Morgunblaðið - 20.04.2012, Síða 15

Morgunblaðið - 20.04.2012, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012 w w w . o p t i c a l s t u d i o . i sTEG: LINDBERG SPIRIT TEG: CHROME HEARTS TEG: RAY•BAN OPTICAL STUDIO FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ Verslaðu á hagstæðara verði í okkar fullkomnu gleraugnaverslun á fríhafnarsvæðinu í Leifsstöð Á L E I Ð T I L Ú T L A N D A „Við höfum ekki komist að endanlegri niður- stöðu, en þrengt hringinn,“ sagði Jón Ólafsson, haffræðingur hjá Jarðvísindastofnun HÍ og leiðangursstjóri fimm vísindamanna sem fóru í Öskju. Erindið var að leita skýringa á ísleysi Öskjuvatns. Leiðangursmennirnir komu til byggða í gær. Eftir er að vinna úr miklum gögnum sem safnað var í ferðinni. Jón taldi að unnið yrði úr niðurstöðum mælinga í næstu viku. Hann sagði þó næsta ljóst hvaða skýringar gætu verið nærtækastar á því að ís leysti af vatninu með- an önnur vötn á og við hálendið voru ísi lögð. „Vatnið er óvenjulegt því það er jarðhiti í því sem hefur áhrif á varmabúskapinn,“ sagði Jón. „Veðurfarsleg áhrif spila vissulega einhverja rullu líka, en hvaða vægi er þarna á milli erum við ekki tilbúnir að segja neitt um núna.“ Jón sagði að vatnið væri kalt, 1-2°C á flest- um stöðum, og ekki vísbendingar um neinar stórkostlegar breytingar á jarðhitavirkninni á vatnsbotninum. Starfsmenn Vatnajökuls- þjóðgarðs voru með í för og tóku meðfylgjandi myndir. Ljósmynd/Hjörleifur Finnsson Mæla Vísindamenn fóru á gúmmíbát út á Öskjuvatn til að mæla hitastig. Ljósmynd/Hjörleifur Finnsson Við Öskjuvatn Lesið var af jarðskjálftamælum og gerðar GPS mælingar. Engar stórkostlegar breytingar „Við erum nátt- úrlega búin að vera að herða á eftirlitinu með netafjölda og með- afla og ætlum að gera enn betur því það virðast vera ákveðin vandamál með meðafla og jafnvel vísbend- ingar um að hann skili sér ekki í land. Við ætlum bara að setja aukinn kraft í að taka á þessu núna á meðan grá- sleppuveiðarnar ganga yfir,“ sagði Eyþór Björnsson fiskistofustjóri um hert eftirlit með grásleppuveiðum. „Við höfum fengið býsna margar ábendingar um að menn fari frjáls- lega með netafjöldann og skoðun okk- ar um daginn leiddi í ljós að menn voru með of mikið af netum, þeir sem við skoðuðum,“ sagði Eyþór að- spurður hvort mikið væri um að menn færu á svig við reglur. Hann segir grásleppuveiðimenn mega hafa ákveðið hlutfall af meðafla og ef hann fari yfir það sé nauðsyn- legt að menn færi sig á miðunum á staði þar sem hlutfall meðaflategunda er minna og samræmist þá settum reglum. Fregnir hafa borist af því að sjávar- útvegsráðuneytið vinni að reglugerð sem geri veiðimönnum skylt að vitja um netin eigi sjaldnar en á fjögurra daga fresti í stað sex eins og nú. „Ég geri ráð fyrir að þetta snúist um um- gengni,“ sagði Eyþór aðspurður um málið, en hann segir að meðafli á borð við ýsu og þorsk þoli illa að liggja í netum í sex daga. ipg@mbl.is Eftirlit með grásleppu- veiðum hert Grásleppa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.