Morgunblaðið - 19.04.2012, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 19.04.2012, Qupperneq 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012 ✝ MonikaOlechnowicz- Wojciechowska fæddist 10. apríl 1982. Hún lést 5. apríl 2012. Foreldrar henn- ar eru Wieslaw Olechnowicz og Krystyna Olechno- wicz. Bræður henn- ar eru Sebastian Olechnowicz, f. 20. júlí 1975, og Piotr Olechnowicz, f. 19. janúar 1979. Eiginmaður Moniku er Piotr Wojciehowski. Börn þeirra eru: Klaudia Wojciechowska, f. 2. janúar 2000, og Dominik Woj- ciechowski, f. 2. janúar 2000. Monika fæddist í Bialystok í Póllandi og bjó þar til 2001 þegar hún fluttist til Íslands. Monika hóf sambúð með Piotr 1999 og giftu þau sig hinn 23. mars 2012. Monika starfaði fyrst hjá FISK í rækju- vinnslu en hóf störf hjá Grunn- skóla Grundarfjarðar árið 2008 og starfaði þar til æviloka. Jarðarför Moniku fór fram í Grundarfjarðarkirkju 10. apríl 2012. Hetjulegri baráttu Moniku vinkonu okkar er nú lokið. Sú minning sem skærust er í huga okkar um Moniku er bjarta brosið og húmorinn sem lífgaði upp á dagana okkar hvort heldur sem var í vinnunni í grunnskól- anum eða í heimsóknum okkar til hennar. Monika var hundrað prósent mamma, börnin Klaudia og Dominik voru henni alltaf efst í huga og hann Piotr mað- urinn hennar, sem stóð alltaf eins og klettur við hlið hennar í einu og öllu. Þau höfðu átt sam- leið síðan þau voru krakkar sam- an í bekk í barnaskóla í Póllandi. Gaman var að hlusta á Mo- niku tala um bernskuárin í Pól- landi, fjölskyldu sína og vini og fræðast um önnur lönd og ólíka siði. Okkur er ofarlega í huga ferming barnanna þeirra í Pól- landi þegar hún kom með mynd- ir af athöfninni í skólann og sýndi okkur. Hún var mjög stolt af börnunum sínum. Monika var einstaklega gest- risin og bauð alltaf upp á eitt- hvert góðgæti með kaffinu, okk- ur þótti pólska sælgætið alveg sérstaklega gott. Þrátt fyrir ald- ursmuninn náðum við allar vel saman og oft var kátt á hjalla hjá okkur. Til stóð að eyða 30 ára afmælisdeginum þínum á annan hátt en raun varð elsku Monika. Við erum ríkari af reynslu og gleði að hafa átt þig sem vinkonu og vinnufélaga. Hugur okkar er hjá Piotr, Klau- diu, Dominik og fjölskyldu, og ekki má gleyma honum Pjakki, hundinum hennar, sem veitti henni ómetanlega gleði og fé- lagsskap í veikindum hennar. Megi guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Elsku Mo- nika við kveðjum þig með sorg og söknuð í hjarta. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Guð geymi þig. Þínar vinkonur, Dóra, Jenný og Sjöfn. Monika Olechno- wicz-Wojciechowska ✝ AðalsteinnRúnar Em- ilsson fæddist í Reykjavík 19. apríl 1951. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þann 14. mars síðastliðinn. Foreldrar hans eru Áslaug Dóra Aðalsteinsdóttir f. 1934 og Emil Hilm- ar Eyjólfsson f. 1935, d. 2011. Systkini Aðalsteins sammæðra eru Hrafnhildur Linda Stein- arsdóttir f. 1956, Friðjón Gunn- ar Steinarsson f. 1957 og Ólafur Steinarsson f. 1966. Systkini Að- alsteins samfeðra eru Eyjólfur 22.10. 1979, hjúkrunarfræð- ingur, búsett í Belgíu. Önnur kona Aðalsteins var Gunilla Ros- berg. Þau skildu. Um skamma hríð var Aðalsteinn í hjónabandi með Áslaugu Ragnars. Aðalsteinn lauk B.S. prófi í líf- fræði frá Háskóla Íslands árið 1978. Hann starfaði á Raunvís- indastofnun árin 1979-81. Þá fluttist hann til Svíþjóðar með fjölskyldu sinni og stundaði þar framhaldsnám. Aðalsteinn lauk doktorsprófi í lífefnafræði frá Háskólanum í Lundi árið 1988. Árin 1989-1992 var hann búsett- ur í Bandaríkjunum og var í rannsóknarvinnu við Wake For- est University, Bowman Gray School of Medicine. Hér heima starfaði Aðalsteinn hjá Einka- leyfastofunni og síðustu árin vann hann fyrir Patice, vöru- merkja- og einkaleyfastofu. Útför Aðalsteins fór fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu þann 4. apríl 2012. Kjalar Emilsson f. 1953, Þiðrik Krist- ján Emilsson f. 1962, Guðrún Catherine Emilsdóttir f. 1963 og Kjartan Pierre Emilsson f. 1966. Kona Aðalsteins var Edith Vivian Han- sen f. 1950, en þau slitu samvistum. Börn þeirra eru 1) Jóhann Erpur Að- alsteinsson, f. 31.3 1975, læknir og hagfræðingur, búsettur í Sví- þjóð. Kona hans er Soufia Að- alsteinsson f. 27.6. 1987 og eiga þau soninn Alexander Fadi Að- alsteinsson f. 23.4. 2009. 2) Hulda Steinunn Aðalsteinsdóttir f. „Dr. Emilsson, geri ég ráð fyr- ir?“ Þau voru ófá símtölin okkar á milli sem hófust með þessum orð- um – og hann svaraði gjarnan: „Já, dr. Kvaran, geri ég ráð fyr- ir?“ Ég man ekki hvenær þessi gamansami siður okkar Aðal- steins hófst, þar sem við höfðuð- um til þess þegar landkönnuðirn- ir David Livingston og H.M. Stanley hittust í frumskógum Afríku og sá síðarnefndi heilsaði með hinum frægu orðum: „Dr. Livingstone, I presume?“ Þessi orðaskipti voru oft upphafið að fjölbreytilegum og skemmtileg- um samræðum okkar á milli, þar sem við fórum um víðan völl og skiptumst á skoðunum, hömlu- laust, um hvaðeina sem okkur lá á hjarta. Við áttum til að ræða um efni af heimspekilegum, guðspekileg- um og vísindalegum toga, jafnt sem um hversdagslegri hluti. Aldrei kom maður að tómum kof- anum hjá Aðalsteini. Hann var fróður, hugmyndaríkur, eftir- tektarsamur, rökfastur sem og góður hlustandi. Í samræðum okkar komst maður oft á flug, hátt yfir innantómt dægurþras líðandi stundar. Slíkar stundir með Aðalsteini verða ekki fleiri. Hann er farinn. Hann leitaði sér ekki læknisað- stoðar vegna veikinda fyrr en of seint, þegar í óefni var komið. Mér fannst í fyrstu eins og hann hefði látist að óþörfu, með því að hunsa skilaboð líkamans sem áttu að vera honum nægilega skýr. „Af hverju gerðirðu þetta, Aðalsteinn? Þú, sem áttir að vita betur,“ voru mín fyrstu sáru við- brögð við fregninni um fallinn vin. Í dag leita ég huggunar í góð- um minningum um vænan dreng sem gaf meira en hann þáði. Aðalsteinn var ekki gæfumað- ur. Honum lánaðist ekki að njóta helstu gæða lífsins sem skyldi. Þegar þannig fer liggja margar skýringar að baki, þar með talin mannleg samskipti. Aldrei heyrði ég þó Aðalstein segja styggð- aryrði um nokkurn mann sem kynni að hafa gert eitthvað á hans hlut. Honum kann að hafa sárnað en hann kunni að fyrir- gefa. Það veit ég af eigin reynslu. Aðalsteinn „fór á fésbókina“ fyrir nokkru. Ég sendi honum vinarbeiðni um hæl, en það leið og beið og viðbrögð létu á sér standa. Þegar ég innti hann eftir viðbrögðum sagði hann kímnis- lega að hann væri að íhuga málið! Það er skemmst frá því að segja að honum entist ekki aldur til að komast að niðurstöðu um hvort hann ætti að samþykkja mig sem fésbókarvin. Þetta finnst mér í senn táknrænt fyrir félaga Aðal- stein sem og um eðli vináttunnar. Aðalsteinn forðaðist að hleypa fólki of nærri sér af ýmsum for- sögulegum ástæðum. Ég varð aldrei „vefrænn vinur“ Aðal- steins, en ég var vinur hans og hann var vinur minn. Nú er hann farinn á þann stað sem ég held að við höfum orðið ásáttir um að við förum á eftir þessa jarðnesku tilvist. Ég er honum þakklátur fyrir samfylgd- ina. Ágúst Kvaran. Aðalsteinn Rúnar Emilsson ✝ Sigdór Helga-son (Dói) fædd- ist að Laugavegi 72 í Reykjavík þann 18. janúar 1917. Hann lést 30. mars á Landspítalanum við Hringbraut. Foreldrar hans voru Einarína Ey- rún Helgadóttir, f. 16. maí 1891, d. 31. maí 1980, og Helgi Guðmundsson, f. 8. október 1881, d. 30. mars 1937. Systkinin voru sex og er aðeins eitt þeirra á lífi, Fjóla Helgadóttir. Þann 12. októ- ber 1940 kvæntist Sigdór Guð- rúnu Sigríði Eggertsdóttur, f. 18. febrúar 1922, d. 7. maí 2010. Þau eignuðust 3 börn. 1) Björk, f. 14. apríl 1941, maki Ingi B. Sigurðsson, f. 14. desember 1927, d. 12. júní 1992. Þau áttu 4 börn. 2) Rún- ar Helgi, f. 11. júlí 1942, d. 17. maí 2001, maki hans Helga Helgadóttir, f. 12. júní 1952. Saman áttu þau 3 börn en áður átti Rúnar 3 börn. 3) Birgir Þór, f. 18. apríl 1950, maki hans Sigrún Ólafsdóttir, f. 1. febrúar 1947. Birgir á 4 börn. Útför Sigdórs fór fram í kyrr- þey frá Seljakirkju 10. apríl 2012. Elsku Dói, hér sit ég í útlönd- um og hripa niður á blað hinstu kveðjuna til þín þar sem ég sé mér ekki fært að fylgja þér síð- asta spölinn. Alls konar minningabrot renna í gegnum hugann og að sjálfsögðu minnist maður allra þeirra sem á undan eru gengnir: Bíbí þín og Rúnar, pabbi, Hulda, Lauga, Lulla, Mummi og Gúa að ógleymdri nöfnu minni og ömmu og ósjálfrátt ímynda ég mér að þau taki öll á móti þér við söng og píanóleik. Við Ingi bróðir vorum lang- yngstu barnabörn móður þinnar og vorum því óhjákvæmilega ut- anveltu við okkar kynslóð í stórri föðurfjölskyldunni. Það sést best á því að þegar ég fæddist átti amma Eyrún ekki aðeins níu barnabörn, heldur 20 langömmubörn að auki, og átta þeirra voru barnabörn ykkar Bíbíar. Því er skiljanlegt að samskipti okkar við eldri systk- ini pabba einskorðuðust helst við jól og merkisatburði í fjöl- skyldunni en árum saman var aðfangadagur eins konar upp- bótardagur okkar systkinanna: Þá keyrði pabbi okkur hringinn og beið þolinmóður í bílnum á meðan við fengum að fara ein inn og njóta jólakræsinga og óskiptrar athygli. Gnoðarvogur- inn var einn af föstu punktun- um, Bíbí tók okkur í faðminn og kyssti okkur í bak og fyrir og þú sýndir okkur stoltur jólaskreytt heimilið og ræddir við okkur um lífið og tilveruna og gafst okkur heilræði. Seinna meir tók ég við akstr- inum og af minni hálfu lögðust þessar ferðir ekki af fyrr en ég var farin að halda eigið heimili en þá tók Ingi við. Það er miklum ofsögum sagt en oft hefur verið talað um það í fjölskyldunni að ég myndi alla afmælisdaga. Mummi, Lauga og Raggi voru, eins og ég, öll fædd í nóvember og einhvern veginn hafði ég því ákveðið að þú værir líka fæddur í nóvember. Einn fallegan nóvemberdag árið 2002 var ég stödd ásamt vinafólki í myndatökuferð í birkiskógi í innsveitum Katalóníu og fékk allt í einu þá yfirþyrmandi til- finningu að það væri 85 ára af- mælisdagurinn þinn. Ég var ekki í rónni fyrr en ég var búin að komast yfir síma- númerið þitt og þú vissir ekki hvaðan á þig stóð veðrið þegar þú fékkst allt í einu símtal frá útlöndum, 10 mánuðum eftir stórafmælið, en eftir gott hlát- urskast áttum við ágætis sam- tal. Þegar við Alberto vorum síð- ast að sumarlagi á Íslandi kom- um við í heimsókn til ykkar. Bíbí töfraði fram ótal kræsingar eins og hennar var venja og þú sagðir okkur frá veiðiferðum ykkar austur fyrir fjall. Innst inni vissum við að þetta væri í síðasta sinn sem fundum okkur bæri saman en við áttum mjög ánægjulega stund og ég er þakklát fyrir þá minningu. Elsku Björk, Birgir, Fjóla og ástvinir allir, ég sendi ykkur hugheilar samúðarkveðjur á þessum degi. Eyrún Ingadóttir. Sigdór Helgason Mig langar að minnast Bjarna Sveinssonar sem í mín- um augum var glæsimenni og frumkvöðull á mörgum sviðum. Mín fyrstu kynni af honum voru þegar ég sjö ára gömul og hann var að múra húsið hjá foreldr- um mínum og ég veit að hann rukkaði föður minn aldrei af þeirri vinnu, þannig er Bjarna rétt lýst. Hann gerði góðverkin á mörgum heimilum á Akureyri um jól og áramót með því að færa þeim mat og annað sem fá- ir eða engir gerðu sér grein fyr- ir í þá daga, þvílíkur öðlingur. Þetta fór allt mjög hljótt fram þar sem hann vildi ekki að þetta spyrðist út en þannig hjálpaði hann mörgum öðrum sem ég veit um sem ég ætla ekki að tjá mig um. Þannig var Bjarni Sveinsson, hann lét verkin tala en sagði ekki frá því. Alltaf stóð Ásta, konan hans, við hlið hon- um í öllu þessu og studdi hann. Eitt vil ég láta koma fram, að ég kynntist þeim Ástu og Bjarna um 12 ára aldur og því- líkum öðlingshjónum hef ég ekki áður kynnst. Þeim hugn- uðust sex börn, hvert öðru skemmtilegra, en ég kynnist Ingibjörgu, dóttur þeirra, Bjarni Sveinsson ✝ Bjarni Sveins-son fæddist á Akureyri 27. júní 1929. Hann lést á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri 7. apríl 2012. Jarðarför Bjarna fór fram frá Akureyrarkirkju 16. apríl 2012. snemma á lífsleið- inni og er búin að vera mín stoð og stytta í 50 ár og þakka þeim hjónum að hafa fært mér hana. Um leið og ég þakka skemmtilegu stundirnar sem ég hef átt með þessari stóru fjölskyldu, votta ég þeim mína innilegustu samúð. Guð blessi Bjarna Sveinsson, stórkaupmann, atorkumann og glæsimenni sem hann náttúr- lega var. Okkar hinstu kveðjur. Þorbjörg Traustadóttir (Bobba) og Haraldur Árnason. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt sem Guði er frá. (V. Briem) Elsku pabbi minn, þér ber að þakka allt sem þú gerðir fyrir mig og börnin mín, hverjum finnst sinn pabbi bestur, en mér finnst þú alltaf allra bestur. Megi kærleiksljósið umvefja þig. Þín dóttir, Ingibjörg (Stúlla). ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJÖRGVINS ÓLAFSSONAR tæknifræðings, Kirkjulundi 6, Garðabæ. . Halldóra Sigurjónsdóttir, Edda G. Björgvinsdóttir, Birgir Björgvinsson, Ásta Edda Stefánsdóttir, Áslaug Högnadóttir, Páll Haraldsson, Andri Björn Birgisson, Brynja Dóra Birgisdóttir, Týr Fáfnir Stefánsson. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÞÓRUNN E. HAFSTEIN, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans Fossvogi fimmtudaginn 12. apríl, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni á morgun, föstudaginn 20. apríl kl. 15.00. Guðlaugur Björgvinsson, Ásta Margrét Guðlaugsdóttir, Einar Ingi Ágústsson, Hildigunnur Sigrún Guðlaugsdóttir, Gunnlaugur Árnason, Þórunn Björk Guðlaugsdóttir, Erna Guðlaugsdóttir, Guðmundur Gunnarsson og barnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AGNAR TRYGGVASON fyrrv. framkvæmdastjóri Búvörudeildar SÍS, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 11. apríl. Útför fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 20. apríl kl. 13.00. Guðrún Helga Agnarsdóttir, Jón Kristjánsson, Anna Agnarsdóttir, Björn Agnarsson, Sigríður Agnarsdóttir, Tryggvi Agnarsson, Steingerður Þorgilsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.