun þetta gerast aftur og aftur,“ sagði Breivik. Sven Holden, annar saksóknari í málinu, dró þessar fullyrðingar Breivik þó í efa í samtali við blaða- menn eftir dómshaldið í gær en vantrú ákæruvaldsins á sannleiks- gildi fullyrðinga Breivik gerði sak- Tapaði rónni vi heyrslur saksók  Breivik mikið í mun að vera trúað  „Ég er ekki að búa þetta til!“  Vill deyja eða vera látinn laus 20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012 Lögregluyfirvöld í Afganistan yfirheyrðu í gær tvo starfsmenn skóla í bænum Rostaq í kjölfar þess að fleiri en 170 konur og stúlkur þurftu að leita læknis- aðstoðar á þriðjudag. Grunur leikur á að öfgamenn andsnúnir menntun kvenna hafi eitrað ferskvatnsbirgðir skólans. Konurnar eru á aldrinum 14-30 ára og meira en helmingur þeirra missti meðvitund að einhverju marki en aðrar kvörtuðu undan svima og ógleði. A.m.k. 25 þurftu að leita frekari læknisaðstoðar í gær og voru m.a. þjáðar af maga- verkjum, hita og uppköstum. „Með tilliti til heilsufarsástands stúlknanna get ég fullyrt að vatn- ið var mengað með einhvers kon- ar eitri. En við vitum ekki enn hvað var notað til þess,“ sagði Hafizullah Safi, læknir á spít- alanum þar sem tekið var á móti stúlkunum, í samtali við CNN í gær. Árið 2010 veiktust fleiri en 100 skóla- stúlkur og kennarar í Afg- anistan vegna svipaðra eitr- ana en yfirvöld segja að söku- dólgarnir séu aðilar sem séu á móti skólagöngu kvenna og friði og stöðugleika í landinu. Í stjórnartíð talíbana, á árunum 1996-2001, var afgönskum stúlk- um oftar en ekki meinað að stunda nám en skólar fyrir þær voru opnaðir á ný í kjölfar inn- rásar Bandaríkjanna og banda- manna. AFGANISTAN Öfgamenn eitra fyrir skólastúlkur Námsmeyjar í Afganistan. tengslum við hneykslið, sem neyddi fjölmiðlajöfurinn til að loka hinu 168 ára gamla dagblaði News of the World í júlí síðastliðnum. Saksóknarar í Bretlandi hafa fengið afhent gögn um 11 aðila sem grunaðir eru um að hafa komið að símahler- unum fjölmiðlafyrirtækja Ruperts Murdoch, þeirra á meðal fjóra blaðamenn og einn lögreglumann. Um er að ræða fjögur aðskilin mál. Eitt varðar blaða- mann og lögreglumann sem m.a. eru grunaðir um brot á lögum um gagnavernd og brot í opinberu starfi en annað varðar meint brot blaðamanns og sex almennra borgara, sem grunaðir eru um að hafa hindrað fram- gang réttvísinnar. Þá varðar það þriðja ásakanir á hendur blaðamanni sem grunaður er um að hafa gert tilraun til að hafa áhrif á framburð vitna og það fjórða blaðamann sem grunaður er um að hafa brotið gegn lögum um rannsókn og meðferð mála. Lögregla hefur lokið rannsókn málanna en yfir- saksóknari, Keir Starmer, sagði í tilkynningu í gær að þau yrðu nú tekin til ítarlegrar skoðunnar hjá saksókn- araembættinu. Lögregla hefur látið alls 43 ein- staklinga lausa gegn tryggingu í kjölfar handtakna í Íhuga ákærur gegn 11 aðilum  Lögregla í Bretlandi afhendir saksóknara gögn í hler- unarmáli  Blaðamenn og lögreglumaður meðal grunaðra Reuters Skandall Símahlerunarhneykslið hefur m.a. kostað erfingja Murdock, James, störf sín hjá samsteypunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.