Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012 ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939 Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 23:30 Opið um helgar frá 18:00 - 23:30 frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar ÞRÍR FRAKKAR Café & Restaurant Nýr soðinn rauðmagi í hádeginu Nú er að ljúka sextugasta starfsári Lionshreyfingarinnar á Íslandi en fyrsti klúbburinn, Lionsklúbbur Reykjavíkur, var stofnaður 14. ágúst 1951. Lionsfélagar af öllu landinu hafa með margvíslegum hætti fagn- að þessum tímamótum undanfarið ár og haldið um leið hátt á lofti merkjum og gildum Lions sem er fjölmennasta þjónustuhreyfing í heimi, stofnuð árið 1917 og er nú skipuð yfir 1,3 milljónum félaga í um 45.000 klúbbum í yfir 200 löndum. Ísland er eitt af þessum löndum og hér starfa 89 Lionsklúbbar og einn Lionessuklúbbur með um 2.300 félaga. Lions er vettvangur fyrir konur og karla á öllum aldri sem vilja láta gott af sér leiða á sviðum mannúðar og menningar. Við leggj- um fjölmörgum verkefnum lið þar sem við tökum til hendinni í orðsins fyllstu merkingu, söfnum fjár- munum til kaupa á margvíslegum búnaði, ekki síst fyrir heilbrigð- isstofnanir víðs vegar um landið. En um leið og ekki síður erum við fé- lagsskapur fólks héðan og þaðan úr samfélaginu sem nýtur þess sam- félags sem er grundvöllurinn að öllu okkar starfi. Við myndum sterk vin- áttubönd sem fléttast saman í klúbb- unum og milli þeirra, hér á landi og um allan heim. Hver klúbbur leitast við að styðja byggðarlagið sitt en félagarnir taka einnig þátt í verkefnum á lands- og jafnvel heimsvísu. Enda starfrækir alþjóðahreyfing Lions m.a. öflugan hjálparsjóð sem veitir fjármuni til ýmissa fjárfrekra verkefna sem ætl- að er að styrkja innviði samfélaga. Það er okkur Íslendingum bæði ánægja og heiður að sjóðurinn hefur nú ákveðið að leggja hátt í 10 millj- ónir króna til kaupa á augnlækn- ingatæki fyrir Landspítala – há- skólasjúkrahús sem Lions færir þjóðinni í tilefni af 60 ára afmælinu. Við sjálf, Lionshreyfingin á Íslandi, söfnum öðru eins því tækið kostar um 20 milljónir króna. Gjöfin er táknræn því alþjóðlega Lionshreyfingin hefur frá upphafi kappkostað að veita blindum og sjónskertum sérstakan stuðning. Að sama skapi var það Lionsfólki dýr- mætur heiður á afmælisári að Blindrafélag Íslands skyldi veita hreyfingunni „Samfélagslampann“ í þakklætisskyni fyrir dyggan stuðn- ing í áranna rás. Í raun má segja að meginhlutverk Lionsfólks sé að virkja samfélagið til þátttöku og stuðnings við samborg- ara sína sem á þurfa að halda, oft tímabundið en stundum til lengri tíma. Auk þess að standa vörð um blinda og sjónskerta höfum við t.d. unnið að verkefnum sem tengjast annarri fötlun, sjúkdómum, börnum og öldruðum og við vinnum einnig að því að bæta umhverfi okkar, s.s. með skógrækt. Þannig er Lionshreyfingin ein af driffjöðrum samfélagsins, einn af máttarstólpunum, skipuð sam- heldnum sjálfboðaliðum sem njóta þess að vinna öðrum til heilla. Fyrir hönd fjölumdæmisráðs færi ég öllu Lionsfólki mínar bestu þakkir fyrir frábært starf undanfarin 60 ár um leið og við minnumst stofnendanna og þeirra sem fallnir eru frá en helg- uðu þjóðinni krafta sína og starf undir merkjum Lions. Og sérstakar þakkir færum við þjóðinni sem af ör- læti sínu hefur stutt Lionshreyf- inguna með fjárframlögum og öðr- um hætti um áratugaskeið með von um áframhaldandi farsælt samstarf um ókomin ár. ÁRNI V. FRIÐRIKSSON, fjölumdæmisstjóri Lions á Íslandi. Lions virkjar samfélag- ið til góðra verka Frá Árna V. Friðrikssyni Eina vitræna leiðin til að afnema gjald- eyrishöftin, hælbit sem flestir vilja losna við, er með upptöku fastgengis. Með fast- gengi verður tekin upp „reglubundin peningastefna“ en henni fylgja aðhalds- söm ríkisfjármál og efnahagslegur stöð- ugleiki. Fagna ber að Seðlabankinn verður lagður niður og lands- menn losna við það bullandi sukk og tor- greindar ákvarðanir sem fylgja slíkum stofnunum. Fastgengi er hægt að framkvæma með tvennu móti. Annars vegar með upptöku Kanadadals og hins vegar með upptöku innlends ríkisdals út- gefins af myntráði, með Kanadadal sem stoðmynt. Aðrir er- lendir gjaldmiðlar koma einnig til álita, fyrir utan evru sem af póli- tískum ástæðum er ónothæf. Mjög auðvelt er að breyta úr Kanadadal yfir í ríkisdal, ef talið er henta. Það verður samt ekki gert án sam- þykkis þjóðarinnar. Ef landsmenn vilja losna við gjaldeyrishöftin fljótt og koma á efnahagslegum stöðugleika er að- ferðin sú að gera Kanadadal strax að lögeyri, samhliða gömlu og lúnu krónunni. Hugsanlega er hægt að semja við seðlabankann í Kanada um að hann selji Íslandi nauðsyn- legt grunnfé (kr. 40 milljarðar) á kostnaðarverði. Ef samningar nást ekki við Kanada er sjálfgefið að hefja tafarlaust undirbúning að stofnun myntráðs. Til að tryggja myntráðinu traust er nauðsynlegt að festa ákvæði um það í stjórnarskrána. Hér eru dæmi um nokkur slík ákvæði. Fyllri lista er hægt að sjá á vefsetri Samstöðu þjóðar: http://samstada- thjodar.blog.is/blog/ samstada-thjodar/ entry/1233617/ Ákvæði um mynt- ráð, sem setja þarf í stjórnarskrána  Myntráð Íslands hefur einkaleyfi til út- gáfu ríkisdals, sem ásamt Kanadadal er lögeyrir í landinu. Eft- ir sem áður skulu eng- ar hömlur settar á notkun annarra gjald- miðla á Íslandi. Frjáls notkun gjaldmiðla telst til fullveldisréttinda landsmanna.  Tilgangur Myntráðs Íslands er að annast myntsláttu fyrir lands- menn, gefa út bæði mynt og seðla í rík- isdölum. Myntráðið skal á öllum tímum tryggja að ríkisdalir séu að fullu skiptan- legir á föstu skiptigengi fyrir Kan- adadali.  Myntráð Íslands skal gefa út rík- isdali í seðlum og mynt. Myntráðið skal láta prenta seðlana erlendis, en myntina er heimilt að láta slá innanlands. Myntráðinu er hvorki heimilt að taka við innlánum né veita lán.  Stoðmynt myntráðsins skal vera Kanadadalur og skiptihlutfall hans gagnvart ríkisdal vera einn ríkis- dalur á móti einum Kanadadal. Myntráðið veitir ekki móttöku öðr- um gjaldmiðlum en ríkisdölum og Kanadadölum.  Myntráðinu er ekki heimilt að taka gjald fyrir að skipta úr rík- isdal í Kanadadal, eða öfugt.  Myntráðið skal hefja starfsemi með nægan forða af ríkisdölum í seðlum og mynt, sem nemur að jafnvirði rúmlega 100% af áætl- uðum krónum í umferð, sem gefnar hafa verið út af Seðlabanka Íslands.  Seðlabanki Íslands skal innan árs frá stofnun myntráðsins skipta gegn Kanadadölum öllum íslensk- um krónum sem hann hefur sett í umferð, enda sé þess óskað af eig- endum þeirra. Seðlabankanum er einnig heimilt að skipta íslenskum krónum í ríkisdali, sem hann hefur keypt af myntráðinu eða eignast á annan löglegan hátt.  Myntráðið skal varðveita vara- sjóð sinn í Kanadadölum, eða rík- isskuldabréfum útgefnum af kan- adíska seðlabankanum (Bank of Canada), enda skulu þau hljóða á Kanadadali. Myntráðinu er óheimilt að eiga eða varðveita verðbréf sem útgefin eru af ríkissjóði Íslands, bæjarfélögum eða Íslenskum rík- isstofnunum.  Myntráðið skal setja allan mynt- gróða í varasjóð sinn, þar til vara- sjóðurinn hefur náð að verða 110% af útistandandi ríkisdölum. Vara- sjóðurinn skal metinn í lok hvers árs og ríkissjóði Íslands fært það Kanadadalur + ríkisdalur = afnám gjaldeyrishafta Eftir Loft Altice Þorsteinsson »Ef lands- menn vilja losna við gjald- eyrishöftin fljótt og koma á efna- hagslegum stöð- ugleika er að- ferðin sú að gera Kanadadal strax að lög- eyri. Loftur Altice Þorsteinsson Bréf til blaðsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.