Morgunblaðið - 16.04.2012, Page 7
ENGLAND
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hvernig stríðsgæfan hefur snúist
algjörlega við hjá Chelsea og Tott-
enham á undanförnum vikum er
með hreinum ólíkindum. Langt
frameftir vetri sigldi Tottenham
með himinskautum – heillaði alla
með frábærum fótbolta og magnaðri
sigurgöngu og virtist um tíma ætla
að slást um alla titla sem í boði voru.
Á meðan var allt á öðrum end-
anum hjá Chelsea á Stamford
Bridge, tómt vesen í kringum knatt-
spyrnustjórann unga André Villas-
Boas og stöðugar fregnir af ósætti
leikmanna og alls kyns vandræða-
gangi.
En nú um miðjan apríl er staðan
orðin allt önnur. Um leið og Harry
Redknapp knattspyrnustjóri Tott-
enham var orðaður við starf lands-
liðsþjálfara Englands, virtist allt
loft fara úr hans mönnum á White
Hart Lane. Þeir eru á góðri leið að
missa Meistaradeildarsætið úr
höndunum og bikarinn rann þeim úr
greipum í gær þegar þeir fengu
skell, 1:5, í undanúrslitunum á
Wembley.
Og gegn hverjum? Auðvitað gegn
Chelsea – liðinu sem býr sig undir
að hirða keppnisréttinn í Meistara-
deildinni af þeim.
Viðsnúningur Chelsea eftir að Vil-
las-Boas var látinn taka pokann sinn
og Roberto Di Matteo tók við liðinu
til bráðabirgða er algjör. Nú er liðið
komið í bikarúrslitin, á fína mögu-
leika á Meistaradeildarsætinu og er
að auki komið í undanúrslitin í yf-
irstandandi baráttu bestu liða Evr-
ópu þar sem næsti andstæðingur er
Barcelona.
Umdeilt mark vó þungt
Chelsea fékk reyndar dálitla hjálp
í gær en þegar liðið komst í 2:0 í
byrjun síðari hálfleiks var ómögu-
legt að sjá að boltinn hefði farið yfir
línuna. Martin Atkinson dómari var
viss í sinni sök og umræður um
marklínutækni upphófust í net-
heimum sem aldrei fyrr. Juan Mata
var skráður fyrir markinu en Didier
Drogba, Ramires, Frank Lampard
og Florent Malouda sáu um hin. Ga-
reth Bale svaraði fyrir Tottenham,
minnkaði þá muninn í 2:1.
Bikarinn bjargar Dalglish
Kenny Dalglish og hans menn í
Liverpool björguðu líklega tíma-
bilinu hjá sér með því að sigra
grannana í Everton, 2:1, í fyrri und-
anúrslitaleiknum á Wembley á laug-
ardaginn. Andy Carroll, sem fór illa
með góð færi í leiknum, skoraði sig-
urmark Liverpool annan leikinn í
röð, nú nokkrum mínútum fyrir
leikslok. Áður höfðu tvö einstaklega
ódýr mörk litið dagsins ljós – Nikica
Jelavic kom Everton yfir en Luis
Suárez jafnaði fyrir Liverpool.
Þar með er Liverpool á leið í sinn
annan bikarúrslitaleik á Wembley á
þessu ári en liðið vann Cardiff eftir
vítaspyrnukeppni í úrslitum deilda-
bikarsins í febrúar. Þetta bætir upp
slakt gengi liðsins í úrvalsdeildinni
frá áramótum og gefur Dalglish
væntanlega meira svigrúm til að
undirbúa liðið fyrir næsta tímabil.
Af því veitir ekki því þrátt fyrir
bikargengið er margt sem hann þarf
að bæta til að gera Liverpool að
toppliði í Englandi og Evrópu.
Stríðsgæfan snýst við
Chelsea mætir Liverpool í bikarúrslitum Tímabilið hrynur hjá Tottenham
Chelsea í baráttu á þrennum vígstöðvum Annar úrslitaleikur Liverpool
AFP
Stemning Leikmenn Chelsea fagna Frank Lampard eftir að hann skoraði fjórða markið í gær, beint úr aukaspyrnu.
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2012
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sitt 7. mark í fjór-
tán leikjum með Swansea City á laugardaginn
þegar lið hans vann Blackburn Rovers mjög
sannfærandi, 3:0, í ensku úrvalsdeildinni.
Markið, sem var hans fyrsta á heimavelli Swan-
sea, gerði hann með glæsilegu vinstrifótarskoti.
Gylfi átti síðan stærstan þátt í þriðja markinu
þegar hann skaut í stöngina en boltinn fór það-
an í varnarmann Blackburn og í netið og mark-
ið taldist því sjálfsmark. Með sigrinum gull-
tryggði Swansea sér áframhaldandi sæti í
deildinni en framganga liðsins hefur komið
geysilega á óvart og ekki síst frábær fótbolti
sem liðið spilar.
Gylfi fékk enn og aftur góða dóma fyrir sína
frammistöðu og Sky Sports
valdi hann m.a. mann leiks-
ins og gaf honum 9 í ein-
kunn. Walesonline gaf Gylfa
8 í einkunn og hann var
næsthæstur leikmanna
Swansea, á eftir Scott
Sinclair sem lagði upp tvö
mörk í leiknum.
Gylfi er nú orðinn annar
markahæsti leikmaður liðs-
ins í deildinni þrátt fyrir að
hafa spilað innan við helming leikja þess á tíma-
bilinu. Danny Graham er með 10 mörk í 32 leikj-
um og Sinclair 7 mörk í 34 leikjum. vs@mbl.is
Sjö mörk Gylfa í fjórtán leikjum
Gylfi Þór
Sigurðsson
Cristiano Ronaldo setti markamet í spænsku
1. deildinni í knattspyrnu á laugardags-
kvöldið og Lionel Messi jafnaði það tveimur
klukkustundum síðar!
Ronaldo skoraði eitt mark þegar Real Ma-
drid vann Sporting Gijon, 3:1, og það var
hans 41. mark í deildinni í vetur, sem er nýtt
met.
Síðar um kvöldið knúði Barceona fram
nauman útisigur á Levante, 2:1. Lionel Messi
skoraði bæði mörkin, það síðara úr umdeildri
vítaspyrnu, og þar með var hann líka búinn
að skora 41 mark í vetur og jafnaði marka-
metið.
Messi hefur nú skorað samtals 63 mörk á
tímabilinu og Ronaldo 53.
Sigrar beggja liða þýða
að áfram munar á þeim
fjórum stigum, og þau
mætast í næstu umferð, á
Camp Nou á laugardags-
kvöldið. Barcelona verður
að vinna þann leik og
treysta á að Real Madrid
misstígi sig einu sinni í
þeim fjórum umferðum
sem þá verða eftir í deild-
inni. Útileikir Real á lokakaflanum eru við
Athletic Bilbao og Granada en heimaleikir
við Sevilla og Mallorca. vs@mbl.is
Ronaldo og Messi deila markameti
Lionel
Messi
Heiðar Helgu-son lék á
laugardaginn
sinn fyrsta leik
með QPR í ensku
úrvalsdeildinni í
knattspyrnu síð-
an hann meiddist
í janúar. Heiðar
kom inná sem
varamaður á 76. mínútu þegar Lund-
únaliðið tapaði 1:0 fyrir WBA á úti-
velli. Þrátt fyrir fjarveruna og að
þetta var aðeins 16. leikur Heiðars í
vetur, af 34 leikjum QPR, er hann
enn markahæsti leikmaður liðsins í
deildinni með 8 mörk. QPR er í enn
meiri fallhættu eftir þennan ósigur,
enda þótt liðið sé tveimur stigum fyr-
ir ofan fallsætið. Næstur á eftir
Heiðari hjá QPR er Jamie Mackie
með 6 mörk í 27 leikjum.
Blackburn er líka í mjög erfiðristöðu eftir ósigurinn gegn
Swansea, 3:0. Steve Kean, knatt-
spyrnustjóri, sagði eftir tapið að lið
sitt yrði að fá lágmark sjö stig úr síð-
ustu fjórum leikjunum til að eiga ein-
hverja möguleika á að forðast fall.
Blackburn mætir bæði Tottenham
og Chelsea á útivöllum á lokasprett-
inum og róðurinn er því þungur.
Grétar Rafn Steinsson og félagarí Bolton spiluðu ekki um
helgina en þeir sitja í fallsæti, því
þriðja neðsta. Þeir eiga hinsvegar
tvo leiki til góða á flesta keppinaut-
ana og eiga þrjá af næstu fimm leikj-
um á heimavelli, gegn Swansea,
Tottenham og WBA.
Aron EinarGunnarsson
og félagar í Car-
diff eru allir að
braggast eftir erf-
iðar vikur und-
anfarið. Þeir unnu
Barnsley 1:0 á
útivelli á laug-
ardaginn og
styrktu stöðu sína í sjötta sætinu.
Cardiff á eftir heimaleiki við Derby
og Leeds og útileik við Crystal Pa-
lace í síðustu þremur umferðunum.
Liðið er í hörðum slag við Birm-
ingham, Blackpool og Middles-
brough um þrjú sæti í umspilinu en
Brighton er líklega úr leik eftir skell
gegn West Ham á laugardaginn, 6:0.
Sölvi GeirOttesen var
á meðal marka-
skorara FC Kö-
benhavn í gær
þegar liðið vann
stórsigur á úti-
velli, 5:0, á botn-
liðinu HB Köge í
dönsku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu. Sölvi kom meisturunum í 3:0
á 71. mínútu leiksins en hann og
Ragnar Sigurðsson léku allan leik-
inn hlið við hlið í miðvarðastöðunum
hjá FC Köbenhavn sem er með sex
stiga forystu í deildinni þegar sjö
umferðum er ólokið.
Fólk sport@mbl.is
Tíu mörk samanlagt var uppskeran
hjá Manchester-liðunum um
helgina þar sem þau héldu áfram
einvígi sínu um enska meistaratit-
ilinn í knattspyrnu. City fór ham-
förum gegn Norwich á útivelli á
laugardaginn, vann þar 6:1, og
United var ekki í vandræðum með
að sigra Aston Villa 4:0 á Old Traf-
ford í gær.
Áfram skilja því fimm stig liðin
að þegar fjórum umferðum er ólok-
ið. Markatalan er City í hag, það
getur reynst dýr-
mætt, takist lið-
inu að vinna upp
muninn. Stóri
slagur liðanna
verður á Etihad-
leikvangi City
mánudaginn 30.
apríl en í millitíð-
inni spila þau
sinn leikinn
hvort, United við
Everton á heimavelli og City við
botnlið Wolves á útivelli. Það eru
því talsverðar líkur á að fimm stiga
munurinn verði enn við lýði þegar
kemur að baráttunni um Manchest-
er-borg.
Carlos Tévez minnti heldur betur
á sig á laugardaginn með því að
skora þrennu gegn Norwich, auk
þess að leggja upp mark fyrir Ser-
gio Agüero. Wayne Rooney skoraði
tvö marka United gegn Aston Villa
í gær og þeir Danny Welbeck og
Nani sitt markið hvor.
Lokasprettur liðanna er svona:
35. umferð:
Man. Utd – Everton
Wolves – Man. City
36. umferð:
Man. City – Man. Utd
37. umferð:
Newcastle – Man. City
Man. Utd – Swansea
38. umferð:
Man. City – QPR
Sunderland – Man. Utd
vs@mbl.is
Tíu marka helgi í Manchester
Tévez með þrennu og Rooney með tvö Áfram 5 stiga munur og fjórar umferðir eftir
Carlos
Tévez