SunnudagsMogginn - 22.04.2012, Síða 45
22. apríl 2012 45
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
RÚRÍ YFIRLITSSÝNING
3.3. - 6.5. 2012
Rúrí áritar yfirlitsbók sína kl. 14-16 á sunnudag.
Barnamenningarhátíð í Listasafni Íslands
Fjölskyldusmiðjur á laugardag kl. 13-15 og sunnudag kl. 14
Ókeypis fyrir fullorðna í fylgd barna.
SAFNBÚÐ, Fermingar- og útskriftartilboð á útgáfum safnsins.
SÚPUBARINN, 2. hæð. Hollt og gott allan daginn!
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600,
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
Allir velkomnir! www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands
frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar
um þróun íslenskrar myndlistar.
„Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“
Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar,
undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar.
Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri.
Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna.
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn Reykjanesbæjar
TILVIST – BEING HERE
Jón Axel Björnsson
Leiðsögn listamannsins
sunnudaginn
22. apríl kl. 14.00
Sýningin stendur til 6. maí
Opið virka daga 12.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Fjölbreyttar sýningar:
Björgunarafrekið við Látrabjarg – ljósmyndir Óskars Gíslasonar
Aðventa á Fjöllum – ljósmyndir Sigurjóns Péturssonar
TÍZKA – kjólar og korselett
Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur
Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár
Einvígi aldarinnar. Fischer og Spassky – 40 ár
Kvikmyndasýning sunnudaginn 22. apríl kl. 15:
Björgunarafrekið við Látrabjarg
Spennandi safnbúð og Kaffitár
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið þriðjudaga-sunnudaga kl. 11-17. Lokað á mánudögum
Laugardaginn 21. apríl kl. 15
Ný sýning verður opnuð
Hafnarborgin
Hrafnkell Sigurðsson
21. apríl - 28. maí
List án landamæra
Skjaldarmerkið hennar Skjöldu
Atli Viðar Engilbertsson
19. apríl - 29. apríl
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is sími 585 5790
- Aðgangur ókeypis
Húsið á Eyrarbakka
Hveitipoki verður kjóll
Einstakar systur breyttu
hveitipokum í litríkar
hippamussur og -kjóla
Opið allar helgar
í apríl kl. 14-17
www.husid.com
Núningur/Friction
Listin í borginni og borgin í
listinni
Sunnudaginn 22. apríl kl. 15-16
munu þeir Gunnar J. Árnason og
Hjálmar Sveinsson flytja stutt
erindi um „Myndlistina í borginni
- borgina í myndlistinni“
ásamt því að ræða við gesti
Opið 13-17, nema mánudaga.
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
Aðgangur ókeypis.
LISTASAFN ASÍ
SJÁLFSAGÐIR HLUTIR
(10.2.- 20.5. 2012)
FINGRAMÁL (21.3.–20.5.)
Mundi, Volki, Hrafnhildur Arnardóttir aka
Shoplifter, Erna Einarsdóttir,
Bergþóra Guðnadóttir, Aftur
Opið alla daga
nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í anddyri.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
ÁSJÓNA
Verk úr safneign
Kaffistofa – Leskró – Barnakró
Opið fim.-sun. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
Fyrir áhugamenn umgamlar bækur eru fáirstaðir jafn spennandi,og jafn hættulegir, og
Góði hirðirinn. Spenna og hætta
eru kannski ekki hugtök sem
flestir setja í samhengi við
nytjamarkað fyrir gamla hluti,
en ef maður hefur yndi af bók-
um getur verið æði spennandi
að gramsa þar í gegnum þann
aragrúa sem þangað ratar. Oft
geta þá ratað uppí hendurnar á
bókhneigðum litlir fjársjóðir,
skrýtnar og skemmtilegar bæk-
ur, eða annað sem kveikir í les-
andanum áhuga á hinum furðu-
legustu málum. Og það getur
verið
hættulegt
fyrir þá
sem hafa,
ég segi
ekki
söfn-
unarár-
áttu, en
a.m.k. sjá
varð-
veislu-
gildi í því
sem sést
ekki
mikið af í
hvers-
dagslífinu. Sérstaklega ef efnið
virðist við fyrstu sýn áhugavert
og maður hugsar með sjálfum
sér: ,,Já, þetta væri gaman að
lesa einhvern tímann við tæki-
færi.“ En síðan áttar maður sig á
því að það sé nú ólíklegt að þessi
bók rati aftur upp í hendur
manns svo á endanum verður
niðurstaðan að grípa hana með,
þetta er nú eftir allt saman svo
svakalega ódýrt. Og þá meina ég
ódýrt, heill poki af bókum
kannski á 500 kall.
Þannig atvikaðist það að
bókakostur minn fór að aukast
mikið fljótlega eftir að svo vildi
til að ég fluttist í næsta nágrenni
við þessa kostabúð, og var þó
veglegur fyrir. Nokkur söfn
voru fullkomnuð, það sem
vantaði inní uppáhalds-
bókaflokkana úr æsku, tíma-
laust gæðaefni eins og Lukku
Láki, Tinni o.s.frv. voru fljót að
koma. Síðan fóru að rata heim
bækur um þjóðmál og fræðiefni
ásamt aragrúa af skáldsögum
sem fóru að taka aðeins of mikið
pláss á heimilinu. Og í því lá
hættan, bækur taka mikið pláss
og ef þetta héldi svona áfram
gæti ég aldrei komist yfir að lesa
allt, hvað þá að koma því fyrir.
Grams
í bók-
um
’
Fyrir
áhuga-
menn
um gamlar
bækur eru fá-
ir staðir jafn
spennandi,
og jafn
hættulegir, og
Góði hirð-
irinn.
Orðanna
hljóðan
Höskuldur
Marselíusarson
hoskuldurm@gmail.com
Þ
að er svo misjafnt hverju fólk er að
leita eftir þegar það sest niður með
bók í hönd. Að verða fyrir áhrifum,
að kynnast einhverju nýju eða að fá
að gleyma raunveruleikanum um stund.
Skemmtilegast er þegar bókin grípur les-
andann þannig að hann vill helst ekki leggja
hana frá sér. Það tekst Dorothy Koomson að
gera í þetta skiptið, eins og svo oft áður.
Konan sem hann elskaði áður er bók sem
uppfyllir allar þarfir þess lesanda sem vill að
bókin heltaki sig án þess þó að vera of þung
eða fræðileg.
Í Konan sem hann elskaði áður er fjallað
um Libby sem er ástfangin af hinum
heillandi og myndarlega Jack, sem er
reyndar ekki hennar týpa. Hún fellur því
ekki svo auðveldlega fyrir töfrum hans en
hann nær að heilla hana að lokum. Þegar
Libby kynnist Jack enn betur og fréttir að
fyrri kona hans, Eva, lést á voveiflegan hátt
þá grennslast Libby fyrir um fortíð kon-
unnar sem Jack elskaði áður. Það kemur
ýmislegt í ljós þegar Libby gruflar í fortíð-
inni og ekki líður á löngu þar til hún fer að
óttast um eigið líf.
Dorothy Koomson hefur samið sjö bækur
og Konan sem hann elskaði áður er fjórða
bókin sem kemur út í íslenskri þýðingu.
Rétt eins og aðrar bækur Dorothy Koomson
er bókin þægileg aflestrar og skemmtileg.
Þannig er nánast ómögulegt að leggja hana
frá sér fyrr en búið er að lesa hana til enda.
Höfundurinn nær slíku tangarhaldi á les-
andanum að hann vill alltaf vita meira og
meira um hina ákveðnu Libby, ástríðufullu
Evu og dularfulla Jack. Persónusköpunin er
góð og það er auðvelt að heillast af söguhetj-
unum, sem og að lifa sig inn í söguna. Bókin
skilur reyndar ekki mikið eftir sig en gerir
sannarlega sitt gagn, að skemmta lesand-
anum, halda honum hugföngnum og víkka
út sjóndeildarhring hans.
Grípandi og þægileg aflestrar
Rithöfundurinn Dorothy Koomson hefur gefið út
sjö bækur og fjórar þeirra komið út á íslensku.
Bækur
Konan sem hann elskaði áður
bbbmn
Eftir Dorothy Koomson
Forlagið, 2012, 544 bls. kilja.
Svanhvít Ljósbjörg