Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 52
FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 111. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Brjóst Jackson fyrir hæstarétt 2. Segir skilið við frú Kutcher 3. 14 ára stúlku enn leitað 4. Ari Trausti ætlar í framboð »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Rokksveitin Agent Fresco leikur á Faktorý í kvöld ásamt Ultra Mega- technobandinu Stefáni, Tilbury og RetRoBot. Sveitin fer svo í tónleika- ferðalag um Evrópu í maí og er að vinna að sinni annarri plötu. Morgunblaðið/Eggert Agent Fresco á Faktorý í kvöld  UMTBS eða Ultra Mega- technobandið Stefán er þekkt fyrir afskaplega líflega sviðs- framkomu og æsi- lega tónlist. Lítið hefur heyrst í henni að undan- förnu og því gleðilegt að geta sagt frá því að hún er að fara að gefa út nýja plötu og mun flytja ný lög á tón- leikunum sem voru nefndir að ofan. UMTBS með nýja plötu í smíðum  Í tilefni af Barnamenningarhátíð hefur Bíó Paradís boðið leikskóla- og grunnskólabörnum upp á kynningu á tveimur kvikmyndum þessa viku, frönsku verðlauna- myndinni Rauðu blöðrunni frá 1956 eftir Albert Lamorisse og Sirkusnum frá 1928 eftir Char- les Chaplin. Síð- asta sýningin er í dag kl. 10.30. Bíó Paradís passar upp á börnin Á laugardag Norðaustan 5-10 en heldur hvassari suðaustantil. Dálítil él eystra og á annesjum norðanlands en bjartviðri vestan- lands. Vægt frost nyrðra og eystra. Allt að 8 stiga hiti suðvestantil. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan og austan 2-10 m/s. Skýjað að mestu og dálítil él norðaustan- og austanlands, en annars yfirleitt léttskýjað. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast suðvestanlands. VEÐUR Óhætt er að segja að úrslit- in hafi verið eftir bókinni í fyrstu umferð undanúrslita N1-deildar kvenna í hand- knattleik. Deildarmeistarar Vals unnu e.t.v. stærri sigur á Stjörnunni en flestir höfðu reiknað með, 36:24. Fram hafði einnig tögl og hagldir frá upphafi til enda í viðureign sinn við ÍBV þótt aðeins hafi munað þremur mörkum þegar upp var staðið. »2 Allt eftir bókinni hjá konunum Stjarnan, sem komst óvænt inn í átta liða úrslit Lengjubikarsins í knatt- spyrnu karla á föstudagsmorgun, er komin í undanúrslit í keppninni. Þökk sé tveimur mörkum frá Garðari Jó- hannssyni þegar Stjarnan vann Val í gær, 2:1. Fram og Breiðablik eru einn- ig komin í undanúrslit eins og Íslands- og bikarmeist- arar KR sem lögðu FH í vítaspyrnukeppni eftir að jafnt var eftir venjuleg- an leiktíma og framlengingu. »1 Það liggur fyrir hverjir mætast í undanúrslitum Grindvíkingar unnu Stjörnuna, 79:77, í miklum spennuleik í Ásgarði í Garðabæ í gærkvöldi í fjórðu og síð- ustu viðureign liðanna í undan- úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik. Deildarmeist- ararnir mæta þar með Þór frá Þor- lákshöfn í einvígi um Íslandsmeist- aratitilinn sem hefst eftir helgina á heimavelli Grindvíkinga. »4 Grindvíkingar unnu og mæta Þór í úrslitum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Unnið er að opnum fjölsmiðju að hætti Íslendinga í bænum Paamiut á vesturströnd Grænlands innan skamms en fyrir eru tvær slíkar í landinu, önnur í Nuuk og hin í bæn- um Tasiilaq á austurströndinni. Guðmundur Þorsteinsson, sem hefur búið á Grænlandi lengst af síð- an 1971, kom Grænlendingum á bragðið hvað fjölsmiðju varðar, en hann kynntist ámóta starfsemi í Fjöl- smiðjunni í Kópavogi, þegar hann vann þar 2002-2005. Leiðir Guðmundar og Þorbjarnar Jenssonar, forstöðumanns Fjölsmiðj- unnar frá upphafi, lágu fyrst saman í gegnum handboltann. Guðmundur hefur mikið látið til sín taka á því sviði á Grænlandi, þjálfað krakka og skipulagt samskipti við Íslendinga um árabil. Hann lagði hugmynd um fjölsmiðju á borð ráðamanna í Nuuk, fékk jákvæð viðbrögð og skilaði í kjöl- farið viðamikilli skýrslu um málið í mars 2006. Hann var ráðinn sem ráð- gjafi við undirbúning í ársbyrjun 2007 og þegar húsnæði var fundið var hann ráðinn forstöðumaður Fjöl- smiðjunnar. Starfsemin byrjaði 2008 og Asii Chemnitz Narup, bæjarstjóri í Nuuk, lýsti yfir opinberri opnun í mars 2009. „Strax 2008 voru krakkar á biðlista og það hefur sýnt sig að þörfin fyrir svona vinnustað er mikil,“ segir Guðmundur. Vantar oft pappíra Fjölsmiðjan á Íslandi á rætur að rekja til Danmerkur. Bæði þar og á Íslandi er um að ræða sjálfseign- arstofnanir, en á Grænlandi reka við- komandi bæjarfélög smiðjurnar. Í öll- um tilvikum er um að ræða nokkurs konar þjálfunarbúðir fyrir ungt fólk, sem hætt hefur í námi og ekki náð fótfestu á vinnumarkaði. Á Græn- landi er til dæmis lögð áhersla á að gera upp gamla muni og selja þá. Guðmundur segist eiga auðvelt með að setja sig í spor krakkanna því hann sé sjálfur ómenntaður á bókina. „Ég hefði verið mjög ánægður ef eitt- hvað svona hefði staðið til boða þegar ég var unglingur,“ segir hann og leggur áherslu á að allir búi yfir ein- hverjum eiginleikum. „Sumir eru bara ekki með pappíra upp á það.“ Hann segir að í vinnu sé ekki alltaf lögð áhersla á það sem skipti mestu máli. „Það gleymist oft að spyrja krakkana hvað þeir vilji helst gera, í hverju þeir séu bestir. Það eru ekki allir á bókina og Grænlendingar eru til dæmis almennt mjög flinkir í höndunum.“ Frá 2010 hefur Guðmundur verið yfirmaður þróunardeildar velferð- arsviðsins í Nuuk. Sem slíkur er hann í daglegum tengslum við Fjölsmiðj- una og styður við frekari uppbygg- ingu. „Nú erum við að und- irbúa kynningarferð í Fjöl- smiðjuna á Íslandi og það verður hápunkturinn.“ Íslandsför verður hápunkturinn  Þriðja fjölsmiðjan að hætti Íslend- inga senn sett á laggirnar á Grænlandi Samvinna Starfsmenn Fjölsmiðjunnar í Nuuk ásamt unga fólkinu sem vann að gerð fánans og Juliu Edel Hardenberg sem átti hugmyndina að verkinu. Fjölsmiðjan í Kópavogi hóf starfsemi 2001. Í janúar 2002 hóf Guðmundur Þorsteinsson þar störf með Þorbirni Jenssyni, hafði meðal annars umsjón með bílaþvottinum, og vann með unga fólkinu fram á mitt ár 2005, þegar hann flutti aftur til Grænlands. Hann hafði frum- kvæði að stofnun Fjölsmiðj- unnar í Nuuk og hefur fylgt mál- inu eftir. Auk Fjölsmiðj- unnar í Kópa- vogi er sam- bærilegur rekst- ur í Reykja- nesbæ og á Ak- ureyri. Uppbygging hér og þar FJÖLSMIÐJAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.