Morgunblaðið - 16.04.2012, Blaðsíða 8
Í VESTURBÆ
Kristinn Friðriksson
sport@mbl.is
Eftir að hafa framreitt hefnd sína
ískalda samkvæmt regluboðum
Gamla testamentisins mættu Þórs-
arar galvaskir í þriðja leik liðanna í
skjól frostsins til að stela heimavall-
arrétti KR-inga. Staðan var 1:1 og
eftir að hafa verið niðurlægðir í öðr-
um leik liðanna var ljóst að KR ætl-
aði að leita að sínu eigin ritningar-
réttlæti í þessum þriðja og klárlega
mikilvægasta leik seríunnar. Yfir-
burðir annars liðsins, í einum leik í
svona seríu, getur virkað sem sál-
fræðilegt vopn; ef síðasta tap KR
hafði engin áhrif á liðið, hefði liðið átt
að koma með sína eigin stríðsexi í
hönd og sýna nýliðinum af hverju
þeir náðu heimavallarréttinum. Ef
hinsvegar áhrifin voru slæm er ljóst
að þessi leikur yrði töluvert erfiðari
og úrslit myndu ráðast á síðustu and-
artökum hans. Með öðrum orðum
var spurningin: Úr hverju er þetta
KR-lið gert? Granít kom ekki uppí
hugann því KR beið afhroð í þessum
leik gegn fáránlega sterkum Þórs-
urum, 86:100, í ójöfnum leik.
Þórsarar byrjuðu leikinn af offorsi
og Hrafn Kristjánsson sá sig til-
neyddan að taka leikhlé eftir fjög-
urra mínútna leik í stöðunni 4:13.
Varnarleikur KR batnaði lítillega en
sóknin var veikburða gegn firna-
sterkri vörn Þórsara. Fyrsti leikhluti
var allur Þórsara; 7 leikmenn þeirra
skoruðu og staðan 15:23.
Þórsarar héldu áfram að spila frá-
bæra vörn, náðu mest 17 stiga for-
ystu, á meðan ráðaleysi einkenndi
sóknarleik KR en varnarleikur
þeirra var heldur ekki neitt til að
hrópa húrra fyrir. Örugg forysta
gestanna var aldrei í hættu gegn
máttvana sóknartilburðum heima-
manna. Á síðustu mínútum fyrri
hálfleiks skiptu KR-ingar yfir í
svæðisvörn og freistuðu þess að láta
Þórsara skjóta meira fyrir utan;
þetta bragð virkaði, þó ekki eins vel
og KR vildi því staðan í hálfleik var
40:50, eftir enn annan ævintýraþrist
frá Joshua Brown á síðustu sekúnd-
unum. En að fá á sig 50 stig á heima-
velli er blóðugt í leik sem þessum.
Vörnin í skotgrafirnar
Flautukarfa Brown virtist hafa
létt á herðum heimamanna því þeir
voru fljótir að minnka muninn í 6 stig
og stemningin í húsinu orðin epísk.
Ferguson fékk hinsvegar sína
fimmtu villu í upphafi leikhlutans og
það setti damp á gleði KR-inga.
Þórsarar voru hinsvegar snöggir að
taka við stjórnartaumunum; vörnin
fór í skotgrafirnar og með Govens
fremstan í flokki settu þeir skotin sín
niður á meðan óðagot og stjórnleysi
virtist oftar en ekki einkenna sókn-
arleik KR. Þegar rúmar 3 mínútur
voru eftir af þriðja leikhluta var
munurinn aftur orðinn 17 stig og
ljóst að KR þurfti andlitslyftingu hjá
færum lýtalækni. Staðan eftir þrjá:
66:80.
Nýttu ekki ljósið í myrkrinu
Yfirburðir Þórs höfðu verið slíkir
að töluvert ímyndunarafl þurfti til að
sjá KR-inga koma sér aftur inní leik-
inn. Ljósið í myrkri KR var villu-
vandræði gestanna; Baldur kominn
með 5, Guðmundur og Govens 4,
Grétar 3. Þetta nýttu KR-ingar sér
ekki, heldur voru það gestirnir sem
settu skot sín ofaní á þeim augna-
blikum sem voru góð tækifæri KR til
að koma sér aftur inní leikinn. Í
sóknarleik KR var lélegt ein-
staklingsframtak, slök hittni og al-
mennt sóknargetuleysi var einkenn-
andi og þegar 3 mínútur voru eftir
var staðan 76:90 og vonleysi í augum
KR-inga, eitthvað sem taflan end-
urspeglaði í lok leiks, 86:100. Sann-
gjarn yfirburðasigur gestanna aldrei
í hættu og staðan 1:2 í einvíginu.
Þórsarar sýndu landsmönnum í
þessum leik að það er engin tilviljun
að þeir völtuðu yfir KR í leik númer
tvö; í gær undirstrikuðu þeir varnar-
yfirburði sína gagnvart sóknargetu
KR-liðsins og unnu afar sannfærandi
sigur í öðrum leiknum í röð. Allt liðið
spilaði frábæra vörn, sem var grunn-
urinn, en sóknarleikur Govens, Guð-
mundar, Janev og Darra var til fyr-
irmyndar en góður sóknarleikur
liðsins á mikilvægum kafla í þriðja
leikhluta hryggbraut KR og lokaði
leiknum. Frábær leikur hjá nýlið-
unum sem eru vel að þessu komnir.
Hugarfar KR til skammar
Algjör andleg brotlending! Hug-
arfar KR var hreinlega til skammar,
að koma ekki betur undirbúnir á
heimavöll sinn eftir niðurlægingu
annars leiks er óafsakanlegt hjá
ríkjandi Íslandsmeisturum. Varn-
arleikur liðsins var til skammar og
almennt getuleysi í sókninni er mér
hreint óskiljanlegt því ekki skortir
hæfileikana þar. Þó Brown hafi skor-
að 34 stig rak hann knöttinn alltof
mikið og tók upp sólóplötuna sína;
hann var með 4 stoðendingar og ekki
eina slíka í síðasta fjórðung. Baráttu-
og andleysi einkenndi KR-liðið; leik-
menn virtust vera að bíða eftir ein-
hverjum Messíasi til að fylgja sér
undir 10 stiga múrinn. Finnur átti
einn viðunandi leik og svarið við
spurningunni, úr hverju er liðið gert,
liggur nú hjá leikmönnum KR og
fróðlegt að sjá hvernig þeir svara al-
þjóð.
Þórsarar
fáránlega
sterkir
Fjórtán stiga sigur í Vesturbænum
Geta afgreitt einvígið í Þorlákshöfn
Morgunblaðið/Golli
Öflugir Þórsararnir Baldur Þór Ragnarsson og Grétar Ingi Erlendsson hafa
betur í baráttu við KR-inginn Jón Orra Kristjánsson í Vesturbænum.
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2012
Lífið er litríkt
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
60 ára reynsla á Íslandi
Fæst í eftirfarandi verslunum:
Húsasmiðjunni
ELKO
Byggt og Búið
Geisla Vestmannaeyjum
DHL-höllin, undanúrslit karla í körfu-
bolta, 3. leikur, sunnudag 15. apríl.
Gangur leiksins: 2:5, 7:13, 11:18,
15:23, 19:31, 25:35, 30:42, 40:50,
44:53, 48:61, 54:69, 66:80, 72:82,
74:89, 76:90, 86:100.
KR: Joshua Brown 34/5 fráköst, Dej-
an Sencanski 13/7 fráköst, Finnur
Atli Magnússon 11/14 fráköst/4 var-
in skot, Hreggviður Magnússon 11/4
fráköst, Jón Orri Kristjánsson 6/4
fráköst, Martin Hermannsson 5, Emil
Þór Jóhannsson 4, Robert Lavon
Ferguson 2/4 fráköst.
Fráköst: 21 í vörn, 18 í sókn.
Þór: Darrin Govens 29/13 fráköst/9
stoðsendingar, Blagoj Janev 18, Guð-
mundur Jónsson 16, Darri Hilm-
arsson 14/9 fráköst, Joseph Henley
12/6 fráköst, Baldur Þór Ragnarsson
6, Grétar Ingi Erlendsson 4, Þor-
steinn Már Ragnarsson 1.
Fráköst: 23 í vörn, 14 í sókn.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson,
Einar Þór Skarphéðinsson.
Áhorfendur: Um 1.500.
Staðan er 2:1 fyrir Þór og fjórði
leikur í Þorlákshöfn á miðvikudag.
KR – Þór Þ. 86:100
Þórður Guðjónsson framkvæmda-
stjóri knattspyrnudeildar ÍA segir
ekkert hafa breyst í ákvörðun fé-
lagsins að taka ekki þátt í átta liða
úrslitum Lengjubikarsins í knatt-
spyrnu.
ÍA vann sér keppnisrétt þar með
því að hafna í öðru sæti í sínum riðli
en liðið er nú statt á Spáni í æf-
ingaferð. Þaðan kemur hópurinn
ekki fyrr en á sunnudag eða fjórum
dögum eftir að leikurinn á að fara
fram. Þórður sagði það ekki gerlegt
að stytta ferðina enda félli þá allur
breytingakostnaður við flugið á leik-
mennina sjálfa.
„Við óskuðum eftir breyttri tíma-
setningu á þessum leik en móta-
nefnd KSÍ varð ekki við þeirri
beiðni.“ Spurður af hverju liðið væri
samt sem áður skráð til leiks gegn
Val á miðvikudaginn á vef KSÍ
sagði Þórður. „Við erum í rauninni
bara að bíða eftir því að landa þessu
máli með sambandinu sem verður
líklegast á morgun [í dag].“
ÍA átti að mæta Val
Samkvæmt niðurröðun KSÍ á ÍA
að taka á móti Val í átta liða úrslit-
unum í Akraneshöllinni á mið-
vikudagskvöldið. Væntanlega kem-
ur það í hlut Víkinga úr Reykjavík,
sem urðu næstir
á eftir Skaga-
mönnum í riðl-
inum, að taka
sæti þeirra í úr-
slitakeppninni og
leika við Vals-
menn.
Leikirnir í 8
liða úrslitum eru
annars þessir:
Keflavík –
Breiðablik, miðvikudag kl. 19 í
Reykjaneshöll.
KR – FH, fimmtudag kl. 14 á
KR-vellinum.
Fram – Þór, fimmtudag kl. 14 á
Framvellinum í Úlfarsárdal.
Undanúrslitin eru síðan leikin á
mánudaginn kemur, 23. apríl, og úr-
slitaleikurinn á að fara fram í Kórn-
um í Kópavogi laugardaginn 28.
apríl, átta dögum áður en Íslands-
mótið hefst.
Riðlakeppni deildabikarsins lauk
um helgina þar sem Breiðablik og
Þór urðu síðustu liðin til að tryggja
sér sæti í átta liða úrslitunum.
Breiðablik með 1:1 jafntefli gegn
Víkingi frá Ólafsvík en Þór án þess
að spila. Öll úrslit, markaskorara og
lokastöður er að finna á bls. 6.
omt@mbl.is/vs@mbl.is
Ekkert breyst með
ákvörðun hjá ÍA
Verður ekki með í 8 liða úrslitum
Þórður
Guðjónsson