Morgunblaðið - 19.04.2012, Page 31

Morgunblaðið - 19.04.2012, Page 31
hljómsveit og undir miklum áhrifum af David Bowie. Baraflokkurinn sendi frá sér þrjár hljómplötur, Baraflokk- urinn, 1981, Lizt, 1982 og Gas, 1983 en síðar kom út safnplatan Zahír, árið 2000. Alvöru göngugarpar Þór starfaði á tímabili fyrir höf- undaréttarsamtök starfsmanna á Stöð 2 en hefur að öðru leyti forðast skipulögð trúnaðarstörf. Hann hefur samt ýmis áhugamál sem vert er að geta um. Ber þar fyrst að nefna tónlistina en þar eru Bítl- arnir og Bowie í hávegum hafðir. Þá sækja þau hjónin mikið til Ítalíu til þess að njóta þar matar, tónlistar, menningar og landsins. Þá eru þau í göngugarpahópnum Ussarar sem fer í sex til sjö daga al- vöru gönguferðir um íslenskar óbyggðir einu sinni á ári. Afmæl- isbarnið er einnig mikill en hógvær fluguveiðimaður og loks er svo Þór eldheitur Þórsari en það er nú bara vegna nafnsins. Fjölskylda Eiginkona Þórs er Halldóra Jak- obsdóttir, f. 25.1. 1960, verkefnastjóri hjá KPMG en þau áttu 30 ára brúð- kaupsafmæli þann 20.2. s.l.. For- eldrar Halldóru voru Jakob Bjarna- son, múrarameistari frá Ögurnesi í Ísafjarðardjúpi, og Soffía Bjarnadótt- ir verslunarmaður, en þau eru bæði látin. Fóstursonur Þórs er Ómar Daði Kristjánsson, f. 26.10. 1976, klippari á Stöð 2, en kona hans er Hildur Gunn- laugsdóttir arkitekt og er dóttir þeirra Soffía Dóra, f. 2011. Börn Þórs og Halldóru eru Þórey Þórsdóttir, f. 16.8. 1992, sem er að ljúka stúdentsprófum frá MR í vor, og Almar Snær Þórsson, f. 1.6. 2007. Systkini Þórs eru Ófeigur Freys- son, f. 26.9. 1958, verkfræðingur í Reykjavík; Jón Arnar Freysson, f. 27.9. 1964, tölvunarfræðingur við Kat- rupflugvöll í Kaupmannahöfn; Auður Hörn Freysdóttir, f. 7.11. 1966, lög- fræðingur, búsett á Akureyri; Heimir Freysson, f. 14.12. 1967, kennari á Akureyri; Gerður Rán Freysdóttir, f. 10.5. 1972, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík; Freydís Eir Freysdóttir, f. 12.1. 1974, grafískur hönnuður, bú- sett á Englandi; Elínborg Sigríður Freysdóttir, f. 30.8. 1975, BA í sál- fræði, búsett á Akureyri. Foreldrar Þórs eru Freyr Ófeigs- son, f. 6.7. 1937, fyrrv. dómstjóri á Akureyri, og Arnheiður Jónsdóttir, f. 29.11. 1937, húsmóðir. Úr frændgarði Þórs Freyssonar Sigurður Ólafsson b. á Bæjum við Djúp María R. Ólafsdóttir húsfr. á Bæjum Stefán Jónsson b. á Munkaþverá Þóra Vilhjálmsdóttir húsfr. á Munkaþverá Ingibjörg Ketilsdóttir frá Ísafirði Bjarni I. Bjarnason í Flatey Guðrún J. Guðmundsdóttir í Flatey Þór Freysson Freyr Ófeigsson fyrrv. dómstj. á Akureyri Arnheiður Jónsdóttir húsmóðir Sigríður Stefánsdóttir húsfr. i Borgarhóli Jón Sigurðsson b. í Borgarhóli Elínborg Bjarnadóttir frá Flatey í Breiðafirði Ófeigur Pétursson framkvæmdastj. á Akureyri Pétur Guðmundsson b. í Ófeigsfirði Ljósmynd/Sigurður Þorgeirsson Baraflokkurinn Hljómsveitin var vinsæl og upp á sitt besta upp úr 1980. ÍSLENDINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012 NUTRILENK GOLD „Fyrir u.þ.b. einu ári kynntist ég Nutrilenk Gold og fann égmjög fljótt fyrir breytingum og er ég allt önnur í dag.Verkirnir í bakinu ogmjöðminni eru sama sem horfnir og öxlin er öll önnur. Ég er komin í ræktina og get lyft lóðum sem var nánast óhugsandi fyrir einu ári.“ Ólína Sverrisdóttir HEILBRIGÐARA LÍF ÁN LIÐVERKJA NUTRILENKGOLD inniheldur vatnsmeð- höndlað brjósk úr fiskbeinum sem er öflugt byggingarefni fyrir liði og bein. NUTRILENKGOLD er framleitt á einstakan hátt svo að líkaminn þinn nýti betur virku efnin íNUTRILENK svo bestur árangur verði. NUTRILENKGOLD viðheldur heilbrigði liða og beina, svo þú getur lifað heilbrigðari lífi án verkja og eymsla. FÆST Í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM OG HEILSUHILLUM STÓRMARKAÐANNA - GENGURVEL.IS 90 ára Sigríður Jónsdóttir 80 ára Anna Kristín Aradóttir Guðríður S. Jónsdóttir Jónína M. Guðmundsdóttir 75 ára Jakob Jónatansson 70 ára Eggert Hauksson Guðbjörg Ólöf Bjarnadóttir Hans Sigfússon Ingibjörg G. Haraldsdóttir 60 ára Árni Finnbjörn Þórarinsson Guðni Guðmundsson Jens Benedikt Baldursson Jón Karl Friðrik Geirsson Sigurður H. Jóhannsson Soffía Magnúsdóttir Sólveig M. Einarsdóttir Þorsteinn Haraldsson 50 ára Birna Björgvinsdóttir Eiríkur Þór Jónsson Eva Björg Erlendsdóttir Hulda Stefánsdóttir Ligita Deltuviené Ragna B. Aðalbjörnsdóttir Þór Freysson 40 ára Abeer M. Khalil Ghanam Anna M. Bielinska- Majewska Aron Kristinn Jónsson Bjarni Pálsson Dóróthea Elísdóttir Hinrik Haraldsson Jaroslava Davíðsson Jóna B. Guðmundsdóttir Magnús Teitsson Ragna Pétursdóttir Róbert Ólafsson Valgerður Guðrún Johnsen Þröstur Jónasson 30 ára Arnar Geir Arnarson Dagný Rós Jensdóttir Elín María Guðbjartsdóttir Eva Ísleifsdóttir Friðbjörn Þór Jónsson Grettir Jóhannesson Jón Guðni Guðmundsson Magnús Edvardsson Ragnheiður Sveinþórsdóttir Sigríður Jóna Ingólfsdóttir Tryggvi Þórhallsson Til hamingju með daginn 40 ára Magnús ólst upp á Akureyri, lærði ensku og bókmenntafræði við HÍ og er gæðastjóri hjá þýð- ingastofunni Skopos. Kona Brynhildur Björns- dóttir, f. 1970, fjölmiðla- kona. Dætur þeirra eru Valgerður Birna, f. 2006, og Sigrún Ásta, f. 2008. Foreldrar: Teitur Jónsson, f. 1947, forseti tann- læknadeildar HÍ, og Val- gerður Magnúsdóttir, f. 1949, sálfræðingur. Magnús Teitsson 30 ára Dagný ólst upp í Reykjavík,lauk BA-prófi í félagsfræði við HÍ og stundar MA-nám í mark- aðsfræði og alþjóða- viðskiptum. Dóttir Alexandra Angela, f. 2002. Foreldrar Birna Gunn- laugsdóttir, f. 1960, tann- tæknir, og Jens Reyn- isson, f. 1957, einka- þjálfari. Fósturfaðir: Björn Jónsson, f. 1961, deildar- stjóri á LSH. Dagný Rós Jensdóttir Dr. Guðrún P. Helgadóttir,skólastjóri Kvennaskólans,fæddist í Reykjavík 19. apríl 1922 en ólst upp á Vífilsstöðum þar sem faðir hennar var yfirlæknir. For- eldar hennar voru Helgi Ingvarsson og Guðrún Lárusdóttir. Synir Guðrúnar Helgadóttur: Ólaf- ur Oddsson sem lést á síðasta ári, cand. mag. og íslenskukennari við MR um árabil, og læknarnir Helgi Jónsson og Jón Jóhannes Jónsson. Bræður Guðrúnar: Lárus yfirlæknir; Sigurður, sýslumaður og bæjarfógeti, og Ingvar, bílainnflytjandi, faðir Júl- íusar Vífils borgarfulltrúa. Móðir Helga á Vífilsstöðum var Júlía, systir Jóns, afa Jóns Helgason- ar, skálds og prófessors, en Guðrún Lárusdóttir var systir Páls, föður Lárusar leikara. Guðrún lauk stúdentsprófi frá MR 1941, BA-prófi í íslensku og ensku 1949 og varð fyrst íslenskra kvenna til að ljúka doktorsprófi við háskólann í Oxford, 1968, þá skólastjóri Kvenna- skólans og einstæð móðir. Hún var ís- lenskukennari við Gagnfræðaskóla Austurbæjar og við MR, var íslenskukennari við Kvennaskólann í Reykjavík á árunum 1955-59 og skólastjóri þar 1959-82. Hún þótti afbragðskennari, hafði alla tíð mikinn áhuga á kennslu og mennt- un og var öðrum konum fyrirmynd um að sækja í sig veðrið og afla sér menntunar þótt lífið leiki ekki alltaf við mann. Guðrún var formaður Bandalags- kvenna í Reykjavík og heiðursfélagi þess, ritstjóri 19. júní, sat lengi í stjórn Hjartaverndar, sat í stjórn Þjóðvinafélagsins og var félagi í Vís- indafélagi Íslendinga. Guðrún valdi, ásamt Valborgu Sig- urðardóttur, ljóðin í Ljóðabók barnanna 1953, vann við Sýnisbók ís- lenskra bókmennta 1953 með Sigurði Nordal og manni sínum, Jóni Jóhann- essyni, og samdi ritið Skáldkonur fyrri alda 1-13. Hún sendi frá sér ljóðabók, bók um föður sinn, Helga lækni Ingvarsson, sem og bækurnar Lárus hómópati og Brautryðjandinn, Júlíana Jónsdóttir skáldkona. Guðrún lést 5. júlí árið 2006. Merkir Íslendingar Guðrún P. Helgadóttir 30 ára Sigríður ólst upp á Akureyri, lauk B.Ed.-prófi frá HA 2008 og kennir við Naustaskóla. Eiginmaður Jóhann Finnbogason, f. 1978, sjó- maður. Börn þeirra: Aldís María, f. 2001, Andri Snær, f. 2004, og Arna Lind, f. 2010. Foreldrar Kristín Kjart- ansdóttir, f. 1961, skrif- stofum., og Ingólfur Hauksson, f. 1960, endur- skoðandi. Sigríður Jóna Ingólfsdóttir „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.