Morgunblaðið - 20.04.2012, Síða 46

Morgunblaðið - 20.04.2012, Síða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012 Tökum á móti hópum, stórum sem smáum. Sími 567 2020 · skidaskali.is Við erum nær en þú heldur · Brúðkaup · Fermingar · Árshátíðir · Afmæli · Ættarmót · Útskriftir · Erfidrykkjur Aðeins 15 mín frá Rauðavatni Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tökum er svo til lokið á næstu kvik- mynd leikstjórans Marteins Þórs- sonar, XL, sem jafnframt skrifaði handrit hennar ásamt Guðmundi Óskarssyni, höfundi skáldsögunnar Bankster sem þeir Marteinn eru að vinna kvikmyndahandrit upp úr. XL segir í stuttu máli af drykk- felldum þingmanni sem forsætisráð- herra skikkar í meðferð. Spaugileg hugmynd en er þetta gamanmynd? „Já, hún er fyndin þótt hún sé um alvarlegt efni. Þetta er dramatísk gamanmynd,“ segir Marteinn. Með hlutverk þingmannsins fer Ólafur Darri Ólafsson en hann fór með aðalhlutverkið í síðustu kvik- mynd Marteins, Roklandi. „Mér gengur illa að losna við hann,“ segir Marteinn og hlær. Með önnur helstu hlutverk í myndinni fara Elma Lísa Gunnarsdóttir, María Birta Bjarnadóttir, Tanja Björk Ómarsdóttir, Hafdís Helga Helga- dóttir, Þorsteinn Bachmann, Mar- grét Helga Jóhannsdóttir og Nanna Kristín Magnúsdóttir. Af öðrum leikurum má nefna Stefán Jónsson, Helga Björnsson, Rúnar Guð- brandsson, myndlistarmanninn Snorra Ásmundsson og Moniku Ewu Orlowsku en nokkrir þing- menn reyna einnig fyrir sér í leik- listinni, þeir Róbert Marshall, Þrá- inn Bertelsson, Guðmundur Steingrímsson og Árni Johnsen. Á í ástarsambandi við vinkonu dóttur sinnar „Þetta fjallar um drykkfelldan al- þingismann sem skandalíserar á listaopnun og í framhaldi af því er hann skikkaður í meðferð af for- sætisráðherra. En áður en það ger- ist ætlar hann að halda eitt gott partí, eitt gott skrall, býður í það vinum sínum og velgerðarmönnum og það fer svolítið úr böndunum. Í gegnum þetta partí kynnumst við fjölskyldu hans og vinum og hvaða áhrif þau hafa á líf hans. Miðjan í þessu er ástarsamband sem hann á í við unga konu sem María Birta leikur og er vinkona dóttur hans. Hann er í svolítið miklu veseni með sín kvennamál,“ segir Marteinn og hlær. „Hann er fluttur að heiman og konan vill skilja við hann, hann er með allt niðrum sig.“ – Þetta er s.s. ófarakvikmynd? „Já, hún er svolítið svoleiðis. Hún er sögð í brotakenndri frásögn, eins og Memento og Fear and Loathing in Las Vegas, svona „Hangover with an attitude“,“ segir Marteinn til frekari skýringar. Frásögnin sé ekki línuleg heldur sé flakkað fram og til baka í tíma. „Hún fer svolítið inn í hugarheim þess sem er undir miklum áhrifum. Þeir sem dottið hafa vel í það vita hvernig það getur verið, nánast draumkenndur veru- leiki sem maður lendir í. Óminni og allt það.“ Þjóð í rugli – Þessi titill, XL, þetta er varla vísun í fatastærð? „Þetta er náttúrlega vísun í hann, hann heitir Leifur. Kjósið Leif, X-L, og allt sem hann gerir er nátt- úrlega „extra large“, hann er mikill öfgamaður. Hann elskar mat, vín og konur, allt sem gott er.“ – Í hvaða stjórnmálaflokki er Leifur? „Við vitum það ekki alveg, það á nú ekki að skipta máli. Þetta er þverpólitískt eða ætti náttúrlega að vera þannig, sama úr hvaða flokki menn koma. Þetta á ekki að beinast að einhverjum sérstökum flokki, svona almennt er þetta kannski ástand, ástand þjóðar. Hann Leifur er fulltrúi fyrir þjóð í rugli.“ XL verður frumsýnd í október í Sambíóunum sem sjá um dreifingu hennar. Af öðrum sem að kvik- myndinni koma má nefna að Berg- steinn Björgúlfsson sér um kvik- myndatöku og Anna Þorvaldsdóttir semur tónlistina. Anna hlaut tvenn verðlaun á Íslensku tónlistar- verðlaununum í ár, í flokki sígildr- ar- og samtímatónlistar; sem tón- höfundur ársins og fyrir plötuna Rhízoma sem valin var hljómplata ársins. Framleiðendur eru, auk Marteins, Ólafur Darri Ólafsson, Ragnheiður Erlingsdóttir og Guð- mundur Óskarsson. Þingmaður með allt niðrum sig  Þingmaðurinn Leifur gerir allt „extra large“ í væntanlegri kvikmynd Marteins Þórssonar, XL  Dramatísk gamanmynd sem segir með brotakenndum hætti af miklum óförum og drykkjuskap Morgunblaðið/Frikki Gamandrama Marteinn Þórsson á m.a. að baki kvikmyndina Rokland. Fyllirí Þingmaðurinn Leifur (Ólafur Darri Ólafsson) ákveður að halda gott skrall áður en hann fer í meðferð og þá fer allt úr böndunum. Stilla úr kvikmyndinni XL sem verður frumsýnd í október í Sambíóunum. Vefsíða framleiðslufyrirtækis Marteins, Tenderlee Motion Pict- ures Company: tenderlee.com » „Þetta er náttúrlegavísun í hann, hann heitir Leifur. Kjósið Leif, X-L, og allt sem hann gerir er náttúrlega „extra large“, hann er mikill öfgamaður. Hann elskar mat, vín og kon- ur, allt sem gott er.“ The Cabin in the Woods Fimm vinir fara saman í frí og dvelja í kofa úti í skógi. Fljótlega eiga undarlegir atburðir sér stað og þeir komast að því að kofinn er ekki allur þar sem hann er séður. Leikstjóri er Drew Goddard og með helstu hlutverk fara Richard Jenk- ins, Bradley Whitford og Chris Hemsworth. Rotten Tomatoes: 92% The Woman in the Fifth Bandarískur rithöfundur flytur til Parísar til að geta verið nær dóttur sinni. Hann á í fjárhagskröggum og kunningi hans útvegar honum starf við öryggisgæslu. Meðfram því starfi reynir rithöfundurinn að skrifa skáldsögu og njóta samvista við dóttur sína. Þá kynnist hann dularfullri ekkju sem virðist viðrið- in nokkur morð. Leikstjóri er Pa- wel Pawlikowski og með helstu hlutverk fara Ethan Hawke, Krist- in Scott Thomas og Joanna Kulig. Rotten Tomatoes: 84% Bíófrumsýningar Dularfullur kofi og ekkja Hrollvekjandi Stilla úr kvikmyndinni The Cabin in the Woods.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.