Morgunblaðið - 19.04.2012, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 19.04.2012, Qupperneq 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012 Silfurhálsmen með agat festi og mynd frá þér Íslensk hönnun og persónuleg gjöf Þeir byrja að koma fyrir alvöru í lok apríl, um leið og sauðburð-urinn hefst,“ segir Ragna B. Aðalbjörnsdóttir sem rekurFerðaþjónustu bænda í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum. Opið er allt árið en ferðamennirnir koma mest á sumrin. Ragna fagnar fimmtugsafmæli í dag. „Ég er ekki búin að skipuleggja neitt en hef heyrt að bóndinn ætli að bjóða mér í óvissuferð,“ segir hún. Afmælisdaginn ber upp á sumardaginn fyrsta að þessu sinni og hefur það áður gerst. „Mamma sagði mér að ég hefði fæðst á sum- ardaginn fyrsta. Það getur passað, þessi árstími á vel við mig.“ Eft- irminnilegasti afmælisdagur Rögnu var 1984, þegar hún hitti mann- inn sinn í fyrsta skipti. Þau giftu sig á þrjátíu ára afmælisdegi hennar og fagna því tuttugu ára brúðkaupsafmæli í dag. Auk ferðaþjónustunnar rekur Ragna stórt kúabú með manni sín- um, Ásgeiri Árnasyni, dóttur þeirra og tengdasyni. Stóra-Mörk er við Þórsmerkurveg sem margir ferðamenn fara um. Ragna segir að útlitið fyrir sumarið sé gott. Gestirnir hafa undantekningarlítið áhuga á að kynnast búskapnum, líta í fjós eða annað þess háttar. „Þetta er skemmtilegt og gefandi starf og verður skemmtilegra með hverju árinu sem líður, sérstaklega þegar maður fær sömu er- lendu gestina aftur og aftur. Ég á orðið vini um allan heim og heim- boð víða,“ segir Ragna. helgi@mbl.is Ragna B. Aðalbjörnsdóttir fimmtug í dag Brúðkaupsdagur Ragna Aðalbjörnsdóttir og Ásgeir Árnason fagna tuttugu ára brúðkaupsafmæli á fimmtugsafmælisdegi Rögnu. Ferðafólkið kemur um sauðburðinn Þ ór Freysson, framleiðandi og upptökustjóri hjá Sagafilm, fæddist í Reykjavík en ólst upp á Akureyri frá því hann man eftir sér. Hann var auk þess í sveit á sumrin hjá afa sínum og ömmu, á Borgarhóli í Eyjafirði frá barnsaldri og til fimmtán ára aldurs. Löggulíf, Stöð 2 og Sagafilm Þór var í Barnaskóla Akureyrar og Gagnfræðaskóla Akureyrar. Hann flutti til Reykjavíkur er hann lék með Baraflokknum 1984 og tveimur árum síðar hóf hann starf sem átti eftir að marka honum stefnu. Hann varð að- stoðarhljóðmaður við gerð kvik- myndar Þráins Bertelssonar, Löggu- líf, 1986, hóf síðan störf hjá Stöð 2 og var þar hljóðmaður í þrjú ár, síðar myndatökumaður í fimm ár og loks framleiðandi og upptökustjóri 1995 og hefur starfað við það síðan, hjá Stöð 2 til 2005 og síðan hjá Sagafilm. Idolið og X Factor Þór hefur stjórnað fjölda sjón- varpsþátta og þáttaröðum, stjórnaði t.d. mörgum tugum þátta með Sigga Hall matreiðslumanni, þáttunum Viltu vinna milljón?, fjórum þáttaröð- um af Idol og einni af X Factor. Þá hefur hann stjórnað Bandinu hans Bubba, Spaugsstofunni sl. tvö ár og stjórnaði þáttunum Dans, dans dans, auk þess sem hann framleiddileiknu þáttaröðina Pressa á Stöð 2. Lék bara með Baraflokkurinn Þór lék á gítar í hljómsveitinni Baraflokknum. Hljómsveitin var við lýði á árunum 1980-85. Hún var án efa vinsælasta hljómsveitin frá Ak- ureyri á níunda áratugnum, var í raun fremur tónleikaband en dans- Þór Freysson 50 ára „Einu sinni á ágústkveldi...“ Þór og Halldóra uppi á Ármannsfelli. Þau hjón eru félagar í gönguhópnum Ussarar. Löggulífið lagði línuna Þór í vinnunni Upptökur á Borgarilmi í Seattle í Bandaríkjunum árið 2011. Elena Holm og Fransiska Una Dagsdóttir héldu tombólu fyrir utan Kjötborg á Ásvallagötu. Þær söfnuðu 3.100 kr. sem þær gáfu Rauða krossi Íslands. Hlutavelta Vestmannaeyjar Aron Guðni fæddist 15. nóvember kl. 0.6. Hann vó 3.835 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Jóhanna Rut Óskarsdóttir og Björn Virgill Hartmannsson. Nýir borgarar Akureyri Gabríel Þór fæddist 24. júlí kl. 2.51. Hann vó 3.752 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Karen Ósk Birgisdóttir og Hilmar Poulsen. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.