Morgunblaðið - 08.05.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það þarf að huga að mörgu til að
tryggja að framkvæmd í jafn fjöl-
sóttu rými og Leifsstöð er gangi
upp. Verkkaupi, verktaki og hönn-
uðir þurfa að vera mjög samstiga.
Verktíminn er einnig mjög stuttur
og menn þurfa því að leggja sig alla
fram til að ljúka verkinu á tilsettum
tíma,“ segir Kári Arngrímsson, for-
stjóri verktakafyrirtækisins Atafls,
um yfirstandandi breytingar á flug-
stöð Leifs Eiríkssonar.
Að sögn Kára hófst verkið í apríl-
byrjun og á því að ljúka 1. ágúst.
Atafl átti lægsta tilboð í verkið en
gert er ráð fyrir að heildarkostn-
aður við það nemi 350 milljónum kr.
Tvö ný biðsvæði
Ráðist verður í stækkun annarrar
hæðar norðurbyggingar flug-
stöðvarinnar með svölum til aust-
urs. Verður þar komið fyrir bið-
svæði farþega en einnig
stendur til að koma fyrir bið-
svæði þar sem Panoramabar
er nú. Með biðsvæðunum
tveim er hægt að fjölga af-
greiðslustæðum farþega-
flugs við Leifsstöð úr 14 í
16 og er það gert til að
geta annað aukinni umferð
um völlinn á álagstímum,
að morgni og síðdegis. Þar
Undanfarin ár hefur Uppsala-
félagið með Árna Johnsen alþingis-
mann og Ómar Ragnarsson frétta-
mann í fararbroddi unnið að
endurbótum á bæ Gísla á Uppsölum
í Selárdal og sér nú fyrir endann á
þeim en stefnt er að því að ljúka
framkvæmdum í haust og opna safn
á bænum í kjölfarið.
Gísli Oktavíus Gíslason fæddist á
Uppsölum 29. október 1907 og bjó
þar alla tíð en hann lést árið 1986 á
sjúkrahúsinu á Patreksfirði 1986.
Hann varð landsfrægur þegar hann
birtist í Stiklum, sjónvarpsþætti
Ómars Ragnarsonar, á jóladag, 25.
desember, 1981.
Um 35 ár frá fyrstu kynnum
Árni Johnsen hefur farið fyrir
uppbyggingunni. Hann segir að
mikið starf hafi verið unnið á Upp-
sölum. Búið sé að skipta um glugga
og glerja, koma fyrir nýju þaki á
bænum og fleira. Hins vegar eigi
eftir að skipta um gólf og útihurð
og ganga frá ýmsu smávægilegu.
„Það er nokkurra daga vinna eft-
ir,“ segir hann og bætir við að á
áætlun sé að fara vestur í fjögurra
daga vinnuferð í haust og ganga þá
endanlega frá verkinu.
Sumarið 1977 var Árni blaða-
maður á Morgunblaðinu og tók þá
viðtal við Gísla fyrir blaðið. Hann
fékk þá Ómar Ragnarsson til þess
að fljúga með sig vestur og rúmum
fjórum árum síðar fór Ómar aftur
að Uppsölum til þess að taka viðtal
við Gísla fyrir fyrrnefndan Stiklu-
þátt. Gísli var einfari en læs og
skrifandi, las nótur og spilaði á org-
el auk þess sem hann orti ljóð, en
skáldskapur eftir hann kom út
1986. steinthor@mbl.is
Stefna að opnun
safns á Uppsölum
í Selárdal í haust
Ein vinnuferð eftir til þess að ljúka
viðgerðum á bæ Gísla á Uppsölum
Ljósmynd/Árni Johnsen
Einfari Gísli á Uppsölum.
Kvenfélagið Hringurinn hefur
ákveðið að veita sjötíu milljónir
króna til Barnaspítala Hringsins.
Barnaspítalasjóður Hringsins verð-
ur 70 ára hinn 14. júní næstkomandi
og á aðalfundi Hringsins 2. maí var
samþykkt að veita eina milljón fyrir
hvert ár til Barnaspítalans í tilefni af-
mælisins.
Valgerður Einarsdóttir, formaður
Hringsins, segir að það sé Barnaspít-
alans að ákveða í hvað upphæðin fer.
„Við gefum vanalega búnað eða tæki,
ekki fjárupphæð, en það verður fund-
ið út úr því með spítalanum í hvað
þetta fer,“ segir Valgerður.
Styrkveitingar Hringsins á síðasta
ári námu tæplega 49 milljónum
króna. Stærsti styrkurinn var til
stækkunar stjórnstöðva, kaupa á 10
monitorum og fylgihluta til Barna-
spítala Hringsins.
Stórkostleg gjöf
Jón Hilmar Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs
Landspítalans, segir að þetta sé stór-
kostleg gjöf sem hafi komið á óvart.
„Þær gefa okkur svo mikið. Oftast er
það þannig að við óskum eftir styrk
til ákveðna verkefna en stundum
hafa þær gefið afmælisgjafir, eins og
þessa, sem þær ákveða sjálfar að
gefa, ekki að ósk okkar.“
Jón segir að eftir eigi að ræða
hvernig gjöfinni verði ráðstafað inn-
an Barnaspítalans. „Þetta mun koma
sér mjög vel eins og alltaf. Hring-
urinn, og aðrir velgjörðarmenn, hef-
ur verið velviljaður Barnaspítalan-
um. Við erum mjög vel útbúin vegna
Hringsins og hann gefur líka öðrum
deildum spítalans ef það eru tæki og
búnaður sem varðar börn.“
Kvenfélagið Hringurinn var stofn-
að árið 1904 og hefur félagið að
markmiði að vinna að líknar- og
mannúðarmálum, sérstaklega í þágu
barna. Fjáröflunarleiðirnar eru
söfnunarbaukar, jólakaffi og happ-
drætti, jólabasar, minningarkort,
sem seld eru allt árið, jólakort og
veitingasala í Barnaspítalanum.
ingveldur@mbl.is
Gefa Barnaspítalanum 70 milljónir
Kvenfélagið Hringurinn veitir veglega úr Barnaspítalasjóðnum vegna 70 ára afmælis hans 14. júní
Ekki er búið að ákveða hvernig gjöfinni verður ráðstafað innan Barnaspítala Hringsins
Morgunblaðið/RAX
Barnaspítalinn Gjafir Kvenfélagsins Hringsins eru lífsbjörg margra.
Fyrir tveim árum, nánar tiltekið 17. maí 2010, birtist frétt á forsíðu
Morgunblaðsins um samdrátt í umferð ferðamanna um Leifsstöð.
Kom fram að veltutap Fríhafnarinnar og annarrar starfsemi í Leifs-
stöð væri áætlað um 12-14 milljónir kr. fyrir hvern dag sem lokað
hafði verið vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Farþegum sem fóru um
Leifsstöð í apríl það ár hefði fækkað um 22% frá apríl 2009.
Fróðlegt er að bera þessa niðursveiflufrétt saman við frétt í Morgun-
blaðinu um síðustu helgi þess efnis að 37.000 erlendir ferðamenn hefðu
farið frá landinu um Leifsstöð í nýliðnum apríl, eða um 5.000 fleiri en í
apríl 2011. Ferðamenn í apríl voru 16,5% fleiri en í apríl í fyrra. Til sam-
anburðar hefur aukningin verið að jafnaði 8,2% milli ára í mánuðinum á
því ellefu ára tímabili sem Ferðamálastofa hefur talið ferðamenn í Leifs-
stöð.
Mikil umskipti frá 2010
GOSIÐ Í EYJAFJALLAJÖKLI GERÐI STRIK Í REIKNINGINN
sem ekki eru landgöngubrýr út í
nýju afgreiðslustæðin tvö þarf að
aka farþegum að flugvélunum.
Verður því reist upphitað stiga-
hús með lyftu á bak við verslunina
Elkó þar sem jafnframt verður bið-
salur.
Yfirbyggt göngusvæði
Kallar það á stækkun flugstöðvar-
innar til austurs. Þegar komið er á
jarðhæð tekur við yfirbyggt göngu-
svæði á flughlaði sem leiðir farþega
frá stigahúsi að skýli fyrir rútur sem
flytja farþega síðasta spölinn.
Stækkuninni fylgja ýmsar aðrar
breytingar í flugstöðinni, s.s. breyt-
ingar á vörumóttöku til þess að auð-
velda aðgengi komufarþega inn í
töskusal á fyrstu hæð.
Gengið er út frá því að biðsalurinn
á bak við Elkó verði tekinn í gagnið í
sumar en að síðari salurinn bætist
við sumarið 2013 þar sem Pano-
ramabar er nú, að því gefnu að spár
um áframhaldandi aukningu í far-
þegaflugi gangi eftir. Loks verða
gerðar breytingar á vörumóttöku til
þess að greiða fyrir aðgengi komu-
farþega inn í töskusal á fyrstu hæð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á leið í flug Gerðir verða tveir nýir biðsalir í norðurhluta flugstöðvarbyggingarinnar.
Leifsstöð stækkuð
um tvö flughlið
Farþegum verður ekið í rútu að nýjum flugvélastæðum
www.golfkortid.is
Einstaklingskort
9.000 kr.
Fjölskyldukort
14.000 kr.
golfvöllur
- eitt kort31