Morgunblaðið - 16.04.2012, Síða 3
Í LAUGARDAL
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslenska landsliðið í íshokkí réð
ekki við sterkt lið Eistlands þegar
þjóðirnar mættust í A-riðli 2.
deildar heimsmeistaramóts karla í
íshokkí í Skautahöllinni í Laug-
ardal í gærkvöldi. Eistland sigraði
7:2 og hefur unnið alla þrjá leiki
sína og útlit fyrir að eistneska liðið
næli í sætið sem í boði er í 1. deild
að ári.
Staðan var áhugaverð að loknum
fyrsta leikhlutanum. Þá var Ísland
aðeins einu marki undir þrátt fyrir
að hafa þurft að liggja nánast í
vörn og eistneska liðið hafði aðeins
fengið eina brottvísun. Emil
Alengård bjó til mark fyrir Robin
Hedström með glæsilegri sendingu
og Robin jafnaði leikinn 1:1 rétt
eins og hann gerði í Narva síðast
þegar þjóðirnar mættust fyrir
tveimur árum á heimavelli Eista.
Í handaskol
Allt fór í handaskol hjá íslenska
liðinu í öðrum leikhlutanum og þar
með fór möguleikinn á því að
stríða Eistunum verulega á heima-
velli fyrir lítið. Á fyrstu sex mín-
útunum í öðrum leikhluta skoraði
Eistland tvívegis. Í fyrra skiptið
gaf Eistinn sendingu sem hafnaði í
Snorra Sigurbjörnssyni og fór það-
an í markið. Í síðara skiptið fengu
Eistarnir að skora þegar þeir voru
með mann út af í tveggja mínútna
brottvísun og það er nokkuð sem
Íslendingar geta ekki leyft sér
gegn sterku liði eins og liði Eist-
lands.
Auk þess fengu Eistarnir tvær
brottvísanir í öðrum leikhluta sem
íslenska liðinu tókst ekki að nýta
sér þar sem sóknarleikurinn var
ekki alveg nægilega beittur að
þessu sinni. Markvörðurinn Dennis
Hedström var valinn maður leiks-
ins hjá Íslandi enda stóð hann
vaktina með sóma og verður ekki
kennt um mörkin.
Fimmtán marka munur 2009
Þegar úrslitin gegn Eistlandi
eru skoðuð þá er ágætt að skoða
þau í þau í því ljósi að þessi sömu
lið mættust fyrir þremur árum á
HM í Serbíu og þá vann Eistland
16:1. Ári síðar mættust þau aftur á
HM í Eistlandi og þá vann Eist-
land 6:1. Það var því jafn mikill
munur á liðunum í gærkvöldi og
fyrir tveimur árum en þar sem ís-
lenska liðið var á heimavelli þá
hefði maður viljað sjá aðeins betri
úrslit. Á því leikur enginn vafi að
Eistland er mun sterkara lið en
með dugnaði og elju á Ísland
möguleika að nálgast þá enn meira
á næstu árum.
Geta unnið til verðlauna
Næsta verkefni Íslands í mótinu
er að mæta Spánverjum annað
kvöld en þeir hafa einnig unnið
alla þrjá leiki sína eins og Eistar.
Íslenska liðið þarf að fækka mis-
tökunum til þess að leggja Spán-
verjana en möguleikinn er fyrir
hendi. Íslenska liðið hefur notað
marga leikmenn í mótinu og gæti
fyrir þær sakir staðið ágætlega að
vígi á lokaspretti mótsins. Ef Ís-
land vinnur annaðhvort Spán eða
Króatíu þá ætti liðið að ná brons-
inu og í raun myndi sigur gegn
Króatíu tryggja þá niðurstöðu.
Of þægilegur sigur Eista
Aftur fimm marka tap á móti Eistlandi Dýr mistök í öðrum leikhluta Dennis Hedström mað-
ur leiksins hjá Íslandi Sigur á móti Króatíu tryggir Íslandi verðlaun Leikið við Spán annað kvöld
Morgunblaðið/Golli
Varði Dennis Hedström hafði nóg að gera í íslenska markinu í gærkvöld og varði hvað eftir annað mjög vel. Hér er hann í návígi við sóknarmann Eista.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2012
Fylgstu með fréttum
og leikjum í beinni
útsendingu á mbl.is
mbl.is/ishokki
HM karla á Íslandi
2. deild, A-riðill:
Spánn – Serbía.......................................... 4:2
Króatía – Nýja-Sjáland.......................... 12:3
Ísland – Eistland ...................................... 2:7
Staðan:
Spánn 3 3 0 0 0 14:4 9
Eistland 3 3 0 0 0 15:6 9
Ísland 3 2 0 1 0 11:10 6
Króatía 3 1 0 2 0 16:9 3
Serbía 3 0 0 3 0 7:14 0
N-Sjáland 3 0 0 3 0 3:23 0
ÍSHOKKÍ
Skautahöllin í Laugardal, heims-
meistaramót karla í íshokkí, 2. deild,
A-riðill, sunnudag 15. apríl 2012.
0:1 Kaupo Kaljuste 6.
1:1 Robin Hedström 9. (Emil Aleng-
ård og Ólafur Hrafn Björnsson)
1:2 Aleksandr Petrov 15.
1:3 Vassili Titarenko 23.
1:4 Aleksandr Petrov 26.
1:5 Kaupo Kaljuste 36.
1:6 Aleksei Sibirtsev 46.
2:6 Emil Alengård (Björn Róbert
Sigurðarson, Robin Hedström)
2:7 Maksim Ivanov 53.
Maður leiksins: Dennis Hedström.
Brottvísanir: Ísland 12 mínútur, Eist-
land 16 mínútur.
Markskot: Ísland 26, Eistland 54.
Dómari: Owe Luthcke, Noregi.
Áhorfendur: 1.160.
Ísland – Eistland 2:7