Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012 SanDisk minnislyklar 4GB kr. 1.990 8GB kr. 3.490 16GB kr. 4.990 Þönglabakka 1 (inní Nettó búðinni) » 109 Reykjavík » Sími 587 4900 Landsins mesta úrval af GSM aukahlutum Minniskort og minnislyklar á frábæru verði SanDisk MicroSD minniskort 2GB kr. 1.490 4GB kr. 2.490 16GB kr. 4.990 Cobra talstöðvar í úrvali Frá kr. 7.990 (parið) Viltu læra að afla þér tekna á Ebay? Ebay námskeið Símabæjar standa yfir. Skráning og upplýsingar á simabaer.is Bjóðum einnig SDHC - Compact Flash og Memory Stick minniskort! Alltaf gott úrval af ódýrum GSM símum Verð frá kr. 5.995 Rafhlöður og hleðslutæki fyrir flestar myndavélar USB tvídeilir í bílinn Kr. 2.490 12V tvídeilir í bílinn Kr. 1.49012V tvídeilir og USB hleðslutengi Kr. 2.990 Töskur, veski og hulstur Fyrir flesta farsíma GSM bílhleðslutæki fyrir alla síma Kr. 990 GSM rafhlöður fyrir alla síma Kr. 2.990 Þráðlaus GSM heyrnartól Kr. 3.990 Sjálfstandandi iPad hlífðartöskur Verð frá kr. 4.990 fjármagn sem umfram kann að vera 110%.  Ef myntráðið telur ástæðu til að breyta um stoðmynt, eða gera aðr- ar breytingar á starfsemi ráðsins, skulu slíkar hugmyndir ræddar fyr- ir opnum tjöldum. Ákvörðunum um breytingar skal hrint í framkvæmd innan tólf mánaða frá því að nauð- synlegar breytingar hafa verið gerðar á stjórnarskránni. Enginn verður svikinn af að taka Kanadadal í fóstur Sem stoðmynt er Kanadadalur einkanlega hentugur. Að und- anförnu hefur Kanada blómstrað og horfur framundan eru ekki síðri en á Íslandi. Athygli vekur að síðustu 10 árin hefur landsframleiðsla á mann verið nær jöfn í báðum lönd- unum. Mikilvægt er að um efnahag Kanada ríkja ekki sömu efasemdir og gilda um Bandaríkin, svo ESB sé nú ekki nefnt í þessu sambandi. Flestum Íslendingum er ljóst að flotgengi undir stjórn Seðlabankans hefur mistekist hörmulega und- anfarna áratugi. Þannig liggur fyrir að íslenska krónan hefur frá 1939 veikzt um 99,95 prósent gagnvart dönsku krónunni. Þetta samsvarar því að dönsk króna hafi haldið verð- gildi sínu 2.000 sinnum betur en krónan okkar. Það er mikil kokhreysti að halda því fram að vandi peningakerfisins verði leystur með mannaskiptum í Seðlabankanum. Kerfisvandi verður einungis leystur með kerfis- breytingu. Kanadadalur er góður kostur til að koma á langþráðum stöðugleika. Að taka Kanadadal í fóstur gefur einnig tilefni til að rækja betur frændsemi við þá fjöl- mörgu Íslendinga sem búa í Kan- ada. Höfundur er verkfræðingur og stjórnarmaður í félaginu Samstaða þjóðar. Kæri Wen. Ég heillast af Kín- verjum. Aginn, mat- urinn, leikfimin ykkar. Ég set hins vegar spurningarmerki við herþjálfun barna, brott- kast stúlkna, skert tján- ingarfrelsi, ræðum það seinna Wen. Mig langar með þessu bréfi að kveikja í þér (passa þýðinguna PR-menn). Sýna þér fram á að mannréttindi á Íslandi eru á svipuðu stigi og í Kína, þér þarf ekkert að líða illa. Þeir sem gala mest hér um mannréttindi liggja oft undir feldi og níða fólk með skrifum sínum og mann- orðsmeiða, oft í nafnleynd. Hér er fólk dæmt fyrir skoðanir sín- ar og því „slátrað“ (passa þýðinguna) í skjóli valds, sem stjórnar hér 80% fjöl- miðla þegar ríkisfjölmiðlarnir eru teknir með. Við köllum hann útvarps- stjóra en hann er sendiboði aflanna sem réðu hann til starfa; hrunhóps Samfylkingarinnar – að vísu með að- stoð fyrrverandi menntamálaráðherra úr Sjálfstæðisflokki. Sú vildi losna undan stríðandi fylkingum á landinu, en annað kom á daginn. Samfylkingin er hér enn við völd Wen. Vald þeirra eða fólkið þeirra er í bönkum, réttarsölum, sjónvarpi, út- varpi og í fjölmiðlum. Það er líka á ferð og flugi um allan heim að maka krók- inn. Þar sem áskrift er að styrkjum og launum, þar er það. ESB, kannast þú við það spillta bákn? Wen, ekkert land í heiminum býr yfir öðrum eins auðlind- um og við. Stjórnvöldum tekst ef til vill að ræna okkur aleigunni en þeim tekst aldrei að skafa inn- an úr okkur heilann. Það þekkið þið af andófsfólki ykkar í Kína. Ég óttast að í Kína sé hrægamma-kapítalism- inn að taka völdin á kostnað þeirra þátta, í landi þínu, sem einu sinni voru einnig á Íslandi. Góð gildi voru í samskiptum seinni hluta síðustu aldar, þar sem Ís- land reis úr fátækt til vegs og virðingar jafnvel í alþjóðlegu samhengi. Þessum gildum er enn og aftur, jafnvel nú eftir hrunið, kastað fyrir hrægamma sem án efa tröllríða Kína um þessar mundir. Manstu þegar Glitnir banki var opn- aður í Kína, í fylgd forseta? Fyndið! Okkar hrægammar flengja enn sak- lausan almúgann, afskrifa syndir sínar en setja skömm sína á múlbundinn al- menning sem lifir við fátækt, gjaldeyr- ishöft, skattpíningu, skert velferðar- kerfi og vonleysi. Það versta er að vonarflokkurinn okkar, VG, sem í sátu þjóðernissinnar, frelsissinnar og heið- virt fólk, hefur líka tileinkað sér ríkra- mannaþjónkunina. Þeir ganga til liðs við landráðamenn, vilja sameinast, í bandalagi, landi sem setti á okkur hryðjuverkalög og löndum sem neituðu að rétta okkur hjálparhönd þegar við blasti þjóðargjaldþrot. En Wen, hvernig get ég beðið þig að skilja kúgun íslensks almennings án þess að segja þér í stuttu máli sögu mína. Ég er leikfimikennari ættuð að norð- an þar sem eigendur útgerðarinnar sem og Sambandið stóðu undir íþróttastarfinu, menningar- og lista- starfinu, öll börn fengu nóg að borða, menntun og tónlistarfræðslu. Þar gengum við reyndar ekki á leður- flísum eða drukkum gull eins og gert er víða á Laufásveginum en við vorum fólk; samfélag sem virti þá sem eldri voru, virti trú, kirkju og vinnusemi. Nú er þetta allt farið. Heitir í dag Samherji sem er í rannsókn og Frum- herji í eigu fyrrverandi viðskiptaráð- herra og seðlabankastjóra þjóðar- innar. (Grímsstaðir „on the mountain“ eru í minni sveit og fagna ég komu ykkar þangað.) Ég kynntist forstjórum Kaupþings og nokkrum öðrum þeim líkum, mönn- um hvers markmið var að safna öllu sem einhvers virði var, fjárfestinga- félögum, bönkunum, fjölmiðlunum, flugfélögunum, landbúnaðinum, mjólkurframleiðslunni, olíufélögunum. Bara ÖLLU, Wen. Ég ákvað að vara við, hjálpa vini mínum sem hafði gögn sem sönnuðu aðferðafræðina. Á Íslandi fékk sá maður strangan dóm, en þeir eiga enn fjölmiðlana, stjórna sínum milljarða- afskriftum og halda áfram sem aldrei fyrr. Þú þekkir mig sennilega ekki, ég heiti Jónína Ben. og er mikil áhuga- manneskja um lýðræði, mannréttindi sem og tjáningarfrelsið. Þegar ég tjáði mig um þetta ríki í ríkinu voru ráðnir menn til þess að rægja mig á netinu, í blaðagreinum, gera mig gjaldþrota, aumkunarverða og ræna mig ærunni. Þeir gleymdu að vísu að kaupa fang- elsin en þar hefði mér verið hent inn ásamt einum fimm öðrum sem þorðu að mótmæla valdinu. Við sögð geðveik. Þeir reyna enn að skemma líf mitt og þegar ekkert finnst er maðurinn minn tekinn af lífi án dóms og laga. Og Wen, hugleiddu þetta! Það hefur maður við- urkennt að hafa unnið fyrir þennan hóp manna mánuðum saman í að níða mig en enginn fjölmiðill hefur viljað fjalla um það. Síðan ákvað Mannréttinda- dómstóllinn, með aðstoð há- skólaprófessors sem óvart var gift for- seta Hæstaréttar sem hafði dæmt í mínum málum, að það væri í lagi að ræna persónupósti úr tölvunni minni, skrumskæla hann og birta í þágu valdsins. Illmenni það er honum stal fékk síðan vinnu í viðskiptaráðuneyt- inu þegar hann hafði hætt að þjóna hagsmunum þeirra er sættu rann- sókn. Þeir unnu. Mig langaði að vara þig við – þú missir að endingu völdin. Þau fara þangað sem peningarnir flæða. Það er nefnilega svo sorglegt með mann- skepnuna, Kínverja sem Íslendinga, að enn og aftur er rót alls ills græðgi. Að lokum, bið að heilsa Dorrit for- setafrú. Við vorum vinkonur áður en henni var bannað það. Opið bréf til Wens Jiabaos, forsætisráðherra Kína Eftir Jónínu Benediktsdóttur » Þeir sem gala mest hér um mannrétt- indi liggja oft undir feldi og níða fólk með skrif- um sínum og mannorðs- meiða, oft í nafnleynd. Jónína Benediktsdóttir Höfundur er forstjóri Nordic Health.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.