Morgunblaðið - 20.04.2012, Side 18

Morgunblaðið - 20.04.2012, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012 FRÉTTASKÝRING Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Hugmyndir að nýju skipulagi í Vatns- mýrinni líta nú dagsins ljós, en Nor- ræna húsið, Háskóli Íslands og Reykjavíkurborg efndu til hug- myndasamkeppni um framtíðar- skipulag friðlandsins. Vinnings- hugmyndin, undir yfirskriftinni „Náttúran og norðurljós,“ var unnin af landslagsarkitektunum Aðalheiði Erlu Kristjánsdóttur, Áslaugu Traustadóttur, Kristbjörgu Trausta- dóttur og Þórhildi Þórhallsdóttur hjá Landmótun sf. auk Eva Þorvalds- dóttir sem er líffræðingur og garð- yrkjufræðikandidat. „Hugmyndin sem vann þykir vera með framúrskarandi tillögu að teng- ingu við Hljómskólagarðinn og tjörn- ina með regnbogagöngum undir Hringbraut þar sem breið tenging gefur bæði mannfólki, fuglum og dýr- um að ferðast frítt. Tillagan er líka með norðurljósastíg sem myndar menningaröxul með Hörpu í norður og Háskólann og Norræna húsið í suður,“ segir í tilkynningu. Ljós, skuggi, mannlíf og gróður „Hreyfing norðurljósanna sem lýsa upp himinhvolfið er notuð sem grunnstef í tillögunni þar sem flæði ljóss og skugga, mannlífs og gróðurs rennur saman í eina heild,“ segir í greinargerð með tillögunni og einnig: „Áhersla er lögð á lýsingu og upplifun ljóss og vatns á svæðinu. Birkiskógur umvefur friðlandið í Vatnsmýri og skapar skjól fyrir mannlíf og fugla. Lífæð tillögunnar er norður- ljósastígurinn sem myndar bein tengsl milli Norræna hússins og mið- borgarinnar. Stígurinn er kenndur við norðurljós, hið undursamlega náttúrufyrirbæri sem einkennir Norðurlönd,“ segir í greinargerð til- lögunnar. Á stígnum yrði settur upp menningarviti, einskonar fræðslu- miðstöð um Vatnsmýrina. Menning- arvitanum er ætlað að verða visku- brunnur framtíðarinnar og hann verður notaður til að miðla upplýs- ingum um sögu Vatnsmýrarinnar, líf- ríki hennar og endurheimt votlendis. „Menningarvitinn vakir yfir þekk- ingu mannsins á votlendi á hverjum tíma og nýtir sér ávallt nýjustu miðl- unartækni sem höfðar til almennings. Úr menningarvitanum má upplifa friðlandið og borgarumhverfið frá nýju sjónarhorni,“ segir í greinar- gerð. Stígur á stólpum í friðlandinu Um friðlandið mun liggja stígur úr timbri sem verður opinn vegfar- endum stærstan hluta ársins, en lok- aður á varptíma. Hann mun standa á stólpum og fólk mun komast í návígi við fuglana, geta fylgst með atferli þeirra og skyggnst eftir hornsílum. Votlendisjurtir verði sýnilegri og hægt verður að virða form og liti þeirra fyrir sér á öllum árstímum. Samhliða þessum stígum og teng- ingu við Tjörnina verða settar upp bryggjur þar sem fólk getur notið fuglalífs og náttúrunnar. Einnig verður komið upp aðstöðu fyrir útileikhús, tónleikahald, úti- kennslu og leiksvæði fyrir börn. Í jaðri friðlandsins verður einnig tals- vert af trjágróðri, aðallega birki og víðitegundum. Fer til skipulagsráðs bráðlega Björn Axelsson, umhverfisstjóri Reykjavíkurborgar, segir að verð- launahugmyndin verði kynnt í skipu- lagsráði borgarinnar á næstu vikum. „Þetta gæti orðið fóður inn í heildar- skipulag háskólasvæðisins,“ segir Björn og segir að friðlandið sjálft sé grænt svæði á skipulagi og þar þurfi ekki breytingar á aðalskipulagi en þær þurfi vegna undirganganna. „Það er svolítið inn í tímann sem þetta getur orðið að veruleika,“ segir Björn og bætir við: „Það er nátt- úrlega stórkostlegt að fá þessa teng- ingu á milli Norræna hússins, há- skólasvæðisins, Vatnsmýrar og Hljómskálagarðsins undir Hring- braut, sem er lykilatriði í tillögunni.“ Framkvæmdir eru þegar hafnar inni í friðlandinu. „Við vorum að klára að loka friðlandinu af með síki allan hringinn, og eins lækkuðum við þann hluta sem er næst Háskólanum,“ sagði Þórólfur Jónsson, garðyrkju- stjóri Reykjavíkur. Hann segir það hafa verið gert til að fá landið blaut- ara og betra fyrir fugla en einnig til að losna við þistil sem grasseraði á svæðinu. Aðrar framkvæmdir á svæðinu eru ekki ráðgerðar á árinu. Hringbraut Meginþemað í vinningstillögu samkeppninnar um hugmyndir að nýju skipulagi í Vatnsmýri er tenging á milli mýrarinnar og Hljómskálagarðsins með göngum undir Hringbraut. Nýtt skipulag í Vatnsmýrinni  Nýjar hugmyndir að skipulagi Vatnsmýrarinnar ganga út á göngustíg undir Hringbraut og teng- ingu við Hljómskálagarðinn  Menningarviti, aukið mannlíf og náttúruskoðun einnig meginþemað Vatnsmýrin Svæðið í heild verður svona samkvæmt vinningstillögunni. „Við höfum verið óánægð með hversu svæðið var ófrágengið,“ segir Katrín Ragnars, arkitekt hjá Nor- ræna húsinu, en umbætur á um- hverfi Vatnsmýrarinnar hafa verið í undirbúningi síðustu þrjú árin. „Við hugsum svæðið í kring sem umgjörð fyrir Norræna húsið, Öskju og frið- landið,“ segir Katrín og segir svæðið aldrei hafa verið klárað. Þess vegna var ákveðið að efna til hugmynda- samkeppninnar alls staðar á Norð- urlöndunum og bárust alls 14 til- lögur í keppnina, þar af sex frá Íslandi. Dómnefnd skipuðu fimm manns, þar af danskur landslags- arkitekt, Stig Lennart Andersson, prófessor við Kaupmannahafnar- háskóla. „Þessi hugmynd um norðurljós er sú að vera með eitthvað sem bylgjaði sig alla leið niður í miðbæ. Gera svona ljóslínu og svo út frá því spil- aðist þetta,“ segir Áslaug Trausta- dóttir, ein af höfundum vinnings- tillögunnar. „Svo kom þessi hugmynd að gera undirgöng undir Hringbraut. Við vildum fá und- irgöng sem væru flott á daginn og nóttunni. Á daginn ert þú með vatnið við hliðina á þér þannig að þau virka eins og náttúran fari í gegn, en á nóttunni er þetta ljós.“ Ástæða fyrir undirgöngum í stað göngubrúar hafi verið sú að þær vildu ekki skemma sjónlínuna á milli Vatnsmýrarsvæð- isins og miðborgarinnar. Áslaug seg- ir menningarvitanum ætlað að tengja Háskólann inn á svæðið, auka fræðslu, opna það og gera þægi- legra. Hún segir þær mikið hafa spáð í hvernig þetta ætti að vera en það hafi endað í byggingu sem þess- ari. Ein af forsendum samkeppn- innar var að koma með hugmyndir að kynningu og miðlun upplýsinga um svæðið. Hún segir staðinn eiga að draga út þekkinguna úr háskól- anum um þætti eins og vatnalíffræði mýrarinnar og menningarvitinn eigi að vera margmiðlunarmiðstöð með nýjustu upplýsingum. „Þarna væri jafnvel hægt að hafa skjá þar sem þú horfir á eitt hreiðrið eða ofan í vatn- ið og sérð lífið þar. Svo er birkiskóg- urinn sem okkur fannst tengja þetta saman við Hljómskálagarðinn og gefa Háskólanum sinn háskólagarð. Þar vantar algjörlega notalegan garð. Við vildum íslenskan birki- skóg. Hann er opinn og virkar þægi- legur, líka á kvöldin.“ Notalegt umhverfi að degi sem nóttu Katrín Ragnars Áslaug Traustadóttir Ný sending Fallegir bolir fyrir konur á öllum aldri Margir litir og gerðir Stærðir S-XXXL Einnig eigum við alltaf vinsælu velúrgallana Stærðir S-XXXL Verið velkomin Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.