Morgunblaðið - 07.05.2012, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 7. M A Í 2 0 1 2
Stofnað 1913 106. tölublað 100. árgangur
BYGGIR Á MINN-
INGUM UM
TILFINNINGAR
NÁGRANNADEILUR
UM TRJÁGRÓÐUR
LÍFIÐ Á ÍSLANDI ER
AFAR ÓLÍKT
LÍFINU Á BALÍ
MARGIR KVARTA VEGNA ASPA 12 TVEIR HEIMAR 10BENJAMÍN DÚFA 26
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslandsmeistarar HK varð Íslands-
meistari í handbolta í fyrsta sinn
HK hampaði sínum fyrsta Íslands-
meistaratitli í handbolta þegar liðið
vann FH í þriðja sinn í röð. Verð-
skuldaður sigur félagsins er sér-
staklega athyglisverður fyrir þær
sakir að það fór taplaust í gegnum
úrslitakeppnina og vann alla sex
leiki sína. HK tryggði titilinn með
tveggja marka sigri á FH í Kapla-
krika, 26-28. Liðið hélt frumkvæð-
inu allan leikinn. „Það er hreint
ótrúlegt að rúlla upp úrslitakeppn-
inni sex núll, tapa ekki leik,“ sagði
Ólafur Bjarki Ragnarsson, leik-
maður HK. » Íþróttir
HK fagnar
fyrsta meist-
aratitlinum
Fjárhagur sókna
» Sóknargjöldin sem í raun eru
félagsgjöld sóknarbarna hafa
verið skert fjórðungi meira en
aðrar fjárveitingar á fjárlögum.
» Þau eiga að standa undir
kirkjubyggingum, viðhaldi og
rekstri og margvíslegu starfi
svo sem barna- og unglinga-
starfi, tónlistarstarfi, kærleiks-
starfi og hjálparstarfi.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Draga þarf enn frekar saman mik-
ilvæga starfsemi sem sinnt er á veg-
um safnaða þjóðkirkjunnar, ef ríkið
heldur áfram að taka til sín jafn
stóran hluta sóknargjaldanna og
það hefur gert frá hruni. Aðeins
verður hægt að sinna lágmarks
helgihaldi og þeirri boðun og
fræðslu sem prestarnir sjálfir geta
komist yfir.
Kemur þetta fram í niðurstöðum
skýrslu um áhrif skerðingar sókn-
argjalda á starfsemi sókna sem
gerð hefur verið fyrir innanríkis-
ráðuneytið.
„Þetta bitnar á því almenna safn-
aðarstarfi sem hefur verið byggt
upp smám saman á undanförnum
árum og því starfi sem laðar að fólk
sem ekki leitar annað. Það er alvar-
legt,“ segir Pétur Pétursson, pró-
fessor við guðfræði- og trúar-
bragðafræðideild Háskóla Íslands.
Hann telur að bregðast verði við
þessu með forgangsröðun og að efla
sjálfboðaliðastarf. Hann nefnir að
víða hafi djáknum verið sagt upp
störfum en þeir leiða félagslegt
starf safnaða, svo sem barna- og
unglingastarf. „Mér finnst það verst
að skorin hafi verið niður þau störf
sem virkilega reynir á í sambandi
við það hvernig fólk hefur það eftir
hrunið. Það hefði frekar átt að
fækka prestsembættum og fjölga
djáknum,“ segir Pétur.
Þá segir hann að finna þurfi leiðir
til að virkja foreldra og annað
áhugafólk innan safnaðanna til að
efla barnastarfið á ný.
MStoðir kirkjustarfs falla »4
Skorið harkalega niður
Niðurskurður sóknargjalda bitnar á starfi með börnum og öldruðum Prófess-
or í guðfræðideild segir að forgangsraða þurfi verkefnum og virkja sjálfboðaliða
Reuters
Fögnuður Nýkjörinn Frakklandsforseti, Francois Hollande, ávarpar stuðningsmenn sína.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Francois Hollande var kosinn forseti Frakk-
lands í forsetakosningum þar í landi í gær.
Sigraði hann andstæðing sinn, Nicolas Sar-
kozy, með 52% atkvæða. Hefur vinstrisinnaður
forseti ekki verið kosinn í landinu síðan á tíma
Mitterands. Seint í gærkvöldi ávarpaði Hol-
lande stuðningsmenn sína og sagði að þær
breytingar sem hann hefði lofað myndu byrja
núna.
„Það er ekki eingöngu franska þjóðin sem
vill breytingar heldur heil hreyfing fólks sem
er tekin að rísa yfir gjörvalla Evrópu og jafn-
vel heiminn,“ sagði Hollande í ræðu sinni.
„Ég tel að það skipti máli fyrir Evrópu að
styrkja þau stjórnvöld sem hafa félagslegri
sjónarmið að leiðarljósi og vilja vinna að meiri
jöfnuði,“ segir Árni Þór Sigurðsson, þingmað-
ur VG og formaður utanríkismálanefndar Al-
þingis, um niðurstöður kosninganna. Talið er
að nokkur spenna gæti orðið á fyrsta fundi nýs
forseta Frakklands og Angelu Merkel, kansl-
ara Þýskalands. Eins gæti sigur Hollande haft
talsverð áhrif á hlutabréfamörkuðum. »15
„Breytingar byrja núna“
Francois Hollande kjörinn Frakklandsforseti
Fyrsti vinstrisinnaði forsetinn frá Mitterand
Knattspyrnuunnendur tóku gleði sína í gær þeg-
ar Íslandsmótið í fótbolta hófst með fimm leikj-
um. Íslandsmeistarar KR hófu tímabilið með
jafntefli gegn Stjörnunni úr Garðabæ. ÍA og Sel-
foss héldu upp á endurkomu sína í efstu deild
með sigrum á Breiðabliki og ÍBV. Eins og sjá má
var hart tekist á í jafnteflisleik Fylkis og Kefla-
víkur. Sama niðurstaða varð í leik FH og Grinda-
víkur. Í kvöld mætast Fram og Valur. » Íþróttir
Fótboltaveislan hafin eftir vetrarhlé og öllum er boðið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Til greina kemur að lækka veiði-
gjaldið frá núverandi tillögu, segja
stjórnarþingmenn. Ólína Þorvarð-
ardóttir segir að ef það verði gert
þurfi að hennar mati að gera einnig
breytingar á fiskveiðistjórnunar-
frumvarpinu, stækka leigupottinn,
skilja að veiði og vinnslu, setja
óunninn fisk á markað og skilyrða
nýtingarleyfin í lagatextanum. »2
Lægra gjald og
meira í pottana