Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Sigurgeir S. White Signal Hljómsveitin er skipuð ungu tónlistarfólki úr ólíkum áttum. Sólrún. Hún segir það skrítið að hafa fengið alla þessa athygli en að sama skapi hafi þetta verið mjög skemmtilegur tími. Sólrún byrjaði að spila á trommur fyrir um fimm árum þeg- ar henni áskotnuðust tímar í trommuleik eftir að eldri bróðir hennar lét af því að berja húðir. ,,Það kom mér náttúrlega mjög á óvart að vera valin besti trommu- leikarinn á Músíktilraunum, sér- staklega þar sem það voru svo margir góðir“, segir Sólrún. Úr ólíkum áttum White Signal var stofnuð af krökkum úr Reykjavík og Hafnar- firði fyrir um ári. ,,Við erum hópur krakka sem langar að spila tónlist. Okkur vantaði til að mynda píanó- leikara og fundum hann á You- Tube. Svo kynntumst við stelpum úr Hafnarfirði sem voru að hætta í hljómsveit og við byrjuðum að spila saman,“ segir Sólrún sem sjálf kemur úr Laugarnesi. Meðlimir sveitarinnar taka all- ir virkan þátt í að semja tónlistina og eru óhrædd við að reyna sig áfram. ,,Okkur finnst frábært að fólk taki eftir því sem við gerum. Við reynum að spila sem fjöl- breyttasta tónlist, bæði með fönki, poppi og popprokki. Í sumar ætl- um við að reyna að reyna að spila erfið lög sem reyna svolítið á okk- ur. Við ætlum líka að búa til okkar eigin lög í danstónlistarstíl. Það er eitthvað sem virkar alltaf og það er gaman að spila,“ segir Sólrún. Æft á fullu Mikið hefur gengið á hjá hljómsveitinni að undanförnu en nú einbeita meðlimir hennar sér að öðrum hlutum. Skyldurnar kalla. „Við erum í smá-pásu sem stendur en um leið og prófunum lýkur ætlum við að hefja æfingar á fullu,“ segir Sólrún en hún útilokar þátttöku í Músíktilraunum aftur eftir ár. ,,Við erum nú þegar búin að taka upp þrjú lög í Stúdíó Sýrlandi og ætlum að reyna að taka upp plötu næsta vetur,“ segir Sólrún að lokum. Sólrún stundar nám við Menntaskólann í Hamrahlíð en er samhliða því í tónlistarnámi í FÍH. ,,Tónlistin er númer eitt hjá mér. Ég hef eng- in önnur áhuga- mál nema að vera með vinum mínum. Það finnst mér skemmti- legast.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012 „Ég hlusta mest á djass og fönk. Sú tónlist heillar mig mest og þegar ég hlusta á tónlist finnst mér flott að heyra spuna. Djasstrommuleikarinn Vinnie Colaiuta er í uppáhaldi hjá mér af þeim erlendu en hann hefur meðal annars spilað með Herbie Hancock,“ segir Sólrún. Þó djass og fönk heilli mest tekur hún einnig eftir flottum trommuleik í öðrum tónlistar- stefnum. „Af íslensku trommuleikurunum er Hrafnkell í Agent Fresco í uppáhaldi hjá mér. Hann spilar í svo ótrúlega flóknum en flottum töktum.“ Hrafnkell Örn Djass og fönk heilla mest HLUSTAR HELST EFTIR TROMMULEIK IBBY á Íslandi tekur þátt í Barna- menningarhátíð í Reykjavík með því að opna bókakaffihús í Foldasafni. En þar mun fara fram viðburðurinn Bókabrellur og bollakökur á morg- un, laugardaginn 21. apríl 13-14. Þangað er hressum krökkum boðið til bollakökuáts og bókaspjalls ásamt rithöfundunum góðkunnu Margréti Örnólfsdóttur og Þorgrími Þráinssyni. Eru allir velkomnir á þennan líflega viðburð. IBBY er skammstöfun á enska heitinu The International Board on Books for Young People en það eru alþjóðleg samtök. IBBY deildir eru nú í 60 ríkjum víðs vegar um heim en Íslandsdeild IBBY var stofnuð í Reykjavík árið 1985 og hafði hún það að aðalmarkmiði að stuðla á all- an hátt að eflingu íslenskra barna- bóka. Barnamenningarhátíð var sett hinn 17. apríl og er þema hátíð- arinnar Uppspretta sem endurspegl- ast með ólíkum hætti í tæplega 200 viðburðum sem börn, og fullorðnir í fylgd með börnum, geta sótt. Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2012 Bókabrellur og bollakökur Girnilegt Bollakökur eru góðar. Árlegur fjölskyldudagur í náttúruperl- unni Gróttu á Seltjarnarnesi verður haldin á morgun, laugardaginn 21. apr- íl. Opið verður út í Gróttu milli 10:30 og 14:30 en þá er hægt að komast fót- gangandi út í eyju. Að þessu sinni er sérstaklega minnt á að núverandi Gróttuviti verður 65 ára í ár. Vitinn er opinn og hægt að fara upp í hann. Sýning um vita verður á neðstu hæðinni en í tilefni af 65 ára afmæli Gróttuvita er ætlunin að faðma vitann eins oft og fólk getur. Í Fræðasetrinu verður hægt að kaupa sér hressingu á milli kl. 10:30 og 14:30 en í Albertsbúð verður helgi- stund klukkan 11 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar og félaga. Á sama stað heldur Kristján Sveinsson sagn- fræðingur fyrirlestur klukkan 12 um Gróttuvita. Á Gróttudeginum gefst tækifæri til að njóta náttúrufegurðar og rannsaka lífríkið í fjörunum sunnan við Gróttu, Seltjörn og Bakkavík. Gott er hafa með sér poka eða fötur til að tína skeljar í fjörunni. Gróttudagurinn 2012 Gróttuviti faðmaður Kvöldsól Í göngutúr út í Gróttuvita. Blúndutoppur 3.990 Kjóll 5.500 Peysa 6.990 Pils 1.690 Kringlan s: 568 6244 Smáralind s: 544 4230 Blússa 3.990 Toppur 3.490 facebook.com/veromodaiceland Alexa Chung jakki Ísland 6990 Danmörk 6900 Ítalía 6840 NÝJAR VÖRUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.