Morgunblaðið - 16.04.2012, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.04.2012, Qupperneq 1
mótinu átti Eygló þátt í sjö þeirra. „Það er gaman að fá svona bikar, ég hef aldrei fengið svona stóran bikar. Þetta er mesta afrekið mitt hingað til og einnig besta mótið mitt,“ sagði þessi 17 ára afreksstúlka í sundi. Enn að melta keppnisréttinn í London Eygló tryggði sér keppnisrétt á Ólympíu- leikunum á föstudaginn. Eftir mótið í gær hafði hún ekki enn náð að melta það, þegar Morgun- blaðið náði af henni tali. „Tilfinningin er ótrúlega góð en ég er ekki enn búin að ná því. Það hefur ekki síast inn að ég sé að fara á Ólympíuleikana í Lond- on. Það mun gera það með tímanum en ótrúlegt að hugsa til þess engu að síður.“ Eygló á þess kost að keppa í þremur greinum á Ólympíuleikunum. Það er að sjálfsögðu 200 metra baksund, svo náði hún einnig B-lágmörkunum eða svokölluðum OST-lágmörkum í 100 metra bak- sundi og 200 metra fjórsundi. „Það verður mjög Morgunblaðið/Golli Afrekskona Eygló Ósk Gústafsdóttir var óstöðvandi á Íslandsmeistaramótinu, átti þátt í að setja sjö Íslandsmet og tryggði sér þátttökurétt á Ólympíu- leikunum í London. Hér faðmar hún stóru systur, Jóhönnu Gerðu, sem setti líka Íslandsmet og tryggði sér þátttökurétt á Evrópumótinu. »2 Í LAUGARDAL Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Eygló Ósk Gústafsdóttir sundkona úr Ægi hlaut Forsetabikarinn fyrir besta afrekið á Íslandsmeist- aramótinu í 50 metra laug í sundi sem lauk í gær. Þá hlaut hún einnig Kolbrúnarbikarinn en hann fékk hún fyrir árangur sinn í 200 metra baksundi er hún synti á tímanum 2:10,38. Með því tryggði hún sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í London. Það þarf varla að segja frá því að hún bætti einn- ig Íslandsmetið í greininni og það um rétt tæpar tvær sekúndur. Auk þess bætti Eygló þrjú Íslands- met í einstaklingsflokki, 200 metra fjórsundi, 200 metra skriðsundi og 100 metra baksundi. Þá var hún í sveit Ægis sem bætti Íslandsmet í 4x200 metra skriðsundi, 4x100 metra skriðsundi og 4x100 metra fjórsundi. Af 15 Íslandsmetum sem féllu á stífur undirbúningurinn fram að Ólympíuleik- unum. Það er líka gott fyrir mig að hafa fjölskyld- una með mér til að styðja mig.“ Eygló Ósk var ekki sú eina í fjölskyldunni sem setti Íslandsmet þessa helgina því eldri systir hennar, Jóhanna Gerður, bætti metið í 400 metra fjórsundi um tæpar þrjár sekúndur og sinn per- sónulega árangur um 10 sekúndur. Þá vann hún sér með því þátttökurétt á Evrópumeistarmótinu, síðar á þessu ári. „Ég er mjög stolt af henni. Það var mjög gaman fyrir okkur systurnar að setja Ís- landsmet í sama mótinu og á sama stað, sagði Eygló og hélt í faðm fjölskyldunnar til að fagna hreint mögnuðu sundmóti sínu. Þess má geta að árangur hennar í 200 metra baksundinu hefði dugað henni til 31. sætis á af- rekalistum heimsins árið 2011. Því hefur engin ís- lensk sundkona náð síðan Ragnheiður Runólfs- dóttir gerði það þegar hún var upp á sitt besta árið 1990. „Mesta afrekið mitt“  Eygló sjöfaldur Íslandsmeistari og Ólympíufari  Hlaut bæði Forseta- og Kolbrúnarbikarinn  Eygló Ósk er farin að nálgast Ragnheiði Runólfsdóttur MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2012 íþróttir Íþróttir mbl.is Íslenska drengjalandsliðið í hand- knattleik, skipað leikmönnum yngri en 18 ára, tryggði sér í gær sæti í úrslitakeppni Evrópumóts- ins í þessum aldursflokk. Ísland sigraði þá gestgjafa Tyrklands, 17:14, í hreinum úrslitaleik í und- anriðlinum í Antalya, en bæði lið- in höfðu unnið örugga sigra á hinum andstæðingum sínum í riðl- inum, Englendingum og Moldóv- um. Ísland burstaði bæði liðin, Eng- lendinga 38:20 og Moldóva 43:21, en Tyrkir unnu bæði lið með heldur minni mun. Sigvaldi Guðjónsson skoraði 6 mörk gegn Tyrkjum og var markahæstur íslensku strákanna í mótinu með 22 mörk í leikjunum þremur. Úrslitakeppnin fer fram í Aust- urríki í júlí og þar leika sextán lið um Evrópumeistaratitilinn, þar á meðal Ísland, Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Finnland. vs@mbl.is Strákarnir í úrslitin á EM Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þórir Ólafsson var valinn besti leik- maður fjögurra liða úrslitanna í pólsku bikarkeppninni eftir að lið hans, Vive Kielce, sigraði Wisla Plock, 36:27, í úr- slitaleik keppn- innar í gær. Þórir fór á kostum í úrslita- leiknum og skor- aði 9 mörk en hann gerði 5 mörk á laug- ardaginn þegar Kielce vann Kwidzyn í und- anúrslitum með nákvæmlega sömu markatölu. Þórir fékk viðurkenn- inguna í leikslok í gær, áður en lið hans tók við pólska bikarnum. „Það var frábært að standa uppi sem bikarmeistarar og svo er það bónus að hafa fengið hina viður- kenninguna. Þetta er toppurinn hjá mér hingað til, ég hef ekki verið al- veg sáttur við mína frammistöðu í vetur, hefði viljað gera betur, en núna gekk þetta allavega allt upp,“ sagði Þórir við Morgunblaðið í gær- kvöld, en hann gerði öll 9 mörkin utan af velli, ýmist úr horninu, af línunni eða úr hraðaupphlaupum. Lið hans er síðan á leið í undan- úrslitin um pólska meistaratitilinn og líklegt er að það mæti Wisla aft- ur í úrslitaeinvígi. „Við erum með mjög gott lið og eigum einfaldlega að vinna þetta. Nú er bara að hvíla sig og safna kröftum fyrir næstu helgi. Það kemur ekkert annað til greina en að vinna tvöfalt,“ sagði Þórir Ólafsson. Þórir bikar- meistari og valinn bestur Þórir Ólafsson Körfubolti Þórsarar úr Þorlákshöfn eru fáránlega sterkir. Mættu í Vesturbæinn og unnu öruggan sigur á KR-ingum. Geta gert út um einvígið á heimavelli á miðvikudagskvöld. 8

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.