Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 42
42 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt það geti verið erfitt að horfast í augu við eigin mistök skaltu ekki gleyma að af þeim lærir maður mest. Gefðu þér tíma fyrir ástvini þína einhvern part dagsins. 20. apríl - 20. maí  Naut Reyndu ekki að berjast til forystu í ákveðnu máli því hún er ekki þitt hlutskipti að svo stöddu. Nýir vendir sópa best. Notaðu krafta þína til þess að laða að nýjan vin. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ykkur hefur unnist vel og nú er svo komið að þið getið tekið til úrlausnar verkefni sem lengi hefur legið í láginni. Samræður taka að líkindum nokkuð á. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það eina sem maður á að muna þeg- ar maður er djúpt sokkinn í eitthvert verkefni, er að reyna að halda áhyggjunum í skefjum. Allir verða að gefa eitthvað eftir til þess að samkomulag náist. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er kominn tími til að hitta gömlu fé- lagana, endurnýja kynnin og rifja upp góðar minningar. Leggðu allt kapp á að finna far- sæla lausn svo þú getir sofið rólegur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ef samband á að haldast þurfa báðir aðilar að leggja sig fram um að hlúa að því. Passaðu vel upp á budduna og vertu viss um að þú sért með allar upplýsingar á hreinu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér líður meiriháttar vel! Það er eitt og annað að gerast í kringum þig sem þú kannt litla skýringu á. Farðu út á meðal fólks. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér er það óvænt ánægja hvað þú uppskerð fljótt árangur erfiðis þíns. Reyndu að halda stillingu þinni því annars er hætt við að þú farir yfir strikið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Auðvitað hefur þú fullan rétt til þinna skoðana. Vertu hvergi smeykur því áætlanir þínar ganga í augun á yfirboð- urunum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þökk sé netinu getur maður átt sýndarvini, raunverulega vini og vini sem eru hvort tveggja. Gættu þess að ganga ekki of langt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það þýðir ekkert að berja höfðinu við steininn og ætla að breyta hlutum sem eru löngu liðin tíð. Heimilið er staðurinn þar sem málin eiga að leysast. 19. feb. - 20. mars Fiskar Áhugi þinn á málefnum tengdum heilsu og vinnu eykst jafnt og þétt næstu 4-6 vikur. Viðurkenndu hvað þú virkilega vilt og fólkið sem getur veitt þér það birtist. Um Símon Dalaskáld:Ég rakst á Rímur af Ingólfi Arnarsyni landnámsmanni eftir Símon Dalaskáld, útg. 1912. Fyrir framan rímurnar eru þessar stök- ur eftir Sigríði, dóttur Jóns Jóns- sonar hreppstjóra og dannebrogs- manns á Hafsteinsstöðum í Skagafirði: Þín hafa Símon lipur ljóð oft lundu gladda hölda og fljóða. Þér aldrei gleymir Íslands þjóð né óðinum þínum, skáldið góða. Bergmála æ þín hróðrar hljóð í himingnæfandi klettaborgum. Þó einmana sértu á ellislóð er andi þinn frjáls og laus af sorgum. Símon kallast síðan á við Sigríði í mansöng 3. rímu: Skáldmær kjörð ein Skagafjörð nú prýðir um sem glaðast hljómar hrós Hafsteinsstaða blómarós. Snoppufríðar snótir víða syðra víst eru bágar vits um far vanta gáfur norðlenskar. Rímurnar eru ekki tilþrifamiklar en lipurlega kveðnar og á léttu máli, þar bregður fyrir skemmti- legum myndum: Frúrnar sínum fagna eiginmönnum. Helga að Leifi hlúa fer, Hallveg Ingólf vafði að sér. Skáldið er syðra þegar hann kveður rímurnar og saknar Skaga- fjarðar. Þeim fylgir mikið kvæði um Þjórsá og fjórar vísur, sem hann kallar Hallgerðarþúfu. Hér koma þrjár þeirra: Laugarnes á grasi grær grænt hjá þarastorðum, Engey brosir ekki fjær eign Hallgerðar forðum. Hallgerðar- er þúfa þar þakin blómum frjóum. Leiði gömlu Langbrókar Laugarness í móum. Ætti bráðan brims við reit brags í neyð ákvarða hennar á leiði sveina sveit setji heiðursvarða. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hallgerðar- er þúfa þar G re tt ir G æ sa m a m m a o g G rí m u r H ró lf u r h ræ ð ile g i F er d in a n d S m á fó lk ÉG ÆTLA EKKI AÐ VERA Í INNISKÓNUM MÍNUM Í DAG ÉG ÆTLA AÐ VERA Í SKÓM MEÐ REIMUM! ENGAR HETJUDÁÐIR JÓN! ÆI, ÉG VAR AÐ MUNA SVOLÍTIÐ... VIÐ ÁTTUM AÐ LESA „GÚLLIVER Í PUTALANDI” Í FRÍINU OG SKRIFA RITGERÐ UM HANA. ERT ÞÚ BYRJUÐ Á HENNI? BYRJUÐ? ÉG ER BÚIN AÐ SKRIFA RITGERÐINA. KLÁRAÐI HANA STRAX SVO ÉG GÆTI NOTIÐ FRÍSINS ÉG ÞOLI EKKI FÓLK EINS OG ÞIG! HRÓLFUR, ÞÚ ERT MEÐ VIRKILEGA SLÆMAN HÓSTA ÞÚ ÆTTIR AÐ TAKA EITTHVAÐ VIÐ ÞESSUM HÓSTA *HÓST!* JÁ, ÉG ÆTLA AÐ FARA OG FÁ MÉR EITTHVAÐ VIÐ HÓSTANUM GJÖRÐU SVO VEL RUNÓLFUR, GETURÐU OPNAÐ FYRIR MIG DÓSINA, ÞAR SEM ÞÚ ERT SVO HUGULSAMUR SJÁLF- SAGT RUNÓLFUR? SAMA HVERSU HUGULSAMUR ÉG ER, ÞÁ NEITAR HÚN AÐ OPNA SIG Manni nokkrum var hótað kæru ádögunum hætti hann ekki að setja poka með hundaskít í rusla- tunnu við hús viðkomandi. Víkverji skilur vel afstöðu húseigandans en telur þrengt að hundaeigendum í þessu efni í Reykjavík. x x x Víkverji viðrar reglulega hund ogviðurkennir að hafa sett hunda- skítspoka í ruslatunnur á leiðinni, þegar ekki hefur verið um annað að ræða. Biðst hér með forláts á því.Við göngustíga borgarinnar og á opnum leiksvæðum eru gjarnan lítil rusla- ílát. Hins vegar fer lítið fyrir slíkum ílátum í íbúðahverfum og þá vandast málið. Á að láta skítinn liggja, taka hann upp í poka og setja í næstu tunnu eða fara með hann heim? x x x Að mati Víkverja er frumskilyrðiað þrífa upp skítinn eftir hund- inn en núverandi borgaryfirvöld hafa gert hundaeigendum erfitt fyrir með því að tæma öskutunnur í mesta lagi á tveggja vikna fresti. Það segir sig sjálft að lífrænn úrgangur, sem er tvær vikur eða lengur í ösku- tunnu, lyktar verr með hverjum deg- inum. Því skilur Víkverji vel íbúða- eigendur sem finnst nóg að eiga við lykt af eigin úrgangi svo ekki bætist við skítur frá gestum og gangandi. x x x Reykjavíkurborg getur leyst vand-ann með því að fjölga ruslaílát- um fyrir almenning í íbúðahverfum. Ljóst er að hundum í borginni hefur fjölgað mikið, borgin tekur ákveðið árgjald af hverjum hundi og ekki er til of mikils mælst að komið sé til móts við þarfirnar með fyrr- greindum hætti. Í öðru lagi þarf borgin að hreinsa þessa dalla oftar en nú er gert. Þeir þurfa líka að vera þannig gerðir að ekki sé hægt að slá botninn úr þeim, því alltaf eru einhverjir sem finna hjá sér hvöt til þess að eyðileggja rusladalla. Verði ekkert að gert er hætta á að hundaskítur verði skilinn eftir á gangstéttum í enn ríkari mæli en nú er gert og er ástandið á stundum þó langt því frá að vera í lagi. Skíturinn er hjá borginni. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Sá sem vill elska lífið og sjá góða daga, haldi tungu sinni frá vondu og vörum sínum frá að mæla svik. (1Pt. 3, 10.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.